Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 Ályktun flokkssljórnar Alþýðufiokksins um sjávarútvegsmál Gjörbreyting verði á fiskveiðistjórnun EINHUGUR var á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins sem haldinn var á laugardag um að stefna beri að gjörbreytingu á fyrirkomu- lagi fiskveiðistjórnunar, en sjávarútvegsmál voru eina efnið á dag- skrá fundarins. Magnús Jónsson, formaður sjávarútvegsnefndar Al- þýðuflokksins, segir að á fundinum hafi menn verið einróma á þeirri skoðun að kvótakerfið sé gengið sér til húðar eða að á því þurfi að gera svo miklar breytingar að ekki verði mikið eftir. af því. í ályktun flokkstjórnarinnar sem samþykkt var segir meðal annars að það óréttlæti og sú fjár- hagslega og siðferðilega spilling sem fylgt hafi í kjölfar upptöku núverandi kvótakerfis geri það að verkum að þjóðin hafni því fyrr eða síðar. Leiguliðakerfí þar sem braskað sé með lífsafkomu ein- staklinga og jafnvel heilla byggð- arlaga tilheyri annarri þjóðfélags- gerð en ríki á ofanverðri 20. öld- inni. Sem fyrsta skref í afnámi kvótakerfisins sé eðlilegt að kanna hvort gefa eigi veiðar fijálsar í þá stofna þar sem ekki hefur tekist að ná áætluðum afla. Flokks- stjórnin ítrekaði þá afstöðu Al- þýðuflokksins að veiðigjaldi verði komið á, og það verði virkt í að stjórna sókn í fiskistofna. Stuðningur við sjómenn Ennfremur segir: „Óþolandi er að ákveðnum hópi manna eða fyrir- tækja sé úthlutuð helsta auðlind . þjóðarinnar endurgjaldslaust, en síðan sé þeim heimilt að ráðskast með þessa sameign allra lands- manna eins og um séreign væri að ræða. Nýafstaðið verkfall sjó- manna opinberaði vel, hvers konar stjórnkerfi við búum við og flokks- stjóm Alþýðuflokksins lýsir yfir stuðningi sínum við sjómenn í bar- áttu þeirra fyrir breytingum á því. Flokksstjóm Alþýðuflokksins hafnar alfarið að setja svokallaða krókaleyfísbáta á aflamark, eins og gert er ráð fyrir í gildandi lög- um. Að draga úr veiðum með vist- vænum veiðarfærum er í hróplegu ósamræmi við þá viðleitni að gera ísland að fyrirmyndarríki í um- hverfismálum. Það er líka í full- kominni andstöðu við þá grundvall- arstefnu að vijða beri hefðbundinn forgangsrétt þeirra íbúa sem næst fískimiðunum liggja til nýtingar þeirra." Magnús segir að sjávarútvegs- nefndin, sem skipuð hefði verið af síðasta flokksþingi, myndi starfa áfram. Næsta verkefni í framhaldi af þessari samþykkt væri að setja fram beinagrind að einhvetju sem gæti orðið valkostur í stað kvóta- kerfísins og stefnt væri að því að það yrði lagt fram á flokksþingi sem væntanlega yrði haldið í sum- ar. Morgunblaðið/Snorri Aðalsteinsson Háir skaflar á Höfn í ÓVEÐRINU á laugardag fauk í mikla skafla á Höfn í Horna- fírði, þá mestu í 20 ár að minnsta kosti að því er Hornfirðingar telja. Myndirnar voru teknar þegar menn voru að átta sig á aðstæð- um eftir óveðrið. Halldór Þráinsson og Arnbjörg Stefánsdóttir á Vesturbraut 13 voru að moka sig út úr mannhæðarháum skafli sem hlóðst upp framan við hús þeirra. Arnbjörg sagði að þau hefðu komist út um svaladyr og þannig náð að moka frá aðaldyrun- um. Skaflarnir færðu bíla á kaf, meðal annars bíl við hús á Smára- braut. Tuttugu lífeyrissjóðir iofa 1,3 milljörðum í Hvalfjarðargöng Engar heimildir til kaupa á víkjandi skuldabréfum UM 20 lífeyrissjóðir hafa gefið vilyrði fyrir að kaupa vísitölu- tryggð víkjandi skuldabréf fyrir um 1,3 milljarð kr. á núgildandi verðlagi í skuldabréfaútboði Spalar hf. sem áformar gerð ganga undir Hvalfjörð að sögn Tvö hundruð leitarmenn kallaðir út Leitað að horfnu piltunum í gámum UM 200 leitarmenn frá björgunarsveitum og slysavarnafélög- um voru kallaðir út um klukkan 21 í gærkvöldi til að leita piltanna tveggja úr Keflavík sem saknað hefur verið síðan á miðvikudag, eftir að ábending barst frá erlendum miðlum sem eru staddir hér á vegum Sálrannsóknarfélagsins. Ábendingin fól í sér að piltarnir væru í lokuðu rými og til björgun- arsveita kom beiðni um að leita í öllum lokuðum gámum sem eru á opnu svæði á höfuðborgarsvæð- inu. Kallaðar voru út allar björgun- arsveitir á svokölluðu svæði 1, sem nær frá Hafnarfirði til Hvalfjarð- ar, og einnig sveitir á Suðurnesj- um. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnadeildinni Ingólfi kom ábendingin frá breskum sjáendum sem sagðir eru hafa haft upp á horfnU fólki og horfnum fórn- arlömbum glæpa þar í landi. Lög- reglan á Suðumesjum bað um að leit yrði sett af stað og átti henni að ljúka skömmu eftir miðnætti. Búið var að tilkynna að form- legri -ieit að piltunum hefði lokið á sunnudagskvöld, fyrir utan að ganga á fjörur í nágrenni Kefla- víkur um næstu helgi. Sigurbjörns Gunnarssonar, deildarstjóra hjá Landsbréfum, sem hefur umsjón með fjármögn- un verkefnisins hérlendis. Frest- ur til að skila lánsloforðum renn- ur út í dag. Hyggst Spölur afla 34% af fjármagni með skulda- bréfaútboði hérlendis. Umsamd- ir vextir á skuldabréfunum verða 9,2%, en á móti kemur að Spölur áskilur sér innköllunarrétt á bréfunum. Þannig getur fyrir- tækið innkallað bréfin eftir ákveðinn tíma ef vextir verða lægri og endurfjármagnað sig á hagstæðari kjörum hjá fyrri stofnanafjárfestum eða leitað nýrra. Stór hluti þessara sjóða, þ. á m. þeir sem tilheyra Sam- bandi almennra lífeyrissjóða, hafa ekki heimildir til þess að kaupa víkjandi skuldabréf og verða að afla sér þeirra fyrir vorið. Fáist samþykki innan sjóðs- stjórna um reglugerðarbreytingu vegna skuldabréfakaupanna, leita þeir til þeirra aðila sem tilnefna fulltrúa í sjóðsstjómir og til fjár- málaráðuneytisins sem veitir stað- festingu á henni eða synjun. Einnig kemur til greina að leita heimilda fyrir þessari tilteknu fjármögnun án reglugerðarbreytingar. Aðspurð- ur um hvort lífeyrissjóðirnir stefni ekki fjármunum sínum í tvísýnu,’ standi göngin ekki undir rekstrar- kostnaði eða vaxtakostnaði af lán- um, svo dæmi séu tekin, segir Sig- urbjörn að Landsbréf telji áhættuna litla. „Áhættan felst í umferðinni annars vegar og hins vegar að eitt- hvað komi fyrir göngin eftir að rekstur á þeim hefst. Þá áhættu er hætf að lágmarka með tryggingu og Spölur mun tryggja göngin fyrir skemmdum eftir að rekstur hefst,“ segir Sigurbjörn. Lán greiðist á 15-19 árum Reiknað er með að verktaki sá sem hlýtur verkið taki alla áhættu af gerð ganganna á byggingartím- anum og við hann vetði gert eitt heildaruppgjör eftir afhendingu fullbúinna ganga, sem verða á þremur mánuðum eftir verkslok. Á þeim tíma sem líður frá verkslokum og til afhendingar verður þess kraf- ist að verktakinn annist rekstur ganganna fyrir eigin reikning með innheimtu veggjalda sem Spölur ákvarði. Formleg kaup munu því ekki eiga sér stað fyrr en eftir að gerð þeirra lýkur og á þessi tilhög- un að draga úr áhættu kaupenda skuldabréfa Spalar. Innlendu skuldabréfalánin víkja fyrir banka- lánum Spalar en vextir verða greiddir af bréfunum að því marki sem fjármunir verða til í rekstrin- um, eftir að allur rekstrarkostnað- ur, vextir og höfuðstóll af bankalán- um og skattar hafa verið greiddir. Reiknar Landsbréf með að bréfin verði borguð upp á um 15 árum og hámark á um 19 árum eftir að rekstur ganganna hefst. Áhættan veltur á umferðarspá „Víkjandi skuldabréf eru ofar í röðinni en t.d. hlutabréf og lífeyris- sjóðum er heimilt að kaupa hluta- bréf þannig að áhættan við kaup víkjandi skuldabréfa er minni en áhætta hluthafa. Þegar búið er að byggja göngin eru þau orðin nánast eins og veitufyrirtæki og eina spumingin hversu margir bílar fara þar í gegn og þar af leiðir á hve löngum tíma lánin eru greidd. Bytj- að verður á að greiða bankalánin og miðað við fyrirliggjandi áætlanir verða þau greidd upp á 10 árum, og eftir það er byrjað að borga upp innlendu skuldabréfin. Þá er eina spurningin hvort áætlanir um um- ferð um göngin standist, en meðan njóta þessir aðilar þeirrar ávöxtunar sem er fyrir hendi,“ segir Sigur- bjöm. Bústjóri reynir að seija eignir Sveins bakara í dag Fjórðungi lauk með dómi 81 ákæra um kynferðisafbrot barst til RLR á árinu 1992 17 10-14% ávöxtun Auðvelt fyrir lífeyrissjóðina að ná góðri ávöxtun erlendis án mikiliar áhættu 35 Sumargleðin aftur á fjalirnar Mun skemmta gestum á Hótel ís- landi á næstunni 54 Leiðari Vandi Peresar og Arafats 28 TSnSSínSmm-M** #.«n» #«***<* • V*?****1* íþróttir ► Tvöfalt annað árið í röð hjá Keflvíkingum í körfuknattleik - Austurríska skíðadrottningin Ulrike Maier lést eftir hörmu- legt slys í Þýskalandi Myllan og Samsölubrauð neita að vera í slagnum JÓN Albert Kristinsson, stjórnar- formaður Myllunnar, segir fyrir- tæki sitt ekki um það bil að kaupa þrotabú Sveins bakara eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld. í fréttinni kom fram að risarnir í brauðgerð, Myllan og Samsölubak- arí, hefðu slegist um að komast yfír eignir Sveins bakara en Myllan hefði haft betur og gengið yrði frá kaup- unum í dag. „Þetta er bara léleg frétta- mennska og enginn fótur fyrir þess- ari frétt. Þeir hafa ekki haft sam- band við okkur þannig að þetta er ekki eftir okkur haft,“ sagði Jón Albert. Erlendur Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samsölubakarís, segir slag milli Samsölubakarís og Myll- unnar ekki hafa verið til staðar. Hann segir Samsölubakarí hafa gert tilboð á sínum tíma, sem hafí haft upphaf og endi, og síðan hafi fyrir- tækið ekki komið að málinu. Ýmsir möguleikar Andri Árnason héraðsdómslög- maður er bústjóri í þrotabúi Sveins bakara. „Menn hafa verið að skoða ýmsa möguleika og það hefur verið rætt við þá aðila sem líklegir eru. Þetta með Mylluna hefur verið í at- hugun en ég held að það sé ekkert sem bendi til þess að af því verði. Menn hafa verið að ræða við Iðnlána- sjóð, sem er stærsti kröfuhafi, og eftir þeim upplýsingum sem ég hef liggur þetta ekki fyrir og ekki líkur á að svo verði. Núna liggur fyrir að taka ákvörðun um næsta skref, hvoit til komi riftun á kaupsamningum sem Sveinn gerði við konu sína og ráð- gjafa en hlutafélög á hans snærum keyptu þessar eignir. Þrotabúið hefur ekki viljað sætta sig við það og ekki veðhafar og það stefnir í að gripið verði til einhverra aðgerða núna fljót- lega,“ sagði Andri Arnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.