Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
49
i Vinnum að friði
1 í lj ósi og kærleik
Frá Sveinbjörgu Egilsdóttur:
. Það er sjálfsagt mörgum hér á
Islandi sem finnst þeir lítið geta gert
til að stuðla að friði í heiminum jafn-
vel þó þeir vildu. Stríðin eru öll ann-
1 ars staðar og friðargöngur niður
Laugaveginn yirðast ekki skila mikl-
um árangri. Ég er samt viss um að
friðsöm, þögul friðarganga, sem er
eins og bæn í verki, er miklu væn-
legri leið til heimsfriðar en þegar
barist er fyrir friði.
Allur ófriður verður vegna gildis-
mats sem aðgreinir í stað þess að
sameina og hver einasti maður á
jörðinni hefur það á valdi sínu að
velja frið fyrir sig.
IÖfriður verður þegar barist er fyr-
ir einhverju. Á liðnum tímum hafa
1
einstkalingar sem og heilu þjóðirnar
fundi sig knúna til að berjast fyrir
hinum ýmsu málum. Það hefur þurft
að beijast fyrir rétti sínum, landi,
skoðunum og trú svo eitthvað sé
nefnt. Aðalatriðið hefur verið að fá
að vera í friði með það sem hefur
gildi fyrir viðkomandi, jafnvel þó það
þýði að ryðja verður andstæðingum
úr vegi (stríð, morð) til að vera laus
við þá ógn að skoðanir annarra og
trú verði ofan á. Stríð, morð og lim-
lestingar eru aðeins hatursfyllri að-
ferðir til að losna við andstæðinginn
en t.d. sú aðferð í valdabaráttu hópa
og einstaklinga sem kallast rifrildi.
Það er okkur mönnunum eðlilegt
' að þrá frið. Okkur hefur samt orðið
lítið ágengt við að skapa varanlegan
Við erum við sjálf,
hvað sem við heitum
Síðbúið svar
| Frá Hallfríði G. Schneider:
Þegar ég giftist amerískum her-
| manni á íslandi bætti ég með glöðu
" geði hans ættarnafni við mitt nafn.
Mitt skírnarnafn var myndarlegt og
bróðir minn kallaði mig fljótt Oddu,
þar sem ég hjalaði add-add-add-a í
vöggu. En ég hefi verið kölluð mörg-
um nöfnum.
Eftir mánaðardvöl í Bandaríkjun-
um varð ég borgari þessa lands til
þess að geta farið til annarra landa
með mínum manni. Dómarinn, sem
4 prófaði mig áður en ég var svarin
® 'nn. mælti eindregið með, að ég
I breytti um nafn, mitt nafn myndi
reynast mér og öðrum erfítt meðferð-
ar. Það aftók ég. Guðbrandsdóttir
varð miðnafn og þá oftast G.
Við fluttum oft, ég varð yfirleitt
mrs. nafn míns manns með hans
nafnnúmer +a. Börn voru með sama
nema b,c,d, o.s.frv., en hver hefur
eigið tryggingarnúmer. Erlendis fór
■J a)lur póstur á hans skrifstofu. íslensk
vinkona skrifaði: „Ég mundi skrifa
1 þér oftar ef þú hefðir auðveldara
ú heimilisfang, ekki alla þessa stóru
stafí og tölur.“
Fjögur börn fæddust, við fengum
fleiri númer og með þeirra hjálp,
ættarnafninu og skriffínnsku gengu
flutningar vel og ferðalögin urðu að
ævintýrum. Við vorum alltaf örugg
e*uing, jafnvel þegar við vorum að-
skilin. En þegar ég eignaðist annað
barnið var maður minn fjarverandi
d °g vinur okkar keyrði mig á spítal-
ann. Ég var búin að skrifa á miða
2 uauðsynlegustu upplýsingar og láta
€ hann fá; nafn, heimilisfang, fædd
Hallgeirseyjarhjáleigu, Landeyjum,
Rangárvallasýslu, Iceland o.s.frv. Ég
fór á fæðingardeildina, hann fór að
skrá mig inn.
Ritarinn í móttökunni vélritaði inn
á ákveðin svæði á arkirnar en þurfti
sífellt að henda þeim. Loksins stundi
hann upp við vin okkar: „Viltu fara
með þessa konu eitthvað annað, ég
kem henni ekki inn á okkar skýrslur."
Nokkru eftir að ég fluttist til Wash-
ington, D.C. hitti ég konu sem ég
þekkti og var hér í fylgd með sínum
íslenska embættismanni. Hún réðst á
mig með hroka og yfirlæti: „Hvað
er þetta með þig, ertu búin að láta
Ameríku gleypa þig, búin að týna
þínu nafni —“ o.s.frv. Það stóð í hon-
um Top litla, mér vafðist tunga um
tönn og ég svaraði litlu. Allar götur
síðan hefí ég verið að svara henni í
huganum: Það er sama hvað ég heiti
og hvað ég er kölluð, undir niðri er
ég alltaf sú sama, sem gleymi aldrei
mínu elskaða íslandi þó að ég sé líka
þakklát fyrir líf mitt hér og hafi að-
lagast mörgum siðum þessa lands.
Með því að skrifa þetta vona ég að
geta gleymt embættismannsfrúnni.
Nú er ég í sólskinsskapi eftir að
vera í gær í stórsaumaklúbbi, sem
ein konan hér á Washington-svæðinu
hélt fyrir 60 íslenskar konur á öllum
aldri. Við kynntum okkur með for-
nöfnum og hugsuðum ekki um hvort
við værum með íslensk eða erlend
ættarnöfn, eða bærum nöfn feðra eða
mæðra. Við vorum allar sjálfstæðar,
glaðar og reifar og nutum þess að
hittast og tala okkar móðurmál.
Ameríka hefur ekki gleypt okkur.
1. mars 1994.
HALLFRÍÐUR G. SCHNEIDER,
Virginíu.
VELVAKANDI
I
I
i
y
i
%
i
4
„BILAÐUR“
VELVAKANDI
TÖLVUBILUN varð hjá Velvak-
anda sl. miðvikudag. Þeir sem
báðu um þjónustu símleiðis þann
dag eru því beðnir að hringja
aftur, vilji þeir fá erindi sitt birt.
SIGGA BEINTEINS Á
NÁTTFÖTUM
ÞRJÁR 9 og 10 ára telpur skora
á Sigríði Beinteinsdóttur að
koma fram á náttfötum þegar
bún flytur lagið Nætur fyrir hönd
Islands í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva.
HVERJIR ERU Á
R-LISTA?
EG ER kjósandi í Reykjavík sem
ekki hef gert upp hug minn hvort
kjósa beri R- eða D-lista. En
hveriir eru á R-ljstanum? Ég hef
iii'+ "•♦Jfíi o 'ilf),. ‘11+ sliii; lu
misst af því hafi sá listi verið
birtur opinberlega og eins er um
alla sem ég hef spurt. Fólk veit
ekki hveijir eru á listanum. D-
listinn hefur sent framboðslista
sinn í hús, gæti R-listinn ekki
gert það sama?
Kjósandi
GÆLUDÝR
Köttur í óskilum
GRÁBRÖNDÓTTUR köttur með
brúna fætur hefur gert sig
heimakominn í Þernunesi í
Garðabæ. Hann er ómerktur.
Upplýsingar í síma 45450.
GRÁBRÖNDÓTT læða, hvít á
hálsi og bringu, tapaðist frá
Þinghólsbraut 25, Kópavogi, sl.
mánudag. Eyrnamerking hennar
er R2H123. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi vinsalega sam-
band í síma 642250.
miðvikudaginn:! 13. apnl 1994
Ol
0 5 af 6
♦bónus
VINNINGAR
6 af 6
m
5 af 6
QL
4 af 6
0 3 af 6
tbónus
FJÖLDI
VINNINGA
11
698
2.574
UPPHÆÐ
A HVERN VINNING
168.770.000
261.824
74.807
1.875
218
Aðaltölur:
8 9 11
^0)(33)(g
BÓNUSTÖLUR
Heildampphæó þessa viku
172.510.055
áisi.: 3.740.055
FKfJinningur fór til: (Fjórfaidur 1, vinningur næst)
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI91-68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Heilsuklossar
saníta
Made m Denm;)rn
.rjr/
\ferðkr.
2.905
Stærðir: 36-47
Litir: Svartur,
brúnn og
hvítur
Ath.: Sanita beygjuklossamir
eru með nýúkum og sveigjanlegum
sóla og verndar þar með fætur og bak.
Höfum auk þess klossa með trésóla í svörtu og hvítu.
POSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
Ioppskórinn
VELTUSUNDI ■ SÍMI: 21 21 2
VIÐ INGÓLFSTORG
SIWRAÐU
kr. 35.000 á ári!
\Q/°°
c>&S ^
i M®
,0^
frið og við höfum greinilega beitt
röngum aðferðum. Aðferðir okkar
hafa hingað til miðast við að breyta
öllu öðru en sjálfum okkur og skoð-
unum okkar og flest stríð hafa ver-
ið háð í von um frið eftir að and-
stæðingurinn hefur látið í minni
pokann eða er horfinn af sjónarsvið-
inu. Slíkar aðferðir bera ekki árang-
ur fyrr en einn maður er eftir á
jörðinni.
Það er kominn timi til að breyta
um aðferðir. Það er ekki og hefur
aldrei verið á okkar valdi að breyta
öðrum. Við getum aðeins breytt
okkur sjálfum og valið fyrir okkur
sjálf að lifa í friði, ljósi og kærleik.
í ljósi og kærleik verður umburðar-
lyndi fordómum yfírsterkara og þær
leiðir sem hver einstaklingur fer til
að öðlast náð skapara síns skipta
ekki lengur máli. Þáð sem þá skipt-
ir öllu máli er það sem við eigum
og deilum saman sem er lífið sjálft
og jörðin sem við lifum á.
Hugsunin um frið og kærleik fer
nú eins og eldur um sinu yfir jörð-
ina. Flestir ná hugsuninni en grípa
því miður til gamalla aðferða. Þú
getur orðið til þess að hugsunin um
frið og ný aðferð til að öðiast hann
komst til skila með því að hugsa
og velja frið í sjálfum þér, vera trúr
því vaii og hafa hugrekki til að
„bjóða hinn vangann“.
Á undanförnum misserum hafa
ýmis áhugafélög um andleg málefni
og mannrækt, Fríkirkjan og baháíar
sameinast um bænastundir þar sem
beðið hefur verið fyrir friði til handa
mannkyni jarðar og jörðinni sjálfri.
Þessir hópar, sem hafa það sameig-
inlega markmið að lifa í ljósi, kær-
leik og friði, fara ekki allir sömu
leið að markmiði sínu og eru að
mörgu leyti afar ólíkir. En fólkið í
þessum hópum hefur valið frið og
sér auðveldlega þau gildi sem sam-
eina hópana og alla þá einstaklinga
sem vilja frið í hjarta sínu og heimi.
Með kveðju í ljósi og kærleik.
SVEINBJÖRG EGILSDÓTTIR,
Strandaseli 1,
Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Undirskrift
og lokaorð
féllu niður
Síðasti hluti einnar af minningar-
greinunum um Siguijón Þórisson á
blaðsíðu 43 í Morgunblaðinu í gær
féll niður vegna mistaka 5 vinnslu.
Greinin, sem átti að hafa undirskrift-
ina Vinnufélagar, hófst á þessa leið
(efst í þriðja dálki): „Undir morgun-
sól á björtum blíðviðrisdegi þegar vor
og bjartsýni ríktu í hugum okkar
allra, kom það eins og þruma úr heið-
skíru lofti er kær vinur okkar og
vinnufélagi fórst í hörmulegu slysi.“
Lokakafli greinarinnar hljóðaði svo:
„Við biðjum góðan guð um að styrkja
og vernda Herdísi, Svövu Láru, Ing-
unni Brynju, fjölskyldu og aðra ást-
vini í þungri raun og sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi
ykkur.“
Hlutaðeigendur eru innilega beðnir
afsökunar á þessum mistökum.
Skeljungur
í súluriti yfir rekstrartekjur Skelj-
ungs í viðskiptablaði í gær var rang-
lega sagt að tekjurnar hefðu verið
4.610 milljónir árið 1992. Hið rétta
er að rekstrartekjur voru 5.610 millj-
ónir þetta ár. Beðist er velvirðingar á
þessu.
Athugasemd
í frétt í blaðinu í gær um dóm í skaða-
bótamáli gegn Hinu íslenska kenn-
arafélagi var ranglega sagt að
menntamálaráðuneytið hefði hafnað
umsókn Fjölbrautaskólans í Breið-
holti um rekstur sumarskóla í fyrra
vegna almenns niðurskurðar. í at-
hugasemd frá menntamálaráðuneyt-
inu er tekið fram að ráðuneytið taldi
ekki grundvöll til að starfrækja sum-
arskólann vegna afstöðu fjármála-
ráðuneytisins. Afstaða íjármálaráðu-
neytisins byggðist á því að ekki voru
taldar forsendur fyrir kjarasamninga
ijjilliiigármálæ:áðu1neytisins .og kerni-
ara við sumarskóla.
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 "S 622901 og 622900