Morgunblaðið - 15.04.1994, Page 35

Morgunblaðið - 15.04.1994, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 35 Þórarinn St Sig- urðsson — Minning Fæddur 31. janúar 1922 Dáinn 8. apríl 1994 Það er morgunn hér í Logan, Utah. Síminn hringir. Selma systir mín er í símanum og vill tala við mig. Þórarinn Sigurðsson, frændi okkar, er látinn, aðeins 72 ára að aldri. Mér flýgur í hug Kvisthaginn, þar sem ég og fleiri áttum athvarf þegar við komum í bæinn. í fyrsta skipti sem ég kom til Reykjavíkur, 17 ára sveitapiltur, var að sjálf- sögðu farið á Kvisthagann til Þórar- ins og Þorbjargar. Annað kom ekki til greina. Hvers vegna vissi ég að sjálfsögðu ekki þá, hugsaði ekki út í það fremur en aðrir á þessum aldri. Síðan var Kvisthaginn mitt annað heimili. Ég kom við haust og vor á leið úr eða í skóla eða ef ég af ein- hverjum ástæðum þurfti að dvelja í bænum í lengri eða skemmri tíma. Ekki man ég til að nokkurn tíma hafi komið til að ekki væri hægt að hýsa mig, enda datt mér slíkt ekki í hug og varð ekki var við að þeim hjónum dytti það í hug held- ur. Sjálfsagt hefði það á stundum hentað betur að ég færi eitthvert annað, einkum eftir að börnunum fjölgaði, en mér datt það bara ekki í hug. Fannst ég alltaf vera velkom- inn_ á Kvisthagann. Ég man reyndar fyrst eftir Þór- arni og Þorbjörgu er þau komu í heimsókn til Halldórs, bróður Þór- arins, vestur í Dali, þá nýlega trú- lofuð. Það mun hafa verið um jólin 1946. Það var siður að spila Lander á annan í jólum og meira að segja upp á peninga. Ekki þannig að pen- ingarnir skiptu um eigendur, eins og gerist í alvöru peningaspilum, en pottinum var skipt eftir hvert spil. Það skapaði spennu, og éjg, rollingurinn, fékk að vera með. Eg sat við hliðina á Þórarni og hann hældi mér fyrir góða spilamennsku. Við spiluðum langt fram eftir nóttu. Ég var afar hreykinn af þessum heimsborgarlega frænda mínum og hans glæsilegu heitmey. Ég minnist Þórarins með ánægju og virðingu fyrir hæfileika hans til að miðla og veita forystu oftast án margra orða. Hæfileikann til að auka sjálfsvirðingu. Ég vil einnig þakka fyrir rausnarlegar móttökur og húsaskjól, bæði á Kvisthaganum og annars staðar. Mér fannst alltaf vera jól þar sem Þórarinn og Þor- þjörg voru. Það er aðdáunarvert hversu myndarlegt og rausnarlegt heimili Þórarins og Þorbjargar hef- ur alltaf verið, þrátt fyrir stóran barnahóp og mikinn gestagang. Þeirra heimili var mitt í fjölda ára. Fyrir það þakka ég af heilum hug. Við Gerður sendum þér, Þor- björg, börnum, tengdabörnum og barnabörnum hugheilar samúðar- kveðjur og biðjum ykkur allrar blessunar í sorg ykkar. Því það er annað að óska að eiga sér líf og vor en hitt að geta gengið glaður og heill sín spor. (Jóh. G. Sigurðsson.) Sveinn Hallgrímsson. I dag verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju Þórarinn Stefán Sigurðsson fyrrverandi sveitarstjóri í Höfnum, hann lést að morgni föstudagsins áttunda apríl síðastlið- inn. Þórarinn var fæddur 31. janúar 1922 á Syðri-Bár í Eyrarsveit í Grundarfirði, sonur hjónanna Sig- urðar Eggertssonar bónda og skip- stjóra og konu hans Ingibjargar Pétursdóttur. Föður sinn missti Þórarinn ungur, en móðir hans, annáluð dugnaðarkona, hélt saman heimilinu og ól upp stóran bamahóp af miklum myndarbrag. Ungur fór Þórarinn að heiman, fýrst í héraðsskóla til að afla sér frekari menntunar en hægt var að fá í heimabyggðinni. Síðan fór hann til náms í ljósmyndaiðn og starfaði síðan í þeirri grein árum saman og þótti mjög fær í því starfi. Ekki dugði þó ljósmyndastarfið til að fullnægja athafnaþrá Þórar- ins. Hann var framkvæmdamaður og lét að sér kveða á mörgum svið- um þjóðlífsins. Hann var virkur þátttakandi í þeim miklu umskipt- um þegar land okkar breyttist úr fátækri hjáleigu erlends valds og gerðist sjálstætt ríki með traustan efnahag sem byggðist á framtaki og dugnaði landsmanna. Þórarinn starfaði lengi við útgerð og fiskvinnslu. Hann var mörg ár framkvæmdastjóri hraðfrystihúss Grundarijarðar og fórst það vel úr hendi. Hann var framsýnn og góður skipuleggjandi. Honum tókst að ná góðum árangri með dugnaði og þrautseigju og skilaði hann góðu fyrirtæki þegar hann hætti þar störfum. Hann gerði út eigin fiskiskip og rak einnig fiskverkun í Grindavík og í Höfnum þar sem hann átti og rak hraðfrystihús. Þó störf Þórarins á sviðum at- vinnulífsins þættu ærið dagsverk þá voru störf hans á sviði félags- mála stór hluti af ævistarfi hans. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd íslensks þjóðfélags. Hann vildi leita leiða til að byggja upp samfé- lag sem skapaði þegnum sem best lífsskilyrði, þar sem hlutur þeirra minni máttar væri ekki fyrir borð borinn. Þessari lífsskoðun sinni fann hann farveg í stefnu og starfi Fram- sóknarflokksins, enda átti hann sinn þátt í stefnumótun flokksins um langan aldur. Hann starfaði á skrifstofu flokksins í Reykjavík um tíma auk starfa við uppbyggingu og að _ viðgangi flokksins víða um land. Áhugi hans á stjórnmálum og löngun til að láta gott af sér leiða í þágu samfélagsins var slíkur að þegar hann var kominn á aldur sem venja er að fólk dragi sig í hlé frá harðri lífsbaráttu þá fer hann í harða kosningabaráttu í sinni heimabyggð, vinnur þar glæstan sigur og gerist sveitarstjóri þá kom- inn hátt á sjötugsaldur. Sú aðgerð lýsir vel skapgerð hans. Krafturinn og atorkan var slík að honum fannst ekki nokkur ástæða til að slaka á fyrr en á lokadegi. Eftirlifandi eig- inkona hans er Þoi-björg Daníels- dóttir. Hún var hans trausti lífsföru- nautur og mikilhæf mannkosta- kona. Þau bjuggu sér fagurt heim- ili þar sem þau ólu upp börnin sín átta sem upp komust, öll hin mann- vænlegustu og bera foreldrunum og uppeldi sínu fagurt vitni. Hlutur húsmóðurinnar er mikill á svo stóru heimili. Eflaust hefur oft mætt mik- ið á henni vegna annríkis hans við hin ótalmörgu verkefni sem hann þurfti að sinna. En þegar stundaglas Þórarins vinar míns er runnið út þá leita á hugann minningar frá liðnum sam- verustundum. Ég minnist þegar hann bauð mér í mína fyrstu lax- veiðiferð. Undir hans leiðsögn er það hátíðleg athöfn að renna fyrir laxinn. Konungi djúpanna nýkomn- um úr hafinu skyldi sýna fyllstu virðingu, fara eftir ströngum regl- um svo veiðimaðurinn og laxinn hefðu sem jafnasta möguleika í tafl- inu. Ég minnist samstarfs okkar að félagsmálum. Þar komu fram sömu eiginleikar hans og við laxveiðina. Þar gilti sama reglan, vinna að hveiju máli af drengskap og virða skoðanir annarra en fylgja þó mál- um eftir af einurð og myndugleika. Hann var fjótur að greina aðal- atriðin í hverju máli, draga fram það sem væri til bóta, finna leið sem væri líkleg til að skila árangri og var síðan óstöðvandi við að koma málefninu í höfn. Þó hann hafi eflaust ekki ætlast til þakklætis vegna starfa sinna að félagsmálum þá hygg ég að nokkuð margir hafi ástæðu til að minnast hans með hlýhug nú þegar hans jarðnesku dvöl lýkur. Líf okkar sem dveljum hér enn um stund verður ekki það sama þegar nánir vinir hverfa úr okkar samfélagi. Getum við aðeins hugsað með þakklæti til liðinna samverustunda og vinátt- unnar á liðnum árum. Við Halldóra vottum eiginkonu, ættingjum og vinum Þórarins okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hans. Ari Sigurðsson. Nú þegar afi er allur rifjast upp svo margar minningar um hann og allar góðar. Minningar um mann sem alltaf horfði fram á veginn og engin hindrun var óyfirstíganleg í starfi eða leik. Minningar sem tengjast árunum sem ég bjó með móður minni hjá ömmu og afa í Höfnum. Hvað afi var áhugasamur um störf sín sem sveitarstjóri Hafn- arhrepps. Ekkert var of gott eða of stórt fyrir þetta litla sveitarfélag. Alltaf gat maður leitað til afa sem var afar bóngóður maður og úr- ræðagóður. Með þessum fáu orðum kveð ég afa minn og sendi um leið samúðar- kveðjur til ömmu sem misst hefur svo mikið, mömmu, Adda, Palla bróður og allra sem eiga nú um svo sárt að binda. Stefán Þór. Að morgni 8. apríl hringir Þor- björg mágkona mín og tilkynnir okkur lát manns síns, Þórarins Stef- áns Sigurðssonar. Hafði hann látist síðla nætur eftir nokkurra klukku- tíma dvöl á sjúkrahúsi Keflavíkur. Varð honum að þeirri ósk sinni að fá að fara snöggt er að því kæmi. Þórarinn var ættaður frá Suður- Bár í Grundarfirði. Yngsta barn Ingibjargar Pétursdóttur og Sigurð- ar Éggertssonar, skipstjóra og bónda. 25 ára kvæntist hann eftir- lifandi konu sinni, Þorbjörgu Daní- elsdóttur, f. 5. október 1923 í Reykjavík. Eignuðust þau níu mannvænleg börn, en misstu eitt þeirra nokkurra mánaða gamalt. Ungur lærði Þórarinn ljósmyndun og starfrækti ljósmyndastofu í Reykjavík í nokkur ár, en hugur hans stóð meira til annarra starfa ’ og fann hann athafnaþrá sinni betri stað í útgerð og fiskvinnslu sem hann starfaði að af miklum áhuga - mestan hluta ævinnar. Þórarinn var mjög áhugasamur um stjórnmál og tók virkan þátt í þeim frá unga aldri og á þeim vett- vangi vann hann marga sigra með ómældri vinnu og fórnfysi. Eftir að hann hætti að mestu útgerð og fiskvinnslu var hann sveitarstjóri í Höfnum í 12 ár og gerði einnig út trillu síðustu árin, svo sterk voru tengslin við útgerð- ina að þau gat hann aldrei slitið. Þórarinn var hamingjusamur fjölskyldufaðir. Hann elskaði konu sína og börn og þau elskuðu hann og virtu. Hann gerði ávallt það sem hann gat til að hlynna sem best að heimilinu og ráku þau hjónin það með mikilli reisn alla tíð, enda það gestrisnasta fólk sem ég hef nokk- urn tíma kynnst. Öllum var tekið opnum örmum sem að þeirra garð bar og ekkert til sparað. Þórarinn var skemmtilegur mað- ur, galvaskur og léttur í lund og alltaf stutt í hláturinn. Hann var hlýr og tilfinninganæmur, en víl og vol voru honum víðs fjarri. Ef á móti blés færðist hann allur í auk- ana og tókst á við erfiðleikana af miklum krafti og hjálpaði oft þeim sem á þurftu að halda. Hann hafði gaman af spilamennsku og spilaði brids í áratugi í Breiðfirðingafélag- inu og með vinum 'sínum og félög- um. Líka var hann glúrinn laxveiði- maður og stundaði það töluvert; sérstaklega á fyrri árum ævinnar. Eitt sinn fórum við með Þórarni vestur í Búðardal með fullan bíl af laxaseiðum sem við slepptum í ána með hjálp dóttur hans og tengda- sonar úr Grundarfirði. Það var góð- ur og skemmtilegur dagur. Við þökkum Þórarni allar þær skemmtilegu samverustundir sem við höfum átt saman með honum og fjölskyldu hans. Elsku Þorbjörg mín, sem alltaf stóðst sem klettur við hlið Þórarins í blíðu og stríðu. Við biðjum guð að styðja þig og styrkja í þessum erfiðleikum, einnig börnin og barna- börnin og alla þá sem um sárt eiga að binda. Við kveðjum Þórarin með þessari vísu: Vinur minn er vikinn frá veröld fínna og kanna. Góða kynning geyma hjá geislum minninganna. (S.K.S.) Jónas G. Sigurðsson, Gróa Magnúsdóttir. Kristín Jónsdóttir — Minningarorð Fædd 14. júlí 1913 Dáin 9. apríl 1994 Jarðarför móður okkar, Kristínar Jónsdóttur frá Vattarnesi, fer fram í dag frá Neskirkju kl. 15. Kristín fæddist á Baldursgötu 1 í Reykjavík og var dóttir hjónanna Jóns Þorvarðarsonar frá Núpi á Beruíjarðarströnd og Sólveigar Jakobínu Ólafsdóttur frá Vík, Fá- skrúðsfirði. Hún var yngst sjö systkina og á eina systur á lífi, Guðrúnu Jónsdóttur, Kópavogi. Látin eru Höskuldur, Kristján á Djúpavogi, Sólveig í Drangsnesi, Magnús og Jón Austmann á Vattar- nesi. Á barnsaldri var Kristínu komið í fóstur að Eyjólfsstöðum í Fossár- dal þar sem hún ólst upp við öll sveitastörf til 16 ára aldurs er hún fer að Tungu í Fáskrúðsfirði. Þar kynntist hún fyrri manni sínum, Sigbirni Guðjónssyni frá Búðum. Þau hófu sambúð í Vestmannaeyj- um og þar eignuðust þau fyrsta barn sitt, Margréti. Þá fluttust þau að Hafranesi við Reyðarfjörð og 1940 að Vattarnesi, er þau tóku við hluta af búi Þórarins Grímsson- ar Víkings. Þá kom í heimilið móð- ir Kristínar, Sólveig Jakobína, og var hún hjá Kristínu dóttur sinni í fimmtán ár, þar til hún lést í hárri elli, á áttugasta og sjötta aldursári. Á Vattarnesi eignuðust þau þrjú börn, Bjarnveigu, Magnús Jón og Guðleifu, en hún var aðeins á fyrsta aldursári er Sigbjörn féll frá af slys- förum 1947. Áður hafði Kristín misst tvo bræður sína, Magnús og Jón Austmann, í sjóslysi í róðri frá Vattarnesi. Kristín hélt ótrauð áfram búskap ásamt börnum sínum og með góðri aðstoð sambýlinganna á Vattarnesi. Að níu árum liðnum hóf Kristín sambúð með Þorsteini Stefánssyni, eftirlifandi eigin- manni. Þau bjuggu fyrst á Vattar- nesi í nokkur ár en fluttust þá suð- ur og settust að á Seltjarnarnesi, þar sem þau hafa búið síðan, en Þorsteinn vann um árabil í Vél- smiðjunni Héðni. Lengst af bjuggu þau að Stór-Ási og þá í nánu sam- bandi við fjölskyldu dóttur Kristín- ar, Bjarnveigar. Nú síðustu ár hafa þau búið á Skjólvegi 3, í íbúðum aldraðra. Með þeim hjónum var ætíð jafnræði og ástúð til síðustu stundar. Kristín hefur eignast 40 afkom- endur til þessa: 1) Margrét, gift Guðmundi Óla Ólafssyni, hefur eignast sex börn og átta barna- börn: Sigurður Óli á tvo syni, Guð- mund Grétar með fyrri sambýlis- konu og Gísla með Hrönn Gísladótt- ur; Kristbjörn Óli, giftur Hildi Vals- dóttur, á Önnu Björk, Evu Kristínu og Kristin Óla; Ólafía, gift Davíð Hermannssyni, á írisi og tvíburana Hermann Öla og Margréti Ósk; Kristín er í sambúð með Benedikt Gústavssyni og Hafdís Dögg í for- eldrahúsum. Áður hafði Margrét eignast soninn Sigbjörn sem dó á fyrsta aldursári. 2) Bjarnveig (d. 1990) var gift Einari Brynjólfssyni, eignaðist þrjá syni og eru barnabörnin orðin fimm: Kristinn Þór, giftur Margréti Daní- elsdóttur, á Daníel og Kristínu; Ásgeir, í sambýli með Lindu Björk Hávarðardóttur, átti áður Þorstein Rúnar; Brynjar, í sambýli með Sig- rúnu Pálsdóttur, á Berglindi og Arnar Pál (Ásgeir og Brynjar eru tvíburar); Magnús Jón, giftur Þóru Grétu Pálsdóttur, á fjögur börn og tvö barnabörn: Pálmar Óli, giftur Hildi Karlsdóttur, á Smára og Þóru Grétu; Bjarki Þór, ívar Smári og Alma Björk eru í foreldrahúsum. 3) Guðleif, nú gift Jóni Má Smith, hefur eignast fjögur börn og þrj ú barnabörn: Sigbjörn Steinþórsson sem á Söndru Dögg; Rósa Krist- borg Steinþórsdóttir, gift Borgþóri Harðarsyni, á tvíburana Brynjar Örn og Bryndísi Örnu; Þórunn Stef- anía Steinþórsdóttir og Jósef Már Smith. Kristín annaðist vel um heimili sitt og studdi börn sín við þröngan kost. Hún var hagsýn og nýtti vel það sem til féll. Var glaðsinna, söngelsk og kunni ógrynni af ljóð- um og vísum sem hún kenndi okk- ur. Síðustu ár hrjáði hana sjóndepra sem hún hafði fengið nokkra bót á. Það var því hennar heitasta ósk að fá að sjá aftur æskuslóðirnar í Fossárdálnum. Af því varð ekki. Kristín fékk heilablæðingu á föstu- daginn langa og lést aðfaranótt 9. apríl. Elsku mamma. Við þökkum þér fyrir árin sem við áttum saman, fyrir ást og umhyggju á erfiðum tímum og biðjum Guð að vernda þig í nýjum heimkynnum, þar sem »<■ verður tekið vel á móti þér. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Margrét, Magnús Jón og Guðleif.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.