Morgunblaðið - 15.04.1994, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
fclk i
fréttum
Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson
Hyómsveitin XD3 spilaði fyrir dansi á afmælishátíð Harmoníkufélags Héraðsbúa og sá um undirleik í
lagakeppninni ásamt aðstoðarmönnum. Hljómsveitina skipa, Jónas Þór Jóhannsson, Ragnar Þorsteins-
son og Jón K. Arnarson. Þeir nutu aðstoðar tveggja félaga í Harmoníkufélaginu, Sigurðar Eymundsson-
ar og Þórlaugar Jónsdóttur.
Morgunblaðið/Sigurborg Ragnarsdóttir
Séð yfir hluta háborðsins. F.v. Jónas Haralz, Jóhann Johnston formað-
ur, Ingvi Ingvason fyrrv. sendiherra í Washington og Þórdís Hjaltason.
BANDARIKIN
Lýðveldisafmæli og
þorrablóti slegið saman
Iárlegu þorrablóti íslendingafé-
lagsins í Washington D.C. voru
tvær flugur slegnar í einu höggi
þegar einnig var haldið upp á 50
ára afmæli íslenska lýðveldisins.
í forrétt var þorramatur, en
glóðarsteikt lambalæri í aðalrétt.
Kaupsýslan gaf allt lambakjötið og
ekki skyggði á gleði kvöldsins, að
íslenski úrvalskokkurinn Hilmar B.
Jónsson útbjó matinn. Happdrætti
kvöldsins stjórnaði Páll Pétursson
og að venju var aðalvinningurinn
farseðill til íslands, gjöf frá Flug-
leiðum.
Heiðursgestir voru fýrrverandi
sendiherrahjón i Washington, Ingvi
Ingvason og Hólmfríður G. Jóns-
dóttir. Núverandi sendiherrahjón,
Elsa og Einar Benediktsson, voru
að sinna embættisskyldum í Mexíkó
og gátu því miður ekki verið við-
stödd. Hljómsveitin Nátthrafnar
léku fýrir dansi fram á rauða nótt.
EGILSSTAÐIR
Keppt í söng og harmonikkuspili
Hátíð í tilefni 'ffiú ára afmælis
Harmoníkufélags Héraðsbúa
var haldin um síðustu helgi í Hótel
Valaskjálf. Margt var um manninn
og mættu til leiks margir öflugustu
harmoníkuleikarar Austurlands.
Fór þar fremstur meðal jafningja
hinn kunni kúluvarpari, Hreinn
Halldórsson, formaður Harmoníku-
félagsins. í tilefni afmælisins var
gefin út hljóðsnælda með fjórtán
lögum fluttum af ýmsum félags-
mönnum. Ennfremur var gefíð út
veglegt afmælisrit.
Dagskrá kvöldsins hófst með
borðhaldi og á meðan spilaði frú
Messíana Marselíusardóttir frá
ísafirði nokkur vel valin lög. Því
næst fóru í hönd ræður formanna
hinna ýmsu harmoníkufélaga víðs
vegar af landinu. Þeirra á meðal
var Ásgeir Sigurðsson formaður
Landssambands harmoníkuunn-
enda. Karlakór Fljótsdalshéraðs
söng undir stjórn Suncönu Slamn-
ing, og síðan hófst lagakeppni
Harmoníkufélags Héraðsbúa.
Keppt var í tveimur flokkum. Flokki
sunginna og þeikinna og í flokki
leikinna laga. í fyrrnefnda flokkn-
um kepptu sex lög og sigurvegari
varð Guttormur Sigfússon með lag-
ið „Dönsum saman“, texti eftir
Helga Seljan. í flokki leikinna laga
sigraði lagið „Harmoní" eftir Jón
Halldórsson, sem er bróðir Hreins
Halldórssonar. Því næst veitti stjórn
Harmoníkufélags Héraðsbúa
nokkrum meðlimum viðurkenning-
ar fyrir vel unnin störf í þágu fé-
lagsins.
F.v. Svava Vernharðsdóttir, sem vann mörg ár í sendiráðinu í Wash-
ington, Maureen Paulsby læknir, móðir hennar Gyða Mack Breið-
fjörð og Hólmfríður G. Jónsdóttir sendiherrafrú.
TÍSKUVERSLUN
KRINGLUNNI • SÍMI 33300
Mariachi sveitin,
sem skipuð er 10
hljóðfæraleikur-
um, söngvurum og
dönsurum mun
skemmta matar-
gestum í Grillinu,
en einnig koma við
sögu víðar í hús-
inu, m.a. í Skrúði
og á Mímisbar.
Morgunblaðið/Kristinn
MANNFAGNAÐUR
Guðrún Þorbergsdóttir á tali við hjónin
Sverri Ólafsson og Camille R. Ólafsson.
Islendingar kynn-
ast andrúms-
lofti Mexíkó
Mexíkóskir veisludagar standa yfir í Grillinu á
Hótel Sögu dagana 12.-17. apríl. Meginmark-
miðið er að kynna mexíkóska matargerð eins og hún
gerist best. Hefur mexíkóskur yfirmatreiðslumeist-
ari, Alejandro Caloca, verið fenginn til að sjá um
matseldina. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar
ferðaskrifstofufólki, fjölmiðlamönnum og fleiri gest-
um var kynnt hvað í boði væri.
Rolf Johansen ræðismaður Mexíkó á íslandi
segir eitthvað mjög skemmtilegt við við-
mælanda sinn.