Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
31
Línan sem skílur
að hægri og vinstri
eftir Bryndísi
Guðmundsdóttur
Síðastliðið mánudagskvöld fór
ég á tónleika í Borgarleikhúsinu til
styrktar samtökum atvinnulausra.
Mér til mikillar undrunar stóðu
fulltrúar R-listaflokkanna við inn-
ganginn og afhentu grandalausum
tónleikagestum áróðurssnepil sem
ég og trúlega fleiri álitu dagskrá
tónleikanna. Þegar að var gáð kom
hið sanna í ljós. Innihald pésans
var greinilega samið af einhverju
R-listafólki sem ekki hefur fylgst
með því sem verið er að gera í
borginni. Sem íbúi í Reykjavík og
móðir fjögurra barna á mismunandi
aldri hef ég upplifað stórkostlegar
framkvæmdir í útivistarmálum sem
varða alla fjölskylduna. Þar vil ég
benda hæstvirtum höfundi þessa
snepils á aðstöðuna í Laugardal;
skautasvellið sem brátt verður yfir-
byggt, húsdýragarðinn, fjölskyldu-
og grasagarðinn og gervigrasvöll-
inn. Þá vil ég minna á skíðaaðstöðu
í Ártúnsholti, Breiðholti og Grafar-
vogi, vel búnar gönguleiðir og ört
vaxandi íþróttaaðstöðu í öllum
hverfum borgarinnar.
Á stefnuskrá R-listaflokkanna
er að tryggja öllum aðgang að
íþróttasvæðum í borginni. Eg spyr
hvað er átt við? Á að draga úr
möguleikum til keppnisíþrótta og
taka aðstöðuna af íþróttafélögun-
um? Geta ekki allir gengið í íþrótta-
félögin? Þá vilja R-listaflokkarnir
efla starfsemi íþróttafélaga, íbúa-
Bryndís Guðmundsdóttir
„Sem íbúi í Reykjavík
og móðir fjögurra
barna á mismunandi
aldri hef ég upplifað
stórkostlegar fram-
kvæmdir í útivistarmál-
um sem varða alla fjöl-
skylduna.“
samtaka og annarra fijálsra fé-
lagasamtaka. Ég spyr aftur sem
meðlimur í Foreldra- og kennarafé-
lagi skóla barnanna minna, í for-
eldrafélagi barnakórs kirkjunnar, í
Barnaheill, í Heimili og skóla, í
íþróttafélagi hverfisins og sem
meðlimur í hverfasamtökum, er
R-listaflokkunum ekki ljóst að síð-
ustu tíu ár hafa verið uppgangs-
tímar félagasamtaka án beinnar
íhlutunar stjórnmálaflokka?
Um þverbak keyrði er ég las að
R-listinn telur það sitt helsta verk-
efni í umhverfismálum að bæta úr
mistökum og trassaskap í umhverf-
ismálum s.s. í frárennslismálum.
Hafa borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks, Kvennalista og Nýs vett-
vangs, sem nú eru í borgarstjórn,
ekki fylgst með hreinsun strand-
lengjunnar, nánar tiltekið fyrirbæri
sem tekur við skolpi og úrgangi frá
borginni, þ.e. frárennsli? Hver er
skýringin á því að eitt stærsta
umhverfisverndarmál sem Reykja-
víkurborg hefur ráðist í er kallað
trassaskapur?
Þegar hér var komið í lestri snep-
ilsins tók ég heilshugar undir með
Bubba er söng í sömu andrá; „Ég
er staddur á stað þar sem iygin
liggur — sem lína dregin og skilur
að hægri og vinstri." Lesandi góð-
ur! Mikið var ég fegin að vera
hægra megin!
Hafi listamennirnir þökk fyrir
frábæra kvöldstund.
Höfundur er talmeinafræðingur
og fjögurra barna móðir í
Reykjavík.
__________Brids____________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudagskvöld var spilað
annað kvöldið af fjórum í hraðsvei-
takeppninni og er staða efstu sveita
þannig.
Sv. Sigrúnar Pétursdóttur 127S
Sv. Öldu Hansen 1273
Sv. Lovísu Jóhannsdóttur 1270
Sv. Karolínu Sveinsdóttur 1252
Sv. Höllu Ólafsdóttur 1229
Sv. Elínar Jóhannsdóttur 1210
Bridsfélag SÁÁ
12. apríl var spilaður Mitchell
tvímenningur á 8 borðum. Efstu
pör urðu:
N/S
Guðmundur Sigurbjörnss. - Nicolai Þorsteinss. 166
Rósmundur Guðmundsson — Kristinn Karlsson 150
Guðmundur Sigursteinss. - Ásgeir Sigurðss. 145
A/V
Þorsteinn Karlsson - Sturla Snæbjömsson 156
Jón Baldvinsson - Baldvin Jónsson 135
Magnús Torfason - Guðni Kolbeinsson 131
Spilað er á þriðjudögum kl. 19.45
stundvíslega.
Bridsfélag Suðurnesja
Randver Ragnarsson og Svala
Pálsdóttir leiða forgjafarkeppnina.
Þau hafa fulla forgjöf 282 og hafa
auk þess 28 í plús í barometernum,
samtals 310 stig. Valur Símonarson
og Kristján Kristjánsson eru í öðru
sæti með 307 stig og með sama
stigafjölda eru Heiðar Agnarsson
og Pétur Júlíusson.
Næstu pör:
GunnlaugurSævarsson-IngvarGuðjónsson 302
Elías Guðmundsson - Kolbeinn Pálsson 274
Arnar Amgrímsson - Sigurður Hannesson 270
Bjami Kristjánsson - Þorgeir Ver. Halldss. 264
Næstu 7 umferðir verða spilaðar
nk. mánudagskvöld í Hótel Kristínu
og hefst spilamennskan kl. 19.45
stundvíslega.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Sl. mánudagskvöld 11. apríl hófst
Stefánsbarómeterinn sem er fjög-
urra kvölda tvímenningur og mættu
28 pör til leiks. Staðan eftir fyrsta
kvöldið er þannig:
Jón Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson 114
Hjálmar S. Pálsson - Sveinn R. Þorvaldsson 93
Dröfn Guðmundsdóttir - Hrund Einarsdóttir 68
lng\'ar Ingvarsson - Sigurður Siguþónsson 50
Halldór Einarsson - Guðmundur Þorkelsson 49
Friðþjófur Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss. 39
Ólafur Gíslason - Sigurður Aðalsteinsson 39'
Nk. mánudagskvöld verða spilað-
ar sjö umferðir og að venju er spil-
að í íþróttahúsinu v/Strandgötu kl.
19.30.
Æfingakvöld byrjenda
Sl. þriðjudagskvöld, 12. apríl, var
æfingakvöld byijenda og var spilað-
ur Mitchell í tveimur riðlum og urðu
úrslit kvöldsins eftirfarandi:
N/S riðill:
KolbrúnThomas-EinarPétursson 217
Jensína Stefánsdóttir - Valdimar Helgason 208
Kristján Kristjánsson - Torfi Markússon 196
Anna Guðlaug Nielsen - Guðlaugur Nielsen 194
HallgrímurMarkússon-AriJónsson 192
A/V riðill:
Álfheiður Gísladóttir - Pálmi Gunnarsson 228
BergþórBjarnason-SævarHelgason 220
Hrand Einarsdóttir - Sverrir Þorvaldsson 202
Guðný Hálfdanard. - Guðmundur Þórðarson 199
HrannarJónsson-GisliGíslason 196
Á hveiju þrijudagskvöldi er brids-
kvöld í húsi BSÍ sem ætlað er byij-
endum. Húsið er opnað kl. 19 og
spilamennskan hefst kl. 19.30.
VZterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
i fltofgiiitiMftfrife
RAÐA UGL YSINGAR
Sérverslun
óskar eftir starfskrafti til sölustarfa.
Þarf að vera listrænn og þekkja mikilvægi
góðrar þjónustu.
Heiðarleiki og gott lundarfar skilyrði.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
22. apríl merkt: Reyklaus 30-40 ára.
Atvinnu- og ferða-
málafulltrúi
Laus er til umsóknar ný staða atvinnu- og
ferðamálafulltrúa Vestmannaeyja. Hlutverk
hans er að vinna að atvinnuþróun og mótun
ferðamálaþjónustu. Leitað er dugmikils ein-
staklings með frumkvæði, áræði og hæfileika
til samskipta. Við mat umsókna varðar mestu
menntun og reynsla á sviði markaðs- og
þróunarmála, tungumálakunnátta og almenn
þekking á ferðaþjónustu og atvinnumálum.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst eftir 1. maí nk.
Skrifleg umsókn er greini frá aldri, menntun
og fyrri störfum sendist Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja, pósthólf 60, 902 Vestmannaeyj-
um, fyrir 25. apríl nk. merkt: „Atvinnu- og
ferðamálafulltrúi".
Frekari upplýsingar veitir Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri, í síma 11088.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Sumarstarf
Siglingafélagið Ýmir auglýsir eftir fólki til
starfa næsta sumar við æskulýðsstarf
klúbbsins. Við leitum að forstöðumanni og
aðstoðarmönnum 18 ára eða eldri.
Skilafrestur umsókna rennur út 20. apríl.
Siglingafélagið Ýmir, pósthólf444,
202 Kópavogi.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lyngási 7-9-210 Garðabæ - Sími 658800 - Fax 651957
Kennarastöður
I samræmi við ákvæði 11. og 14. gr. laga
nr. 48/1986 um lögverndun á starfsheiti
framhaldsskólakennara o.fl. er hér með aug-
lýst eftir kennurum í þessum greinum í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ frá og með
næsta skólaári:
Eðlisfræði (1/2 staða).
Efnafræði (1/1 staða).
Jarðfræði (1/2 staða).
Stærðfræði (1/1 staða).
Vélritun (1/2 staða).
Viðskiptagreinar (1/1 staða).
Auk þess er auglýst eftir stundakennurum í
markaðsfræði og kórstjórn.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1994.
Umsóknir skal senda á sérstökum eyðublöð-
um til Fjölbrautaskólans í Garðabæ, Lyngási
7-9, 210 Garðabæ.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Skólameistari.
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við
kjör fulltrúa á 11. þing Landssambands iðn-
verkafólks, sem haldið verður í Reykjavík
dagana 6.-7. maí 1994.
Tillögur skulu vera um 23 aðalmenn og 23
til vara.
Tillögum ásamt meðmælum eitthundrað full-
gildra félagsmanna skal skila á skrifstofu
félagsins, Skipholti 50c, eigi síðar en kl.
11.00 fyrir hádegi föstudaginn 22. apríl 1994.
Kjörstjórn Iðju.
Aðalfundur
Aðalfundur Svalanna verður haldinn í Vík-
ingasal Hótels Loftleiða miðvikudaginn 27.
apríl kl. 19.00. Húsið verður opnað kl. 18.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku sem fyrst.
Stjórnin.