Morgunblaðið - 16.01.1994, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
Eitt af
stórmennum
aldarinnar
eftir Trausto Ólafsson
GÍGUR einn á stjörnunni Venus er kenndur við norsku skáld-
konuna Sigrid Undset. Tordis Grjasæter hlaut á liðnu ári verð-
laun norskra bókaútgefenda fyrir bók sína Hjörtu mannanna,
en hún fjallar um ævi þessarar þekktu skáldkonu. Tordis seg-
ir að Sigrid hefði orðið hreykin af nafngiftinni á gígnum á
Venus. Sjálf var Sigrid skapheit kona og skapandi, oft eins
og virkur gígur á eldfjalli, sem gat gosið hvenær sem var.
Sigrid Undset hlaut Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum
árið 1928. Þegar hún kom
heim til Lillehammer eftir
að hafa tekið við verðlaununum
hugðist bæjarstjórnin í Lillehammer
heiðra hana með hátíðarkvöldverði.
En skáldkonan færðist undan, bað
um að andvirði veislunnar yrði bætt
við framlag til aðstoðar við fátæka
í bænum.
„Sigrid Undset stóð á fertugu þeg-
ar Krossinn, síðasta bókin í- trílóg-
íunni um Kristínu Lafransdóttur,
kom út,“ segir Tordis Orjasæter. „I
Krossinum lýsir hún sálarlífi konu
sem komin er á efri ár. Eftir að ég
sjáif komst á þennan aldur er mér
ljóst að sú lýsing er jafnnæm og
. sett fram af jafnmiklu innsæi og lýs-
ingin á ungu stúlkunni í Kransinum,
sögunni um æskuár Kristínar, sem
ég hreifst svo mjög af á unglingsár-
um. Ég hef oft undrast það hvemig
Sigrid Undset á svo ungum aldri gat
þekkt kvensálina á öllum aldurs-
skeiðum jafn vel og bækur hennar
um Kristínu Lafransdóttur bera vitni
um.“
Fýrsta bók Sigrid Undset kom út
árið 1907 en hún vakti fyrst verulega
athygli sem höfundur með skáldsög-
unni Jenny árið 1911. Allar götur
síðan hefur Sigrid verið meðal um-
töluðustu höfunda í heimalandi sínu.
Frá því að henni voru veitt Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum hefur hróð-
ur hennar borist um víða veröld, og
um skeið var hún meðal vinsælustu
höfunda hérlendis. Eins og að líkum
lætur skipta því þær bækur sem
skrifaðar hafa verið um Sigrid Und-
set og verk hennar mörgum tugum.
Hvað ætli hafi orðið til þess að Tor-
dis tók til við að skrifa enn eina
bókina um þessa skáldkonu sem lést
fyrir rúmum íjörutíu árum?
„Áhuginn dreif mig áfram,“ segir
Tordis. „Frá því að ég komst til vits
og ára hafa bækur Sigrid Undset
verið mér hugleiknar og mér varð
snemma ljóst að einkalíf hennar var
frásagnarvert. Sigrid Undset átti
erfiða ævi. Hún missti föður sinn sem
hún var ákaflega hænd að á við-
kvæmum aldri og hún varð fyrir
miklum vonbrigðum með eiginmann
sinn, norska málarann Anders Cast-
us Svarstad. Með Svarstad eignaðist
hún þijú börn. Miðbamið var stúlka
sem þroskaðist ekki andlega. Það var
erfið reynsla fyrir Sigrid eins og það
Tordis Oijasæter
Viötal við Tordis
Orjasæter um
bók hennar um
Sigrid Undset
er ævinlega fyrir foreldra þroska-
heftra bama. Áhugi minn á Sigrid
Undset og ævi hennar jókst mjög
eftir að ég sjálf eignaðist einhverfan
dreng. Ekki svo að skilja að þessi
sameiginlega reynsla hafi verið aðal-
atriði fyrir mér, en hinu leyni ég
ekki að ég dáist að því hve framsýn
og langt á undan sinni samtíð Sigrid
Sigrid Undset ferðbúin á Ieið til Stokkhólms að taka við Nóbelsverð-
laununum.
var hvað skoðanir á málefnum
þroskaheftra varðar. Langmestum
hluta Nóbelsverðlaunanna varði hún
til þess að stofna sjóð sem hafði það
hlutverk að styrkja foreldra vangef-
inna barna til þess að hafa þau heima
hjá sér.
Á styijaldarárunum varð Sigrid
að flýja Noreg undan þýska innrás-
ariiðinu. Fyrsti viðkomustaður henn-
ar á flóttanum var Stokkhólmur og
þegar þangað kom frétti hún að
Anders, elsti sonur hennar, hefði
fallið fyrir þýskri kúlu heima í Nor-
egi. Ævi hennar var því ákaflega
viðburðarík og ég gat ekki slitið mig
frá þessari sögu fyrr en ég hafði
lokið við að færa hana í letur sem
best ég kunni. í fyrstu ætlaði ég ein-
ungis að skrifa um æsku Sigrid
Undset, árin sem þessi greinda og
hæfileikaríka kona var að mótast.
En verkið óx í höndum mér og að
því loknu finnst mér ég skilja hvern-
ig skáldkonan öðlaðist þann þroska
og það mikla innsæi í mannlífið sem
bestu bækur hennar sýna.“
Tordis var í fimm ár að skrifa
bókina um Sigrid Undset. Hún leit-
aði víða fanga, las bréf skáldkonunn-
ar sem engir utan hennar nánustu
ijölskyldu höfðu áður fengið aðgang
að, og kynnti sér gögn á söfnum,
jafnt í Noregi og utan landsins.
„Þetta hefur verið óskaplega
skemmtilegur tími,“ segir Tordis „og
ég er enn altekin af þessari merki-
legu konu sem ég hef verið að skrifa
um. Mér finnst vinnan að þessari bók
hafa verið ákaflega gefandi fyrir mig
og ég gleðst innilega yfir þeim góðu
viðtökum sem bókin hefur fengið.
Mér er það sérstaklega mikils virði
að vita það að bókin er lesin. í mín-
um huga er Sigrid Undset ein af
stórmennum þessarar aldar. Fyrir
okkur hin er ætíð lærdómsríkt að
kynnast slíku fólki.“
□ HELGAFELL 5994011719
IVA/ 2
□ GIMLI 5994011719 III = 1
I.O.O.F. 10 = 1751178 = IE.
O MÍMIR 5994011719 I 1 Frl.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.00.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Munið bibliulestur sr. Halldórs
S. Gröndal miðvikudag kl. 18.00.
„Annan grundvöll getur enginn
lagt en þann, sem lagðurer, sem
er Jesús Krístur. “
I.O.O.F. 3 = 1751178 = E.l.
Auúlvrkka 2 . Kopmvaur
Sunnudagur: Samkoma í dag
kl. 16.30. Allir velkomnir.
Þriðjudagur: Bibliulestur kl.
20.30.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Hafliöi Kristinsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Hreinn Bernharðs-
son. Barnagæsla og barnasam-
koma á sama tíma. Allir hjartan-
lega velkomnir.
fíimhjálp
Almenn samkoma í Þríbúðum í
dag kl. 16.00. Mikill söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Vitnisburðir. Barnagæsla.
Ræðumaður Hafliði Kristins-
son. Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Frá Sálar-
rannsókna-
félagi íslands
„Litir Ijóss, hugarog
handa"
Námskeið undir
leiðsögn Helgu
Sigurðardóttur
verður haldið 21.
og 22. janúar.
Helga er þekktur
listamaður Sem
málar myndir í
dulrænum stfl.
Hún kennir þátttakendum að
komast í samband við ínnri vit-
und, skynja hvaða áhrif litir hafa
á einstaklinginn og hvernig við
getum notaö liti í daglegu lífi.
Bókanir í símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
auglýsingor
SÍK, KFUM, KFUK, KSH
Stórsamkoma
verður í Breiðholtskirkju í dag
kl. 17.00. Bænasamkomur á
sama tíma. Ragnhildur Ásgeirs-
dóttir hefur upphafsorð og sr.
Gísli Jónasson talar. Samkoman
er öllurrr opin.
Samkoma f Breiðholtskirkju í
kvöld kl. 20.30. Eirný Ásgeirs-
dóttir prédikar. Söngur, lofgjörð
og fyrirbænir.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavík.
Samkoma kl. 11.00 árdegis.
Jesús Kristur er svarið.
Allir velkomnir.
*Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
Sunnudagur 16. jan. kl. 11:
Helgunarsamkoma og sunnu-
dagaskóli. Lt. Sven Fosse talar.
Kl. 20.00: Samkirkjuleg sam-
koma. Sr. Hjalti Guðmundsson
talar. Kvartett aðventista og
Guðný og drengirnir flytja tón-
list.
Velkomin á Her.
Mánudagur 17. jan. kl. 16:
Heimilasamband.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Allir hjartan-
lega velkomnir! Sjónvarpsút-
sending á OMEGA kl. 16.30.
Hugræktarnámskeið
Ný námskeið hefjast þann 22.
jan. Vekur athygli á leiðum til jaf n-
vægis og innri friðar. Kennd er
hugrækt og hugleiðing og veittar
leiðbeiningar um iðkun yoga.
Kristján Fr. Guðmundsson,
sími 50166.
UTIVIST
'Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnud. 16. jan.
Kl. 10.30 Lýðveldisgangan.
Gangan hefst við Ingólfstorg,
gengið upp Þingholti, og sfðan
með ströndinni út í Laugarnes
og lýkur göngunni um kl. 18.00
við Árbæjarsafn. Ekkert þátt-
tökugjald er í þessari ferð.
Dagsferð sunnud. 23. jan.
Kl. 10.30: Vitagangan 1. áfangi
og fjölskyldugangan.
Útivist.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
@> ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Sunnudagsferðir 16.
janúarkl. 13.00
A) Kjalarnes, fjöruferð. Gengið
út á nesið meðfram ströndinni
(sunnanmegin). Kjörin fjöl-
skylduferð, létt og þægileg
gönguleið. Verð kr. 1.000,-
B) Skíðagönguferð í Bláfjöll-
um. Ekið að þjónustumiðstöð-
inni og gengið þaðan: Þetta
verður fyrsta skíðagönguferð
ársins, en framvegis á sunnu-
dögum verða slíkar ferðir ef
snjóalög reynast hagstæð. Verð
kr. 1.100,- Brottför í ferðirnar
er frá Umferðarmiðstöðinni
austanmegin og Mörkinni 6.
Börn innan 15 ára fá frítt.
Þriðjudagskvöld 18. jan.
Opið hús í Mörkinni 6 (risi).
Ferðaáætlunin 1884er
komin út!
Komið og fáið ykkur nýja ferða-
áætlun. Stærri og fjölbreyttari.
Þetta verður sannkallað ár Is-
landsferða. Ferðanefnd mætir
og veitir upplýsingar. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir á
fyrsta opna hús ársins.
Ferðafélag íslands.
Opin vinnustofa,
Eiðistorgi 11
í dag kl. 13-17. Foreldrar og
börn GIFSMÓTUN.
Sími 611570.
Útsala - útsala
Viðskiptavinir athugið!
30% afsláttur af öllum hljóðritun-
um (geisladiskum, kassettum).
Athugið að tilboð þetta stendur
aðeins út þennan mánuð.
Landsins mesta úrval af kristi-
legu tónlistarefni.
Líttu inn, það borgar sig.
l/erslunin
Hátúni 2,
sími 25155.
Á Kk Kristilegt
'fip heilbrigðisstétta
Afmælis- og
fjáröflunarfundur
verður haldinn mánudaginn 17.
janúar í safnaöarheimili Laugar-
neskirkju kl. 19.00. Hátíðardag-
skrá og kvöldverður. Hátíðar-
ræða: Margrét Hróbjartsdóttir.
Meðal gesta Guðný og drengirn-
ir. Miðaverð kr. 1.500.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í
síma 91-14327.
Bandarískur
„Wall Street" bankamaður, 35
ára, svartur karlmaður, 180 cm,
80 kg, hefur áhuga varanlegu
sambandi við konu á aldrinum
24-29 ára. Sendið svar ásamt
mynd til: Alan, 61 West 62nd st.
Apt. 23D, NY, NY10023, USA.