Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
15
Hrafn fari í mál við sjálfan sig
eftir Einar Karl
Haraldsson
Ekki fallast framkvæmdastjóra
sjónvarpsins orð. Nýverið hefur
hann á opinberum vettvangi kallað
þingmann „rógtækni" og virtan
menningarfrömuð „kerlingar-
tusku“. Og nú heldur hann því fram
gegn betri vitund að hann hafi ver-
ið kallaður „saurriðill".
Þessi orðvari embættismaður má
ekki vamm sitt vita og stendur nú
í málaferlum við Vikublaðið vegna
ummæla sem hann telur ærumeið-
andi í sinn garð. Hildur Jónsdóttir
ritstjóri blaðsins hefur beðist afsök-
unar á nokkrum ummælum sem
birtust í kersknisdálkum blaðsins
og flokkast gætu undir kjafthátt
og uppásnúninga eins og svo al-
gengir eru í íslenskum blöðum. Slíkt
heyrir til ákveðnum augnablikum
og andrúmi í umræðu og væri sumt
að því betur óskrifað. Ekki bara í
Vikublaðinu heldur almennt í ís-
lenskum blöðum.
í fangelsi fyrir skoðanir?
Ritstjóri Vikublaðsins er hins
vegar reiðubúin að fara í fangelsi
vegna skrifa sem snerta túlkun á
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
embættisfærslu Hrafns Gunnlaugs-
sonar og brúkún hans á opinberum
sjóðum. Þar er um að ræða réttinn
til þess að hafa skoðanir, túlka og
ræða opinber málefni. Sá réttur
verður nú sem fýrr varinn af sér-
hverjum ærukærum ritstjóra enda
þótt veifað sé refsivendi og fangels-
ishótunum.
Þegar Vikublaðið leyfði sér að
impra á málum framkvæmdastjóra
sjónvarps höfðu á þriðja hundrað
greinar, með vömmum og skömm-
um, birst í fjölmiðlum út af lands-
þekktu áðstöðusukki Hrafns Gunn-
laugssonar. Lokapunkturinn á árinu
var svo áramótaskaup sjónvarpsins
þar sem gengið var mun lengra í
Burton bretti 6.1
Kr. 29.890,-
Freestyle bindingar
kr. 11.950,-
T I L B O Ð
Burton Elite 130 sm
með bindingum
kr. 13.900,-
Burton Elite 150 sm
með bindingum
kr. 19.900,-
w úriLíFmm
GUESIBÆ • SÍMI 812922
lýsingum á eðliskostum fram-
kvæmdastjóra heldur en nokkurn
tíma í Vikublaðinu. Hrafn hefur
ekki haft manndóm í sér til þess
að stefna þeim fjölmiðli, sem hann
stjómar, fyrir æmmeiðingar í sinn
garð, en lætur nægja að hnippa í
forsætisráðherra. Hann ræðst svo
á garðinn þar sem hann er hæstur,
og stefnir Vikublaðinu.
Meiðandi nýyrði
í fréttum Stöðvar 2 þriðja febr-
úar var rætt við Hrafn þar sem
hann sagði orðrétt: „... ég var
kallaður saurriðill á síðum Þjóðvilj-
ans nýlega. Ég veit ekki hvaðan
það orð er komið eða hvaða leyni-
höfundur lá á bak við það orð ...“
„Orðið „saurriðiH“ er
nýyrði Hrafns og eng-
inn leynihöfundur að
því. Honum væri sæmst
að fara í mál við sjálfan
sig út af því að bera
þetta ljóta orð á opin-
beran embættismann.“
(Leturbr. höf.) Hér hefur Hrafn
tapað þræðinum og látið sér fipast.
Þjóðviljinn hefur ekkert sagt nýver-
ið vegna þess að hann er löngu
dauður og eigi framkvæmdastjórinn
við Vikublaðið þá dró blaðið þá
ályktun af þáttunum „Þjóð í hlekkj-
um hugarfarsins“ að hann og Bald-
ur Hermannsson væm „áhugamenn
um sauðariðla" og hefur beðist vel-
virðingar á þeim svigurmælum.
Orðið „saurriðilT' er nýyrði
Hrafns og enginn leynihöfundur að
því. Honum væri sæmst að fara í
mál við sjálfan sig út af því að
bera þetta ljóta orð á opinberan
embættismann. Sannleikurinn er sá-
að hann á fyrst og fremst í stríði
við sjálfan sig og sín eigin hugar-
fóstur.
Höfundur er framkvæmdasijóri
Alþýðubandalagsins sem er
útgefandi Vikublaðsins.
Einar Karl Haraldsson
Hllky u i Jng
til keriJiafa
Tilbobsmarkabur í Austurstræti 8
opnar á morgun.
íþróttaskór (Puma, Adidas, Hi Tec o.fl.), leikföng o.m.fl.
Ötrúlegt verö!
BKI ^ Reyndu kaffiö!
FFFsrm Kaffikynning á laugardag
^ t ogsunnudag.
erb-kibesta kaffi á íslandi? Kynningarafsláttur.
□ Nýir korthafar!
Verslun F&A er opin öllum landsmönnum 16 ára og eldri.
Ný kort eru gefin úr endurgjaldslaust.
Viö erum sunnan viö Ölgeröarhús Egils og noröan viö
Osta- og smjörsöluna.
Vorum að fá fullt af nýjum vörum.
Birgðaverslun F&A
Fosshálsi 27,
110 Reykjavík,
sími 683211, fax 683501
Opið alla virka daga frá
kl. 12.00-19.00.
Laugardaga kl. 12-18
og sunnudaga kl. 13-18