Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1994 17 úrskarandi hljómsveitarstjórar og nóg hafa að gera sem myndu telja sig fullsæmda af að láta S.æ. njóta krafta sinna. Það er því ótrúlegur molbúaháttur að einblína á einn mann líkt og án hans blasi við auðn og myrkur, og allsendis furðulegt að menn skulu haldnir slíkri nærsýni. Af málflutningi Zukofskyista má draga þá ályktun að geri einhver eitt- hvað vel, skuli umsvifalaust fá þeim hinum sama sérleyfí til þess sem honum er leikið um aldur og ævi. Það liggur í augum uppi hversu hratt allri íjölbreytni væri útiýmt og hversu hratt allt mannlífið mundi steinrenna ef þessi heimspeki væri gegnfærð þótt ekki væri nema í litlum mæli. Ekki liggur vegur listarinnar ofan í slíka prísund, svo mikið er víst. Nú stendur fyrir dyrum að und- irbúa næsta námskeið S.æ. sem ráð- gert er að halda í júní næstkomandi. Líkt og áður veltur allt á því að-stuðn- ingur fáist frá ríki og borg. Stjórn- völd mega ekki láta úlfúð sem risið hefur út af einum manni spilla því er svo margir hafa lagt á sig að byggja upp til heilla fyrir íslenska tónlistaræsku og reyndar tónlistarlíf- ið allt er til langs tíma lætur. Fyrir daga S.æ. fékkst ekki fjárhagslegur stuðningur frá opinberum yfirvöldum við námskeið sem bar nafn Zukof- sky. Það má ekki líðast, að nú sé nafn hans notað til að grafa undan trausti á stjórn S.æ. og fjárhagsleg- um stuðningi stjórnvalda við hljóm- sveitina. Ég ítreka: 1. Paul Zukofsky átti hvorki frum- kvæðið að stofnun Zukofsky-nám- skeiðsins né Sinfóníuhljómsveitar æskunnar. Frumkvæðið var hjá Is- lendingum og framkvæmdin einnig, fyrir utan sjálfa hljómsveitarstjórn- ina. 2. Því fer fjarri að Zukofsky eigi allan heiðurinn af velgengni Sinfón- íuhljómsveitar æskunnar. Þar eiga þeir mörgu hlut að máli sem hlúð hafa að íslenskri tónlistaræsku og skapað hljómsveitinni aðstæður tii að ná góðum árangri. 3. Til er fjöldinn allur af fyrirtaks hljómsveitarstjórum sem munu ná góðum árangri engu síður en Zuk- ofsky, jafnvel enn betri, fái þeir tæki- færi til þess. Síðustu tónleikar S.æ. eru sönnun þessa. 4. Stjórn S.æ. hefur reynt að koma rekstri hljómsveitarinnar á heilbrigð- ari grundvöll en verið hefur án þess að gefa nokkuð eftir í metnaðarfullu verkefnavali. Því er hún fyllsta trausts verð! Höfundur er tónskáld og tónlistarkennari. Hólmfríður Þóroddsdóttir ingur. Ég skora eindregið á stjórn hljómsveitarinnar að halda áfram á sömu braut. Þá meina ég að halda hljómsveitinni opinni fyrir nýjum stjórnendum, svo nemendur fái að kynnast mismunandi kennurum og hugsunarhætti, því annars er ein- mitt hætta á þeirri stöðnun sem tónskáldið varar við í grein sinni. Stjórnendur eru eins misjafnir og þeir eru margir (sem betur fer) og eins mjög mishæfir kennarar, en hugtakið kennari hlýtur að þurfa að vera stór hluti af stjórnenda nemendahljómsveitar. Mér fannst valið á Christopher Adey mjög gott og vonast til að SÆ beri gæfu til að spila með honum aftur. RLR barst 81 kæra um kynferðisafbrot 1992 Fjórðungí mála lauk með dómí ALLS barst 81 kæra til Rannsóknarlögreglu ríkisins um kynferðis- afbrot árið 1992 og var það 10 málum færra en barst árið 1991. Árið 1992 sendi RLR 51 kynferðisafbrotamál til ríkissaksóknara, en 19 mál voru geymd, fjögur voru lögð upp, sex voru lögð upp vegna afturköllunar kæru og eitt mál var sent Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Á árinu 1992 bárust ríkissaksóknara samtals 54 mál vegna kynferðisafbrota. Ákært var í 18 þeirra, og voru dómar felldir í 17 málum. Sættir náðust í þrem málum og 33 mál voru felld niður, en í 14 þeirra var ástæðan sú að sakfelling þótti ekki líkleg. Þessar upplýsingar komu fram í svari Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Önnu Olafsdóttur Björnsson þingmanns Kvennalista á Alþingi. í svari dómsmálaráðherra kom m.a. fram að á árinu 1992 bárust RLR 15 kærur um nauðgun, 25 vegna blygðunarsemisbrota og 16 kærur bárust vegna annarra skír- lífisbrota. Hvað varðar tengsl grunaðs og brotaþola var í 44 málanna um að ræða óskylda að- ila, í 11 tilfellum var um kunn- ingja að ræða og í sjö tilfellum var um stjúpa viðkomandi að ræða. í 64 málum af þeim 81 sem bárust RLR árið 1992 féll grunur á ákveðinn mann, og var 51 af þeim málum sent ríkissaksóknara. Þijú málanna voru lögð upp og fjögur voru lögð upp vegna aftur- köllunar, en eitt mál var sent Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkur. Af þeim 54 málum sem send voru ríkissaksóknara árið 1992 vegna kynferðisafbrota voru þrjú nauðgunarmál felld niður þar sem ekki þótti nægileg ástæða til sak- fellingar. Ástæður niðurfellingar annarra kynferðisafbrotamála voru þær að í 20 tilfellum þótti sakfelling ekki líkleg, ein kæra var afturkölluð, eitt mál var fellt niður á grundvelli fyrirliggjandi gagna, í einu tilfelli var minnt á lögregluá- minningu og í tveim tilfellum var ástæða niðurfellingar ekki til- greind. Fimm sifskaparbrotmál voru felld niður á árinu og í þrem tilfellum var það gert vegna þess að framkomin gögn þóttu ekki nægileg eða líkleg til sakfellis, í einu tilfelli var kæra afturkölluð og eitt mál var fellt niður af ótil- greindri ástæðu. Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! \S 1. febrúar 1994 verða gefnir út tveir nýir flokkar verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs. Útgáfan er byggð á heimild í lánsfjárlögum fyrir árið 1994 og lögum um lánsfjáröflun ríkissjóðs innanlands, nr. 79 frá 28. desember 1983. Um er að ræða eftirfarandi flokka spariskírteina: Flokkur Lánstími Gjalddagi Nafnvextir Raunávöxtun* Útboösfjárhæð á ári 1994 1. fl. D 5 ár 10. feb. 1999 4,5% Innan ramma 1994 1. fl. D 10 ár 10. apr. 2004 4,5% sjá lið b framangreindra laga Kjör þessara flokka eru í meginatriðum þessi: a) Nafnvextir eru 4,5% á ári og reiknast frá og með 1. febrúar 1994. Grunnvísitala er lánskjaravísitala febrúarmánaðar 1994, þ.e. 3340. *b) Framangreindir flokkar eru seldir í mánaðarlegum útboðum með tilboðsfyrirkomulagi samkvæmt ákvörðun fjármálaráðherra hverju sinni, en raunávöxtun til áskrifenda er ákveðin með hliðsjón af þeim útboðum. ) c) Spariskírteinin eru gefin út í eftirfarandi verðgildum: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000, 1.000.000 og 10.000.000 krónur. Spariskírteini ríkissjóðs eru almennt skráð á Verðbréfaþingi íslands og gerir það eigendum þeirra kleift að selja þau fyrir gjalddaga með milligöngu aðila að Verðbréfaþinginu. Seðlabanki íslands er viðskiptavaki fyrir spariskírteini ríkissjóðs sem eru skráð á þinginu. Samkvæmt gildandi lögum um tekju- og eignarskatt kemur ekki til skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af spariskírteinum hjá fólki utan atvinnurekstrar. Séu þessar eignir ekki tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi manna, er heimilt ab draga þær aftur að fullu frá eignum. Spariskírteinin skulu skráb á nafn og eru þau framtalsskyld. Höfundur er óbóleikari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.