Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
51
Afkvænii
„Nei sko, aldrei dreymdi mig
um að sambúð ykkar hefði bless-
ast í afkvæmi." Undirskrift með-
fylgjandi myndar má sjá í skop-
myndasyrpu grínistans James
Thurbers. Þótt það birtist í marg-
endurútgefnu úrvali af gaman-
sögum hans er ekkert gefið að
þetta þyki fyndið nú. Viðhorfm
til afkvæma eru að breytast svo
ört að brandari verður utan-
gátta. Er ekki að verða eða orð-
ið úrelt að tala um börn sem
afkvæmi eða framhald af for-
eidrunum, eins og liggur í orðum
Thurbers? Ekki er það kannski
beint sett svo fram, en í raun
orðið viðtekið að bam þurfi ekki
að vera líkamlegt afkvæmi for-
eldra sinna, ef þau aðeins geta
slegið eignarrétti sínum á það.
Sú hugsun var býsna ríkjandi í
okkar samfélögum að með því
að eignast afkvæmi, sem væri
hold af holdi tveggja foreldra,
væru þeir að viðhalda sér, ætt
sinni og kynstofni. Hefur lengst
af þótt eftirsóknarvert. Ekki
bara hjá foreldrunum heldur líka
af ættmennum og jafnvel heilum
þjóðum. Göfugt var að framleiða
hrausta syni til „að veija land
sitt“ og þá líka mæður til að
halda framleiðslunni við. í þriðja
heiminum er sú hugsun rótgróin
að mikilvægt sé að eiga mörg
böm, til að sjá fyrir sér í ellinni.
Ætli þessi rök séu enn í gildi,
meðvitað eða ómeðvitað? Varla
í okkar heimshluta a.m.k. Og
hlýtur ekki þegar að vera upp-
fyllt sú tilskipun trúarinnar að
margfaldast og uppfylla jörðina,
nú þegar jörðin ber varla lengur
allan þann mannfjölda sem þarf
að lifa á henni og gengur orðið
á lifíbrauðið?
En hvað með þessa þrá fólks
til að viðhalda sér og sínum og
fá eigin framlengingu í afkvæm-
um? Hefur sú hugsun ekki iíka
verið á undanhaldi að undan-
fömu? Barn þarf ekki lengur
endilega að vera afleggjari eða
hold af holdi foreldranna. Allt
eins dugar sem efniviður í barn
sæði einhvers annars, jafnvel
ókunnugs manns. Líka egg eða
fóstur úr annarri konu. Þetta er
ekki aðeins viðurkennt, heldur
beinlínis markviss stefna. Opin-
berlega unnið að framkvæmdinni
með fjárframlagi úr sameigin-
lega sjóðnum. Hefur í fjárhags-
legri stöðu sjúkrahúsanna tals-
verðan forgang.
Nýlegar fregnir um að tæknin
sé svo langt komin að brátt verði
hægt að framleiða barn án móð-
ur annarar en ófullburða eyddu
fóstri, ýfðu gárar. Einkum
kannski hve fólki virðist nú
hrylla við að framkvæma slíkt.
Maður staldrar við og áttar sig
á því hve vel við eram hiklaust
komin af stað á þeirri braut að
framleiða fyrir foreldra böm,
sem ekki þurfa endilega að vera
af þeirra holdi eða framlenging
þeirra. Sú hugsun er viðtekin.
Ýmsum finnst að vísu felast í
því nokkur tvískinnungur að
eyða óvelkomnum fóstram við-
stöðulaust í einní deild spítala
og að framleiða böm fyrir lyst-
hafendur handan gangsins. Og
lausbeislaður hugurinn spyr
áfram eins og bömin óþreyt-
andi: Akkeiju? Ja, af hveiju? Er
það kannski eignarrétturinn sem
þama skiptir mestu máli? Eigin-
gimin? Að eiga þennan litla ein-
stakling og allan rétt á honum?
Fólk sem langar til að eignast
bam en er ekki blessað með af-
kvæmi af sínu holdi, útvegar sér
það líka oft frá móður hér á landi
eða erlendis frá. Gengur bami
sem foreldri getur ekki veitt
framtíðaramönnun í foreldra
stað. Að taka barn í fóstur hefur
alltaf verið viðtekið á íslandi og
þótt sæmd að því fyrir alla aðila.
Allt frá því Ari fróði var fóstrað-
ur upp í Haukadal hjá Halli Þór-
arinssyni og Snorri Sturluson
tekinn í fóstur af Jóni Loftssyni
í Odda og allar götur fram undir
okkar daga. En er ekki þarna
orðin viðhorfsbreyting, í stíl við
hinn harða og eignaglaða nú-
tíma? Sá sem langar til og ætlar
að fóstra upp bam, sem ekki er
af hans eggi og sæði, verður nú
að eiga þennan einstakling með
húði og hári, ekki satt? Tryggja
sér eignarréttinn á honum, ef
af fóstri á að verða. Þeir Snorri
og Ari og fósturbörnin sem lentu
hjá góðum fósturforeldrum héldu
áður áfram að vera afkomendur
foreldra sinna og ættar. Þekkist
auðvitað ennþá, en er ekki hitt
að verða eða orðið ofan á, stutt
af opinberri stefnu og með
hvatningu fagfólks? Nú þegar
spurningar vakna um hversu
langt eigi að ganga til að búa
til böm úr tiltækum efniviði utan
„náttúrulegs getnaðar" verður
þá ekki að huga að eignakröf-
unni og eignarréttinum?
Viðtekið er sem sagt að nátt-
úran eigi ekki að ráða því hver
á barn og hver ekki. Ailt í einu
hrökkva menn svo upp og vilja
að samfélagið banni konu að
eignast slíkt barn í eigin kviði,
ef hún er „komin úr barneign".
Það sé ekki náttúrlegt. Litlu telp-
urnar geta illfærar í nútíma
kröfuþjófélagi átt böm náttúra-
lega. Hvar á þá að setja mörkin?
Við vangaveltur rekst hvað á
annars horn í okkar tillærða
hugmyndaheimi. Auðvitað vill og
þarf mannkynið að halda sér við.
Og er ekki nóg af „náttúralega"
tilbúnum og fæddum bömum í
heiminum? Hvar ætli við höfum
lært að æskilegast sé að eyða
náttúrulega tilbúnu börnunum
og búa til önnur? Og hvar ætli
við íslendingar höfum týnt því
gamla viðhorfi að sómi sé að því
að veita fóstur þeim börnum sem
ekki geta gengið að því vísu, án
þess að ná eignarréttinum á
þeim? Er yfirleitt hægt að eign-
ast aðra manneskju með húð og
hári, hvernig sem hún er tilkom-
in?
mmmmm
0 iYMP IU-TILBOÐ
U LkJ fJ U Lr,\ U\ U U
í TILEFNI AF VETRAROLYPÍULEIKUNUM í
NOREGI BÝÐUR RÖNNING í SAMVINNU
VIÐ NOKIA MJÖG GOTT VERÐ Á VÍÐÓMA
SJÓNVARPSTÆKJUM
SJÓNVÖRP FRAMTÍÐARINNAR
UPPFYLLA STRANGAR
KRÖFUR UM GÆÐI
LEIÐANDI Á SÍNU SVIÐI
GERÐ MEÐ ÞIG í HUGA
AUÐVELD STJQRNUN
MEÐ VALMYNDUM
MUSARFJARSTYRING
FÁIR TAKKAR - OSD
SCART-TENGI
SJALFVIRK STOÐVA-
STILLING - APS
87.900-
NOKIATV7155 - AFB.VERÐ KR. 98.600,-
Misstu 0
sinstaka
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
LAUGAVEGI 163
• Innrítun á vornámskeiö fer fram dagana
10.-21. jan.ísima 621661
aö Laugavegi 163 milli kl. 17.00 og 20.00.
• Skipuleggjendur námsefnis og abal kennarar
eru Bjöm Thoroddsen og Friðrik Karlsson.
• Ab þessu sinni verður boöiö upp á kennslu
í eftirfarandi stiltegundum:
ROKK - BLÚS - HEAVY METAL • JASS
COUNTRY - ROKKABILLY - ÞJÓÐLÖG.
• RAFBASSALEIKUR Kennsla fyrir byrjendur
og lengra komna í flestum stíltegundum.
• 12 vikna námskeib ■ Fyrírlestrar
0 Stúdióupptaka í lok námskeiós.
0 Undirbúningsnám fyrir FÍH
Innritun í síma:
621661
ROKK - BLÚS - HEAVY METAL - JASS - COUNTRY
ÞJÓÐLÖG - RAFBASSI
Nemendur skólans fá sérstakan nemendaafslátt
í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur.
R E Y K J A
g33ESn
VÍKUR
EEF
i/NVáDtS