Morgunblaðið - 10.02.1994, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
Er eðlilegt að
10.000 króna skór þurfi
3.500 króna viðgerð eftir tvo mánuði?
Bónus
Tilboðið gildir í dag og á morg-
un.
150gNestléCrunch.......99 kr.
10 frosnir hamborgarar ..299 kr.
6 negrakossar frá Opal.89 kr.
bolluvendir...........119 kr.
MSbeyglur..............99 kr.
8 rúllur wc pappír....129 kr.
0,51 Bónus cola........29 kr.
F&A
Tilboðið gildir af staðgreiðslu
fram á miðvikudag.
Ducroskrydd.....50% afsláttur
10x25 cmJuwel-kerti...174 kr.
6x0,331 Coke í dósum..248 kr.
750gAlpanmusli........266 kr.
svínakjöt.......20% afsláttur
Fjarðarkaup
Tilboðið gildir í dag og á morg-
un.
Icebergsalat.........125 kr. kg
blómkál...............99 kr. kg
unghænuríkössum.,.190 kr. kg
400 g hindb./sólb.sulta.98 kr.
400 gblábeijasulta.....148 kr.
400 gjarðarbeijasulta ....119 kr.
folaldakjöt..........335 kr. kg
Ryvita hrökkbrauð........49 kr.
20 stk,-bollumix........195 kr.
20 stk. Góu prins......498 kr.
Garðakauþ
Tilboðið gildir fram á laugar-
dag.
svínasnitzel.........979 kr. kg
Fisléttnautapanna....899 kr. kg
nautainnlæri........1335 kr. kg
400 g Orkidé jarðarbeijasulta
.........................55 kr.
3 Kit Kat í pakka......145 kr.
Burton karamellukex.....95 kr.
39 kr. kg
Hagkaup
Tilboðið gildir fram á miðviku-
dag.
vínarpylsur..........399 kr. kg
pylsubrauð...............39 kr.
kínakál..............169 kr.kg
200 g steiktur laukur....69 kr.
45 ml. Hreins húðsápa ....229 kr.
húðsápufylling..........199 kr.
KEA Nettó
Tilboðið gildir fram á sunnu-
dag.
Bayone-skinka........765 kr. kg
hamborgari og brauð.....59 kr.
frystir kjúklingahlutar ....473 kr.
spænskar appels......39 kr. kg.
21. skafís..............298 kr.
Kjöt & fiskur
Tilboðið gildir fram á sunnu-
dag.
nautagullash.........849 kr. kg
nautapiparsteik....1189 kr. kg
svínasíða...........395 kr. kg
400gSúpersultur..........79 kr.
2 kg Súper hveiti........59 kr.
20málpappír..............49 kr.
heilhveitibrauð..........85 kr.
Nóatún
Tilboðið gildir fram á miðviku-
dag.
unghænur...............199 kr. kg
300gpizzur..............99 kr. kg
Tisaltkex...............39 kr. pk.
Mcvite’s tekex......45 kr. pk.
Shop Rite hrísgijón.....69 pk.
Revlon sjampó og næringl99 kr.
Pampers.ble.yjur.__999 pr. pk.
blómkál.................86 kr. kg
kínakál................109 kr. kg
HELGARTILBOÐIN
stonn rói’ur
Fagfólk sem sker
úr um hvort um galla er
að ræða segja Neytendasamtökin
UM mánaðarmótin októ-
ber/nóvember keypti Steinunn
Halldórsdóttir skó á unglinginn
á heimilinu. Skórnir sem eru
breskir og merktir „Shelleys"
kostuðu um tíu þúsund krónur.
Tveimur mánuðum seinna gat
pilturinn ekki lengur gengið í
skónum, hællinn var brotinn og
sólinn ónýtur. Er eðlilegt að
skór þurfi nokkurra þúsund
króna viðgerð eftir tveggja
mánaða notkun?
„Hælar eiga ekki að fara í sund-
ur. Umræddir hælar eru úr mason-
ít-pappa, illa eða ónegldir. Hæl-
amir þola enga bleytu, þá bólgnar
pappinn út og hælamir losna í
sundur," segir Lárus Gunnsteins-
son skósmiður við Dunhaga.
Hann segir hinsvegar að efnið
í sólunum sé þykkt og slitþol þess
eins og gengur og gerist. „Það er
einstaklingsbundið hversu lengi
fólk er að slíta sólum, sumir eru
einn mánuð að því á meðan aðrir
em í ár.
Efni sem við skósmiðir notum
í sólun er hinsvegar miklu sterk-
ara en það sem algengt er að skó-
framleiðendur noti. Ég er með til-
tekna skó í viðgerð og ætla að
sóla þá upp á nýtt með Wibram
sóla. Viðgerðin nemur 3.500 krón-
um dg við tökum tveggja ára
ábyrgð á sóluninni." Lárus segir
að í fyrstu líti út fyrir að sólarnir
séu randsaumaðir á skóm Stein-
unnar en þegar betur er að gáð
er slitsólinn einungis með plat-
saum.
„Þegar starfsmaður Neytenda-
samtakanna kom til okkar og
spurði álits um tiltekna skó var
álit mitt í fljótu bragði að þetta
væri ekki stór viðgerð að gera við
hælinn lausan því hann var í
tvennu lagi. Um galla var þó að
ræða. Að negla hæl kostar 300
krónur“, segir Gunnsteinn Lárus-
son skósmiður.
„Þegar við fórum að skoða
skóna betur þurfti að negla báða
hæl. Plöturnar þarf þá að losa og
hælamir eru negldir bæði utan og
innanfrá og kostar sú viðgerð milli
600 og 900 krónur", segir Lárus
skósmiður, sonur Gunnsteins.
Skórnir ekki gallaðir?
Þetta er niðurstaða skósmiðsins
eftir að Steinunn fór með skóna á
ný til skósmiðsins á Dunhaga sem
skoðaði þá gaumgæfilega. Sam-
kvæmt upplýsingum Neytenda-
samtakanna hefur verslunin nú
greitt viðgerðina að fullu.
Steinunn byijaði hinsvegar á
því að fara í verslunina Sautján
en þar voru skórnir keyptir. Hún
skildi skóna eftir í nokkra daga
en þegar hún kom til baka var
henni sagt að samkvæmt mati
skósmiðs væri um illa meðferð að
ræða og skórnir ekki gallaðir.
Svava Johansen hjá Sautján segir
að þegar viðskiptavinur komi með
vöru til baka og telji hana gallaða
sé hún ávallt tekin inn í athugun
og leitað svara hjá utanaðkomandi
fagfólki. „í þessu tilfelli fórum við
með skóna í athugun til skósmiðs-
ins á Háaleitisbraut sem taldi ekki
um galla að ræða. Verði ágreining-
ur um úrskurð okkar fagfólks vís-
um við viðskiptavinum okkar á
Neytendasamtökin og hlýtum við
ávallt þeirra dómi. Komist Neyt-
endasamtökin að þeirri niðurstöðu
að varan sé gölluð þá er viðgerðin
greidd eða kaupin ganga til baka.“
Steinunn leitaði til Neytenda-
samtakanna. Þar var henni tjáð
að búast ekki við miklu ef ekki
væri um galla að ræða. Skórnir
voru skildir eftir og þegar Stein-
unn kom til baka að sækja skótau-
ið var henni tjáð að ekki væri um
galla að ræða, heldur eðlilegt slit,
gúmmíið væri ágætt og það kost-
aði um 300 krónur að gera við
hælinn.
Hvenær er hlutur gallaður?
Spurningin sem vaknaði hjá
Steinunni við þessi svör er hvaða
þættir eru lagðir til grundvallar
þegar galli er metinn? Hún segir
að í þessu tilfelli hafi verið ein-
blínt á það hvort hællinn væri laus
eða ekki laus. Samkvæmt almenn-
um reglum um galla er hlutur
gallaður ef hann hefur ekki það
notagildi sem sambærilegir hlutir
hafa. „Mér fannst algjörlega litið
framhjá þessu,“ segir Steinunn.
Steinunn segist viss um, vegna
fyrri reynslu af Neytendasamtök-
unum, að viðgerðin hefði ekki ver-
ið borguð að fullu nema vegna
íhlutunar blaðamanns.
„Verslunareigendur eiga að
vera vissir um að skór skili þeirri
endingu sem hægt er að búast við
fyrir það verð sem þeir selja skóna
á. Margir verslunareigendur láta
fagmenn yfirfara sýnishorn áður
en pantanir eru gerðar og eða
láta yfirfara skó áður en þeir fara
í sölu“, segir Lárus Gunnsteinsson
skósmiður að lokum. ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Drekkum
meira vatn
segja tannfræðingar
ÁRIÐ 1990 drakk hver íslend-
ingur að meðaltali rúma 140
lítra af gosdrykkjum. í einni dós
af gosi er sama magn af sykri
og í 15 sykurmolum. Ein dós á
dag í mánuð jafngildir 450 syk-
urmolum. Takk fyrir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Tann-
verndarráði þarf fólk að
trimma í að minnsta kosti hálfa
klukkustund til að nýta sykur-
inn úr einni gosdós.
Um það bil 60% af þyngd líkam-
ans er vatn og vatnið hjálpar til
við að fytja næringarefni um
líkamann og losa okkur við úr-
gangsefni. Við getum lifað lengur
„Við erum með starfandi kvört-
unarnefnd vegna kaupa á vöru og
þjónustu. Ejnnig erum við með aðra
nefnd sem starfar á vegum félags
Efnalaugaeiganda og Neytenda-
samtakanna", segir Sesselja Ás-
geirsdóttir starfsmaður Neytenda-
samtakanna. „Þessar nefndir koma
til starfa ef að málin leysast ekki
hjá sérfræðingum okkar sem meta
galla. Það sem gallað er má laga
og ef það tekst ekki þá á að láta
aðra ógallaða vöru í staðinn. Síðan
má greiða vöruna út í peningum ef
annað gengur ekki. Persónulega
skoða ég ekki skó sem leitað er með
án matar en vatns.
Þó að fólk reyni ekki sérstak-
lega á sig eða svitni mikið losum
við okkur við um einn til þijá lítra
af vatni á dag í gegnum húð, með
andardrætti og með þvagfærum.
Drekki fólk daglega um einn
lítra af gosdrykkjum þá kostar það
um 30.000 krónur á dag að svala
þorstanum. Vatnið er ókeypis.
til okkar“, segir Sesselja „Við fáum
sérfræðinga til að skoða hlutina. í
þessu tilfelli fór skósmiðurinn við
Dunhaga yfir skóna. Þegar í ljós
kom að ekki var um meiri galla að
ræða en viðgerð upp á 300 krónur
tók konan skóna og sætti sig ekki
við slíka niðurstöðu.
Þegar við síðar fengum niður-
stöðu skósmiðsins upp á 900 krónur
fyrir hælana og að auki sólun upp
á 2,600 krónur fengum við alla
upphæðina greidda frá Sautján.
Versluninni bar þó ekki skylda til
að greiða 2.600 krónur fyrir sólun.
30% auka-
afsláttur af
útsöluverði
hjá Hagkaup
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag
hófst hjá Hagkaup rým-
ingarsala. Veittur er 30%
aukaafsláttur af útsöluverði
við kassa.
Blússur sem upphaflega
voru á 3.695 lækkuðu í 1.495
og nú er veittur 30% aukaaf-
sláttur sem þýðir að blússurnar
kosta rúmlega þúsund krónur.
Útsalan er í verslunum Hag-
kaups í Skeifunni, Kringlunni,
Njarðvík og á Akureyri og
stendur fram að helgi. ■
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
K
K
K
Utskurður
14. feb. - 14. mars.
' kl. 19.30-22.30.
Kennari:
Bjarni Kristjánsson.
Knipl
2.mars-20. april
kl. 19.30-22.30.
Kennari:
Anna Sigurðardóttir.
Baldýring
1. mars - 5. apríl
kl. 19.30-22.30.
Kennari:
Elínbjört Jónsdóttir.
Helgarnámskeið
Fatasaumur Prjóntœkni
1 námskeið 1 námskeið
tekur 2 helgar tekur 2 helgar
19. og 20. feb., 26. og 19. og 20. feb. og
27. feb., kennt þessa 26. og 27. feb.,
daga kl. 10 - 13.45. kennt þessa daga
Kennari: kl. 10 - 13.45.
Herdís Kristjánsdóttir. Almennur vefnaður Kennari: Ragna Þórhallsdóttir.
1 námskeið Ásaumur í vél
tekur 2 helgar (applikerlny)
19. og 20. feb., 1 námskeiö tekur
26. og 27. feb., 2 helgar
kennt þessa daga 12. og 13. mars,
kl. 10 - 13.45. 26. og 27. mars,
Kennari: kennt þessa daga
Herborg Sigtryggsdóttir. kl. 10 - 13.45. Kennari: Hanne Hinze.
Til að fá frekari upplýsingar vinsamlegast hringið
á skrifstofu skólans í síma 17800.
y
I
A
Öll kennsla fer fram í húsi Heimilisiðnaðarfélags íslands 6 Laufásvegi 2. ||
L>