Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
9
HRAÐLfSTRARNÁMSKHÐ
Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
Viltu margfalda afköst í námi um alla framtíð?
Viltu lesa meira af góðum bókum?
Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt við einhverri ofangreindra
spurninga skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrar-
námskeið sem hefst fimmtudaginn 17. febrúar nk.
Skráning í símum 642100 og 641091.
HRAÐLESTRARSKÓUNN
NILFISK GM200
NILFISKGM200 hefur nýjan 5-þrepa síunarbúnað
og hreinni útblástur en nokkur önnur ryksuga
(heldur eftir 99% rykagna stærri en 0,3/1000 mm).
GM200 er líka hljóðlátari (58 desibel), kraftmeiri
(1150W mótor) og endingarbetri (2000 tímar áður
en skipta þarf um kol í mótor).
★ 7m inndregin rafmagnssnúra
★ Innbyggt sogstykkjahólf
★ Aflaukandi kónísk slanga
★ Þægileg sogaflsstilling
★ Rykmæiir lætur vita þegar skipta
á um poka Á
•k Létt (7,8 kg.) og lipur
NÚ Á TILBOÐSVERÐI:
Verðlistaverð kr. 24.200,-
NÚ AÐEINS 21.050,- m/afb.
19.990,- STAÐGREITT
/FOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Þórarinn V. Þórarinsson
Eru skattarnir hemill á
vinnuframlag fólks?
Hefur augljós og dulin skattheimta þau
áhrif að fjöldi manna geti gengið út frá
því sem vísu að halda aðeins eftir fjórð-
ungi launa af hverri viðbótar vinnustund?
Dregur skattheimta af þessu tagi úr
vinnuframlagi, verðmætasköpun og þar
með lífskjörum í landinu? Þórarinn V.
Þórarinsson fjallar um þetta efni í forystu-
grein „Af vettvangi", fréttablaðs Vinnu-
veitendasambands íslands (1. tbl. 1994).
Skatturinn
gleypir helft
launanna
Þórarinn V. Þórarins-
son fj.alLir fyrst — í for-
ystugrein Fréttablaðs
VSI — um þróun skatt-
heimtunnar frá því stað-
greiðslukerfi skatta var
upp tekið. Hann segir:
„Vilji maima til að
vinna og afla tekna ræðst
fyrst og fremst af því
hvaða ávinningnr er af
auknu erfiði. Skattlieimt-
an hefur því mikil áhrif
á viljami til að afla við-
bótartekna, einkum liinn
sýnilegi hluti skattheimt-
unnar, sá sem sést á
launaseðlum.
Við upphaf stað-
greiðslu skatta var skatt-
hlutfallið 35,2% og per-
sónuafsláttur miðað við
núverandi verðlag kr.
25.889. Nú er skatthlut-
fallið 41,84%, þar sem
útsvar er miðað við lög-
bundið láguiark og per-
sónuafslátturinn kr.
23.915. Þar til viðbótar
kemur sérstakt viðbótar-
skattþrep, 5% á allar
tekjur einstaklinga um-
fram 200.000 á ntánuði.
Greiðslur til lífeyrissjóðs
eru lögbundnar og hafa
þannig yfirbragð skatta.
Að öllu samanlögðu er
um eða yfir helmingur
launa fyrir hverja viðbót-
ar vinnustund hjá megm-
þorra vinnandi fólks
dreghm af á launaseðlin-
um“.
Dulin skatt-
heimta tekur
drjúga viðbót
Síðan víkur Þórarinn
máli sínu að því sem hann
kallar dulda skattheimtu,
nt.a. því formi skatt-
heimtu sem kemur fram
í tekjutengingu af marg-
víslegum toga:
„En meira kemur til
því sífellt er aukið við
tekj utengingu réttinda
sem er aimað form skatt-
heimtu. Bamabótaauki,
vaxtabætur og fyrirgíe-
iðsla í húsnæðismálum
minnka með hækkandi
tekjum. Námslán endur-
greiðast í hlutfalli við
tekjur og opinber þjón-
usta af margvíslegum
toga kostar mismikið, allt
eftir tekjum þess sem
þjónustuna fær. Þá eru
bætur almannatrygg-
ingakerfis í vaxandi mæli
tekjutengdar og þeir sem
lagt hafa fyrir í lífeyris-
sjóði gjalda þess i formi
lægra lífeyris almanna-
tryggingakerfisins.
Launabætur samkvæmt
kjarasamningum em af
sama toga, — þær lækka
með hækkandi tekjum.
Þetta er dulda skatt-
heimtan, sú sem veldur
því að stórir hópar fólks
geta reiknað út með vissu
að af hverri viðbótar
vinnustund muni þeir
aðeins fá í sinn hlut laun
fyrir Ijórðung stundar
eða þaðan af minna.
Hluti fari í skattinn en
annar hluti og oft miklu
stærri eyðist upp í lækk-
un bóta og hækkun
gjalda af ýmsum toga.“
„Versta form
skattheimt-
unnar“
Undir lok greinar sinn-
ar víkur Þórarinn að
áhrifum skattheimtu af
þvi tagi, sem hér við-
gengst, á vinnuframlag
fólks og þar með verð-
mætasköpun í landinu:
„Skattakerfið hefur
þvi fleiri en eina vidd og
þegar svo er komið að
fjöldi fólks með miðl-.
ungstekjur og lægri sér
naumast ávinning af auk-
inni tekjuöflun, þá er
tímabært að staldra við.
Tekjutengingarfárið
er eitt versta form skatt-
heimtu sem völ er á. Það
hafa meðal annarra
Svíar fullreynt og kosta
nú kapps um að grisja
skattaskóginn.
Dulda skattheimtan
fjötrar fólk í fátæktar-
gildru, því ávinningur
aukins erfiðis fellur öðr-
um i skaut. Þegar svo er
komið að skattkerfið, í
öllum sinum myndum,
kemur i veg fyrir að fólk
geti umúð sig út úr vand-
ræðum sínum, þá er end-
urskoðunar sannarlega
þörf. Þannig er staðan
nú.“
Vilt þú versla ódýrt?
Þá er Framtíðarmarkaðúrinn, Faxafeni 10,
rétti staðurinn fyrir þig.
Odýrar peysur
Ódýrar blússur
Ódýrar leggings
Ódýrar gallabuxur
Ódýrar ulpur og yfirhafnir
Ódýr barnaföt
trnakerrur
Odyr blóm
Ódýr gjafavara
Ódýrir geisladiskar
Ódýr verkfæri
tnaður
Opið atia daga vikunnar.
Opið: Mánudaga-föstudaga kl. 13-18,
laugardaga kl. 11-16 sunnudaga kt. 13-17