Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 35 Fjármál Hægtaðná 10-14% ávöxt- un án mikillar áhættu - segir Jon Burnham, forstjóri og stjórnarformaður Bumham Securiti- es og Burnham Asset Management í New York MEÐAL fulltrúa þeirra erlendu verðbréfafyrirtækja sem heim- sótt hafa ísland að undanförnu var forstjóri og sljórnarfor- maður Burnham Securities og Burnham Asset Management í New York, Jon Burnham. Hann kynnti fyrir forsvarsmönnum íslenskra lífeyrissjóða þá þjón- ustu sem fyrirtækið hefur í boði. Með Burnham í för hér á landi var m.a. Guðmundur . Franklín Jónsson, löggiltur verðbréfasali í Bandaríkjunum, sem nýlega hefur hafið störf hjá fyrirtækinu en hann starf- i aði um þriggja ára skeið hjá verðbréfafyrirtækinu Oppen- I heimer. Burnham fyrirtækin ' hafa umsjón með ávöxtun fjár- muna sem eru jafnvirði 70 millj- arðar íslenskra króna. „Við komum hingað fyrir til- stuðlan Guðmundar Franklíns Jónssonar en hann er einn af fáum íslenskum verðbréfasölum sem hafa heimild til að kaupa og selja verðbréf í Bandaríkjunum,“ sagði Jon Burnham í samtali við Morg- unblaðið. „Þegar Guðmundur hóf störf hjá okkur lá ljóst fyrir að Islendingum yrði frá og með 1. janúar heimilt að fjárfesta í erlend- um verðbréfum. Mér fannst það því góð hugmynd að koma hingað og hitta að máli forsvarsmenn líf- eyrissjóða pg annarra fjármála- stofnana. Eg tel að við séum í góðri aðstöðu til að aðstoða íslend- inga við erlend viðskipti þar sem Guðmundur þekkir þarfir og markmið íslenskra fjárfesta. Þeir þurfa á einhverjum að halda í Bandaríkjunum sem þeir geta treyst. Mér hefur skilist að lífeyris- sjóðirnir vilji fara mjög varlega í fjárfestingar í erlendum verðbréf- Iðnaður um og þeir hljóta þá að fjárfesta í skuldabréfum og hlutabréfum í vel þekktum fyrirtækjum. Það verður vandlega fylgst með fjár- festingum lífeyrissjóðanna og þeir vilja umfram allt forðast mistök. Ég tel Burnham Securities og Bumham Asset Management eigi hlutverki að gegna við fjárvörslu fyrir íslensku lífeyrissjóðina." Burnham var spurður hvaða ávöxtunar lífeyrissjóðir gætu vænst ef þeir fjárfestu í verðbréf- um í Bandaríkjunum. „Það fer eftir því hvaða fjárfestingar- markmið þeir hafa. Mér hefur skil- ist að lífeyrissjóðir vilji ekki taka mikla áhættu og þá held ég að það ætti að vera hægt að ná 10-14% ávöxtun. Líkurnar á því að þeir tapi sínum fjármunum eru hverfandi litlar. Ég er sannfærður um að við munum eiga umtalsverð viðskipti við Islendinga. Þar yrði um að ræða fjárvörslu þar sem fj árfest yrði bæði í skuldabréfum og hlutabréfum.“‘ Kanna einnig fjárfestingarkosti hér á landi Guðmundur Franklín Jónsson sagði að það væri lykilatriði fyrir íslenska fjárfesta að skipta við trausta aðila. Burnham Seeurities hefur ekki aðeins áhuga á að selja Islendingum verðbréf heldur hefur fyrirtækið jafnframt kannað nokkra fjárfestingarkosti hér á landi sem þykja fýsilegir. Hefur fyrirtækið m.a. unnið fyrir veit- ingahúsakeðjuna Arthur Treach- ers sem notar eingöngu íslenskan þorsk. Þessar athuganir eru í höndum Bruce Galloway, eins af framkvæmdastjórum Burnham, en hann kom hingað til lands ásamt þeim Jon Burnhaift og Guðmundi Franklín. Skipulag mótað hjá ÚTSALAN hófst í morgun opið frá kl. 9 -18 • 1/sími 615077. Markaðsfólk Norrænir DM dagar verða haldnir í Osló 9. og 10. feb. Lokafrestur Næstkqmandi fimmtudag rennur út frestur til að tilkynna þátttöku. Ráðstefnan fjailar um mikilvægustu atriði beinnar markaðssóknar; kynningar og sölu. Keppinautamir verða að öllum líkindum í Ósló 9. og 10 nk. og koma þaðan heim hlaðnir skæðum söluhugmyndum! Hvar verður þú þann 9. og 10. febrúar? Rástefnan er skipulögð af póststjómum Norðurlandanna fimm og nánari upplýsingar fást hjá Jónasi Skúlasyni markaðsfulltrúa í síma 636 000; ennfremur í Osló í síma 90-47 22 55 00 11 (fax: 90-47 22 55 23 05), en þar er jafnframt tekið við þátttökutilkynningum. NORRÆNIR DM - DAGAR. Arrangeres av postverkene i de fem nordiske land. Samtökum iðnaðarins I INNAN Samtaka iðnaðarins | hefur að undanförnu hefur ver- ’ ið unnið að stefnumótun og innra skipulagi en samtökin | tóku sem kunnugt er til starfa 1 um áramótin. Þjónustu samtak- anna verður skipt í þijú svið þ.e. svið innri þjónustu, iðnþró- unarsvið og svið tengt starfs- skilyrðum iðnaðar. Starfsmenn Samtaka iðnaðar- ins eru 19 og hafa flestir þeirra unnið hjá stofnsamtökum þeirra. Sveinn hannesson hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri og Þórarinn Gunnarsson skrifstofustjóri. Innan samtakanna eru starfsmenn sem hafa sérhæfða þekkingu á ólíkum sviðum. Þórleifur Jónsson sér um starfsgreinahópa og tréiðnað, | Ólafur Kjartansson um orku- og umhverfismál og plastiðnað, Guð- mundur Ásmundsson um tækni, j framleiðslu og málmiðnað og Guð- mundur Guðmundsson um verk- taka- og byggingastarfsemi. | Ragnheiður Héðinsdóttir annast svið matvæla- og fóðuriðnaðar, Davíð Lúðvíksson sér um nýsköp- un, þróun og gæðastjórnun og Ingi Bogi Bogason um fræðslumál og almannatengsl. Þá sér Iina Guðlaug Atladóttir sér um markaðs- og kynningarmál og Andrés Magnússon um al- menna lögfræðiþjónustu. Þor- steinn M. Jónsson hefur verið ráð- inn hagfræðingur samtakanna og Jón Steindór Valdimarsson mun fylgjast með alþjóðlegum við- skiptasamningum. Orðsending til Einkareiknings- og tékkareikningshafa Frá og með 1. febrúar n.k. verður tekið 45 kr. útskriftargjald fyrir hverja útskrift Einkareiknings- og tékkareikningsyfírlita. Framvegis verða yfirlit send áður en skuldfærsla vegna þjónustugjalda verður framkvæmd. Áramótayfirlit verður sent án gjaldtöku. f dag eru flestar útskriftir sendar þegar blaðið er fullt, þ.e. eftir 45 færslur. Fleiri niQguleikar eru á tíðni útskrifta s.s.: • Mánaðarleg • Þriðja hvem mánuð • í árslok - gjaldfrítt í Þjónustusímanum (91) 62 44 44, Grænt númer 99 64 44, getur þú fengið upplýsingar um 20 síðustu færslur og stöðu reikningsins, allan sólarhringinn. Þeim viðsklptavinum sem óska eftir breytingu á tíðni útskrifta er bent á að hafa samband við tékkareikningsdeild. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.