Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
21
Lífeyrissjóðirnir
styðja vaxtalækkun
Tækniþróun
Kf. — AÐALFUND-
UR Tækniþróunar hf.
var haldinn í Tækni-
garði á miðvikudag.
IMýsköpun
Hugmyndasamkeppni um afurðir
og nýjungar í atvinnulífinu
TÆKNIÞRÓUN hf. hefur í samvinnu við Nýsköpunarsjóð námsmanna
og Útflutningsráð hleypt af stokkunum hugmyndasamkeppni um afurð-
ir eða nýjungar í atvinnulífinu. Markmið samkeppninnar er að efla
íslenskt atvinnulíf og tengsl háskólamanna og atvinnulífs. Hugmynda-
samkeppnin hefur fengið nafnið Nýsköpunarsmiðja í Tæknigarði 1994
og er öllum nemendum og starfsmönnum Háskóla Islands heimil þátt-
taka. Skilafrestur tillagna er til 25. apríl og verða tilkynntar verðlauna-
hugmyndir 1. mai.
Dómnefnd skipa fulltrúar frá Afl-
vaka Reykjavíkur, Nýsköpunarsjóði
námsmanna, Samtökum iðnaðarins,
Iðntæknistofnun, Útflutningsráði og
Tækniþróun og velur hún í fyrsta
áfanga allt að fjórar hugmyndir.
Verðlaunahugmyndirnar verða
studdar með þrennum hætti. Veitt
verður 350.000 kr. fjárhagsaðstoð
við hvert verkefni. Einnig ráðgjöf til
að þróa og móta verðlaunahugmynd-
ir með markvissum hætti og boðið
upp á skrifstofuhúsnæði í Tækni-
garði og aðstöðu til frumgerðarsmíða
á verkstæðum Raunvfsindastofnunar
og verkfræðideildar. Við val á hug-
myndum verða eftirfarandi atriði
höfð til hliðsjónar: Nýnæmi, mark-
aðsmöguleikar, tæknileg útfærsla,
væntanleg arðsemi og gagnsemi fyr-
ir íslenskst atvinnulíf.
Seinni áfangi verkefnisins hefst í
september og felst í því að Tækniþró-
un hf. aðstoðar verðlaunahafa við
að finna þeim hugmyndum farveg
út í atvinnulífinu sem matsnefnd tel-
ur vænlegar að fyrsta áfanga lokn-
um. Tvær leiðir koma til greina.
Annars vegar verður kannað hvort
hentugt sé að fyrirtæki í rekstri taki
við hugmyndinni og haldi áfram þró-
un hennar. Tækniþróun hf. aðstoðar
við samningsgerð og miðast hún að
því að eiganda hugmyndarinnar verði
umbunað með eingreiðslu og fram-
leiðslugjaldi. í vissum tilfellum gæti
hugmyndasmiðurinn fylgt með verk-
efninu inn í fyrirtækið. Hins vegar
getur Tækniþróun aðstoðað við að
finna aðila til að leggja til fjármagn
í stofnun nýs fyrirtækis ásamt frum-
kvöðlinum.
Samkeppnin er styrkt af Nýsköp-
unarsjóði námsmanna, Aflvaka
Reykjavíkur og Reykjavíkurborg
ásamt Háskóla Islands.
Tæknigarður
Tækniþróun hf. var stofnað 1985
og hefur hlutverk þess verið að vinna
að verkefnum í tengslum við atvinnu-
líf og háskóla. Fyrirtækið hafði for-
göngu um byggingu Tæknigarðs við
Háskóla íslands og gerði í tilefni af
5 ára afmæli hans í desember könn-
un á högum fyrirtækja í garðinum
ásamt þeim fyrirtækjum sem dvalið
hafa í garðinum frá opnun hans.
Niðurstöðumar sögðu að stöðugild-
um hefði fjölgað um 27,5 til dagsins
í dag. Alls væru 67 starfsmenn í
fyrirtækjunum. Innan Tæknigarðs
28 og utan hans 39.
Velta fyrirtækjanna árið 1993 er
áætluð 355 milljónir króna. Þar af
er velta fyrirtækjanna í Tæknigarði
áætluð 126 milljónir og velta hinna
um 229 milljónir. Árið 1993 stefnir
í að % fyrirtækjanna skili hagnaði
eða verði „á núllinu" en 'h verði í tapi.
Fram kom að aðalástæðan fyrir
því að fyrirtæki kysu að vera í
Tæknigarði væri þjónusta og aðstaða
sem gerði þeim kleift að halda stofn-
kostnaði í lágmarki og til þess að
njóta samstarfs við stofnanir og önn-
ur fyritæki.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Hrafni Magnússyni, fram-
kvæmdastjóra Sambands al-
mennra lífeyrissjóða, og Þorgeiri
Eyjólfssyni, formanni Landssam-
bands lífeyrissjóða:
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ritaði grein um árangur í vaxtamál-
um og næstu skref í Morgunblaðið
í gær. Á tveimur stöðum í greininni
vísar forsætisráðherra til þýðingar-
mikiilar þátttöku lífeyrissjóðanna i
vel heppnuðu vaxtalækkunarferli
með þeim hætti að Samband al-
mennra lífeyrissjóða og Landssam-
band lífeyrissjóða telja óhjákvæmi-
legt að koma eftirfarandi athuga-
semdum á framfæri:
Því er haldið fram í greininni að
fjármagn lífeyrissjóðanna fylgi að
einhveiju leyti væntingum um að
vextir lækki ekki frekar og að vext-
ir hækki á ný. Þessar ætluðu vænt-
ingar af hálfu sjóðanna telur forsæt-
isráðherra vinna gegn markmiðum
ríkisstjórnar. Að sjálfsögðu hafa
stjómendur lífeyrissjóðanna að ein-
hveiju marki mismunandi skoðanir
á því hvernig vextir þróast í fram-
tíð. Mismunandi viðhorf fjárfesta til
þátta sem hafa áhrif á vaxtaþróun
eru ætið til staðar á öllum fjár-
magnsmörkuðum enda undirstöðu-
þáttur í aðkomu kaupenda og selj-
enda í viðskiptum með verðbréf.
Viðhorf lífeyrissjóðanna til þróunar
vaxta hafa að undanförnu komið
helst fram í því að sjóðirnir hafa
keypt af kappi lengri tíma verðbréf,
s.s. húsbréf, en aðeins í litlum mæli
keypt skemmri ríkisskuldabréf eða
ríkisvíxla. Þessi fjárfestingarstefna
sjóðanna á undanförnum mánuðum
sýnir að sú skoðun að lífeyrissjóðirn-
ir hafi unnið gegn jákvæðum mark-
miðum ríkistjórnarinnar til vaxta-
lækkunar á ekki við rök að styðjast.
Nefnt er í greininni að lífeyrissjóð-
irnir hafi „haldið að sér höndurn"
við fjármögnun húsnæðiskerfisins.
Af þessu tilefni er rétt að riíja upp
framgang húsnæðisbréfauppboða á
síðustu tveimur árum en þau hafa
sýnt svo ekki verður um villst að
vextir húsnæðisbréfa Húsnæðis-
stofnunar voru ætíð mjög álíka og
vextir húsbréfa á hveijum tíma. Það
var út af fyrir sig ekki að undra þar
sem skuldari bréfanna var sá sami
og líftími bréfanna svipaður. Þegar
vextir lækkuðu í lok október á sl.
ári var því eðlilegt að vextir í upp-
boðum húsnæðisbréfa tækju sömu
vaxtalækkun og húsbréfin gerðu.
Lífeyrissjóðimir hafa því verið tilbún-
ir að kaupa skuldabréf Húsnæðis-
stofnunar á liðnum mánuðum á svip-
uðum vöxtum og ávöxtun húsbréfa
er á hveijum tíma. Þegar sambærileg
skuldabréf em boðin lífeyrissjóðum
til kaups hljóta stjórnendur sjóðanna
að kaupa þau bréf sem hærri vexti
bera. Að öðmm kosti væm þeir að
bregðast skyldu sinni við íjárvörslu
á spamaði sjóðfélaganna.
Það skal að endingu áréttað að
lífeyrissjóðirnir og samtök þeirra
hafa að öllu leyti stutt velheppnaðar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar til vaxta-
lækkunar. Þýðingarmikill þáttur í
þegar orðinni vaxtalækkun er það
íykilatriði að stjórnvöld drógu úr
lánsfjáreftirspurn á markaði en
skýrt dæmi um það er sú ákvörðun
stjórnvalda að hlífa fjármagnsmark-
aðinum við lánsfjáreftirspurn Hús-
næðisstofnunar á liðnum mánuðum.
Það sem er þó þýðingarmest að
mati lífeyrissjóðasambandanna til
stuðnings þegar orðinni vaxtalækk-
un og frekari árangri er sú fyrirætl-
an ríkisstjórnarinnar að stefnt skuli
að minni fjárlagahalla.
BORGARDAGAR
BORGARKRINGLUNNI
SÉRVERSLUN FYRIR
VERÐANDI MÆOUR
Borgarkringlunni
Sokkabuxur kr. 300
Jakkar, alfóöraöir kr. 5.900
Blússur kr. 2.500
Bolir kr. 1.300
DEMANJAHUSIÐ
Borgarkringlunni
20% afsláttur af öllum
silfurhálsmenum og silfurnælum.
TISKUV ERSLUN
NX
Viö bjóðum 25% afslátt af öllum
Lindon vörum. 15-20% afsláttur af
öllum öðrum vörum.
Nýjar vörur — meiriháttar verð.
H
//
n
Stakar buxur
meö 35% afslætti.
Verð nú aöeins
kr. 3.900
K
Glæsileg tilboð - frábær verð
MAKEUP
FOR EVER 'buöin
PHOfISSIONAl MAK[ UP
25% afsláttur af varalitum,
augnskuggum og blýöntum.
Glæsilegt úrval - persónuleg þjónusta.
MAKE UP FOR EVER - þjónusta vió konur
~fárir tvo
20% afsláttur
af ASA VÖRUM.
Samlokur, lagaðar að ósk hvers og eins
með 20% afslætti.
Verö nú aöeins kr. 180
Borgarkringlan er fallegt verslunarhús í þægilegu umhverfi,
býður fjölbreytt vöruval og ánægjulegt starfsfólk.
Börnin í umferðinni
| UMFERÐAR ( samvinnu við Umferðarráð, Reiðhjólaskóla (slands og fleiri aðila
verður sérstakt kynningarátak um öryggisbúnað fyrir börnin.
>RAÐ
/OQ\
Gleraugnasmiðjan
xzf------------ö
20% afsláttur
af öllum sólgleraugum
og hulstrum.
50% afsláttur
af öllu skarti.
Verið velkomin.
l=IÐI3II.DIO
yv
■ af öllu kjólt
20% afsláttur af öllu kjólum
og buxum frá
ffiláfil
* v vw\ vv.v\vvvvvLV.\\\v\mv\a.\vv\vu\\vtw<vYr
30% afsláttur
af öllum peysum.
Herraskyrtur frá kr. 2.000
■> »0 j
iim 1 r"* c 'ií i v j i bti: 1 f Esl ‘