Morgunblaðið - 10.02.1994, Page 35

Morgunblaðið - 10.02.1994, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 35 • • Olvir Karlsson, fv. oddviti, Þjórsártúni Fæddur 1. febrúar 1915 Dáinn 24. september 1991 Snemma sumars 1943 var norð- lenskur maðurí búferlahugleiðing- um að skoða jarðir hér sunnan- lands. Hann kom að Þjórsártúni. Þegar hann hafði staðið um stund þar sem tröppurnar eru á núver- andi íbúðarhúsi og virt fyrir sér fjallabogann vestan frá Ingólfsfjalli og norður til fjallanna ofan byggð- ar í Árnesþingi mælti hann: „Ég þarf ekki að leita lengur. Hér vil ég eiga heima. Hér ætla ég að lifa og starfa.“ Þessi maður var Ölvir Karlsson fv. mjólkurbílstjóri á Þela- mörk í Eyjafirði. Það var svo um miðjan ágúst þetta sama sumar að hann flutti ásamt fjölskyldu sinni að Þjórsár- túni. Þá hafði jörðin verið í eyði um skeið og öli hús staðið mann- laus. Aðkoman var því ekki uppör- vandi: Þakið var fokið af íjóshlöð- unni, þegar íbúðarhúsið var opnað voru rottur hlaupandi þar um öll gólf og í fyrstu rigningunni lak þakið hvetjum dropa. Neysluvatnið varð að sækja í skjólum dtjúgan spöl. Það var því ekkert undarlegt þótt flestir teldu að „þetta nýja fólk“, „yrði aldrei lengi“ í Þjórsárt- úni. Mörgum konum hefðu fallist hendur við slíka aðkomu en frúin hún Kristbjörg var nægjusöm. Þar kom að öll hús voru endur- byggð í Þjórsártúni. Glæsilegt íbúð- arhúsið sem blasir við þegar komið er austur að Þjórsá ber miklum stórhug vitni. Ræktun var aukin og búskapurinn blómgaðist. Og það var ekki síður að þakka henni Krist- björgu. Það mætti ætla að það væri meira en nóg verk að starfa innanhúss þar sem níu manns voru í heimili þegar mest var. En Krist- björg var slíkur dugnaðarforkur, að hún gekk í mörg störf utan- húss. Mjög mæddi á henni í þessum efnum þegar bóndi hennar var langtímum fjarverandi vegna hinna ýmsu félagsmálastarfa. Börnin urðu og snemma liðtæk við heimil- isstörfin. Ölvir var kjörinn í hreppsnefnd Ásahrepps árið 1954 og oddviti fjórum árum síðar. Því starfi gegndi hann í 32 ár. Í hreppsnefnd- inni varð mönnum ljóst að Ölvir var á réttum „vígvelli". Hann var mikill félagsmálamaður, greindi vel meginatriði hvers máls frá aukaatr- iðum, var gætinn í ákvarðanatöku en stefndi hins vegar fast að settu marki þegar ákvarðanir höfðu verið teknar. Honum voru sífellt falin fleiri og ábyrgðarmeiri trúnaðar- störf. Hann sat í stjórn eftirtalinna félaga og stofnana: fræðsluráði Suðurlands, Jarðefnaiðnaði hf., Eldbergi hf, Iðnþróunarsjóði Suðurlands, skólanefnd Skálholts- skóla, Lánasjóði sveitarfélaga, fisk- eldisstöðinni í Fellsmúla, Veiðifé- lagi Þjórsár, Veiðifélagi Holta- mannaafréttar, Kaupfélagi Rangæinga, Mjólkurbúi Flóa- manna, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (um árabil sem for- maður) og í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Auk þess sat hann í ijölda nefnda á vegum sveitarfé- laga og ríkis. Hann var í skólanefnd Lauga- landsskóla. Árið 1972 réðst ég að Laugalandi sem skólastjóri. Frá þeim tíma og um átta ára skeið áttum við gott og náið samstarf um málefni skólans. Fljótlega átt- aði ég mig á því hversu mikill yfir- burðamaður Ölvir var: Hann gjör- þekkti öll lög skólamálanna út í hörgul og tilheyrandi reglugerðir enda hafði hann sjálfur tekið þátt í að semja lögin og reglugerðirnar. Hann var afskaplega hreinskiptinn maður og aldrei heyrði ég hann baktala nokkurn mann. Ef honum þótti eitthvað miður fara, þá sagði hann það fyrir „opnum tjöldum“ og á „tungumáli" sem skildist. Það þurfti engan túlk til að útskýra hvað hann átti við. Hann lét sig miklu varða málefni skólans og strax haustið 1972 hafði hann uppi hugmyndir um fram- kvæmdir á Laugalandi. Ekki voru allir ginnkeyptir fyrir því í upphafi og allt þarf sinn tíma. Fyrst voru málin rædd óformlega, — síðar á fundum, — arkitekt var ráðinn, — teikningar lagðar fram, — málin enn rædd, — teikningum breytt. Og þannig þokuðust málin áfram. Ég man að Ölvir varð glaður þegar endanlegar teikningar höfðu verið samþykktar og framkvæmdir ákveðnar. Svo var það hann, sem gjörþekkti „kerfið“ og vissi ná- kvæmlega hvaða leiðir ætti að fara til þess að fá þetta mannvirki sam- þykkt á æðri stöðum. Sumir telja að þær miklu byggingar sem nú eru á Laugalandi („Menningarmið- stöðin“) væru betur komnar annars staðar, svo þær gætu þjónað stærra svæði. Ekki legg ég dóm á slíkt. En vegir atburðakeðjunnar eru margslungnir: Hefði Ölvir Karlsson ekki sest að í skólahéraði Lauga- Björn Ellertsson var kennari okk- ar þýskunema í málfræði og málvís- indum við háskólann. Framkoma hans var frá byijun látlaus og kumpánleg, en þó gneistaði af hon- um þegar hann lagði fram niður- stöður fyrsta skyndiprófs haustið 1979, var það þeim mun áhrifarík- ara að við fundum að þar fóru sam- an varnaðarorð, hvatning og um- hyggja í okkar garð. Stemmningin varð rafmögnuð meðan farið var í gegn um hinar óhjákvæmilegu fyrstu síur námsins og margir helt- ust úr lestinni eins og gengur. En fljótt varð hópurinn samrýndur og Björn var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. í kaffihléum var gjarnan rætt vítt og breitt um ijölbreytileg efni, jafnt um sanskrít og samanburðar- málfræði, sem um stefnur og strauma í málvísindum, og alltaf var Björn náma af fróðleik, opinn og áhugasamur. Ekki tók hann annað í mál en að borga fyrir allan hópinn þegar setið hafði verið á kaffihúsi. Þegar vorpróf nálguðust bauð hann okkur eins marga auka- tíma í námsaðstöðu okkar í þýska bókasafninu og við nenntum að sitja, en það var ekki nóg, því hann kom líka með veitingar; þannig var Björn. Kennsluna kryddaði hann gjarn- an með léttri kímni um leið og hann dró fram mismunandi hugmyndir og sjónarmið, vildi láta okkur vega og meta sjálfstætt í stað þess að mata okkur. Hann sýndi okkur fram á að umijöllunarefnið væri í deiglu frekar en fullmótað, víða væru laus- ir endar í fræðunum og spennandi verkefni fyrir okkur, þarna væri áhugavert verkefni til BA-prófs, en þarna annað viðameira, sem eitt- hvert okkar ætti ef til vill eftir að líta á síðar. Það var eins og hann vildi hefja okkur upp um leið og hann reyndi að taka fræðin ofan af stalli og færa þau nær okkur, svo við gætum ódeig fengist við þau. Þetta fór saman við virðingu og væntumþykju gagnvárt okkur nemendum og var því ekki að sök- um að spyija að áhuginn glæddist. Það er dýrmætt að hafa kynnst Birni, hann var umfram allt góður maður. Blessuð sé minning hans. Gamlir nemendur. Bjöm Ellertsson - Minningarorð Björns Ellertssonar verður lengi minnst fyrir mannkosti. Hann var hæfileikaríkur drengskaparmaður, hlýr og óeigingjarn og mun verða sárt saknað. Kunningsskapur okkar hófst í Los Angeles árið 1989 og snerist upp í vináttu sem ég met mikils og þakka. Margt hafði ég heyrt um Bjöm, manninn sem gæti töfrað fram heilar orðabækur á tölvu og lægi flest í augum uppi. Þetta voru goðsagnir nánast því að fæstir vissu fyrir víst hvað Björn var að gera enda kom í ljós við kynni að hann var manna hógværastur og lítillát- astur. En orðabók samdi hann, ís- lensk-þýska, sem núna er komin fyrir augu almennings og hitt var líka rétt, honum virtist liggja flest í augum uppi. Við Bjöm dvöldumst samtímis í Los Angeles á fyrri hluta síðastlið- ins árs og ég naut gestrisni hans og greiðvikni sem hvorag átti sér nein takmörk. Aldrei þreyttist hann á að aka mér um þvera og endi- langa borgina til að sýna mér eitt- hvað forvitnilegt, venjulega utan ferðamannaslóða. Bandarískir ís- landsvinir sögðu að Björn þekkti þessa borg flestum betur og væri manna best að sér um bandarískt þjóðlíf og menningu. Björn neitaði þessu þegar og hló sínum hvella og smitandi hlátri, sagðist ekki þekkja neina Bandaríkjamenn, að- eins útlendinga í Los Angeles. Þetta voru dæmigerð viðbrögð Björns. Allt vildi Bjöm fyrir mig gera og öll vandamál leysa, fyrirhyggja hans og natni voru einstök. Mér fannst liann hugsa meira um minn hag en eigin hag og hef sjaldan kynnst öðru eins. Eg umgekkst líka stórvinkonur hans, Siggu og Haf- dísi, sem voru mér afar elskulegar af því að þeim fannst svo undur- vænt um Bjössa. Björn var ekki aðeins örlátur að sýna mér Los Angeles, hann fór líka með mig til Mexíkó, hafði dval- ist við spænskunám þar í landi, enda fengið áhuga á mexíkósku þjóðlífi. Nú vildi hann deila þessu áhugamáli með mér. Ég spurði hvort ekki væri ráð að koma við í bandarísku borginni San Diego í leiðinni, væri víst svo fallegt þar. Björn sagði að það væri svo sem sjálfsagt en bætti við um borgina: „Hún er svona eins og Hótel Saga.“ Mér fannst þá ekki mikil ástæða til að fara þangað og það var ekki rætt frekar. Mexíkó var furðuleg og fram- andi, á örfáum mínútum hurfum við frá Bandaríkjunum inn í þriðja heiminn. Björn var lærimeistari minn í mexíkósku þjóðlífi og spænskri tungu. Hann lét mig m.a. spreyta mig á að skilja texta skilta, t.d. leiðbeiningar til ökumanna og örnefni. Ég greip til takmarkaðrar latínukunnáttu og Björn beindi mér inn á réttar brautir þegar skilning- urinn vaknaði seint. í þessari skemmtun hans birtust hinn næmi málamaður og natni kennari. Á kvöldin sátum við á mexíkóskum veitingastöðum og fróðleiksfús og lífsþyrstur heimsborgari kynnti fyr- ir mér þarlenda rétti og drykki. Þegar leið á kvöld spjölluðum við mest um íslenska tungu, kannski skrýtnar beygingar og þversagnir, uppruna orða og skemmtilegar skýringar. Aldrei töluðum við um að hann æfti ekki langt eftir ólifað og aldrei sýndi hann nein merki þess að hann væri að ferðast um sína kæru Mexíkó í síðasta sinn. Slíkur var styrkur hans og æðru- leysi. Björn sóttist hvorki eftir virðing- um né jarðneskum eigum. Honum var margt ríkulega gefið og hann naut hæfileika sinna. Hann var vinnusamur og kappsamur í því sem hann tók sér fyrir hendur, sökkti sér niður í fræðileg viðfangsefni af ástríðu. Margþætt áhugamál hans, líka utan fræðanna, sýna að það var enginn lífsflótti, hann lifði auð- ugu lífí. Ollum aðstandendum Björns sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Helgi Þorláksson. lands, þá hefðu þar engar fram- kvæmdir hafíst vorið 1981. Hann einn átti hugmyndina og hann náði að vinna þeim hugmyndum fylgi þeirra sem til þurfti. Þó eru ekki enn allar hugmyndir hans þar orðn- ar að veruleika, því fyrir 21 ári talaði hann um nýja sundlaug og sánaböð. Þegar Ölvir flytur að Þjórsártúni hafði hann skipað sér í raðir Fram- sóknarflokksins. Það vekur furðu mína það dómgreindarleysi for- ystumanna framsóknar í Suður- landskjördæmi að þeir skyldu aldr- ei velja hann til að skipa eitthvert af tveimur - þremur efstu sætum listans í kjördæminu. Hann var þannig staðsettur að Árnesingar ekki síður en Rangæingar hefðu litið á hann sem sinn þingmann. Ég þekki fólk bæði í uppsveitum Árnessýslu og þéttbýli Þorláks- hafnar sem hefði fylgt Ölvi per- sónulega í kosningum, þótt það hafi að öðru leyti fremur talið sig til annarra stjórnmálaflokka. Ég held að þarna hafi framsóknar- menn verið sjálfum sér verstir hvað kosningafylgi snertir og öðrum slæmir líka, því Ölvir hefði orðið afskaplega notadijúgur þingmað- ur, ekki aðeins fyrir dreifbýlið held- ur líka fyrir fólkið í þéttbýli Árnes- sýslu. Ég minnist þess hvernig þessi stillti maður hækkaði röddina og fór að tala örar þegar hann ræddi um væntanlega framtíðar- þróun byggðakjarnanna vestast í Árnessýslu. Ölvir var fæddur á Tyrfingsstöð- um í Akrahreppi í Skagafirði. Hann stundaði nám í tvo vetur við héraðs- skólann á Laugum og síðan einn vetur við Lýðháskólann í Askov í Danmörku. Um sumarið vann hann svo á dönskum búgarði. Þetta nám og starf nýttist honum vel, síðar á lífsleiðinni. Ölvir var sonur Karls Júlíusar b. að Vöglum, Eyjafírði, f. 1890, Hallgrímssonar í Siglufírði og b. á Minna-Hofi á Höfðaströnd f. 1861, Jónssonar á Nausti f. 1819, Hallgrímssonar b. víða í Skagafírði f. 1787, Jónssonar á Lómatjörn f. 1737, Sigurðssonar á Ljótsstöðum S-Þing. Guðbrandssonar, Jónsson- ar. Kristbjörg kona Ölvis var fædd 10. september 1917 að Ábæ í Aust- urdal í Skagafirði. Faðir hennar Hrólfur b. að Ábæ f. 1886 var son- ur Þorsteins Lárusar b. á Skata- stöðum f. 1860, Sigurðssonar í Gilhagaseli f. 1819, Sigurðssonar - i Laxárdal, Hún. f. 1790, Þorleifs- sonar b. Stóru-Mörk, Hún. f. 1760, Þorleifssonar. Móðir Hrólfs í Ábæ var Ingibjörg Guðríður f. 1859, dóttir Guðmundar á Hömrum í Skagafirði. Móðir Guðmundar á Hömrum var Ingibjörg dóttir Hrólfs að Grófargili f. 1734, Þorsteinsson- ar á Álfgeirsvöllum f. 1701, Hrólfs- sonar b. sst. f. 1654, Þorsteinsson- ar lögréttumanns sst. f. 1616, Bjarnasonar b. sst. f. 1566, Hrólfs- sonar hins sterka sem kunnur er úr þjóðsögum. Börn Ölvis og Kristbjargar era sem hér segir: 1) Valgerður starfs- maður hjá Glettingi og húsfr. Þor- lákshöfn. M: Gunnar H. Snorrason frá Vogsósum. 2) Lilja b. Grafar- bakka, Hrun. M: Emil Rafn Kristó- fersson. 3) Kristjana Ingibjörg starfsm. á bæjarskrifstofu Seltjarn- arness. M: Jón Ármann Sigurðsson starfsmaður hjá Plasos. 4) Karl b. Þjórsártúni. M: Jóhanna B. Hilm- arsdóttir. 5) Guðrún Gyða hjúkrun- arfræðingur á Blönduósi. M 1: Geir Þórðarson, bankamaður. M 2: Guðmundur Unnar Agnarsson meinatæknir. 6) Hrólfur fv. fram- ’ kvæmdastjóri Tímans, Rvík. M: Irma Sjöfn Óskarsdóttir aðstoðar- prestur í Seljasókn. Hina síðustu mánuði fyrir andlát sitt var Ölvir veikur maður. Ég kom þá að Þjórsártúni. Kannske sá ég þá fyrst hvað hún Kristbjörg er mikil manneskja. Þegar Ölvir — vegna veikinda sinna — fór með rangt mál, svaraði hún aðeins: „Heldurðu það, Ölvir minn, sagði hann Jónas okkur ekki í gær að ...“ Og þegar hann hélt áfram • sinni skoðun voru engar þrætur frá hennar hendi, því þarna umgekkst hún veikan maka sinn með mildi og nærgætni. Ölvir var meðalmaður á hæð og fremur þrekvaxinn. Eftir því var tekið hversu snyrtilega hann var klæddur og vel til fara. Hann var alvarlegur í yfirbragði, stilltur og yfirvegaður. Þó gat hann gefið mönnum þunga „ráðningu" ef hon- um var misboðið. Hann var athug- ull, glöggur og bjó yfir góðri dóm- greind. Hann var mjög fær og hæfur embættismaður og hafði glögga sýn yfir þá málaflokka sem hann hafði til umfjöllunar. Hann vildi mönnum vel og lagði sig fram ' um að mál leystust farsællega. Þó var hann mikill málafylgjumaður fyrir sveit sína og hagsmuni stéttar sinnar. Þessi síðbúnu eftirmæli eru þakklæti fyrir samstarfið og fyrir það sem ég tel mig hafa af Ölvi lært. Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún. T auglýsingar St. St. 5994021019 VII I.O.O.F. 11 = 17502108V2 = B.K. I.O.O.F. 5 = 1752108'/z = F.R. Brlds Hvítasunnukirkjan Völvufeli Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjuitrati 2 kvöld kl. 20.30: Lofgjörðar- samkoma. Major Liv Gundersen frá Noregi talar. Verið velkomin á Her. □ HLÍN 5994021019 IV/V 2 Miðilsfundir Iris Hall verður með einkafundi til 15. febrúar. Upplýsingar í síma 811073. Silfurkrossinn. z, MAt Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur i kvöld kl. 20.30 i umsjá Bjarna Guðleifssonar, náttúru- fræðings. Allir karlarvelkomnir. Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomn- ir! Ath! Námskeið annað kvöld um sigrandi bænalíf með Ake Karlsson frá Livets Ord.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.