Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 1
64 SIÐURB 25. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins * Israelar og PLO Vonir um samninga eftir viku Amman. Davos í Sviss. Reuter. STEFNT er að 'því að fsrael og Frelsissamtök Palestínumanna (PLO) undirriti samkomulag um brotthvarf ísraelska hersins frá hernumdu svæðunum eftir rúma viku. Said Kamal, sendiherra PI^O í Kaíró, sagði í gær að beðið \iæri samþykkis Yitzhak Rabins, forsæt- isráðherra ísraels, við drögum að samkomulagi, sem Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi PLO, undirrituðu í Davos í Sviss og í Kaíró. Hins veg- ar sagði Yossi Beilin, aðstoðarutan- ríkisráðherra ísraels, í gær að enn væri ekki hægt að tala um sam- komulag, heldur aðeins skref í átt að samkomulagi. Matur er manns- ins megin London. Reuter. BRESKU kvenfólki finnst góð máltíð á veitingahúsi miklu eftirsóknarverðari en ásta- fundir með unnustanum eða eiginmanninum að því er fram kemur í könnun, sem birtist í tímaritinu Good Housekeep- ing. Um helmingur 1.010 kvenna sagði, að góður matur, helst á veitingahúsi, freistaði þeirra miklu meira en afmorsleikir og helmingnum fannst einnig konf- ekt mjög huggunarríkt snarl. Sá útlendi matur, sem konunum lík- aði best, var ítalskur, þá kín- verskur og síðan franskur. Reuter Liceo varð eldi að bráð LICEO-óperuhúsið í Barcelona, það frægasta á Spáni og eitt hið stærsta í heimi, eyðilagðist í eldi í gær. Var verið að vinna með lóðlampa þegar eldurinn í honum komst í leiktjöld og má segja, að húsið hafi orðið alelda á samri stundu. í Liceo-óperunni hafa margir kunnustu söngvarar fyrr og síðar komið fram og þar þreyttu til dæmis frumraun sína þau Jose Carreras og Victoria de los Angeles. Þegar hefur verið ákveðið að endur- byggja húsið, sem tók til starfa 1847. Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna Rósrautt útlit í efnahagslmnu Washington. Reuter, Daily Telegraph. ALAN Greenspan, seðlabankastjóri í Bandaríkjunum, sagði í gær, að langtímahorfur í bandarískum efnahagsmálum hefðu ekki verið betri í tvo eða þrjá áratugi. Verðbólga væri lítil, þjóðar- framleiðslan vaxandi og ástandið á vinnumarkaðinum batnaði stöðugt. Þá svaraði hagvöxtur á síðasta fjórðungi liðins árs til 5,9% á heilu ári. Greenspan sagði, að það, sem hefði meðal annars stuðlað að lítilli verðbólgu, myndi gera það áfram á þessu ári. Fyrirtækin myndu til dæmis halda launakostnaði í skefj- um með aukinni framleiðni og sam- keppnin við innflutta vöru myndi halda verðhækkunum í skefjum. Hann kvaðst hins vegar telja, að vextir væru jafnvel orðnir „óeðlilega lágir“ og því óhjákvæmilegt, að þeir leituðu jafnvægis. Bill Clinton forseti sagði í gær, að lágir vextir væru forsenda áfram- haldandi efnahagsbata en kvaðst þó ekki mundu mótmæla einhverri aðlögun skammtímavaxta. Hann taldi aftur á móti enga ástæðu til að hækka langtímavexti. Greenspan sagði, að það, sem héldi aftur af enn meiri hagvexti, væru erfiðleikar í efnahagslífi helstu viðskiptaríkjanna, Japans og Evr- ópu, auk þess sem búast mætti við, að jarðskjálftarnir í Kalifomíu og miklir kuldar í Norðausturríkjunum hefðu einhver skammtímaáhrif. Mikill hagvöxtur Hagvöxtur í Bandaríkjunum á síðasta ársfjórðungi 1993 svarar til 5,9% á heilu ári og atvinnuleysi fer minnkandi. Þá er líka þess að gæta, að flestir þeirra, sem eru á atvinnu- leysisskrá í Bandaríkjunum, eru ýmist á milli starfa, í starfsþjálfun eða að bíða eftir hentugu starfi. Aðeins 6,5% atvinnulausra vestra hafa verið þ_að í meira en ár en 40% í Evrópu. í Bandaríkjunum hafa orðið til 30 milljónir nýrra starfa á síðustu 20 árum, að mestu í einka- geiranum, en fimm milljónir í Evr- ópu og að langmestu leyti hjá hinu opinbera. Serbar í Bosníu undir- búa allsheijarherútboð Zhírínovskíj segir að Rússar refsi NATO fyrir loftárásir á Serba Reuter BMWað kaupa Rover London. Reuter. ÞÝSKI bifreiðaframleiðand- inn BMW hefur keypt Rover, síðasta stórframleiðandann í bifreiðaiðnaði í Bretlandi og flaggskip Breta í þessari grein um langan aldur. Er kaupverðið 1,2 milljarðar dollara. Kom tilkynningin um söluna mjög á óvart, ekki síst fyrir Honda-verksmiðj- urnar japönsku, sem eiga 20% hlut í Rover. Talsmaður British Aeros- pace, aðaleiganda Rovers, sagði í gær, að salan til BMW myndi tryggja framtíð bílaverk- smiðjanna en í nokkra mánuði hefur verið orðrómur um, að þær yrðu seldar og þá til Honda. George Simpson, stjórnarformaður Rovers og stjórnarmaður í BAe, sagði hins vegar að Honda hefði aðeins viljað auka hlut sinn en ekki kaupa alveg. Þess vegna hefði tilboði BMW verið tekið. Breskum einkennum haldið Rycljina, Bonn. Reuter. SERBAR í Bosníu bjuggu sig undir allsherj- arherútboð í gær og flest benti t.il þess að stríðið í landinu yrði leitt til lykta á vígvellin- um en ekki við samningaborðið. Rússneski þjóðernisöfgamaðurinn Vladímír Zhír- ínovskíj fór til vesturhluta Bosniu í gær og sagði að Rússar myndu refsa Atlantshafs- bandalaginu (NATO) ef gerðar yrðu loftárás- ir á serbneskar hersveitir. Yfirstjórn hers Serba í Bosníu tilkynnti að gerðar hefðu verið ráðstafanir til að „kalla út allan tiltækan mannafla sem gæti leitt stríðið til lykta“. Þetta hefði verið gert vegna þess að Sameinuðu þjóðirnar hefðu „ákveðið að styðja múslima í stríðinu". Allir karlmenn, sem væru færir um að gegna herþjónustu, yrðu kvaddir í herinn og sérsveitir stofnaðar fyrir konur. Allt atvinnulífið yrði við það miðað að stríðsástand ríkti. Tilk'ynning herstjórnarinnar er svar hennar við umræðum á Vesturlöndum um hugsanlegar loftárásir Atlantshafsbandalagsins í Bosníu svo hægt verði að opna flugvöllinn í Tuzla og koma friðargæsluliðum til Srebrenica. Serbar hafa haldið uppi stórskotaárásum á þessar borgir. Francois Leotard, varnarmálaráðherra Frakk- lands, sagði að tilkynningin væri mikið áhyggju- efni fyrir Vesturlönd. Stríðsyfirlýsing á hendur Rússum Zhírínovskíj fór í gær til Bijeljina í norðvestur- hluta Bosníu til að ræða við leiðtoga Bosníu- Serba, Radovan Karadzic. „Eg vil sannfæra stjórnvöld nokkurra vestrænna ríkja um að vald- beiting kemur þeim ekki að gagni,“ sagði Zhír- ínovskíj á 2.000 manna fundi í Bijeljina. „Ef ein einasta sprengja fellur á bæi í Bosníu jafngildir það stríðsyfirlýsingu á hendur Rússum og við refsum þeim fyrir það.“ Breska stjórnin fagnaði söl- unni í gær og sagði að BMW ábyrgðist, að verksmiðjurnar yrðu áfram í Bretlandi og fram- leiðslan hefði sitt sérbreska yf- irbragð. Rover hefur nú farið sömu leiðina og margar aðrar, bresk- ar bílaverksmiðjur. Jagúar, Austin, Morris, Wolsey, Triumph, MG, Aston Martin og Lotus eru nú ýmist í erlendri eigu eða heyra sögunni til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.