Morgunblaðið - 15.04.1994, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
A
Italía
Deila um
þingfor-
seta leyst
Róm. Reuter.
AUÐKÝFINGURINN Silvio
Berlusconi leysti í gær illvígar
deilur innan Frelsisbandalags
hægriflokkanna á Ítalíu um
hveijir ættu að vera frambjóð-
endur hans til forseta neðri og
efri deilda ítalska þingsins.
Þingið var sett I gær. Mun
bandalagið bjóða fram Irene
Pivetti, 31 árs þingmann Norð-
urbandalagsins, í embætti for-
seta fulltrúaþingsins (neðri
deildar) og Carlo Scognamiglio,
49 ára þingmann „Áfram Ítalía“
í öldungadeild (efri deild).
Talsmenn Frelsisbandalagsins
lýstu ánægju með niðurstöðuna 1
gær og sögðu hana endurspegla
vilja ítalskra kjósenda. Nái Pivetti
kjöri, sem allt bendir til, verður
hún yngst manna til að gegna
stöðu forseta fulltrúadeildarinnar
eftir stríð. Scognamiglio, sem er
hagfræðingur að mennt, sat áður
á þingi fyrir Fijálslynda flokkinn.
Af 945 þingmönnum í báðum
deildum setjast 665 á þing í fyrsta,
sinn.
Alþjóðasamtök flugmanna og flugfarþega bregðast við þverrandi flugöryggi
Fagna GATT-samkomulagi
Reuter
Fyrirmenni frá 125 ríkjum undirrita GATT-samkomu-
lagið um afnám tolla og annarra viðskiptahindrana
við hátíðlega athöfn í Marrakesh 1 Marokkó. Þegar
gestimir komu til Marokkó buðu heimamenn þá vel-
komna að hætti hjarðmanna til forna og var myndin
tekin við það tækifæri. A1 Gore varaforseti Bandaríkj-
anna og Tsutomu Hata utanríkisráðherra Japans
freista þess að leysa viðskiptaágreining ríkjanna
tveggja í tengslum við fundinn í Marrakesh. Ekki var
búist við miklum árangri I þetta sinn.
Rússlandi lýst sem hættu-
svæði fyrir flug’farþega
Moskvu. Daily Telegraph. Reuter.
RÚSSNESK stjórnvöld hafa heitið því að grípa til ráðstafana
til að auka flugöryggi en fjölmörg flugóhöpp þar í landi að
undanförnu hafa beint augum manna að þeirri ringulreið sem
ríkir í flugmálum í Sovétríkjunum sálugu. Alþjóðasamtök flug-
manna (IFAPA) segja sex til sjö sinnum hættulegra að fljúga
á þeim slóðum en á vesturlöndum og alþjóðasamtök flugfar-
þega (IAPA) hafa varað aðildarfélaga við ferðalögum í gömlu
sovétlýðveldunum jafnvel með áreiðanlegu flugfélagi.
Frakkar
reynast
stríðshetj-
um erfiðir
París, London. The Daily Telegraph.
FRAKKAR halda áfram „stríði“
sínu við aldnar breskar stríðs-
hetjur, sem hyggjast fjölmenna
til hátíðahalda í bænum Arro-
manches í Frakklandi í tilefni
innrásar bandamanna á Norm-
andí í júní 1944, D-dagsins svo-
kallaða. Frönsk yfirvöld, sem
hugðust gera stríðshetjurnar
brottrækar af hótelum á svæð-
inu en urðu að gefa eftir, neita
nú að greiða fyrir sæti og að-
gang að snyrtingu fyrir her-
mennina gömlu við hátíðahöld-
in, sem verða 5. og 6. júní nk.
Jean-Paul Lecomte, bæjarstjóri
í Arromanches, er ævareiður vegna
neitunar stjórnvalda og spyr hvar
hann eigi að fínna peninga til að
borga fyrir stóla og færanlegar
snyrtingar fyrir 10.000 aldna her-
menn sem hyggjast vera viðstadd-
ir hátíðahöldin ásamt Elísabetu
Bretadrottingu og Karli prins. Er
kostnaðurinn við þetta eitt talinn
nema um 2,5 milljónum ísl. kr. sem
er stór biti að kyngja fyrir 400
manna bæjarfélag.
Vítalíj Jefímov samgönguráð-
herra Rússlands játaði á miðviku-
dag að flugöryggi væri „verulega
ábótavant" þar í landi. Sagði hann
að ákveðið hefði verið að veita sem
næmi tveimur prósentum af tekj-
um flugfélaga til úrbóta. Meðal
annars yrði komið á sérstöku eftir-
liti með réttindum flugmanna og
annarra starfsmanna flugsins sem
byggðist á reglulegum hæfnispróf-
um en slíku eftirliti hefur ekki
verið fyrir að fara í mörg ár.
Tvenn flugslys í Síberíu á árinu
hafa þótt hrollvekjandi. Ekki hefur
verið skýrt opinberlega frá hverjar
orsakir þeirra voru. Menn sem
unnu að rannsókn seinna slyssins
hafa þó staðfest að í því tilviki
hafi Airbus A310 þota steypst
stjómlaust til jarðar, líklega vegna
fikts sonar og dóttur flugmanns
sem sátu í sætum flugmannanna
þegar þotan fórst. Lík 15 ára pilts
Grikkir lokuðu í febrúar landa-
mærum sínum að fyrrverandi Júgó-
slavíulýðveldinu Makedóníu, sem
önnur aðildarríki ESB og Samein-
var í flugstjórasætinu og lík flug-
stjórans fannst í farþegaklefanum.
Reyndar hefur Valeríj Eksúzían
forstjóri Russian Airlines, dóttur-
félags Aeroflot sem hafði flugvél-
ina á kaupleigu, borið það til baka.
Hríðversnandi ástand
Samtök flugmanna og flugfar-
þega hafa varað við ástandinu í
Rússlandi og öðrum fyrrverandi
sovétlýðveldum. Bart Bakker, for-
seti IFAPA, segir að 1987 hafi flu-
göryggi í Sovétríkjunum verið jafn
gott og í Vestur-Evrópu en á síð-
ustu sex árum hafi ástandið hríð-
versnað og slysum fjölgað undar-
lega.
Bakker afhenti á mánudag rúss-
neskum starfsbróður sínum, Alfred
Malínovskíj, viðvörunarbréf
IFAPA og áskorun um að rússn-
eska systurfélagið beitti sér fyrir
úrbótum í flugöryggismálum. Mal-
inovskíj sagði í viðtali við vikublað-
ið European um síðustu helgi að
flest hefði farið úr böndum eftir
að flugstarfsemi hefði verið gefin
fijáls í Rússlandi. „Megin orsök
flugslysanna er það stjórnleysi sem
ríkir í fluginu. Það hefur ekki tek-
ist að koma böndum á flugstarf-
semina, það er ekki hægt að
óttast Grikkir mjög að héraðið og
ríkið með sama nafni hyggi á sam-
stjórna almannaflugi eins og pyl-
usjoppu,“ sagði hann. Malínovskíj
sagði að rekja mætti dauða 120
manna sem fórust með Aeroflot-
þotu á leið frá írkútsk í Síberíu til
Moskvu 1 janúar til lélegs viðhalds
annars vegar og mistaka flug-
manna hins vegar. Flugstjóri hefðu
engu skeytt þó viðvörunarljós
hefðu kviknað og gefið bilun til
kynna.
Flugskeyti valda hættu
Samtök flugfarþega, IAPA, vör-
uðu í vikunni við ferðalögum til
fyrrverandi sovétlýðvelda eða jafn-
vel yfirflugi yfir þeim með áreiðan-
legu flugfélagi. Lýstu samtökin
gömlu sovétlýðveldin sem öðru af
tveimur hættulegustu svæðum
heims til flugferða, flughættan
væri einungis meiri í Kína. Ferða-
lög til fyrrverandi sovétlýðvelda
væru hættuleg vegna ofhlaðinna
og úr sér genginna flugvéla, slæ-
legs viðhalds flugvéla, lélegs elds-
neytis, agaleysis í stjórnklefa, flug-
mannamistaka, hruns flugumferð-
arþjónustunnar og jafnvel væri
flugskeytum skotið á farþegaflug-
vélar á svæðum þar sem pólitísks
óróa gætti.
í öllum löndum. Ennfremur vilja
Grikkir að Makedóníumenn breyti
fána sínum sem ber merki sem er
á gröf Filippusar af Makedóníu og
að þeir undirriti samning sem tryggi
núverandi landamæri.
Framkvæmdastjórn ESB telur
þvingunaraðgerðirnar brot á þeirri
reglu bandalagsins að sameiginleg
stjórn þess fari með öll viðskipta-
tengsl. Þá er ESB ósammála þeirri
uðu þjóðirnar hafa viðurkennt. Var einingu. Þeir hafa krafíst þess að
Makedóníumönnum meinað að Makedóníumenn breyti ákvæði í
flytja vörur um höfnina í Sálöniki, -stjórnárskrá laridsihs-s'ehi ségir þVí fullyrðingu Grikkja að aðgerðirnar
auk þess sem vörur frá Makedóníu beri að „sjá um“ Makedóníumenn hafi verið í þágu þjóðaröryggis.
ESB lögsækir Grikki
Brussel. The Daily Teleffraph.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins (ESB) hóf á miðviku-
dag undirbúning lögsóknar á hendur Grikkjum, sem gegna nú for-
mennsku í ráðherraráðinu, en aðgerðunum er ætlað að þvinga þá
til að aflétta þvingunaraðgerðum á Makedóníu. Hafa Grikkir fullyrt
að þeir muni „aldrei láta undan mútum“.
voru bannaðar í Grikklandi. Þar í
landi er hérað með sama nafni og
Sir John
Gieldgud
níræður
BRESKI leikarinn Sir John
Gielgud hélt í gær upp á níræð-
isafmæli sitt. Ákvað hann að
vera heima með sambýlismanni
sínum og neitaði öllum boðum
um veisluhöld, en meðal þeirra
hugmynda sem upp höfðu kom-
ið, var að nefna leikhús í West
End í höfuðið á honum. Gi-
eldgud leikur enn og hyggst
halda þvi áfram eins og heilsan
leyfir. Er helsta umkvörtunar-
efni hans það að fólk líti frem-
ur á sig sem goðsögn en venju-
legan manns, sem vilji sýna
fram á að hann geti ennþá leik-
ið.
Norðmenn
leita kafbáts
TALSMENN norska hersins til-
kynntu í gær að leitað væri
hlut, sem talið væri að væri
kafbátur. Sást til hans í Tys-
fjord í Norður-Noregi á mið-
vikudagskvöld og leituðu tvö
strandgæsluskip og þyrla án
árangurs í gær.
Vín með mat
gott fyrir
hjartað
HOLLENSKIR vísindamenn
segjast hafa fundið frekari
sannanir þess að vín með mat
geti dregið úr líkum á að heil-
brigt fólk fái hjartasjúkdóma.
Átta miðaldra karlar tóku þátt
í tilrauninni og hjá þeim sem
drukku sem svarar tveimur
vínglösum með mat, reyndist
meira magn efna sem koma í
veg fyrir blóðtappa en hjá þeim
sem drukku vatn með matnum.
Kaskeiti Zhír-
ínovskíjs stolið
RÚSSNESKI þjóðernissinninn
Vladimír Zhírínovskíj tilkynnti
í gær að kaskeiti sínu hefði
verið stolið í Frakklandi. Ráð-
lagði hann þjófinum að selja
það ekki strax, þar sem verð-
gildi þess ætti eftir að aukast
gríðarlega. Þá sagði Zhír-
ínovskjí að þjófnaðurinn, sem
var framinn í höfuðstöðvum
Evrópuráðsins varpaði ljósi á
siðferði evrópskra þingmanna.
Fylgi Tapies
mælist 10%
RÓTTÆKA vinstrihreyfingin,
flokkur Bernards Tapie, sem
átt hefur í nokkrum útistöðum
við frönsk lög, myndi hljóta
10% fylgi í kosningum til Evr-
ópuþingsins, væri gengið til
kosninga nú, samkvæmt skoð-
anakönnunum sem birtar voru
í gær. Kosið verður í júní nk.
Myndi samsteypustjórn hægri
og miðjumanna hljóta 32% en
sósíalistar 19%
Biður pöru-
pilti vægðar
CLINTON Bandaríkjaforseti
sagði í gær, að væru mistök
hjá yfirvöldum í Singapore að
ætla að húðstrýkja bandarískan
ungling, Michael Fay að nafni.
Fay var handtekinn fyrir ýmsa
óknytti og skemmdarverk,
meðal annars fyrir að úða
málningu á bíla, og á yfir höfði
sér sex vænar strokur með
reyrstaf. Hefur þetta mál vakið
mikla athygli í Bandaríkjunum
og vilja sumir taka upp sams
konar refsingar þar í landi.