Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
Um þyrlukaup íslendinga
eftir Halldór Jónsson
og Gunnar Helgason
Undirritaðir hafa kynnt sér þyrlu-
rekstur varnarliðsins um nokkurt
skeið. Höfum við heimsótt þyrlu-
sveit Varnarliðsins og kynnt okkur
starfsemi hennar.
Þessi þyrlusveit hefur bjargað
meira en hálfu öðru hundraði ís-
lenzkra mannslífa frá því að rekstur
hennar hófst fyrir aldarfjórðungi.
Vélakostur
Varnarliðið hefur til umráða 4-5
þyriur af gerðinni Sikorsky MH-60
G Pave Hawk. Um 1.800 svona
vélar eru í rekstri um allan heim.
Afísingarbúnaður er á öllum þess-
um vélum. Slíkur búnaður á þyrlum
er þó meira til öryggis ef skilyrði
versna skyndilega en blindflugs í
ísingarskilyrðum.
Pave Hawk-vélarnar eru búnar
tveimur GE-þotuhreyflum, um 1940
hestöfl. Fullhlaðnar vega þær um
10 tonn. Hönnun þeirra er með þeim
hætti, að eldsneytisgeymar eru ekki
undir botni heldur fyrir aftan arð-
rými. Gefur þetta öryggi í mögu-
legri brotlendingu. Þyrlan verður við
þetta fremur lág og löng sem gefur
henni góða flugeiginleika í hliðar-
vindi en breiddin verður meiri, sem
gefur stöðugleika. Flotholt að fram-
an eru staðalútbúnaður til þess að
áhöfn komist út af ef ient er í sjó.
Fleiri flotholt er hægt að setja á
þær, en þyrlur henta illa til siglinga
á sjó eins og dæmin sanna, þar sem
þyngdarpunktur þeirra er mjög of-
arlega.
. Venjulegt flugdrægi Pave Hawk-
þyrla varnarliðsins er 504 sjómílur,
eða rúmar 4 klst. á lofti með venju-
lega eldsneytisgeyma. Þær lyfta
meira en einu og hálfu tonni með
þessa geyma fulla. Nýlega flaug
svona þyrla frá New Jersey í Banda-
ríkjunum langt á haf út, tók upp 6
menn í sjávarháska og flaug síðan
styztu leið til Bermuda, yfir 600
mílna leið alls.
Þessar þyrlur geta tekið allt að
20 manns í öryggissæti þó það skipti
ekki máii í björgunarstörfum. Um
hæfi þessara véla til að athafna sig
í svo sem 11 vindstigum, í mjög
slæmu skyggni og við ísingarskil-
yrði og í myrkri til viðbótar, þarf
ekki lengur að fjölyrða við íslend-
inga.
Flugmenn varnarliðsins hafa til
Halldór Jónsson
Gunnar Helgason
J augnablikinu getur verið
slökktá farsímanum, hann utan
þjónustusvæðis eða...
„Við teljum það augljósa kosti að reka sams kon-
ar þyrlu og varnarliðið notar hveiju sinni. Nægir
að nefna samþjálfun flugmanna, varahlutahald
og möguleika á eldsneytistöku í lofti.“
umráða nætursjónbúnað, sem gerir
þeim kleift að fljúga björgunarflug
í niðamyrkri.
Tölur um flugdrægi segja ekki
alla söguna. Það er hægt að setja
auka eldsneytisgeyma í flestar flug-
vélar. Þá minnkar burðargetan sem
þyngdinni nemur.
Varnarliðið í Keflavík hefur hins
vegar tiltæka Herkúles-eldsneytis-
flugvél, sem getur gert þyrlunum
kleift að komast ótrúlegar vega-
lengdir yfír cpið haf. Eldsneytisflug-
vélin er því forsenda fyrir öruggri
starfrækslu þyrlusveitarinnar, sem
getur þurft að sinna útköllum langt
úti í höfum.
Eins og flestum er kunnugt, þá
eru þyrlur mjög flókin tæki og þurfa
miklar skoðanir og viðhald. Því þarf
varnarliðið að hafa 4-5 þyrlur jafnan
staðsettar í Keflavík til þess að 2-3
séu ávallt flughæfar á nóttu sem
degi, virka daga og helgidaga. En
Pave Hawk-þyrlur Bandaríkjahers
þurfa 3,2 klukkustunda viðhalds-
vinnu fyrir hveija flogna klukku-
stund. Til samanburðar þurftu Jolly
Green Giant-vélamar, sem sveitin
notaði áður, yfir 20 klukkustunda
TALHÓLF
PÓSTS 06 SÍMA
Talhólf ný og fullkomin símsvaraþjónusta Pósts og síma. Það er
sérstaklega sniðið að þörfum farsímanotenda, en hentar einnig öðrum sím-
notendum. Talhóffið er geymsla fyrir töluð skilaboð til þín. Pjónuslan er ódýr,
þú þarft ekkert annað en símann þinn. Og þú ert alltaf í sambandi.
Stofngjald fyrir talhólf er 623 kr. m. vsk. en föst afnotagjöld eru 374 kr. m. vsk.
ársfjórðungslega fyrir farsímanotendur, en 934 kr. m. vsk. fyrir aðra símnotendur.
■
.
Talhólfið:
- Svarar alltaf
- Fullkominn símsvari
- Einfalt og þægilegt
- Örugg geymsla
skilaboða
Talhólf ið tilkynnir
skilaboð sjálfkrafa:
-í farsíma
- í boðtæki
-1 venjulegan síma
■ m m
-
4
I
viðhald fyrir flugstund.
Pave Hawk MH-60-þyrla varnar-
liðsins kostar um 12 milljónir doll-
ara. Heyrst hefur þó að slík þyrla
geti fengist fyrir milligöngu Banda-
ríkjahers fyrir 10 milljónir dollara,
sé íslenzka ríkið kaupandi.
Þetta verð er fyrir nýjar vélar.
Þetta er lægri upphæð en aðeins
ein af Fokker-innanlandsflugvélum
Flugleiða kostar. Kostir þess, að
Landhelgisgæzlan rekur einnig Fok-
ker-vél fyrir sína starfsemi, hafa
sýnt sig í gegnum árin í samstarfi
hennar og Flugleiða.
Ekki þarf að fjölyrða um þann
mikla varahlutalager, sem þyrlurek-
andi verður að hafa tiltækan, til
þess að tryggja rekstraröryggi.
Gildir hér sama og að reka til dæm-
is tugi strætisvagna. Væru þær all-
ir af mismunandi gerð yrði vara-
hlutalager óhjákvæmilega stærri og
dýrari og fleiri handtök þyrftu að
lærast.
Sömu varahlutir fyrir 5 þyrlur eða
6 í þessu iandi gefa augaleið um
aukna hagkvæmni og öryggi. Flug-
leiðir myndu tæpast vilja fremur
reka 4 vélar í innanlandsflugi af
sitt hvorri gerð en 4 sömu gerðar,
eins og ér og verið hefur.
Þyrlukaup Islendinga
Mikið hefur verið deilt um það,
hvaða þyrlutegund íslendingar eigi
að kaupa. Sýnist sitt hveijum.
Margir virðast álíta, að flugmenn
Landhelgisgæzlunnar eigi að ráða
valinu. Undirritaðir telja það ekki
sjálfgefið fremur en að flugmenn
Flugleiða eigi að ráða flugvélakaup-
um þess félags.
Rætt hefur verið um að kaupa
ýmsar tegundir þyrla, bæði nýjar
og notaðar. Fjárhæðirnar, sem talað
er um í hveiju tilviki, virðast samt
bitamunur en ekki fjár. Aðrir kostir
hljóta þó að koma til skoðunar.
Undirritaðir eiga engra viðskipta-
legra hagsmuna að gæta í sam-
bandi við þyrlukaup íslendinga um-
fram aðra skattgreiðendur landsins.
Við teljum það augljósa kosti að
reka sams konar þyrlu og vamarlið-
ið notar hverju sinni. Nægir að
nefna samþjálfun flugmanna, vara-
hlutahald og möguleika á elds-
neytistöku í lofti.
Vonandi verður þyrlukaupamálið
brátt ráðið svo af okkar vísustu
mönnum, að möguleikar íslendinga
sjálfra til björgunarstarfa verði
ávallt sem mestir og hagkvæmastir.
Halldór Jónsson er
framkvæmdastjóri
Steypustöðvarinnar. Gunnar
Helgason er hæstaréttarlögmaður
og fyrrverandi forstöðumaður
lögfræðideildar Fluglciða.
Brunavarnir Árnessýslu
21 útkall á síðasta ári
Selfossi.
SLOKKVILIÐ Brunavarna Arnessýslu var kallað út 21 sinni á síð-
asta ári. 16 sinnum var liðið kallað út vegna bruna, þar af þrisvar
sinnum vegna bruna í byggingum, fimm útköll voru vegna gróður-
bruna og íkveikju í rusli en fimm sinnum var útkall án bruna, þar
af einu sinni til að aðstoða við umferðarslys með björgunarbúnað
sem slökkviliðið hefur yfir að ráða.
Haldnar voru æfingar til að
kynna notkun og meðferð hand-
slökkvitækja á árinu 1993 og tóku
140 manns þátt í þeim frá fyrirtækj-
um og stofnunum. Slökkvistöðin
annast sölu á slökkvitækjum og
reykskynjurum og veitir aðstoð við
öflun annars búnaðar til bruna-
varna. Veittar eru ráðleggingar um
val og uppsetningu slökkvibúnaðar,
án endurgjalds. Einnig annast
slökkvistöðin hleðslu og skoðun
slökkvitækja.
Brunavarnir Arnessýslu er sam-
rekstur 11 sveitarfélaga í Árnes-
sýslu sem hafa 6.300 íbúa.
Sig. Jóns.
Skráning og upplýsingar: |TGrænt númer: 99 63 88
Umsóknareyðublöð liggja frammi á öllum sölustóðum Pósts og síma.
POSTUR
OG SÍMi
IbmiÐOG*
M!
Hæstu
námskeið
:RÐU 18. —19. og
LÉTTA 5. og 6. febrúar.
DANSSVEIFLU
ÁTVEIM
DÖGUMt.
Áhugahópur um almenna dansþátttöku á íslandi
hringdu núna