Morgunblaðið - 01.02.1994, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
Islensk st|orn-
skípun 90
Fyrir réttum 90 árum, 1. febrúar 1904, gekk í gildi ný stjórnskip-
un á íslandi. Landshöfðingjadæmið hvarf úr sögunni, en íslenskt
stjórnarráð tók við undir forustu fyrsta íslenska ráðherrans, Hannes-
ar Hafsteins. Komin var langþráð heimastjórn og framkvæmdavald-
ið loks orðið innlent. Deginum var fagnað með því að fánar voru
dregnir að hún í Reykjavík þegar um morguninn og um kvöldið var
samsæti haldið í Iðnaðarmannahúsinu, bæði til að kveðja fráfarandi
stjórn og landshöfðingjann Magnús Stephensen og heilsa hinni nýju,
Hannesi Hafstein ráðherra óg samverkamönnum hans. Þetta voru
mikil tímamót í sögu íslendinga.
í júlílok um sumarið hafði stjóm-
arskrárbreytingin verið samþykkt
við þriðju umræðu í efri deild með
öllum atkvæðum gegn einu og þar-
með hafði málið hlotið lokaaf-
greiðsiu þingsins. Málið átti þó
langan aðdraganda. í íslenskum
söguatlasi segir m.a. í stuttu máli:
Tímabilið 1874 til 1904, sem oft
hefur verið kallað Landshöfðingja-
tímabilið, einkenndist af þrálátum
og stíflyndum stjómmáladeilum.
Með stjómarskránni 1874 höfðu
orðið þáttaskil þar sem segja má
að flestar kröfur Islendinga hafí
" náð fram að ganga að undanskildu
framkvæmdavaldinu. Jafnframt því
sem kynslóðaskipti urðu í þing-
mannaliðinu komu fram nýjar kröf-
ur og breyttar áherslur. Að tölu-
verðu leyti endurspegla stjóm-
málaátök hérlendis það sem var að
gerast í Danmörku á sama tíma.
Arið 1885 hófst baráttan fyrir end-
urskoðun stjórnarskrárinnar af full-
um þunga. Meginkrafa endurskoð-
unarmanna var að fá framkvæmda-
valdið inn í landið. Eftir að frum-
varp endurskoðunarmanna hafði
verið samþykkt á fjórum þingum
og tvívegis verið hafnað af konungi
var mikillar þreytu farið að gæta í
þingliðinu en þráhyggja Benedikts
Sveinssonar var óbugandi. Eftir
mikið baktjaldamakk með íslensk-
um og dönskum stjómmálamönn-
um lagði Valtýr Guðmundsson fram
nýtt frumvarp 1897. Meginefni
þess var að Islendingur, sem sæti
í Kaupmannahöfn, yrði íslands-
málaráðherra og bæri ábyrgð fyrir
Alþingi. Frumvarp Valtýs var loks
samþykkt á þinginu 1901 en um
sama leyti urðu stjómarskipti í
Danmörku, þingræði var viður-
kennt og vinstrimenn komust til
valda. Þessar breytingar urðu tii
þess að stjómin lagði nýtt fmmvarp
fyrir Alþingi sem gerði ráð fyrir
íslenskum ráðherra búsettum á ís-
landi og skyldi hann bera þingræð-
islega ábyrgð fyrir Alþingi. Frum-
varpið var samþykkt í tvennum
kosningum 1902 og 1903 og fyrsti
íslenski ráðherra tók við embætti
1. apríl 1904.“
Af blaðafréttum má sjá að mik-
ill spenningur hefur verið ríkjandi
haustið 1903, frá því að stjórnar-
skrárfrumvarpið var samþykkt og
hlaut staðfestingu konungs, um það
hver verða mundi fyrsti ráðherrann
og ýmsar getgátur uppi. 24. októ-
ber segir nj.a. í blaðafrétt: Ýmsir
hafa taiið, að stjómin hefði einkum
auga á Hannesi sýslumanni Haf-
stein. Sú ætlan fékk byr undir báða
vængi þegar Hannes kom til
Reykjavíkur og tók sér far til Kaup-
mannahafnar og ekkert látið uppi
um erindi hans. Og 13. nóvember
segir í frétt: Nýja stjórnin kvað eiga
að taka til starfa hér á landi 1.
febrúar næstkomandi. Naumast
getur þó allt orðið komið í fastar
skorður svo snemma, því að
stjórnarbreytingin útheimtir mikinn
og margháttaðan undirbúning.
Meðal annars verður að breyta
landshöfðingjahúsinu í stjórnar-
skrifstofur, og mun það taka all-
langan tíma. Landshöfðinginn kvað
ætla að flytja úr húsinu seint í þess-
um mánuði í hið nýbyggða hús sitt
við Þingholtsstræti. Loks 25. nóv-
ember segir í frétt i Þjóðólfi eftir
að skipið Laura hafnaði sig í
Reykjavík að Hannes Hafstein
sýslumaður og bæjarfógeti á
ísafirði hafí verið ákveðinn af kon-
ungi ráðherra Islands frá 1. febrúar
1904. Er honum og með umboðs-
ára
bréfí veitt fullt vald til að gera ali-
ar þær ráðstafanir, er gera þarf
hér á landi, til 1. febrúar, að því
er snertir breytingu á hinni nýju
umboðsstjórn, skipun embættis-
manna í nýju stjórnina o.s. frv.
Landshöfðinginn kveður
í tilefni dagsins er stjórnskipunin
nýja gekk í garð flutti Magnús
Stephensen landshöfðingi ræðu og
komst m.a. svo að orði: „Þegar
landshöfðingjaembættið losnaði
fyrir 18 árum, og mér var boðið
að verða eftirmaður Bergs Thor-
bergs, var ég í miklum vafa um,
hvort ég ætti að taka því boði. Ég
hafði aldrei haft ágirnd á því emb-
ætti, bæði af þvf að ég fann mig
ekki mann til að þjóna því, og af
því að mér hafði alltaf fundizt, að
landshöfðinginn - ef ég mætti svo
að orði kveða - væri eins og lús á
milli tveggja nagla, naglarnir á al-
þingi og naglarnir í stjórninni ...
Það er alls ekki nóg að vera nýtur
iandshöfðingi, að vera þolanlegur
„administrativ“-embættismaður, að
geta leyst viðunanlega af hendi hin
daglegu embættisstörf, það er
"heimtað meira af landshöfðingjan-
um, einkum þegar ráðgjafinn er
danskur maður, ókunnugur land-
inu, ókunnugur meinum þess og
þörfum, og þess vegna ófær um
að fínna hin réttu ráð til að bæta
úr þeim. Þetta hef ég fundið mjög
vel, en það, sem mig hefur vantað
sérstaklega, það er „initiativ“
(frumkvæði), skapandi hugsjónir
og aðrir hæfileikar, til að ryðja
nýjar framfarabrautir. Ég hef verið
lítið, sjálfsagt of lítið, fyrir miklar
breytingar, ég hef verið „konserva-
tiv“, sjálfsagt of „konservativ". Ég
vona að ég hafi ekki gert mikinn
beinlínis skaða í embættisrekstri
mínum, en vitanlega mikinn óbein-
línis skaða með því, að gera ekki
það, sem heimta mátti af mér. Ég
hef viljað reyna að vera réttlátur
og óhiutdrægur í úrskurðum mínum
og tillögum til yfirboðara minna,
en hvort eða að hve miklu leyti
mér hefur tekizt það, er ekki mitt
að dæma um. Ég hef haft augun
Magnús Stephensen landshöfð-
ingi kvaddi.
opin fyrir ýmsum helstu þörfum
þjóðarinnar, en ég hef ekki getað
fundið hin réttu ráð til að ráða bót
á þeim ... En þrátt fyrir allt þetta,
dirfist ég að hafa þá ímyndun, að
ég sé eins góður ættjarðarvinur,
eins og hver óvalinn Islendingur.
Þess vegna gleðst ég af alhuga
yfir því að æðsta stjórn landsins
nú er komin í hendur þess manns,
sem hefur þá hæfíleika sem mig
hefur vantað, til að efla heill þjóð-
arinnar og ryðja nýar framfara-
brautir, og sem þar að auki hefur
það vald sem útheimtist til að koma
sínum hugsjónum til fram-
kvæmda..."
Fyrsti íslenski ráðherrann
Hinn nýi ráðherra íslands, Hann-
es Hafstein, mælti m.a. á þessa
leið: „Ég vil stuðla að því, að allir
kraftar leggist á eitt um að hag-
nýta stjórnarbótina sem bezt. Eg
hef yfirleitt átt mjög góðum og vin-
gjarnlegum viðtökum að fagna, og
það eigi aðeins frá vinum mínum
og samhetjum, heldur einnig frá
mörgum öðrum, sem ég síður hefði
getað vænzt þess af. Öll blöð lands-
ins, sem ég hef ástæður til að bera
nokkra virðingu fyrir, hafa tekið
mér hlýlega, eða að minnsta kosti
sæmilega. Ég minnist þess þakklát-
lega, og það því fremur, sem ég
hef hvorki aldur, lærdóm eða póli-
tíska yfirburði til þess, að það gæti
verið sérlega líklegt, að menn
mundu svo almennt fella sig við
Hannes Hafstein, fyrsti íslenski
ráðherrann, kom.
valið. Ég tek þetta sem góðs vita,
sem góðan fyrirboða um friðsemi
og einlægan vilja til dyggilegrar
samvinnu á grundvelli hins nýja
stjórnarfars, með heill fóstuijarð-
arinnar eingöngu að markmiði. Og
vissulega mun ég af alhuga kapp-
kosta, að verða ekki til að spilla
friðnum, heldur mun ég leggja alla
stund á friðsamlega vinnu og reyna
eftir megni að stuðla að því að all-
ir góðir kraftar leggist á eitt um
að hagnýta sem bezt stjórnarbót
þá, sem við höfum fengið."
Skipun stjórnarráðs
Um leið hafði ráðherrann valið
nýtt stjórnarráð. Ráðherra var yfir-
maður þess og hafði sér til aðstoð-
ar landritara. Landritari varð Klem-
ens Jónsson sýslumaður og bæjar-
fógeti á Akureyri. Stjórnarráðinu
var skipt í þijár deildir og sérstak-
ur skrifstofustjóri fyrir hverri:
Skrifstofustjóri Kennslumála- og
dómsmáladeildar varð Jón Magnús-
son landshöfðingjaritari, deildar-
stjóri Atvinnu-og samgöngumála-
deildar var Jón Hermannsson cand.
jur. og skrifstofustjóri Fjármála-
og endurskoðunardeildar varð Egg-
ert Briem sýslumaður Skagfirð-
inga. Tilkynnt var að stjórnarskrif-
stofurnar yrðu opnar á hveijum
virkum degi kl. 10 f.h. til kl. 4 e.h.
Viðtalstími ráðherra yrði hvern
virkan dag kl. 12-2. íslendingar
höfðu fengið íslenskt stjórnarráð,
starfandi í landinu.
Bein útsending frá Ráðhúsi Reykjavíkurborgar í kvöld
90 ára lieimastj órn-
arafmæli fagnað
EFNT verður til hátíðardagskrár í tilefni af opnun ljósmyndasýning-
arinnar Island við aldahvörf í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar I kvöld.
Dagskráin markar upphaf hátiðarhalda í tengslum við 50 ára afmæli
lýðveldis Islands og er haldin í tilefni 90 ára heimastjórnar í landinu.
Gestir hafa verið boðaðir í Ráðhúsið kl. 20.30 og bein útsending frá
dagskránni hefst í ríkissjónvarpinu kl. 21.05. Benedikt Árnason verður
kynnir hátiðarinnar.
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóri, opnar hátíðina með ávarp-
inu Ur höfuðstað í höfuðborg og
Bergþór Pálsson syngur þijú lög
við undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Því næst fjallar Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, um Hannes
Hafstein, fyrsta ráðherra íslend-
inga, og Ragnheiður Steindórs-
dóttir flytur ljóðið Aldamót eftir
Hannes.
Næsti dagskrárliðurinn er leik-
þátturinn Fyrsti ráðherrann eftir
Indriða G. Þorsteinsson, rithöfund,
og eru leikarar þeir Gísli Aifreðs-
son og Jóhann Sigurðarsson. Að
lokum kynna fulltrúar Ljósmynda-
safns Reykjavíkur ljósmyndasýn-
inguna ísland við aldahvörf.
ísland við aldahvörf
Markmið ljósmyndasýningarinnar
er þríþætt eftir því sem segir í frétt
Lýðveldishátíðarnefndar. Sýningin á
að vekja athygli á einum merkisdegi
í sögu þjóðarinnar, T. febrúar 1904,
en þá tók Hannes Hafstein við emb-
ætti fyrsta ráðherra íslands með
aðsetri á íslandi, æðsta fram-'
kvæmdavaldið í málefnum íslands
fluttist til Reykjavíkur og hún varð
höfuðborg landsins. í öðru lagi verð-
ur sýnt hvernig hugsjónir Hannesar
í Ijóðinu Aldamót hafa ræst og hvaða
árangur lögeggjan Einars Benedikts-
sonar í íslandsljóm hefur borið. Loks
er sýningunni ætlað að fá áhorfendur
til að skynja þá miklu breytingu og
framfarir sem urðu á íslandi við
upphaf 20. aldar. Ljósmyndasýningin
verður opin út febrúarmánuð.
Flóðlýsing
í tilefni af 90 ára afmæli heima-
stjórnar kveikir Davíð Oddsson, for-
Stjórnarráð
LANDSHÖÐINGJABÚSTAÐURINN við Lækjartorg varð Stjórn-
arráð íslands 1. febrúar 1904. íslendingar fengu þjóðfána árið 1915.
sætisráðherra, á flóðlýsingu við
Stjórnarráðshúsið og stytturnar á
lóðinni við Lækjartorg kl. 17 í dag.
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóri, flytur ávarp og lúðrasveit
leikur nokkur lög fyrir athöfnina.
Hátíðarhöld Orators, félags laganema
Hannes Hafstein flytur ljóð
ORATOR, félag laganema, efnir
til hátíðarhaida í tilefni af 90 ára
afmæli heimastjórnar hér á landi
í dag.
Hátíðarhöldin hefjast með því að
laganemar og gestir safnast saman
við Lögberg, hús lagadeildar, um kl.
11.15 og verður gengið fylktu liði
til Stjórnarráðsins. Þar tekur lúðra-
sveit á móti hópnum og Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, flytur stutt
ávarp um kl. 12.
I framhaldi af því minnist fulltrúi
Orators 90 ára afmælis heimastjóm-
arinnar og Hannes J. Hafstein, laga-
nemi, flytur ljóð eftir Hannes Haf-
stein fyrsta ráðherra íslendinga.
Ráðherrum verður færð táknræn
gjöf frá Orator. Um kl. 12.30 verður
efnt til kaffisamsætis í kaffihúsi
Ráðhúss Reykjavíkur í boði Orators.
Verði slæmt veður er gert ráð
fyrir að ráðherra taki á móti fulltrú-
um Orators í Stjórnarráðshúsinu kl.
12 og taki við gjöfinni frá félaginu.
Að öðru leyti flytjist dagskráin í
Ráðhúsið.