Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 Morgunblaðið/Rúnar Þór Eldur í hlöðu ELDUR kom upp í hlöðu við bæinn Lón skammt utan Akureyrar á laugardag, en litlar skemmdir urðu af hans völdum. Slökkvilið átti í nokkrum erfiðleikum með að komast á staðinn í vonskuveðri. Eldur í hlöðu við bæinn Lón ELDUR kom upp í hlöðu við bæinn Lón í Glæsibæjarhreppi á laugar- dag. Vonskuveður var og lenti slökkvilið í nokkrum vandræðum vegna ófærðar. Slökkvilið Akureyrar var kallað út kl. 18.20 á laugardag. Búið var að fjarlægja heybagga úr hlöðunni þegar að var komið og einnig voru hestar sem voru í hesthúsi áföstu hlöðunni settir út. Ekki var mikill eldur á staðnum en nokkuð mikill reykur. Viðar Þorleifsson varðstjóri slökkviliðsins sagði að eldur hefði kviknað út frá ljósaperu sem lá niður við einn heybaggann. Litlar skemmd- ir urðu á hlöðunni, að sögn Viðars. Vonskuveður var þegar eldurinn kom upp, blinda og þungfært þannig að nokkuð erfiðlega gekk að komast á staðinn, en einn af þremur slökkvi- bílum sem sendir voru á staðinn lenti utan vegar og sat þar fastur um tífna. Aflaverðmæti togara ÚA 1.560 milljónir kr. Togarar UA 1993 Heildarafii 3.446 3.305 2.767 2.580 2.561 2.318 co i ro 1 co I CO 5 > -5 2 2 §1! B 2 I to | 2 1 ! I I a: | | w I to 491 ____JU Aflaverðmæti H Aflaverðmæti, þús. kr. hvert tonn -j IFl 126 52 50 54 56 54 292 €12 si? W 1 W AFLAVERÐMÆTI togara Út- gerðarfélags Akureyringa var á síðasta ári rúmlega 1.560 milljón- ir króna og jókst á milli ára um 100 milljónir króna, en ef miðað er við árið 1991 var verðmæti aflans tæpum 20 milljónum minna í fyrra en það ár. Afli á hvern úthaldsdag hefur minnk- að. Kaldbakur EA veiddi rúm 3.300 tonn á liðnu ári að verðmæti um 173 milljónir króna. Svalbakur kom með tæplega 2.600 tonn að landi og var verðmæti aflans um 138 milljónir, fyrir tveimur árum árið 1991 var afli Svalbaks rúm 4.000 tonn. Harðbakur fiskaði um 3.500 tonn á liðnu ári, eða um 1.000 tonn- um minna en fyrir tveimur árum og var ‘verðmæti aflans um 173 milljónir króna. • Hrímbakur kom með tæplega 2.800 tonn að landi á síðasta ári að verðmæti tæplega 150 milljónir króna. Árbakur veiddi tæp 2.600 tonn að verðmæti 144 milljónir króna. Sléttbakur, amiar af tveimur frystitogurum félagsins, veiddi um 3.800 tonn og var verðmæti aflans rúmar 490 milljónir króna. Sólbak- ur kom með rúm 2.300 tonn að landi að verðmæti rúm 292 milljón- ir króna. Samtals var verðmæti um 6.100 tonna afla frystitoganna rúmar 797 milljónir króna. Isfisk- togararnir fimm veiddu samtlas tæp 14.700 tonn að verðmæti 777,5 milljónir króna. Minni afli á úthaldsdag Afli á hvern úthaldsdag hefur farið minnkandi, hann var á síðasta ári 10,6 tonn, árið á undan 11,2 tonn og árið 1991 veiddust að með- altali 12,9 tonn hvern úthaldsdag. Hráefni sem unnið var í frystihús- inu var tæp 17.800 tonn og var framleiðslan 7.769 tonn að verð- mæti rúmlega 2 milljarðar króna. Tæp 2 þúsund tonn af hausum voru verkaðir hjá ÚA sem er tölvuvert meira en var árið á undan þegar um 1.200 tonn af hausum voru verk- aðir. Verðmæti framleiðslunnar nam rúmum 57 milljónum og jókst um 24 milljónir króna milli árá. Framkvæmdir við gatna- gerð kosta 115 milljónir UM 115 milljónum króna verður varið til nýframkvæmda á sviði gatnagerðar á Akureyri á þessu ári, en það er nokkru lægri fjárhæð en fóru til nýframkvæmda í fyrra. Mörg fjárfrek verkefni eru á biðlista, en stærstu framkvæmdirnar í ár eru við fráveitu og nýbygg- ingu gatna. Guðmundur Guðlaugsson yfir- verkfræðingur hjá Akureyrarbæ sagði að vissulega væri hægt að nota meira fé til nýframkvæmda, mörg dýr verkefni væru á lista, en yrðu að bíða betri tíma. Nefndi ■ KYRRÐARSTUND yerður í Glerárkirkju í hádeginu á morg- un, miðvikudag, frá kl. 12-13. Orgelleikur, helgistund, altaris- sakramenti og léttur málsverður. Allir eru velkomnir. Annað kvöld verður síðan systrakvöld haldið í kirkjunni og hefst það kl. 20.30. hann í þvi sambandi gerð Dals- brautar og Borgarbrautar, lagfær- ingar húsagötu við Strandgötu og bílastæðagerð og fleira á svæðinu norðan Ráðhúst.orgs. Alls fara 20,5 milljónir króna í endurbyggingu gatna, hæsta upp- hæðin fer í endurbætur á Hafnar- stræti sunnanverðu. Til nýbyggingar gatna verður varið 22,5 milljónum króna, en framkvæmdir verða aðal- lega í Giljahverfi. Til fráveitufram- kvæmda fara 42 milljónir þar af fara 19 milljónir í byggingu yfírfalls og dælustöðvar og þá verða lagðar lagnir, m.a. við Fiskihöfn, Hafnar- stræti og á Oddeyri fyrir 22 milljónir. Áætlað er að verja 4,2 milljónum króna til malbikunar gatna, en m.a. á að malbika á Skíðastaðavegi og Réttarhvammi. Gangstéttir og stíg- ar verða gerðir fyrir 9,2 milljónir króna, en m.a. verður Kaupvangs- stræti að norðan hellulagt, gang- stétt verður lögð meðfram Hlíðar- braut að hluta og einnig við Kiða- gil auk ýmissa smærri verkefna. Reiðvegur Til ýmissa verkefna er áætlað að verja 6 milljónum króna, m.a. verður lagður reiðvegur fyrir 2,8 milljónir. Þá á eftir að skipta milli verkefna á sviði umferðarmála 4,5 milljónum og ekki er búið að ráð- stafa um 6 milljónum króna af heildarfjárhæðinni. Morgunblaðið/Sverrir Sameinast um stofnun Fræðslumiðstöðvar bílgreina Fræðslumiðstöð bílgreina var stofnuð fyrir skömmu með sér- stökum samningi milli menntamálaráðuneytisins, Bílgreina- sambandsins, Endurmenntunarnefndar bílgreina og Bíliðnað- arfélagsins. Hlutverk fræðslumiðstöðvarinnar er að veita menntun og starfsþjálfun á sviði löggiltra starfa í bílgreinum, svo og undirbúning til annarra starfa á sama sviði, svo sem varahlutaafgreiðslu og hjólbarða- og smurvinnu. Myndin er tekin af undirritun samninga um fræðslumiðstöðina. Frá vinstri eru Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, Sigfús Sigfússon formaður Bílgreinasambandsins, Björn Ómar Jóns- son formaður endurmenntunarnefndar bílgreina og Guðmund- ur Hilmarsson formaður Bíliðnaðarfélagsins. Jón Haukur Bald- vinsson látinn JÓN Haukur Baldvinsson, loft- skeytamaður, er látinn sjötugur að aldri. Jón fæddist í Reykja- vík 13. mars árið 1923. Foreldr- ar hans voru Baldvin Halldórs- son, útgerðarmaður og skip- stjóri í Hafnarfirði, og Helga Jónsdóttir, húsmóðir. Jón lauk prófí frá Lofskeyta- skólanum 1944. Hann stundaði sjómennsku en hóf síðan störf hjá Veðurstofu íslands 1944 og starf- aði þar í yfir tvo áratugi. Frá ár- inu 1965 stundaði Jón margskonar verslunarstörf, rak meðal annars fasteignasöluna Skip og fasteignir sem jafnframt byggði talsverðan fjölda íbúða á höfuðborgarsvæð- inu. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Þóra Margrét Jónsdóttir og eign- uðust þau fimm börn sem öll eru á lífi. Jón andaðist á Borgarspítal- anum að morgni 30. janúar sl. Ingigerður Sigur- brandsdóttir látin NÝLÁTIN er á Dvalarheimilinu í Stykkishólmi aldursforseti eða einn af þeim, frú Ingigerður Sig- urbrandsdóttir frá Skáleyjum á Breiðafirði, fædd 21. ágúst 1901 á 93. aldursári. Ingigerður var eyjakona í orðsins fyllstu merkingu. Hún var gift Valde- mar Sigurðssyni en hann var fæddur í júlí 1898 og látinn fyrir nokkrum árum. Valdemar var sonur Helgu Þórðardóttur og Sigurðar Óla Sig- urðssonar en þau voru frá Súðavík. Þau bjuggu meðal annars í Rúfeyjum frá 1928 til 1944 og víðar. Ingigerð- ur eignaðist 15 böm og oft hlýtur að hafa verið þröngt í búi' á þeim bæ en ekki minnist fréttaritari að hún hafi verið kvartandi yfir kjörum sínum og hin ernasta fram á sein- u$tu stundu. Þeim fer nú fækkandi sem settu svip á Breiðafjarðareyjar enda fækk- ar eyjamönnum sí og æ. - Árni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.