Morgunblaðið - 24.04.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR.24, APRIL 1-994
B 2:7
STÆRSTA
TJALDIÐMEÐ
S/M/32075
HX
FRA LEIKSTJORA „ROCKY“ OG „KARATE KID“
Luke Perry (úr Beverly Hills þáttunum) Stephen Baldwin Cynthia Geary
bn
Þetta er mynd, byggð á sannri sögu imi Lane Frost, sem varð goð-
sögn í Bandaríkjunum. Lane varð ríkur og frægur og var líkt við
James Dean. Konur elskuðu hann, menn öfunduðu hann og enginn
gat sigrað hann.
Sýnd kl. 5,7,9og11.
TOMBS-
TOIME
Einn aðsóknar-
mesti vestri fyrr
og síðar í Banda-
ríkjunum.
★ Mbl.
★ ★ ★Ó.H.T., Rás 2.
Sýnd kl. 4.40, 6.50, Sýnd kl. 5, 7,
9 og 11.15. 9 og 11.
Bönnuð innan Bönnuð innan
16 ára. 14 ára.
SVIK
MORÐ
PIANO
KRYDDLEGIN HJÖRTU
Eftir sama leikstjóra og Betty Blue.
Stórskemmtileg og fyndin spennumynd um ótrúlegt ferðalag þremenninga, sem
fátt virðast eiga sameiginlegt.
Aðalhlutverk: Yves Montand (síðasta kvikmynd þessa vinsæla leikara),
Oliver Martinez og Sekkou Sall. Leikstjóri: Jean-Jacques Beineix.
Sýnd kl. 5 og 9.
SIMI: 19000
Þreföld Óskarsverðlaunamynd.
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.05.
Far vel frilla mín
Sýnd kl. 9.
Bönnuð innan 12 ára.
Aðsóknarmesta erlenda myndln í
Bandaríkjunum frá upphafl.
______Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hetjan Toto
Sýndkl. 5og7. Bönnuð innan 12ára.
LÆVÍS LEIKUR Pottþéttur spennutryllir
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Krabbameinsfélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn
Meginstarfið í skólum og
að gera fyrirtæki reyklaus
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þau skipa efstu sæti G-listans í komandi bæjarstjórnarkosningum. Frá vinstri til hægri
eru: Jóhann Geirdal sem skipar fyrsta sætið, Sólveig Þórðardóttir sem skipar annað
sætið, Eygló Breiðfjörð Einarsdóttir sem skipar sjötta sætið, Hulda Ólafsdóttir sem
skipar fjórða sætið og Jón Páll Eyjólfsson sem skipar þriðja sæti listans.
Bæjarstjómarkosningar í Keflavík/Njarðvík/Höfnum
Jóhann Geirdal skipar
fyrsta sæti G-listans
Keflavík.
JÓHANN Geirdal formaður Verslunarmannafélags Suð-
urnesja skipar fyrsta sæti G-Iistans, lista Alþýðubandalsins
og annarra jafnaðar- og félagshyggjumanna fyrir kom-
andi bæjarsljórnarkosningar í nýju sameinuðu sveitarfé-
lagi, Kefiavík, Njarðvík og Höfnum.
AÐALFUNDUR Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur
var baldinn nýlega og lýsti
fundurinn yfir stuðningi
við frumvarp til tóbaks-
varnalaga sem Guðmundur
Árni Stefánsson, heilbrigð-
isráðherra, lagði nýlega
fram á Alþingi. Á fundin-
um kom fram að umfangs-
mesta starf félagsins fælist
í tóbaksvömum í grunn-
skólum svo og að aðstoða
fyrirtæki við að verða
reyklaus, segir í fréttatil-
kynningu frá félaginu.
Á fundinum kom fram að
Krabbameinsfélagið veitir í
auknu mæli ráðgjöf til fyrir-
tækja um undirbúning þess
að gera vinnustaði reyklausa.
Haldnir hafa verið fjölmargir
vinnustaðafundir og reyk-
bindindisnámskeið fyrir ein-
stök fyrirtæki og stofnanir.
Umfangsmesta starf fé-
lagsins er hins vegar tóbaks-
varnarstarfið í grunnskólum
sem einkum felst í árlegum
heimsóknum til nemenda ell-
efu ára og eldri á höfðuborg-
arsvæðinu og víðar um land.
Einnig hefur nokkrum hóp-
um nemenda* verið veitt að-
stoð við að hætta að reykja.
í þessu sambandi var hafin
aftur útgáfa fréttablaðsins
Takmarks í desember og það
helgað tóbaksvörnum í
grunnskólum.
Vertu vakandi þótt
þú sért ungur
Krabbameinsfélagið gaf á
síðasta ári út fræðsluritið
Vertu vakandi þótt þú sért
ungur þar sem vakin er at-
hygli á krabbameini í eistum
í þeim tilgangi að hvetja til
árvekni um einkenni sjúk-
dómsins. Var bæklingnum
dreift til allra pilta í fram-
haldsskólum og efsta bekk
grunnskóla.
Félagið rekur Happdrætti
Krabbameinsfélagsins og
fær frá því stærstan hluta
tekna sinna, auk þess sem
það fær styrk frá Reykjavík-
urborg til starfsins. Happ-
drættið kostar að verulegu
leyti skólafræðslu sem önnur
krabbameinsfélög standa
fyrir.
Að aðalfundinum loknum
fjölluðu Laufey Tryggvadótt-
ir, faraldsfræðingur, og Guð-
rún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags íslands,
um nýútkomna spá um tíðni
krabbameina á Nprðurlönd-
um og viðbrögð íslendinga
við spánni.
Einnig hvatti fundurinn
stjórnvöld til þess að ljúka
sem fyrst byggingu K-bygg-
ingar við Landsspítalann
þannig að hægt verði að
halda áfram uppbyggingu
krabbameinslækninga hér á
lándi eins og fyrirhugað hef-
ur verið.
Stjórn félagsins er óbreytt
í fyrstu sjö sætunum eru:
Áki Áskelsson, rekstrar-
tæknifræðingur, Elísabet
Skarphéðinsdóttir, starfs-
maður Kristnesspítala, Stef-
án Yngvason, vfirlæknir,
Uppstillinganefnd ákvað
skipans framboðslistans og er
Hulda M. Jónsdóttir, kenn-
ari, Egill Þórólfsson, raf-
virkjameistari, Ólöf Elfa
Leifsdóttir, yfiriðjuþjálfi og
Kristján H. Theodórsson
hreppstjóri. Benjamín
Geirdal formaður V.S., Sól-
veig Þórðardóttir deildarstjóri
og bæjarfulitrúi, Jón Páll Ey-
jólfsson verkamaður, Hulda
Ólafsdóttir leikhúsfræðingur
og fóstra, Ægir Sigurðsson
aðstoðaskólameistari, Eygló
Breiðfjörð Einarsdóttir bif-
reiðastjóri, Hólmar Tryggva-
son húsasmiður, Inga Stefáns-
dóttir bankamaður, Þórarinn
Þórarinsson sagnfræðinemi og
Lára Jóna Helgadóttir verka-
kona.
Jóhann Geirdal óddviti list-
ans sagði að meginverkefni
næsta kjörtímabils yrði að
móta nýtt sveitarfélag og end-
urskipuleggja starfsemi þess
og í því vildi G-listinn taka
þátt þar sem megináherslan
yrði atvinna, jöfnuður og sið-
gæði. Fram kom hjá Jóhanni
að leitað hefði verið eftir sam-
eiginlegu framboði með franj-
sóknar- og alþýðuflokksmönn-
um en þar hefði strax komið
fram ákveðin tregða svo ekk-
ert hefði orðið úr þeim viðræð-
um.
Jóhann sagði að atvinnu-
málin væru mál málanna sem
takast þyrfti á við og þá sér-
staklega í ljósi þess að búast
mætti við enn frekari sam-
drætti á Keflavíkurflugvelli.
Því yrði að stefna að nýsköpun
með skipulögðu stuðnings-
starfi við lítil og meðalstór
fyrirtæki. Jóhann sagði að
stefna G-listans væri að ný-
gert skipulag byggðar á Bergi
í Keflavík yrði lagt til hliðar
og að næsta byggingasvæði
yrði í Innri-Njarðvík til að efla
byggðarkjarnann sem þar
væri fyrir. Jóhann sagði að
G-listinn færi óbundinn til
þessara kosninga og tilbúinn
til að takast á við spennandi
verkefni sem framundan
væru. Á framboðslistanum
væri breið fylking af góðu
fólki og að hann gerði sér
góðar vonir um gott fylgi á
kjördag. uni'imta -BB j
Oddbergur Eiríksson skipa-
smiður í Njarðvík formaður
frá fyrra ári, en formaður * nefndarinnar. Tíu fyrstu sætin
hennar Sigríður K. Lister. á listanum skipa: Jóhann
Þrír listar í
Eyjafjarðarsveit
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
ÞRIÐJI listinn, Listi umbótasinna í Eyjafjarðarsveit verð-
ur boðinn fram til sveitarstjórnakosninganna í vor, en
áður hafa komiö fram tveir framboðslistar, E- og N-listi.