Morgunblaðið - 24.04.1994, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.04.1994, Qupperneq 5
 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRIL 1994 B 5 Charles Pasqua innanríkisráðherra Frakka Taka ekki við straumi flóttamanna frá Alsír París. Reuter. CHARLES Pasqua, innanríkis- ráðherra Frakklands, hefur lýst því yfir í blaðaviðtali að Frakkar muni neita að taka við straumi flóttamanna frá Alsír, nái íslamskir bókstafstrúar- menn völdum þar. Pasqua, sem öðlast hefur vinsældir fyrir harðlínustefnu sína, sakaði nokkra franska dómara einnig um að framfylgja ekki sem skyldi hinum ströngu innflytj- endalögum, sem sett voru á síð- asta ári. Er blaðamenn Le FTg-arospurðu ráðherrann hvaða afleiðingar sig- ur bókstafstrúarmanna í Alsír, sem var áður undir stjórn Frakka, hefði, sagði Pasqua það útilokað að Frakkar' myndu taka við straumi flóttamanna. Sagði ráð- herrann að ítalir og Spánveijar myndu einnig þurfa að takast á við straum innflytjenda, næðu bókstafstrúarmenn völdum í Alsír. Pasqua benti á að beiðnum frá Alsírbúum um landvist í Frakk- landi hefði fjölgað mjög. Þær voru 104 árið 1992 en yfir 1.000 á síð- asta ári. Hann var höfundur strangari innflytjendalaga sem sett voru um mitt síðasta ár til að mæta kröfum hægrisinnaðra kjósenda. Heimildarmenn í utanríkisþjón- ustunni segja yfirvöld óttast að allt að hálf milljón Alsírbúa muni flýja til Frakklands, nái bókstafs- trúarmenn völdum. Þá er talið að mörg þúsund Alsírbúa dvelji nú þegar í hjá ættingjum sínum í Frakklandi með ferðamannaárit- un. Að minnsta kosti 3.500 Alsírbú- ar hafa látið lífið í átökum í land- inu frá því að hætt var við kosn- ingar í janúar 1992 en strangtrú- armönnum í íslömsku frelsisfylk- ingunni hafði verið spáð sigri í þeim. Auglýsingasmiður Benettons hættir Róm. Reuter. LJÓSMYNDARINN Oliviero Toscani, sem frægur er fyrir Benet- ton-auglýsingarnar, sem hneykslað hafa milljónir manna, er hætt- ur störfum hjá fyrirtækinu vegna óánægju með útgefanda Col- ors, tímarits fyrirtækisins. Sá heldur því aftur fram, að Toscani sé á sama menningarstigi og skynlausar skepnurnar. Toscani, sem hefur meðal ann- ars birt myndir af kynfærum kvenna og karla og deyjandi alnæ- missjúklingi í Benetton-auglýsing- unum, segist ekki geta unað því að starfa undir stjórn nýja útgef- andans, Aldos Palmeris, sem beri ekki fremur en aðrir „bókhaldar- ar“ nokkurt skynbragð á skapandi list. Palmeri svaraði þessum ásök- unum fullum hálsi og sagði, að til að standa í viðskiptum og rekstri þyrftu menn að hafa einhveija menntun, þó ekki væri nema að hafa gluggað í bók, en menningar- stig Toscanis væri hins vegar langt Æfingabekkir í Hafnarfirðl Þú ert í... ...betri málum... ...ef þú stundar líkamsþjálfun, Margrét Guðlaugsdóttír: í mörg ár hef ég reynt að losna við lærapokana en án árangurs þangað til ég fór að stunda æfingabekkina. Þá fór ég loks að sjá árangur og sentimetrarnir hurfu. Sæunn Sigursveinsdóttir: Frábær aðstaða! ''iðbeinandi, idi og Vikuna 2 Hólmfríður Berentsdóttir: IVlér finnast bekkirnir henta mér betur en leikfimi þar sem mikið er um hopp. Maðurtekurvel á í þægilegu umhverfi og er endurnærður á eftir. Ásta Baldvinsdóttir: Ég lenti I slysi árið 1988 og hef verið mjög slæm síðan þá. Nú hef ég stundað bekkina þrisvar í viku í nokkra mánuði og er allt önnur. Ég er laus við bakverki, vöðvabólgu í öxlum og hef losnað við bjúg auk þess að hafa grennst. r0aprí| 12 tímar 6.000, meo 0/. S.400 25 tímar I 1.600, með afsl. 9.860 Mánud.-fimmtud. kl. 8.15—12.00 og 15.00—21.00. Föstud. kl. 8.15—13.00 og laugard.kl. 10.00-13.00. Bekkirnir tryggja árangurinnr r Okeypis kynningartími! Þú hefur engu að tapa nema kílóum og sentimetrum! í ÆFINGABEKKJUM LÆKJARGÖTU 34a - B 653034 HAFNARFIRÐI. ARNAD HEILLA Ljósmyndastofan Mynd, Hafnarfírði. HJÓNABAND. Gefin voru saman þann 26. mars í Veginum, Kópa- vogi, af Stefáni Ágústssyni Sigur- rós Einarsdóttir og Jón Sig- björnsson. Þau eru til heimilis í Móabarði 36, Hafnarfirði. Ljósmyndastofan Mynd, Hafnarfírði HJÓNABAND. Gefin voru saman þann 19. mars sl. í Búðstaðakirkju Mary Björk Sigurðardóttir og Þórarinn Bjarnason af séra Pálma Matthíassyni. Þau eru til heimilis í Kríuhólum 2, Reykjavík. fyrir neðan allar hellur. Kvaðst hann mundu láta dóttur sína, sem „kann að taka myndir", taka við af Toscani. Benetton sjálfur hefur reynt að bera klæði á vopnin í þessu stríði en Tibor Kalman, aðalritstjóri Col- ors, segir, að deilan snúist um sjálfa hugmyndafræðina að baki auglýsingum, um það „hver borgi“ og „hver geri þær“. „Auglýsingar Toscanis hafa vissulega valdið okkur vandræðum en spurningin er hvort það eru góð eða slæm vandræði," segir Kalman. VINNUVELAR Fyrsti þýski vinnuvélaframleiðandinn, sem hlýtur gæðastaðalinn ISO 9001 Getum útvegað með skömmum fyrlrvara allar stærðlr oggerðir O&K vlnnuvéla ia BRÆÐURNIR (j|j) ORMSSON HF Lágmúli 8-9,sími 91-38820, fax 91-680018. r ÖTSALA - ÚTSALA 40% alsláttur af ðllum vðrum 15% afsláttui af uarni. Hverafold 1-3, sími 684272. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.