Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1994
Frummaðurinn í
Evrópu 20. aldar
__________Bækur_______________
Pétur Pétursson
SIGMUND Freud: Blekking trú-
arinnar. Þýðandi Sigurjón
Björnsson. Utgefandi: Hið ís-
lenska bókmenntafélag 1993,110
bls.
Sigmund Freud er einn af þeim
rithöfundum og vísindamönnum
sem skiptu sköpum í menningar-
sögu Vesturlanda. Fjöimargir
menntamenn, listamenn og skáld
sóttu í smiðju hans þegar þeir voru
að reyna að gera sér nýjar hug-
myndir um það hvað maðurinn í
raun og veru er eftir að kristindóm-
urinn var afskrifaður. Freud varð
því eins konar spámaður hinnar
nýju vísindamenningar og sem slík-
ur hefur hann lifað lengur en marg-
ur aldamótaspekingurinn. Tvær
heimsstyijaldir sem áttu sér upptok
í hjarta Evrópu hafa sett stórt
spurningamerki svo ekki sé meira
sagt við þann mannskilning sem
fæddist í hinni upplýstu Evrópu og
nærðist á vísinda- og tækniframför-
um 19. aldarinnar. Freud var merki-
legt afsprengi þessarar vísindatrú-
ar, en hann var samt sem áður
fleinn í holdi hennar og e.t.v. þess
vegna hefur hann lifað lengur en
margir fremstu spámenn Evrópu
frá því fyrir fyrra stríð.
Freud var læknir að mennt og
sérfræðingur í taugalífeðlisfræði.
Hann var kominn af gyðingafjöl-
skyldu og bjó lengst af í Vínarborg
þar sem hann helgaði sig vísinda-
og ritstörfum. Eins og flestir vita
var hann upphafsmaður sálgrein-
ingarinnar sem hefur haft mikil
áhrif á sálfræði og geðlæknisfræði
nútímans þó svo að meginkenningar
hans séu nú allt annað en einu sann-
indin í þeim herbúðum. En Freud
kom víðar við í skrifum sínum og
fjallaði um margvísleg svið sem nú
mundu falla undir félagsfræði og
mannfræði þó svo að útgangs-
punktur hans væri jafnan sá sami
og sálgreiningarinnar - sem er sá
’ að maðurinn er ekki allur þar sem
hann er séður. Undir yfirborði
menningar og siðfágunar krauma
ókræsilegar hvatir og kenndir frum-
mannsins sem skjóta upp kollinum,
ef ekki í sínu hráu og forkastanlegu
frummyndum þá í dulargerfum.
Það voru einmitt þessi dulargerfi
sem Freud vildi svipta hulunni af.
Hann vildi afhjúpa blekkingarnar.
Það var eina leiðin til þess að lækna
taugaveiklun og sjúklegar þrá-
hyggjuhugmyndir. Slíkar hug-
myndir koma í veg fyrir að viðkom-
andi geti lagað sig að umhverfi sinu
og viðhaldið eðlilegum samskiptum
við annað fólk. Lykillinn að bata -
lykillinn að því að maðurinn kæm-
ist í raunverulegt samband við sjálf-
an sig - var að komast að hvaða
duldir lægju að baki sjúkiegri begð-
an. Þetta varð síðan stóri sannleik-
ur fyrir Freud og hann beitti sömu
aðferðafræði á félagsleg og menn-
ingarleg fyrirbæri eins og hann tók
fyrir í Blekkingu trúarinnar. Skrif
hans á þessu sviði einkennast af
sama sannfæringarkraftinum og
skrif hans um eiginlega sálsýkis-
fræði. Snilligáfan og röksemda-
færslan er næstum yfirþyrmandi í
þessum verkum, enda átti hann og
á sér áhangendur sem hafa gert
fræði hans og lífsviðhorf að trúar-
brögðum. í meðförum þeirra er
hægt að beita þeim á nánast öll
birtingarform mannlegs veruleika
og skýra þau út í hörgul. Það sem
sést, kemur upp á yfirborðið, er
merki um hin ómeðvituðu lögmál
sem meistarinn fann og útskýrði.
Þeir sem mótmæla eru á valdi
blekkingarinnar og því enn ein
sönnunin fyrir sannleiksgildi kenn-
ingarinnar.
I þessari bók eru samankomnar
tvær eða réttara sagt þijá ritgerð-
ir. Fyrri ritgerðin í bókinni er ein-
mitt Blekking trúarinnar eða á
frummálinu Die Zukunft einer 111-
usion, sem kom út fyrst árið 1927,
sem sérstakt rit. Sú ritgerð er eigin-
lega undanfari annars rits um sama
efni sem Freud skrifaði þremur
árum seinna og heitir Das Unbe-
hagen /n der Kultur. Sú bók kom
út hjá HÍB árið 1990 einnig í þýð-
ingu Siguijóns Björnssonar prófess-
ors og ber hún titilinn Undir oki
siðmenningar. Seinni ritgerðin í
þessari bók, Á líðandi stund; um
stríð og dauða, Zeitgemásses iiber
Krieg und Tod, birtist upphaflega
í tveimur köflum í tímaritinu Imago
árið 1915, en það tímarit var helg-
að sálgreiningunni. Annar kaflinn
er um stríð og hinn um dauðann,
en ritgerðin var einmitt skrifuð
hálfu ári eftir að fyrri heimstyijöld-
in skall á og því var hér um að
ræða viðfangsefni sem leitaði á
marga, bæði almenning og lærða
menn. Hér var tekið á grundvallar
spurningum um eðli mannsins og
tilgang.
Ritgerðir þessar fjalla allar á sinn
hátt um blekkingar sem maðurinn
í siðuðu samfélagi hefur komið sér
upp til þess að gera sér lífið bæri-
legra. Það eru í fyrsta lagi trúar-
brögðin sem telja honum trú um
að siðferðisleg gildi og félagslegt
taumhald séu bundin tilvist og valdi
guðs almáttugs. í öðru lagi sú
blekking að stríð, og þá einkanlega
stríð siðaðra menningarþjóða, sé
eitthvað óttalegt og algerlega
óvænt fyribæri. Það mátti búast við
því - segir Freud - vegna þess að
menningin og samfélagið þarf á
hverjum tíma að takast. á við villi-
manninn í hveijum einstaklingi og
aldrei verður algerlega gert út af
við hann vegna þess að hann lifir
áfram í undirmeðvitundinni og
stjórnar gerðum jafnvel hins göfug-
asta manns. Þriðja blekkingin sem
Freud aflijúpar hér eru hugmyndir
rord námskeíð
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Tölvuskóli Halidórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Sigmund Freud
manna um ódauðleikann, eða líf
eftir dauðann. Þetta er merkileg
grein og e.t.v. sú sem best hefur
staðist tímans tönn af þeim þremur
sem hér um ræðir.
Ekkert var frummanninum (og
því frumstæðasta í okkur sjálfum)
eðlilegra en dauðinn og fyrir honum
var það fullkomlega eðlilegt að
óvinir hans og þeir sem stóðu í
veginum fyrir honum ættu að deyja.
Það var þvert á móti eðlilegur fram-
gangsmáti og frummaðurinn hjálp-
aði gjarnan til í því efni og það
gerir frummaðurinn í okkur hveij-
um og einum í huganum, segir
Freud, daglega og meir en það.
Þetta er alveg samkvæmt lögmáli
þaðsins (Das Id) sem getur ekki
gert ráð fyrir neinni biðlund varð-
andi fullnægju hvata. Hugmyndir
um anda og líf eftir dauðann eiga
sér annars vegar upptök í sektar-
kennd mannsins yfir morðum sem
hann hefur framið og hins vegar í
vanmætti hans til að skilja veruleika
eigin dauða og dauða sinna ná-
komnu, en þeir eru hluti af hans
eigin sjálfi vegna þess að þeir eiga
þátt í fullnægju hvata hans og vel-
líðan. Umræða Freuds um hug-
myndir manna um dauðann eru
náskyldar umijöllun hans um trúar-
brögðin, en um þau skrifaði hann
töluvert á seinni hluta starfsævi
sinnar þó svo að hann væri yfirlýst-
ur guðleysingi.
Freud leit á trúarbrögðin sem
barnslega blekkingu mannskepn-
unnar sem í ófullkomleika sínum
og vanmætti bregður fyrir sig ósk-
hyggju gagnvart ógnaröflum nátt-
úrunnar sem vilja tortíma henni.
Maðurinn gerir öfl náttúrunnar að
persónu, guði, sem hann reynir að
blíðka með fórnum sínum og með
því að afneita sjálfum sér. Athyglis-
vert er að hér svipar náttúruöflun-
Nýr Lada Sport kostar flré 798.000
iltiiir jeppar kosta yflr 2.000.000
Miinamawrliaia er ktilt
Negld vetrardekk
og sumardekk eru
innifalin í verði
út þorrann!
um og eyðingarmætti þeirra til
hinna blindu afla undirmeðvitund-
arinnar sein Freud íjallaði um í
fyrri ritum sínum og eru kjarninn
í kerfi hans um sálarlíf mannsins
sem hann skipti niður í þaðið, sjálf-
ið og yfírsjálfið. Með því að einfalda
framsetningu Freuds má segja að
með þessu móti verði maðurinn fé-
lagsvera. Trúin verður forsenda
þess að hann lætur ekki frumþarf-
irnar stjórna sér. Til að vinna bug
á barnslegri trú mannsins sem til
lengdar þrúgar hann og bælir legg-
ur Freud áherslu á gildi vísinda.
Hann trúir því að vísindin, ekki síst
sálgreiningin, sem hann telur
drottningu mannvísinda, leysi
manninn úr fjötrum vanþekkingar
og blekkingar og geri hann í stakk
búinn til að horfast í augu við raun-
veruleikann með reisn og æðruleysi.
Freud taldi að trúarbrögð væru
grundvöllur þess að sauðsvartur
almúginn fylgdi grundvallarreglum
siðaðs samfélags og það vottar fyr-
ir nokkrum ótta hjá honum sjálfum
við tilhugsunina um afleiðingar
uppgötvunar sinnar um að þau séu
blekking. Það er eins og honum
finnist að hann þurfi að réttlæta
innsæi sitt fyrir öðrum vísinda-
mönnum. Hann skrifar: „Meðan
þeir (hinn mikli múgur ómenntaðra
og undirokaðra manna) vita ekki
að fólk trúir -ekki lengur á guð er
allt í góðu gengi. En þeir hljóta að
komast að því jafnvel þó að þessi
ritlingur minn verði ekki gefinn út.
Og þeir eru reiðubúnir til að fallast
á niðurstöður vísindalegrar hugsun-
ar en án þess að breyting hafi orð-
ið hjá þeim sem vísindaleg hugsun
veldur hjá fólki.“ Ótti Freuds er
skiljanlegur, en 20. öldin hefur sýnt
það að hann var ástæðulaus.
Rit Freuds um trúarbrögðin bera
vitni um fijóa hugsun fræðimanns-
ins, en þau eru einnig augljós vitnis-
burður um að hann var barn síns
tíma. Algild kenning um trúarbrögð
eru þau ekki og þaðan af síðui'
kristna trú, en ýmislegt má af þeim
læra um sjúklegt og vanþroskað
trúarlíf og hugmyndir. Það má
merkilegt heita að kenningar
Freuds eiga þrátt fyrir allt ýmislegt
sameiginlegt með mannskilningi
kristindómsins. Freud .hefur eins og
kristindómurinn grundvallarkenn-
ingu um eðli mannsins og eins og
kristindómurinn boðar hann það að
maðurinn þurfi að frelsast úr viðjum
eigin ranghugmynda um sjálfan sig.
Freud talaði um hvatalíf frum-
mannsins en kristindómurinn um
erfðasyndna og syndafallið. Hvoru-
tveggja kemur í veg fyrir það að
mannskepnan deyi af hrifningu yfir
eigin ágæti.
'Siguijón Bjömsson hefur unnið
íslenskum bókmenntum mikið
þarfaverk með þýðingum sínum á
ritum Freuds. Þýðingarnar eru
einkar liprar og lesandinn fær það
jafnvel á tilfinninguna að Freud
hafi sjálfur getað tjáð sig átaka-
laust á íslenskri tungu. Full ástæða
er til að fleiri rit hans um mann-
fræði og trúarbragðafræði verði
einnig þýdd.
■»-»..♦
■ Efnislykill að íslenskum tíma-
ritum Iítur nú dagsins Ijós j fyrsta
sinn og hefur fengið nafnið íslensk-
ur tímaritalykill. í þessu fyrsta
tilraunahefti eru efnistekin 120 ís-
lensk tímarit útgefin á árinu 1991.
Ritstjóri verksins er Ásgerður
Kjartansdóttir lektor, en lyklunin
unnin að mestu leyti af 'Rögnu G.
Ragnarsdóttur bókasafnsfræð-
ingi. I kynningu segir: „Með útgáfu
þessari er brotið blað í aðgengi að
islenskri þekkingu. Efni allra helstu
tímarita opnast þeim sem vilja afla
sér þekkingar úr þeim mikilvægu
miðlum sem tímaritin eru. Nú þegar
er hafin lyklun á tímaritum áranna
1992 og 1993 og ef þessi tilraunaút-
gáfa gengur vel er þess vænst að
næstu hefti komi út í maí 1994.“
Það er fyrirtækið Lindin hf.,
útgáfa og dreifing, sem gefur
út íslenskan tímaritalykil með
aðstoð frá íslenskum tímaritaút-
gefendum og Atvinnumálanefnd
Reykjavíkurborgar. íslenskur
tímaritalykill 1991 kostar 2.500
krónur.