Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI FÆÐIN GARHEIM- ILIREYKJAVÍKUR eftir Pétur Jónsson Þann 30. mars birti Markús Örn Antonsson, fyrrv. borgarstjóri, grein í Morgunbiaðinu, sem hann nefnir, —„Erfíð fæðing hjá ríkinu“. Þar rekur hann ýmislegt um samskipti borgar- innar við ríkið varðandi Fæðingar- heimili Reykjavíkur. Flest af því sem hann nefnir þar til er í sjálfu sér rétt, en mikið vantar á til að lesend- ur geti náð heildarmyndinni. Ríkissjóður greiðir, eins og kunn- ugt er, að fullu rekstur allra sjúkra- húsa hér á landi auk Ríkisspítala. Þar með er auðvitað rekstur sjúkra- húsa, sem kennd eru við sveitarfélög og sjálfseignastofnanir, t.d. Borgar- spítali, Landakotsspítali, Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri o.fl. Þannig greiddi ríkið einnig ailan rekstur Fæðingarheimilis Reykjavík- ur, þó það væri rekið af stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar allt til 1. apríl 1992. Þær stöllur Hólmfríður Sigurðar- dóttir og Guðrún Magnúsdóttir, sem rituðu grein í Morgunblaðið 6. apríl, verða að gera sér grein fyrir þessari staðreynd. Það er ríkissjóður, sem greiðir alla sjúkrahúsþjónustu á ís- landi, en einstakir rekstraraðilar eins og Ríkisspítalar geta og mega ekki reka aðra starfsemi en þá, sem fé fæst fyrir á fjárlögum. Velvilji ein- stakra starfsmanna eða fram- kvæmdastjóra hefur ekkert með það að gera. Undir stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkur gekk rekstur Fæðingar- heimilis Reykjavíkur stundum brö- suglega. Þar var þó rekin merk starf- semi, lengst af undir stjórn Huldu Jensdóttur ljósmóður. Það var hópur kvenna sem á sín- um tíma beitti sér fyrir því að hús- næðið á Þorfinnsgötu fengist fyrir sérstakt fæðingarheimili, sem byði valkosti fyrir fæðandi konur, Þær styrktu uppbyggingu heimilisins með gjöfum og styrkjum. Árið 1990 leigði stjórn sjúkra- stofnana Reykjavíkur 1. og 2. hæð hússins við Þorfínnsgötu til einka- rekinnar lækninga- og skurðstofu. Fæðingaheimili Reykjavíkur hafði þá einungis til umráða 3. hæðina og nýtanlegan hluta af risinu. Þetta húsnæði var of lítið til að þar yrði rekin hagkvæm legudeild. Húsnæðið rúmaði aðeins átta rúm fyrir sængurkonur auk fæðingastofa. Talið er að legudeild þurfí að vera að minnsta kosti helmingi stærri til að góðri hagkvæmni sé náð. Þögn R-listans í umhverfismálum eftir Einar Stefánsson Skólp og sorp eru ekki málefni, sem skapa stemmningu kringum framboðslista eða hrífa skammsýna stjórnmálamenn. Meðferð sorps og skólps er hins vegar grundvöllur umhverfisvemdar í sveitarfélagi, og hafa mörg bæjarfélög á Islandi allt niður um sig í þeim efnum. ► Borgarstjórn Reykjavíkur hefur sýnt mikla ábyrgð og framsýni í þessum málafiokki. Undir forystu Reykjavíkur hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu komið sorpeyð- ingarmálum í gott horf. Áhersla hef- ur verið lögð á umhverfísvernd með endurvinnslu úrgangs, þar sem kost- ur er, eyðingu eiturefna og skipulega verkun og urðun annars sorps. Opn- ir sorphaugar, brennandi sorp og fjúkandi rusl fínnst hér og þar á ís- landi, en ekki í Reykjavík. 1991, seinasta heiia árið sem stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkur rak Fæðingarheimilið, kostaði rekst- urinn um 60 m. kr. Næsta ár, 1992, var Landspít- alanum gert að yfirtaka reksturinn og fylgdi með 20 m. kr. rekstrarfé. Rekstur Fæðingarheimilis Reykjavíkur í óbreyttu formi var vonlaus og var því lokað síðla árs 1992. Þessar 20 m. kr. nægðu rétt fyrir þeim aukakostnaði sem varð við það að fæðingarnar fluttust inn á kvennadeild Landspítalans. Alltaf var þó vonast til að opna Fæðingarheimili Reykjavíkur aftur til fulls í stóru fullnægjandi húsnæði en það hefur dregist. Það var þó opnað óbreytt um tíma í júní og júlí 1993. Upp úr miðju ári 1993 var Ijóst að lækninga- og skurðstofur Reykja- víkur mundu rýma húsnæðið við Þorfínnsgötu 1. janúar 1994. I nokkra mánuði hefur uppkast að „leigusamningi" alls hússins verið upp á borðum hjá borgarstjóra og stjórnarnefnd Ríkisspítala. Ef af samningum yrði var, af Ríkisspítala hálfu, áætlað að flytja eina sængurkvennadeild af kvenna- deild Landspítalans á Þorfinnsgöt- una og nýta aðstöðu til fæðinga sem þar er eins og áður. Þá yrði þar stór 16 rúma fæðingardeild. Einnig að flytja glasafijóvgunardeildina þang- að af kvennadeild Landspítalans og stækka hana um helming. Sængur- kvennadeild ásamt fæðingarstofum yrði á 3. hæð og hluta 2. hæðar en glasafijóvgunardeildin á 1. hæð og hluta 2. hæðar. Má segja að þá hefði heldur betur færst líf í húsið. En borgarstjóri og e.t.v. borgar- ráð var ekki á því. í leigusamnings- drögunum og viðræðum um þau var það algert skilyrði af hálfu Reykja- víkurborgar að Ríkisspítalar skuld- bindu sig til að hafa einungis starf- semi tengda þungun kvenna í hús- inu. Eða eins og segir í leigusamn- ingsdrögunum. „Önnur sjúkrahús- starfsemi en í sambandi við þungun er óheimil í húsinu nema með skrif- legu samþykki leigusala." Nú er áralöng starsemi einkareknu lækn- inga- og skurðstofunnar í meiri hluta hússins „gleymd“. Af hálfu borgar- innar kom fram að glasafijóvgunar- deild ætti ekki heima í húsinu. Það er að segja að af hálfu borgarinnar virtist talið að glasafijóvgun hefði Pétur Jónsson „Rekstur Fæðingar- heimilis Reykjavíkur í óbreyttu formi var von- laus og var því lokað síðlaárs 1992. “ ekki neitt með þungun að gera!?! Áætlunnum Ríkisspítala um að nýta allt húsið fyrir stækkaða fæðingar- stofnun og glasafijóvgunardeild komst ekki í framkvæmd. Á þessum tíma var uppi umræða um hvort barnadeild Landakotsspít- ala flyttist á Landsspítalann eða Borgarspítalann. Af hálfu Ríkisspít- alanna voru uppi áætlanir að nýta það pláss sem losnaði við að flytja einn sængurkvennagang og glasa- fijóvgunardeildina af kvennadeild- inni á Fæðingarheimili Reykjavíkur. Með tilflutningi innan Landspítalans átti að nota það sem viðbót við barnadeild Landspítalans. Barna- deild Landakotsspítalans gæti þá á hagkvæman hátt fengið þar inni. Árni Sigfússon núverandi borgar- stjóri var þá formaður stjórnar sjúk- rastofnana Reykjavíkur. Hann var því mjög fylgjandi að barnadeild Landakotsspítala flyttist á Borgar- spítalann. Það er skoðun fólks, sem vinnur á Landspítalanum, að hann hafi beinlínis staðið í vegi fyrir að samningar næðust um Fæðingar- heimilið. Ástæðan var sú að þá hefði rýmkað á Landspítalanum svo barnadeild Landakotsspítala hefði komist þar fyrir á auðveldan hátt. En einmitt það hefði verið bæði ódýr- asta og besta leiðin til að bæta þjón- ustu við böm. Nú gerist tvennt í einu. í fyrsta lagi virðist nú eiga að flytja barna- deild Landakotsspítala að mestu á Borgarspítalann. í öðru lagi hefur Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sagt að hann ætli að beita sér fyrir því að ijárveiting fáist árið 1994 sem næg- ir fyrir rekstri myndarlegrar fæðing- ardeildar og sængurkvennadeildar í húsnæði Fæðingarheimilis Reykja- víkur. Ráðherrann er að vísu í þröngri stöðu vegna niðurskurðar fjár til heilbrigðismála yfírleitt. En ef það gengur eftir tekur sú deild til starfa eftir að viðgerðum lýkur á húsinu, strax í sumar eða haust. Þar með hefst starfsemin að nýju með 16 rúma sængurkvennadeiíd auk fæðingarstofa. En strax í maí er í ráði að opna litlu deildina á þriðju hæð. Núverandi heilbrigðisráðherra hefur nú óskað sérstaklega eftir að glasafijóvgunardeildin sem heil- brigðisráðherrann í fyrrverandi ríkisstjórn baitti sér fyrir að komið yrði á fót verði stækkuð um helming og komið fyrir í húsinu. Hún tekur því væntanlega til starfa að loknum gagngerðum endurbótum á húsinu. Oll fyrsta og önnur hæð þess er mjög ilia farinn af viðnaiasieysi margra ára. Nú er ekki lengur stætt fyrir borg- ina að standa í veginum. Þá loksins fellur splunkunýr borg- arstjóri og formaður sjúkrastofnana Reykjavíkur frá skilyrðum borgar- innar og afhendir Ríkisspítölum gal- tómt húsið, sem hann hafði þó ekki viljað standa að meðan hann var bara formaður sjúkrastofnana Reykavíkur. Enda er nú orðið stutt til kosninga og e.t.v. talið sjálfsagt að kosta einhveiju til vinsælda. Undir lok ársins verður húsnæði Fæðingarheimilis Reykjavíkur við Þorfínnsgötu virkilega orðið að lífs- ins húsi. Hlutverk borgarstjóra var bara að láta af hendi tómt húsnæði að mestum hluta illa farið af viðhalds- leysi. Húsnæði sem konur beittu sér upphaflega fyrir að notað yrði sem fæðingarheimili, en borgin gafst upp á að reka þrátt fyrir upprunaleg lof- orð. Rétt er að upplýsa að fasteigna- mat alls hússins er um 40 m. kr. Viðgerðarkostnaður 1. og 2. hæðar er áætlaður um 23 m. kr. sem Rík- isspítalar þurfa að greiða. Ríkissjóður borgar hins vegar all- an rekstrarkostnað þegar Fæðingar- heimilið opnar aftur, stærra en áður. En kostnaður er áætlaður um 40 m. kr.árlega. Til glöggvunar er rétt að minna á að seinasta árið sem stjórn sjúkrastofnana Reykajvíkur rak „litla“ fæðingarheimilið á 3. hæðinni kostaði reksturinn um 60 m. kr. En ýmislegt reynir borgarstjóri náttúrlega að nota til að skreyta sig með á kosningaári. Höfundur er 4. maður á Iieykjavíkurlistanum. Einar Stefánsson Hinar góðu og hinar illu Baðströnd í Nauthólsvík Framtak borgarstjórnar Reykja- víkur í meðferð skólps er annað dæmi um ábyrga stefnumörkun og framtíðarsýn. Á síðasta áratug voru frárennslismál Reykjavíkur tekin til gagngerrar endurskoðunar og gerð framkvæmdaáætlun, sem nú er langt komin. Hið nýja fráveitukerfi er mesta átak til umhverfisverndar, sem gert hefur verið á íslandi. Skólp verð- ur meðhöndlað og því dælt 400 metra frá stórstraumsfjöru á haf út. Með þessu móti má halda mengun af skólpi í algjöru lágmarki og koma í veg fyrir skólpmengun í fjörum. Hið nýja fráveitukerfí mun meðal annars verða til þess að brátt verður hægt að opna aftur baðströnd í Nauthól- "tvík og nota hitaveituvatn til að skapa enn eina útiveruparadís í borg- arlandinu. Göngustígar frá Gróttu í Heiðmörk Auk umhverfisvemdar hafa borg- aryfirvöld bætt mjög aðstöðu Reyk- -víkinga til útiveru. Göngu- og hjól- reiðastígar hafa verið lagðir víða um borgina, svo sem í Elliðaárdal og meðfram Skeijafirði, og á næstu árum verða fullgerðar í samfelldir „Hið nýja fráveitukerfi er mesta átak til um- hverfisverndar, sem gert hefur verið á ís- landi.“ stígar allt frá Gróttu upp í Heið- mörk. Þessir stígar munu tengja saman yndisleg útivistarsvæði með vaxandi skógum í Öskjuhlíð, Foss- vogsdal, Elliðaárdal og Heiðmörk, og stutt verður í enn eitt framtíðarútivistarsvæðið við Rauða- vatn og Hólmsheiði. Framkvæmdir Reykjavíkurborgar í umhverfísmálum segja glæsilega sögu um ábyrga og framsýna stjóm í þessum málaflokki. Það þarf engan að undra, að R-listinn finni fátt að gagnrýna og fátt til þessara mála að Ieggja. Þögn R-listans í umhverf- ismálum segir meira en mörg orð. Höfndur er prófessor í augnlæknisfræði ogskipar 18. sæti á framboðslista sjálfstæðismanna í Rcykjavík. eftir Amal Rún Qase Sumar konur trúa því að karl- menn fari svo illa með þær að nauð- syn hafi borið til að stofna sér- stakan stjórnmálaflokk sem standi vörð um hagsmuni kvenna gagn- vart karlmönnum. Þessi stjórnmála- flokkur, sem kallar sig Kvennalista, elur á fordómum og útilokar fólk frá trúnaðarstörfum í flokknum ef það er karlkyns. Það virðist einkenna málflutning þessara „rauðsokka" hvar sem er í heiminum að það séu til tvær mann- gerðir: Hinar góðu og hinar illu. Hugsun þeirra er sú að karlmenn séu hinir illu. Hveijar eru svo þess- ar óvættir sem við eigum að vara okkur á? Hverjir eru það sem sí- fellt sitja á svikráðum við konur? Eru þær að tala um elsku feður okkar og bræður, eða e.t.v. eigin- menn okkar, vini og menn sem við unnum? Eða eru þetta kannski syn- ir okkar? Kvennalistinn byggir greinilega á fordómum og ranghug- myndum og er því hvorttveggja í senn, hugsanaskekkja og tíma- skekkja. í Morgunblaðinu sl. sunnudag er „Hvergi er hlutur kvenna eins rýr og á íslandi. Hvergi hefur farið meira fyrir að- greindu stjórnmála- starfi kvenna en á ís- landi.“ birt yfírlit yfir fjölda kvenna á þing- um og í ríkisstjórnum Norðurland- anna. Hvergi er hlutur kvenna eins rýr og á íslandi. Hvergi hefur farið meira fyrir aðgreindu stjórnmála- starfi kvenna en á íslandi. Ef eitt- hvað er þá hafa þær tafið fyrir auknum áhrifum kvenna í íslensk- um þjóðmálum. Góður árangur kvenna á hinum Norðurlöndunum sýnir að konur hafa hljómgrunn. Mestu skiptir að þær vinni að störf- um sínum sem manneskjur en ekki sem fordómafullar rauðsokkur. Kvennalistinn er stöðnuð stofn- un, stjórnað af konum sem þrífast á sameiginlegri andúð á karlmönn- um. Alþingi og borgarstjórn eru vinnustaðir en ekki vettvangur fyr- ir pijónaskap. Konur þurfa að auka Amal Rún Qase áhrif sín í íslenskum stjórnmálum, en það verður hvorki gert með pijónaskap né Kvennalista. Höfundur cr háskólanemi og skipar21. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.