Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 veióum á mánudag Loðnukvótinn í ár er 975 þús. tonn. Búið er að veiða 552 þús tonn eða 56,6 %. Eftir eru óveidd 423 þús tonn. Hugsanlegt útflutnings- verðmæti loðnuaflans 170 þús. tonnafmjöli 6 ma. kr. 70-80 þús. tonn af lýsi 2 ma. kr. 10 þús. tonn af heilfrystri loðnu 1 ma. kr. 5 þús. tonn af loðnuhrognum 1 ma. kr. m Samtals 10 milljarðar kr. Dæmi af loðnuskipi með 20 þús. tonna kvóta Tonn Kr./tonn í bræðslu 12.800 4.000 51,2 m. kr. Heilfryst loðna 800 22.000 17,6 m. kr. Loðnuhrogn 280 40.000 11,2 m.kr. Úrkast í bræðslu 6.120 2.000 12,2 m. kr. Samtals: 20.000 92,2 milljónirkr. Hásetahlutur á þessu skipi yrði 1,6 1 millj. kr. og hlutur skipstjórans 4,8 m. kr. Hafa ber í huga að það getur f tekið frá tveim og upp í átta mánuði að ná kvótanum. 552 Bilanir í togurum rakt- ar til lélegra varahluta TALIÐ er að nokkur dæmi séu um að bilanir í togurum hér við land megi rekja til varahluta sem ekki hafi staðist kröfur fram- leiðenda eða flokkunarfélaga. Guðfinnur Johnsen, tæknifræðing- ur tyá LÍÚ, segir að nokkur dæmi séu um það að útgerðir hafi orðið fyrir tjóni sem talið ké að megi rekja, a.m.k. að hluta, til þessa. Fjölmörg fyrirtæki í landinu selja varahluti í vélar og búnað fyrir fískiskip og eru þar á meðal hlutir af hinum svonefnda gráa markaði, þ.e.a.s sem ekki eru framleiddir á vegum framleiðenda eða seldir í gegnum umboðsmenn þeirra og njóta ekki viðurkenning- ar framleiðendanna eða flokkunar- félaga sem taka út gæði hluta af þessu tagi. Að sögn Guðfinns Johnsens er oft erfitt að fullyrða fyrirfram um gæði varahlutar sem ekki nýtur slíkrar viðurkenningar því þar get- ur jafnvel verið um að ræða hlut sem framleiddur er af undirverk- taka vélarframleiðandans og er ekki frábrugðinn þeim sem viður- kenndur er að öðru leyti en því að umbúðir eftirlíkingarinnar eru ekki með auðkenni framleiðandans. Á hinn bóginn séu til dæmi þess að í ljós komi að varahlutir stand- ist engar kröfur og því hafi menn ekki spamað af því að kaupa þá eins og ætlunin hafi verið heldur aukinn kostnað. Guðfinnur sagði að margar úterðir litu til þess að kaupa varahluti sem ódýrast en sagði að þegar um væri að ræða hluti eins og legur eða stimpil- hringi í vél gæti sá sparnaður orð- ið mönnum dýr þegar upp er stað- ið því standist þeir ekki kröfúr kalli það á tímafrekar viðgerðir. Minni áhætta sé tekin með ýmsan annan búnað í skipum. Guðfinnur lét þess getið að oft væru bilanir raktar til nokkurra samverkandi þátta og erfitt væri að nefna ákveðin dæmi um bilun í skipi sem með óyggjandi hætti mætti rekja til gallaðs varahlutar Kippur kominn í atvinnulífið víðast þar sem loðnufrysting er hafin Verulega hefur dregið úr at- vinnuleysi víða á Austfjörðum VERULEGA hefur dregið úr atvinnuleysi víðast hvar á Aust- fjörðum eftir að loðnufrysting hófst þar fyrir um hálfum mán- uði, og gætir aukinnar bjartsýni hjá fólki með vaxandi atvinnu þrátt fyrir að aðeins sé um tímabundið ástand að ræða. Á Suðurnesjum hafa um 200 manns fengið atvinnu við loðnu- vinnslu og frystingu, en Kristján Gunnarsson formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Kefíavíkur segir að þrátt fyrir það sé atvinnuástandið þar hroðalegt og vinnan við loðnuna aðeins plástur á svöðusár. Sigfínnur Karlsson formaður Verkalýðsfélags Norðfirðinga sagði að í endaðan janúar hefði 131 verið skráður atvinnulaus á Neskaupstað, en hins vegar fá 54 greiddar atvinnuleysisbætur á morgun. Sagði hann að um 15 af þeim hefðu þegar fengið vinnu, þannig að um 40 yrðu á atvinnu- leysisskrá eftir helgina, og væri það nær eingöngu fískvinnslufólk. Eiríkur Stefánsson hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Fáskrúðsfjarð- ar sagði atvinnuástandið á staðn- um vera lélegt og síðastliðinn fostudag hefðu 53 verið skráðir atvinnulausir. Hann sagði loðnu- frystinguna ekki leysa nein vanda- mál, en hluti af fólkinu fengi þó vinnu í um hálfan mánuð og síðan færi allt í sama farið aftur. „Goða- borg hf. er byijað að frysta loðnu, en síðan er rækjutogarinn Klara Sveinsdóttir að koma hér að bryggju. Þeir ætla að liggja hér í tíu daga og frysta loðnu um borð, og eru þeir að fá fyrsta farminn á bflum frá Eskifirði. Það verður bara áhöfnin um borð sem sér um það þannig að það eykur ekki vinnu þeirra sem eru í landi,“ sagði hann. Yfirfyótandi af loðnu Gyða Vigfúsdóttir hjá Verka- lýðsfélagi Fljótsdalshéraðs sagði að þegar mest hefði verið hefðu 83 fengið greiddar atvinnuleysis- bætur hjá félaginu, en í þessari viku fengju 68 greiddar bætur og væri atvinnuleysi ívið minna en á sama tíma í fyrra. Það hefur birt yfir atvinnulífinu á Seyðisfirði sem annars staðar á Austfjörðum eftir að loðnan kom, og í síðustu viku voru 30 skráðir atvinnulausir, en samkvæmt upplýsingum frá bæj- arskrifstofunni hefur þeim fækk- að enn frekar síðan. Áður en loðnufrystingin hófst fyrir um hálfum mánuði voru um 100 skráðir atvinnulausir, en auk heimamanna starfa nú um 15 aðkomumenn við frystinguna. Að sögn Hrafnkels A. Jónsson- ar formanns Verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifirði hefur at- vinnulífíð á staðnum verið mjög að glæðast undanfarið, en auk loðnufrystingarinnar er að skap- ast atvinna við fullvinnslu á síld hjá Friðþjófí hf. „Þá á ég von á því að það verði farið að fækka verulega á skránni hjá okkur, en í gær fengu 26 greiddar atvinnu- leysisbætur og var þá eitthvað af því fólki komið í vinnu. Þegar mest var voru hins vegar um 100 manns á skrá hjá Verkamannafé- af gráa markaðinum. Sjaldan væri farið svo ofan í kjölinn á orsökum bilana að benda mætti á einhlíta skýringu. laginu, og stóð það fram yfir 20. janúar. Það er yfirfljótandi af loðnu hérna eins og er og er mað- ur að gera sér vonir um að það verði áfram eitthvað á næstunni," sagði hann. Neisti í atvinnulífið á Suðurnesjum Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur sagði að neisti hefði komið í atvinnulífið á Suðurnesj- um samfara loðnufrystingunni. „Hún heggur aðeins á þetta í ein- hverja daga eða vikur á meðan hún er, en annars er engin önnur breyting á atvinnuástandinu. Það eru sennilega yfir 200 manns sem hafa fengið vinnu með einum eða öðrum hætti við loðnufrystinguna, en þegar mest var voru 487 á atvinnuleysisskrá héma. Ástandið er því enn alveg hroðalegt hérna, og sum frystihúsin hafa ekkert farið í gang eftir áramótin. Þetta er því aðeins plástur á svöðusár- ið,“ sagði Kristján. Sjá bls. 26: „Um að gera . . . Björk í Japan Erfitt að gleyma þess- ari stúlku Tókýó. Frá Benedikt Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. „ARÍGATÓ.“ Með þessu jap- anska þakkaryrði kvaddi Björk Guðmundsdóttir áhorf- endur á fjórðu og síðustu tón- leikum hennar í Tókýó á mið- vikudagskvöld. Breiðskífa hennar, Debut, var nýlega endurútgefin í Japan að við- bættum lögunum Play Dead og Atlantic. í dómi Kentaro Takahashi, tónlistargagnrýnanda dagblaðs- ins Asahi Shimbun, um tónleika Bjarkar á laugardag segir að hún nái fullkomnu valdi á áheyrend- um sínum með sterkri og áhrifa- mikilli sviðsframkomu. „Björk hefur tekist að skapa einstaka tónlistarstefnu . . . Utlit hennar, sem minnir á litla stúlku, hæfir þessari tónlist einkar vel. Hún kemur því fyrir sjónir eins og Lísa í Undralandi á þessari tölvu- öld tónlistarinnar." Þá segir Takahashi: „Þessari furðulegu og dásamlegu dansandi stúlku verður þó erfitt að gleyma. Síð- asta lag tónleika hennar sem sungið var án undirleiks hverfur ekki úr hjarta mér í bráð.“ Asahi Shimbun (Morgunsólarblaðið) er annað útbreiddasta dagblað Jap- ans, gefið út í um 13 milljónum eintaka. Flug til New York feilt niður vegna snjókomu MIKIL snjókoma í New York olli töfum í flugsamgöngum til og frá borginni á þriðjudag og varð að fella niður flug Flugleiða vegna veðursins. Flugvél Flugleiða sem átti að fljúga tii New York seinni part þriðjudags féll niður. Vélin átti síðan að snúa til baka á þriðjudagskvöld og lenda hér á landi snemma í gær- morgun. Að sögn Einars Sigurðsson- ar blaðafulltrúa Flugleiða raskaði veðrið ferðum tæplega 170 manna sem áttu pantað far með flugvél fé- lagsins. í dag Hæstaréttarhús________________ Dómsmálaráðherra segir að ekki verði aftur snúið með stacsetningu nýs Hæstaréttarhúss 17 Búið i Flatey Tvær fjölskyldur dveljast nú í Flat- ey á Breiðafirði allt árið um kring 19 Skaöabótalögin________________ Skipuð verður nefnd til að skoða ákveðin atriði í nýju skaðabótalög- unum 27 Leiðari íheldnin íJJllehammer 26 Viðskipti/A tvinnulíf ► Mikil eftirspum eftir fjárfest- ingarlánum — Kreditkort ætlar að auka lánveitingar — VÍB með 30 milljóna króna hagnað fyrir skatta Dagskm ► Mótmæli í Bretlandi vegna frumsýningar á kvikmynd — Beverly Hills gagnfræðaskól- inni — Jlljómgæði í heimabíói — Óður til hafsins Islensk söl seld til Bandaríkjanna NOKKUR hundruð kíló af þurrkuðum sölum hafa verið flutt til Banda- ríkjanna frá síðasta hausti. Fyrir hvert kíló greiðir bandarískur heild- sali 7-800 krónur, en ekki er ljóst hvert endanlegt skilaverð verður til þeirra bænda og landeigenda, sem hafa verkað söl. Árni Snæbjörnsson, hlunninda- ráðunautur hjá Búnaðarfélagi ís- lands, segir að nokkrir bændur og landeigendur við Vesturland og aust- ur undir Þjórsá safni sölunum, en þau verður að handtína á fjörum. „Sölin eru sólþurrkuð, hreinsuð og afvötnuð lítillega, ef þörf er á. Þá eru þau geymd undir fargi á köldum stað í 1-3 mánuði. Við sendum sölin með skipi til Bandaríkjanna, en þar er þeim pakkað í 50-100 gramma neyt- endapakkningar. Bandaríkjamenn borða þau mest sem snarifæði, líkt og við harðfiskinn." Árni segir að þessi fyrsta tilraun til útflutnings á sölum hafí tekist vel. Ekki sé hins vegar tímabært að huga að markaðssetningu undir ís- lensku vörumerki, því á meðan fram- boðið sé lítið og ójafnt þá verði slíkar hugleiðingar að bíða. Hins vegar hljóti slík markaðssetning að verða markmiðið, þó síðar verði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.