Morgunblaðið - 01.02.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
33
m . 0 Morgunblaðið/Ingvar
Gnpnir a hlaupum
ANNAR mannanna leiddur inn í lögreglubíl í Þingholtunum eftir að hafa verið handteknir.
Gripnir glóðvolgir en
þrættu fyrir brotið
ÞJÓFAR, sem brutust inn í verslun við Grundarstíg aðfaranótt
sunnudags, voru eltir uppi í Þingholtunum af lögreglunni. Þeir
þrættu fyrir verknaðinn, en þó sá annar þeirra ástæðu til að reyna
að fela nokkra tóbakspakka undir framsæti lögreglubílsins.
Vegfarendur hringdu í lögregl-
una klukkan hálf þijú um nóttina
og sögðu að tveir menn væru að
bijótast inn í verslunina. Skömmu
síðar bárust þær upplýsingar, að
mennirnir hefðu hlaupið á brott,
í átt að Bókhlöðustíg. Til tvímenn-
inganna sást þar sem þeir hlupu
inn í garð, en þegar lögreglumenn
fylgdu á eftir gáfust þeir snarlega
upp. í lögreglubílnum reyndi ann-
ar þeirra að lauma nokkrum tók-
akspökkum undir framsæti lög-
reglubílsins og varð fátt um svör
þegar hann var inntur eftir því
hvaða varningur væri þar á ferð-
inni. Báðir neituðu þeir staðfast-
lega að hafa brotist inn í verslun-
ina. Þeir gistu fangageymslur um
nóttina, en var sleppt á sunnu-
dagsmorgun að loknum yfir-
heyrslutn.
Áður komið við sögu
Mennirnir tveir eru um tvítugt.
Annar þeirra hefur einu sinni kom-
ið við sögu lögreglu vegna inn-
brots og þjófnaðar. Hinn hefur
komið tvisvar við sögu vegna um-
ferðarlagabrota.
Alls voru 22 innbrot í umdæmi
Reykjavíkurlögreglunnar um helg-
ina. Oftast var farið inn í söluturna
og brotnir'upp spilakassar, til að
komast að smámynt.
Jafnréttísráð fjallar um söngkeppni Menntaskólans í Reykjavík
Karlkyns keppendur hafa
kært niðurstöðu dómenda
KARLKYNS keppendur I söngkeppni Menntaskólans í Reykjavík
hafa ákveðið að kæra niðurstöðu dómenda til Jafnréttisráðs. I frétta-
tilkynningu sem strákarnir 13, sem tóku þátt í keppninni í ár, sendu
frá sér í gær segir að nú hafi enginn karlmaður verið valinn í verð-
launasæti þriðja árið í röð, þrátt fyrir „heiðarlegar tilraunir tveggja
keppenda til að ganga í augun á dómendum með því að klæðast
kvenmannsfatnaði," eins og segir í tilkynningunni.
í tilkynningunni segir einnig
að í ljósi þessara staðreynda
megi draga þá ályktun að gífur-
legt kynjamisrétti viðgangist í
keppnum sem þessari og að það
sé óviðunandi ástand að kyn
keppenda skipti öllu máli þegar
að stigagjöf komi.
„Er það í eðli karlmanna að
rödd þeirra tekur breytingum
eftir að þeir hafa náð vissum
aldri og því ekki þeirra sök þó
að þeir hafi ekki þessar tæru
raddir sem dómnefndir virðast
sækjast eftir. Kappsfyllstu karl-
mennirnir hafa rætt um að gang-
ast undir aðgerð sem gerir rödd
þeirra tærari en skerðir um leið
hæfni þeirra til barneigna,“ segir
í tilkynningunni.
Þátttöku neitað?
Strákarnir 13 segjast telja sorg-
legt fyrir karlmenn að fara í keppni
Telpa féll niður um ís
NÍU ára telpa féll niður í vök á ísilögðum skurði í Grafarvogi á
föstudag. Telpunni tókst að komast upp úr af eigin rammleik, en
lögreglan hefur eftir íbúum í nágrenninu að þeir telji skurðinn slysa-
gildru.
Óhappið varð fyrir neðan Nes-
hamra, en þar em gamlir fram-
ræsluskurðir. Telpan var að leik
ásamt vinkonu sinni á ísilögðum
skurði þegar ísinn brast undan
henni. Hún blotnaði upp að mitti
og tókst í fyrstu ekki að komast
upp úr vökinni. Vinkona hennar
hljóp í næsta hús og þaðan hringdi
kona á sjúkrabíl. Nærstaddur mað-
ur hljóp niður að skurðinum, en þá
hafði telpunni tekist að komast á
þurrt af eigin rammleik. Hún var
flutt á slysadeild til rannsóknar, en
varð ekki meint af.
Lögreglan hefur það eftir íbúum
í nágrenninu að þeim standi stugg-
ur af skurðum þessum, því börn
sæki í að leika sér á þessu svæði
og illa sjáist til þeirra úr næstu
húsum. Því skapi skurðirnir mikla
slysahættu.
sem þessa, vitandi að stúlkur hreppi
öll verðlaunasæti. Ef áframhald
verði á þessu misrétti muni hæfi-
leikaríkir karlmenn án efa neita
þátttöku í söngkeppnum þar sem
engir möguleikar séu fyrir verð-
launasæti sakir kynferðis þeirra.
Yrði slíkt íslenskri menningu síst
til framdráttar.
-----»--»-4---
Lögregla
kánnaðist
við kauða
LÖGREGLAN handtók inn-
brotsþjóf á laugardagskvöld og
viðurkenndi hann að hafa brot-
ist inn í íbúð við Leifsgötu fyrr
um kvöldið.
Um kl. 9 um kvöldið sást til
mannsins, þegar hann braut rúðu
í húsi við Leifsgötu. Þar fór hann
inn og rótaði til, en mun litlu eða
engu hafa stolið. Lögreglan fékk
ágæta og kunnuglega lýsingu á
manninum frá sjónarvottum og
handtók hann á skemmtistað síðar
um kvöldið. Hann viðurkenndi brot
sitt, en hann hefur margoft komið
við sögu lögreglunnar vegna svip-
aðra mála.
Foreldrar létu
synina skila þýfi
FORELDRAR þriggja 15 ára pilta
komu með syni sína á lögregiustöð
á sunnudag og létu þá skila þar
þýfi, sem þeir höfðu náð með inn-
broti í verslun í Grafarvogi.
Piltarnir brutust inn í verslun í
Grafarvogi um kl. 4 aðfaranótt
sunnudags og stálu þar m.a. poppi,
kók, myndbandsspólum og Happa-
þrennum. Þá skemmdu þeir spila-
kassa, sem þeir reyndu að bijóta upp.
Daginn eftir birtust piltarnir held-
ur framlágir á lðgreglustöð í fylgd
foreldra sinna, sem gerðu þeim að
skila þýfinu. Hafa piltamir vonandi
lært af því mikilvæga lexíu.
FAI traktorsgröfur W
eru hagkvæmar í IM
rekstri, öílugar og umfram
allt þægilegar í verki.
Mikið er lagt í þægindi
og öiyggi ökumanns.
Verð frá kr. 3.750.000,- án Vsk.
Til afgreiðslu nú þegar!
Við ryðjum
veginn
fyrir nýrri
árgerð!
Við bjóðum ’93 árgerðimar af
FAI 898 og 698 með góðum
afslætti á sérstakri rýmingar-
sölu sem nú stendur yfir.
FUNAHÖFÐA 6-112 REYKJA VÍK
SÍMl (91) 634500 - FAX (91) 634501
TÆKIÁ TRAUSTUM GRUNNI