Morgunblaðið - 10.02.1994, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
51
j
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4 .
r
í
r
r
4
4
4
H
HANDKNATTLEIKUR
Sveíflur í
Firðinum
Þetta verður erfítt, sagði Guð-
mundur Guðmundsson þjálfari
Aftureldingar fyrir leikinn gegn FH
í gærkvöldi, og það
Skúli Unnar reyndist rétt hjá
Sveinsson honum. FH sigraði
skrifar 28:24 í gríðarlega
sveiflukenndum leik
þar sem UMFA náði góðri forystu
í upphafi hvors hálfleiks, en FH-
ingar tóku góða spretti þegar á
þurfti að halda og unnu nokkuð
sannfærandi.
Guðmundur hefur örugglega ve'r-
ið farinn að brosa út í annað í upp-
hafi leiks því lið hans lék vel og
hafði forystu. Bergsveinn mark-
vörður hélt FH á floti og reyndar
Knútur Sigurðsson einnig því hann
gerði sjö af 13 mörkum liðsins í
fyrri hálfleik. Skemmtilegt að fylgj-
ast með hvernig hann fékk boltann
á leiðinni í gegnum vörnina, stakk
sér inn í teiginn og skoraði.
Sóknir gestanna voru markvissar
og hraðar í upphafi en eftir að
FH-ingar áttuðu sig og gerðust
grimmari í vörninni gekk UMFA
verr að skapa sér færi. Það munaði
einnig um að Róbert línumaður var
meiddur og gat ekki beitt sér af
fullum krafti.
Afturelding komst í 4:8 en FH
svaraði með fjórum mökum og
komst síðan 11:9 yfír en jafnt var
í leikhléi, 13:13. í síðari hálfleik
komust gestirnir aftur yfír, 15:18
en sem fyrr náðu heimamenn að
gera það sem þurfti og komust
22:19 yfír. Þá voru tveir FH-ingar
reknir af velli með stuttu millibili
en allt kom fyrir ekki hjá Aftureld-
ingu, leikmönnum tókst ekki að
nýta það.
Bestu manna FH er áður getið
en hjá Afturledingu léku flestir
ágætlega og Sigurður markvörður
veL
FOLK
■ VÉSTEINN Hafsteinsson varð
annar i kringlukasti, þegar hann
keppti sem gestur á indverska
meistaramótinu um síðustu helgi -*
kastaði 57,82 m. Sigurvegarinn,
Lars Riedel frá Þýskalandi, kast-
aði 59 m.
■ VALSMENN léku í gær án Jóns
Kristjánssonar og Júlíusar Gunn-
arssonar, sem eru meiddir. Víking-
ar léku án tveggja lykilmanna, sem
eru meiddir: Arna Friðleifssonar
og Slavisa Cvijovic.
■ DAGUR Sigurðsson skoraði
aðeins eitt mark fyrir Val — með
langskoti, 17:14, eftir 43 mín. leik.
■ LEIKMENN Víkings fögnuðu
geysilega þegar Þröstur Helgason
skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks-
ins, 11:10, en það var hans fyrsta
mark með Víkingum. Þröstur er
bróðir Ingimundar, leikmanns Aft-
ureldingar, sem lék á árum áður
með Víkingum.
■ STUÐNINGSMENN Vals
hrópuðu: „Víti, víti...“ undir lok
leiksins, en þeir vildu þá að dómar-
arnir dæmdu vítakast á Valsmenn.
Þetta gerðu þeir aðeins til þess að
Guðmundur Hrafnkelsson fengi
tækifæri til að verja vítakast, en
hann varði þijú í leiknum — tvö á
lokamínútunum. Þá skutu Víkingar
tvisvar framhjá markinu úr vítaköst-
um.
■ ÞRÍR leikmenn Víkings skor-
uðu öll mörk þeirra, nema fjögur.
Það voru iandsliðsmennirnir Birgir
Sigurðsson (7), Bjarki Sigurðsson
(6) og Gunnar Gunnarsson (5).
■ PÉTUR Petersen hjá FH var
útilokaður frá frekari leik gegn
UMFA snemma í fyrri hálfleik eftir
að hann braut á Páli Þórólfssyni í
vinstra horninu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Valdimar Grímsson brýst framhjá Páli Ólafssyni á Akureyri í gærkvöldi. Hann skaut yfir markið úr vítakasti um leið
og leiktíminn rann út og leiknum lauk með jafntefli.
Harmleikur KA-manna
VIÐ erum stödd í KA-húsinu. 2,2 sekúndur lifa af leik KA og
Hauka í íslandsmótinu í handknattleik. Staðan er 19:19 og
KA-menn fá vítakast. Valdimar Grímsson gengur fram; gengt
honum Magnús Árnason, markvörður. Spennan magnast.
Valdimar mundar skothöndina. Áhorfendur halda niðrf sér
andanum. Flauta dómarans gellur. Valdimar hikar, en hleypir
svo af. Boltinn fer undir Magnús og í gólfið...og yfir markið!
Valdimar grípur um höfuð sér og bölvar, en Haukar ærast af
gleði. Enn eitt stig í höfn eftir erfiðan leik.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
taugaspennu. Leikmenn gerðu
fjölmörg mistök í sóknarleiknum.
Haukar létu veija
frá sér þijú víti og
KA-menn brenndu
af einum ljórum,
fimm dauðafærum.
Varnirnar virkuðu á hinn bóginn
Pátmi
Óskarsson
skrifar
nokkuð traustar. Og markvarslan
var ágæt, sérstaklega hjá Sigmari
Þresti. Alfreð Gíslason leiddi menn
sína í fyrri hálfleik og var ákaflega
ógnandi í sókn og feyki sterkur í
vörn. Halldór Ingólfsson fór hins
vegar fyrir Haukum, skoraði fimm
af níu mörkum þeirra í hálfleiknum
og lagði grunninn að eins marks
forystu í hálfleik.
KA-menn voru sterkari í síðari
hálfleik og höfðu gjarnan eins til
tveggja marka forskot. Þar munaði
mest um að Valdimar lék mun bet-
ur eftir hlé, gerði þá sex mörk, og
svo varði Sigmar Þröstur afskap-
lega vel. Haukarnir gáfust þó aldr-
ei upp og náðu einlægt að jafna
metin. Með örlítilli heppni í lokin
hefðu KA-menn þó átt að hafa sig-
ur.
Sigmar Þröstur var bestur
heimamanna sem oftar og Alfreð
og Valdimar spiluðu einnig vel
Magnús Árnason var snjallastur
gestanna, varði oft úr mjög opnum
færum.
Öruggt hjá Selfyssingum
EYJAMENIM réðu ekki við hraða
Selfyssinga og töpuðu því dýr-
mætum stigum á heimavelli í
gærkvöldi, 30:32. Sigurgest-
anna var öruggari en tölurnar
gefa til kynna.
Leikmenn ÍBV mættu ákveðnir
til leiks og komust fljótt í fjög-
ur mörk gegn einu, en þá hrukku
Sigurður Sveinsson
og félagar í gang í
sókninni gerðu
hvert markið á fæt-
ur öðru. Sigurður
fór á kostum í sókninni og gerði
alls átta mörk í fyrri hálfleik, þar
af tvo úr horni. Þrjú síðustu mörk
hálfleiksins voru Selfyssinga og
þeir höfðu fjögurra marka forystu
í hléinu, 13:17.
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
skrifar
Selfyssingar byrjuðu síðari hálf-
leik einsog þeir enduðu þann fyrri;
gerðu níu mörk fyrstu 10 mínúturn-
ar gegn fjórum heimamanna. Sigur
gestanna var því næstum í höfn þó
enn lifðu 20 mínútur af leiknum.
Lið ÍBV hafði þó ekki sagt sitt síð-
asta og saxaði jafnt og þétt á for-
skotið. Ógnaði reyndar aldrei sigr-
inum en minnkaði muninn í tvö
mörk, 30:32, áður en yfir lauk. Það
var því skorað meira en mark á
mínútu enda voru varnarleikur og
markvarsla ekki fyrirferðarmikil í
leiknum.
Zoltan Belany var dijúgur í liði
ÍBV, gerði 12 mörk, þar af mörg
eftir hraðaupphlaup. Hjá Selfyss-
ingum var Sigurður Sveinsson góð-
ur að vanda; gerði alls 13 mörk auk
þess að mata Gústaf Bjarnason og
Jón Þ. Jónsson með mörgum glæsi
legum sendingum sem þeir nýttu
vel.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HAUKAR 15 9 5 1 376: 338 23
VALUR 15 10 2 3 372: 326 22
FH 15 9 1 5 392: 382 19
VIKINGUR 15 7 3 5 394: 381 17
UMFA 15 7 3 5 370: 370 17
KA 15 6 4 5 364: 350 16
STJARNAN 15 6 4 5 352: 342 16
SELFOSS 15 6 4 5 399: 391 16
IR 15 6 2 7 352: 349 14
KR 15 4 1 10 338: 373 9
IBV 15 3 1 11 371: 411 7
ÞOR 15 2 0 13 353: 420 4
FH - UMFA 28:24
Kaplakriki, íslandsmótið 1. deild, 15. um-
ferð, miðvikudaginn 9. febrúar 1994.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 3:6, 4:8, 8:8,
11:9, 12:12, 13:13, 13:14, 14:16, 15:18,
18:18, 18:19, 22:19, 24:20, 27:22, 28:24.
Mörk FH: Knútur Sigurðsson 10/5, Hans
Guðmundsson 4, Gunnar Beinteinsson i,
Guðjón Árnason 3, Amar Geirsson 3, Sig-
urður Sveinsson 2, Atli Hilmarsson 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 19
(þaraf 8 til mótherja)
Utan valiar: 12 mínútur og Pétur Peterson
fékk rautt fyrir brot snemma í fyrri hálfleik.
Mörk UMFA: Alexeij Trúfan 7/6, Gunnar
Andrésson 4, Þorkell Guðbrandsson 3, Rób-
ert Sighvatsson 3, Ingimundur Helgason
3, Jason Ólafsson 2, Láras Sigvaldason 1,
Páll Þórólfsson 1.
Varin skot: Sigurður Sigurðsson 13 (þaraf
3 til mótheija), Viktor R. Viktorsson 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
KA-Haukar 19:19
KA-húsið:
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 3:1, 3:3, 5:4,
6:6, 8:7, 8:9, 9:9, 11:11, 13:11, 13:13,
15:14, 18:16, 19:17, 19:19.
Mörk KA: Valdimar Grímsson 8/4, Alfreð
Gíslason 5, Jóhann Jóhannsson 2, Erlingur
Kristjánsson 2, Óskar Óskarsson 1, Þorvald-
ur Þorvaldsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
16/3 (þaraf 5 til mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 6/2, Petr
Baumruk 4/1, Siguijón Sigurðsson 4, Öskar
Sigurðsson 2, Páll Ólafsson 2, Sveinberg
Gíslason 1.
Varin skot: Magnús Árnason 9.
Utan vailar: 6 mínútur.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson voru slakir, of fljótir á sér.
Valur-Víkingur 30:23
Hlíðarendi:
Gangur leiksins: 2:0, 3:1, 3:5, 6:6, 10:9,
11:9. 13:13, 16:13, 18:15, 20:17, 23:19,
26:21, 28:22, 30:22, 30:23.
Mörk Vals: Rúnar Sigtryggsson 8/2, Ólaf-
ur Stefánsson 7/1, Valgarð Thorodsen 7,
Frosti Guðlaugsson 5, Dagur Sigurðsson
1, Ingi R. Jónsson 1, Eyþór Guðjónsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15/3
(þaraf 4 til mótheija).
Utan vallar: 12 mfn.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 8, Bjarki
Sigurðsson 6/4, Gunnar Gunnarsson 5/4,
Þröstur Helgason 2, Kristján Ágústsson 1,
Friðleifur Friðleifsson 1.
Varin skot: Magnús I. Stefánsson 13 (þar-
af 6 til mótheija). Reynir Þ. Reynisson 5/1.
Utan vallar: 8 mín. (Ingi Guðmundssoa
útilokaður).
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson, sem dæmdu vel.
Stjarnan - KR 23:18
Ásgarður:
Gangur leiksins: 0:2,4:4,11:6, 12:8, 12:
10,16:12,20:13,20:17, 23:18.
Mörk Stjörunnar: Patrekur Jóhannesson
8/2, Magnús Sigurðsson 6, Konráð Olavson
4, Hafsteinn Bragason 3, Sigurður Bjama-
son 1, Skúli Gunnsteinsson 1.
Varin skot:Gunnar Erlingsson 9 (þaraf 3
til mótheija). Ingvar Ragnarsson 5 (þaraf
2 til mótheija)
Utan vallar:8 mín.
Mörk KR:Hilmar Þórlindsson 9/1, Páll
Beck 7, Ingvar Valsson 1, Magnús Magnús-
son 1.
Varin skot: Alexander Revine 9/1, (þar
af 3/1 til mótheija). Sigurjón Þráinsson 5.
Utan vallan 8 mfn. ~
Dómarar:Guðjón L. Sigurðsson og Hákort
Siguijónsson og dæmdu þeir léttan leik vel.
ÍR-Þór 24:20
Seljaskðli:
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 3:3, 5:6, 8:6,
10:7,10:9,12:9,12:10,15:11,19:15,22:16,
24:18, 24:20.
Mörk ÍR:Njörður Ámason 8, Branislav
Dimitrivitsch 6/1, Ólafur Gylfason 4, Jó-
hann Ásgeirsson 3/1, Hjálmar Vilhjálmsson
2, Guðmundur Pálsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 11/2
(þarf 3 til mótheija) og Hrafn Margeirsson
2.
Utan vallan 6 mfnútur.
Mörk Þórs:Samúel Árnason 5, Sævar
Árnason 4, Atli Rúnarsson 4, Jóhann Samú-
elsson 4/2, Geir Aðalsteinsson 2, Ómar
Kristjánsson 1.
Varin skot: Hermann Karlsson 12 (þarf 4
til mótheija). "•
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Óskar Jónsson og Högni Júlfus-
son dæmdu sinn fyrsta leik í 1. deild og
voru nokkuð góðir.
ÍBV - Selfoss 30:32
íþróttamiðstöðin í Vestmarmaeyjum:
Gangur leiksins: 4:2, 5:6, 6:8, 9:9, 11:12,
13:17, 16:20, 17:25, 23:29, 25:30, 30:32.
Mörk ÍBV: Zoltan Belany 12/4, Björgvin
Þór Rúnarsson 5, Guðfinnur Kristmannsson
4, Magnús Arnar Arngrímsson 3, Svavar
Vignisson 2, Daði Pálsson 2, Sigbjörn Ösk-
' arsson 1, Arnar Pétursson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson 7/1, Sig-
mar Helgason 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 13/4,
Jón Þórir Jónsson 6, Gústaf Bjarnason 6,
Siguijón Bjarnason 4, Einar G. Sigurðsson
2, Oliver Pálmason 1.
Varin skot: Gísli Felix Bjarnason 10/1 (þar-
af 4 til mótheija), Hallgrímur Jónasson 2
(annað til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur. Oliver Pálmason
fékk rautt fyrir að mótmæla sinni annari
brottvfsun þannig að vfsa þurfti öðmm Sel-
fyssingi útaf um leið.
Dómarar: Láms Lárusson og Jóhannes