Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1994 29 EGNA SVEITARSTJÓRNARKOSNINGANNA Atkvæði greidd Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ATKVÆÐI greidd í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík. Ingólfur Aðaisteinsson kjörstjórnarmaður situr við borðið. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akranesi Gunnar Sigurðsson kosinn í efsta sætið Akranesi. GUNNAR Sigurðsson, framkvæmdastjóri og formaður Knattspyrnu- félags ÍA, varð ótvíræður sigurvegari í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins á Akranesi um helgina. Pétur Ottesen, verslunarmaður, varð í öðru sæti og Elínbjörg Magnúsdóttir, fiskverkakona í því þriðja. Alls tóku 768 manns þátt í prófkjörinu. Auðir seðlar voru tveir og ógildir fjórir. Arið 1990 fékk flokkurinn í sveitarstjórnarkosningum 795 atkvæði. Gunnar fékk 602 atkvæði alls og 449 atkvæði í fyrsta sæti eða 58,8% allra atkvæða. Pétur Ottesen varð í öðru sæti og fékk hann alls 635 atkvæði þar af 209 atkvæði í fyrsta og annað sæti. Elínbjörg fékk alls 489 atkvæði alls þar af 273 atkvæði í fyrstu þijú sætin. Sigríður Guðmundsdóttir fékk 535 atkvæði alls þar af 340 atkvæði í fyrstu fjögur sætin. Þórður Þórðar- son fékk alls 465 atkvæði þar af 338 atkvæði í fyrstu fímm sætin. „Síðustu prófkjör okkar hafa gefið ákveðna vísbendingu og má nefna að í sameiginlegu prófkjöri flokkanna á Akranesi 1982 greiddu 570 Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt en í kosningum það ár fékk flokkurinn 1.110 atkvæði. Ef okkur tekst að vinna vel fram til kosninga er von á góðri útkomu," sagið Þórð- ur að lokum. Aðeins byrjunin á erfiðu starfi Gunnar Sigurðsson var að vonum ?ndur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði en síðast ivæðum munaði á ur efstu mönnum 'sson í 1. sæti og Jóhann G. Bergþórsson í 2. sæti AKRANES Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins Atkvæði 1. 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1. Gunnar Sigurðsson 2. PéturOttesen 3. Eh'nbjörg Magnúsdóttir 4. Sigríður Guðmundsdóttir 5. Þórður Þórðarson 6. Bjarki Jóhannesson 7. Jóhannes F. Halldórsson Aðrir þátttakendur: Guðjón Georgsson, Guðmundur Guðjónsson, Gunnar Ólafsson, Hjörtur Gunnarsson. .1. 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1.-5. 1.-6. 1.-7. AIis 449 602 22 209 635 36 174 273 489 28 120 235 340 535 19 70 151 238 338 465 2 31 89 221 333 368 435 53 116 176 248 312 342 367 409 væði í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- >r um helgina. Jóhann G. Bergþórs- Illert Borgar Þorvaldsson, í 4. sæti 5. sæti varð Þorgils Óttar Mathies- íu og eru það 1.360 fleiri þátttakend- ánsdóttir í 10. sæti, Gunnar Beinteins- son í 11. sæti og Kristinn Arnar Jó- hannesson í 12. sæti. Samkomulag er um að gefa ekki upp röð þeirra ljórtán frambjóðenda sem eru neðar á listanum. Náði því sem að var stefnt „Þetta leggst vel í mig,“ sagði Magnús Gunnarsson sem varð í 1. sæti í prófkjörinu. „Eg sóttist eftir þessu sæti og stend uppi með að lenda þar sem ég stefndi á. Ég hlýt því að vera nokkuð ánægður." Sagði hann að framundan væru stór verkefni sem biðu Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, sem væru kosningarnar í vor og allt snérist um. Kjörnefnd ætti eftir að koma saman til að ganga frá listan- um, endanleg röð væri því ekki ákveð- in þar sem 50% atkvæða í sæti þarf til að kosning sé bindandi. Magnús sagðist vilja þakka öllum sem studdu hann í prófkjörinu og einnig starfs- mönnum flokksins sem stóðu sig mjög vel miðað við að þátttaka fór framúr björtustu vonum. Við síðasta prófkjör kusu 2.136 en 3.496 að þessu sinni. „Þetta er því geysileg aukning sem ég gleðst yfir og vildi koma á fram- færi þakklæti til fólksins áem stóð í eldlínunni," sagði hann. Ánægður með stöðuna „Ég er mjög ánægður með mína stöðu," sagði Jóhann G. Bergþórsson, sem varð í 2. sæti. „Mér þykir per- sónulega þetta vera góður árangur í Ijósi þess andróðurs sem ég hef búið við undanfarið. Þessi 34 atkvæði til eða frá segja ekki stórt. Þetta er 0,1% af þátttakendum en það hefði verið sætara að hafa þessi 34 atkvæði ég neita því ekki.“ Jóhann sagðist ekki eiga von á að listanum yrði breytt en sjálfsagt ættu menn eftir að velta vöngum yfir niðurstöðunni. „Þar eru mestu tíðindin þessi skilaboð til Matt- híasar, sem eru ekki óþekkt í íslensk- um stjórnmálum að menn vilja ekki að sæti erfist,“ sagði hann. „Flokkur- inn má hins vegar vera ánægður með þessa miklu þátttöku, sem er reyndar tvíþætt. Annars vegar vegna upp- sveiflu í framhaldi af þessum æfingum hjá Guðmundi Árna. Síðan var mikil smölun og þá fyrst og fremst af and- stæðingum mínum. Ég hef yfirleitt aldrei lyft litlafingri í þessum prófkjör- um þó ég hafi aðeins snúist til varnar á þessum síðustu dögum.“ Ágætlega sáttur „Miðað við allar forsendur þá finnst mér að við þeir tveir bæjarfulltrúar sem vorum í þessum slag getum borið höfuðið hátt að undanskildu þó því að það vekur óneitanlega nokkra at- hygli sú niðurstaða sem Þorgils Óttar fær,“ sagði Ellert Borgar Þorvaldsson, sem varð í 3. sæti. „Fyrir mig persónu- lega þá tel ég að ég geti verið ágæt- lega sáttur með þessa niðurstöðu mið- að við þessar aðstæður. Vitaskuld er komin niðurstaða úr prófkjörinu en það á eftir að koma niðurstaða í starf flokksins fram til bæjarstjórnarkosn- inga og svo bíða menn eftir stóru nið- urstöðunni i framhaldi af því.“ Sagði hann að kjörsókn hafi verið mikil og að greinilega hafi verið um skipulagt útkall að ræða. Vel mætti vera að þar hefðu breyttar prófkjörsreglur ráðið nokkru um auk þess sem svo virtist sem ein af meginforsendum prófkjörs- ins^ hjá einstaka frambjóðendum hafi verið að ýta við forystunni. Athygli vekti að rétt rúmlega 30 atkvæði greindu sundur fyrsta og annan mann á listanum eða 34 atkvæði milli Magn- úsar Gunnarssonar í 1. sæti og Jó- hanns G. Bergþórssonar í 2. sæti. „Það er nánast minnsti munur þegar á heildina er litið,“ sagði Ellert. „Mið- að við öll þau spjótalög sem á honum stóðu þá finnst mér þetta frábær út- koma hjá honum.“ Viljað sjá fleiri konur „Ég er mjög ánægð fyrir mitt leyti en ég hefði viljað sjá hlut kvenna mun sterkari þarna inni,“ sagði Valgerður Sigurðardóttir sem varð í 4. sæti. „Það hefði verið gaman ef tvær konur hefðu komist inn í bæjarstjórn en það virðist vera erfítt fyrir okkur konurnar að ná árangri í prófkjöri. Næsta kona er í 6. sæti og sú þriðja í 10. sæti. Áður vorum við fjórar niður í 9. sæti. Ég get ekki verið annað en ánægð sjálf þar sem ég er með mesta at- kvæðamagn allra að baki en ég hefði viljað sjá hlut kvenna sterkari." Það sem fólk vill „Þetta er greinilega það sem fólkið vill,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen, sem varð í 5. sæti. „Maður tekur þess- ari niðurstöðu og er ekkert við því að segja. Auðvitað eru þetta ákveðin von- brigði. Kjömefnd á eftir að fjalla um niðurstöðumar en ég geri ráð fyrir að taka þetta sæti ef mér býðst það.“ Á Akranesi hefur Sjálfstæðis- flokkurinn átt tvo bæjarfulltrúa á yfírstandandi kjörtímabili og voru hvorugir þeirra meðal þátttakenda í prófkjörinu að þessu sinni. I próf- kjörinu nú voru ellefu þátttakendur og margir þeirra hafa ekki fyrr verið í starfi flokksins og, a.m.k. ijórir þeirra sem hlutu bindandi kosningu eru nýliðar. Kosninga- þátttaka var mjög góð og kusu alls 768 manns. í síðasta prófkjöri hjá flokknum sem fram fór fyrir kosn- ingarnar 1986 kusu alls 320 manns. Skýr skilaboð fyrir komandi kosningar Þórður Björgvinsson, formaður kjörstjórnar, sagðist vera ánægður með alla framkvæmd prófkjörsins og þátttökuna. Það væri ánægju- legt til þess að vita hve margir hafi komið og vonandi væru þetta skýr skilaboð fyrir komandi kosn- ingar. Þórður sagði að næsta verk- efni kjörstjórnarinnar væri að ræða við alla frambjóðendurna og síðan að leggja tillögu um framboðslista fyrir fulltrúaráð flokksins. Það ligg- ur fyrir að sjö efstu í kjörinu fengu bindandi kosningu. Þórður sagði kjörsókn hafa verið mun betri en hann hafi þorað að vona. ánægður með úrslit prófkjörsins þegar rætt var við hann. „Mér er efst í huga þakklæti til allra þeirra sem studdu mig í þess- ari baráttu. Ég er fullviss að við verðum með sterkan lista í kom- andi kosningum. Þetta prófkjör er aðeins byrjunin á því verki sem við þurfum að vinna til þess að Sjálf- stæðisflokkurinn nái glæsilega kosningu í vor. Verkin verða að fá að tala og það þarf örugglega að bretta upp ermarnar“, sagði Gunn- ar. Aðspurður um hvort tengsl hans við knattspyrnuna hafi hjálpað til í prófkjörinu sagði Gunnar: „Ég vona að svo hafi verið, annnað væri óeðlilegt, en stuðningshópur minn var mjög breiður. Mér þótti sérstaklega vænt um öfiugan stuðning frá smábátasjómönnum en framboð mitt höfðaði greinilega til þeirra“, sagði Gunnar Sigurðsson að lokum. Kunnuglegt nafn Pétur Ottesen sem varð í öðru sæti í prófkjörinu ber kunnuglegt nafn úr íslenskum stjórnmálum. Afi hans og alnafni, Pétur Ottesen á Ytra-Hólmi, var alþingismaður Borgfirðinga samfellt í 43 ár. „Ég er mjög ánægður með minn hlut í þessu prófkjöri," sagði Pétur. „Þessi niðurstaða kom mér skemmtilega á óvart og fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég og Bjarki sem erum yngstir þeirra sem tóku þátt í prófkjörinu ákváðum að vinna saman og höfðuðum að nokkru leyti til unga fólksins. Það sýnir sig að starfið í ungliðahreyf- ingunni hefur skilað sér og við not- ið góðs af því.“ Pétur sagði að eftir prófkjörið stæði hin geysigóða þátttaka uppúr og hlyti hún að gefa sjálfstæðis- mönnum á Akranesi byr í seglin. „Ég hef mikla trú á að væntanleg- ur framboðslisti okkar eigi eftir að fleyta okkur yfir margar hindranir og vera sigurstranglegur í kosning- unum í vor,“ sagði Pétur og vildi færa stuðningsmönnum sínum bestu þakkir fyrir veittan stuðning. - J.G. HAFNARFJÖRÐUR Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins Alls 1. 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1.-5. 1.-6. 1.-7. 1.-8. 1.-9. 1. Magnús Gunnarsson 1221 2296 2. Jóhann G. Bergþórsson 1187 1410 1784 3. Ellert Borgar Þorvaldsson 63 1316 1477 1980 4. Valgerður Sigurðardóttir 10 282 1256 1710 2431 5. Þorgils Óttar Mathiesen 719 1033 1154 1287 1412 1647 6. Ragnheiður Kristjánsdóttir 12 179 667 972 1235 1479 1768 7. Árni Sverrisson 26 221 654 919 1151 1350 1441 1566 8. Magnús Kjartansson ' 19 61 149 637 880 1119 1294 1402 1484 9. Gissur Guðmundsson 7 71 157 344 794 1033 1182 1308 1390 10. Helga R. Stefánsdóttir 2 34 95 456 641 803 918 1027 1101 11. Gunnar Beinteinsson 3 46 77 141 240 603 731 835 919 12. Kristinn Arnar Jóhannesson 42 111 421 538 636 731 801 864 907 Aðrir þátttakendur: Skarphéðinn Orri Björnsson, Trausti H. Jónasson, Örn Tryggvi Johnsen, Jón Gestur Viggósson, Gunnar Magnússon, Bergur G. Olafsson, Ásdís Konráðsdóttir, Olafur Þór Gunn- arsson, Sigurður Einarsson, Björk Pétursdóttir, Þórunn Sigþórsdóttir, Ágúst Sindri Karlsson, Ólafur Torfason og Þórður Rafn Stefánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.