Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1994
Mínní sóun — hærri laun
eftir Þór Sigfússon
Á undanförnum mánuðum hafa
fjölmiðlar fjallað um sóun í ríkis-
kerfinu, m.a. í ríkisbönkunum. Þó
vinsælt sé að gagnrýna t.d. bíla-
og ferðakostnað ríkisbankastjóra
er ljóst að hagræðing, sem er
sparnaður fyrir skattgreiðendur,
getur komið til á mun fleiri svið-
um. Hagræðing á erindi í rekstur
almenningsvagna, opinberra stofn-
ana og yfirleitt alls staðar þar sem
skattfé okkar er nýtt. Slík mál eru
sjaldnast eins vinsæl og banka-
stjóramálin en þau eru jafn mikil-
væg ef ekki mikilvægari þar sem
oft er um mun hærri fjárhæðir er
að ræða.
Óhagræðið í opinberum rekstri
er sá fortíðarvandi sem ýtt hefur
undir efnahagssamdráttinn. Sóun-
in hefur því komið í hausinn á
okkur öllum og hún mun halda
áfram að gera það. Óhagræði og
útþensla í opnberum rekstri eru
nefnilega nátengd launum, því
meiri miðstýring og óhagræði hjá
hinu opinbera því lægri eru launin.
Það eru því hagsmunir launafólks
að hið opinbera verði einfaldað og
betur rekið en áður.
Þær leiðir sem farnar hafa verið
á undanfömum árum við að bæta
og einfalda ríkiskerfið hafa þrátt
fyrir allt sjaldnast hlotið hljóm-
grunn hjá samtökum launafólks.
Hugmyndafræðin um sparnað og
hagræðingu hefur verið feimnis-
mál þar sem boðendur hennar eru
úthrópaðir óvinir launafólks, óvinir
byggðar í landinu og jafnvel óvinir
barna. Hugmyndir um sölu opin-
berra fyrirtækja, útboð hjá hinu
opinbera, lokun stofnana og þjón-
ustu o.fl. hafa verið gagnrýndar
og fullyrt að þessum hugmyndum
sé fyrst og fremst beint gegn
launafólki, það muni missa vinn-
una, lækka í launum eða tapa á
þessum breytingum með öðrum
hætti. Reynslan virðist samt hafa
orðið önnur. Tökum nokkur dæmi.
Sala ríkisfyrirtækja
lækkar skatta
Sala ríkisfyrirtækja eins og Gut-
enberg, Jarðborana ríkisins og
Ferðaskrifstofu íslands var nokkuð
gagnrýnd og fullyrt að þessar að-
gerðir beindust fyrst og fremst
gegn starfsmönnum fyrirtækj-
anna. Þegar nýr eigandi Guten-
bergs var inntur eftir því hvort
hann mundi fækka starfsfólki
svaraði hann því til, að hann hefði
ekki keypt Gutenberg til þess að
segja upp hæfu starfsfólki þess.
Líkumar á að þú
hljótir vinning, em
hvergi eins miJklar
og í Happdrætti
Háskóla Islands!
Flestir spila í happdrætti til að hljóta vinning,
en oft ræður kapp frekar en forsjá því hvar menn
spila. í HHÍ getur annar hver miði hlotið vinning*
bað eru mestu vinningslíkur í happdrætti á íslandi.
Á 60 ára afmælisári býður HHÍ m.a upp á glæsilegan
afmælisvinning samtals að upphæð 54 milljónir. EINGÖNGU
VERÐUR DREGIÐ ÚR SELDUM MIÐUM. Slíkir möguleikar
finnast ekki í öðru happdrætti hérlendis.
Nú hefur enginn efni á að vera ekki með í HHÍ og eins gott að
tryggja sér númer tímanlega áður en miðar seljast upp.
■wjki (E) Miðaverð er óbreytt, 600 kn
Spilar þú ekki ígóða happdrœttinu?
ýítl
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til virmings
' Á árinu 1993 voru greiddir út 52.768 vinningar á samtals 105.470 selda miöa. Vinningur féll því á meira en annan hvern miöa.
Þór Sigfússon
„Það kerfi er rangt sem
stuðlar að stöðugft
lækkandi launum en
aukningu á kostnaðar-
sömum fríðindum og
óhagræði“.
'Svo hefur einnig komið á daginn.
Breytingamar hafa skilað árangri,
starfsmenn eru ánægðir með
breytingarnar og ríkið grynnkaði
á skuldum sínum og er hætt óþarfa
afskiptum af þessum greinum.
Lokun ríkisfyrirtækja hefur skil-
að sér til launafólks með öðrum
hætti. Auðvitað hefur starfsfólk
þeirra þurft að leita sér að annarri
vinnu en þegar á heildina er litið
hefur allt launafólk haft hag af
slíkum breytingum. Lokun Ríkis-
skipa þýddi hundruð milljóna
sparnað á ári sem að sjálfsögðu
skilar sér til alls launafólks í land-
inu. Sama á við um lokun Álafoss
og fleiri opinber eða hálfopinber
fyrirtæki sem voru á framfæri rík-
isins. Spamaður af lokun þessara
fyrirtækja í tíð núverandi ríkis-
stjórnar skiptir tugum þúsunda á
ári fyrir hveija fjölskyldu í landinu.
Hagræðing hjá strætó
skilar sér
Breytingarnar á SVR í hlutafé-
lag hafa verið gagnrýndar harð-
lega. Þó hafa verið minnisstæðar
undantekningar þar á. Á fundi um
þessar breytingar sagðist einn
strætisvagnastjóri varla geta verið
mótfallinn breytingunum þar sem
vont gæti ekki endalaust versnað.
Laun hans hefðu stöðugt lækkað
á síðustu 20 árum og þau gætu
varla orðið lægri. Ef hann vildi til
að mynda bjóða konu sinni í snyrt-
ingu og lagningu þýddi það útgjöld
sem samsvara tveggja daga vinnu-
launum hans.
Sparnaður síðustu ár í rekstri
SVR nemur hundruðum milljóna.
Margir töldu að ekki væri mögu-
leiki að spara í rekstri á strætis-
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Ðömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
Tilbúinn
stíllu
^eyiir^
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími .677878 - fax 677022