Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR15. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
eftir Áma Matthíasson
HAUKUR Morthens var einn
ástsælasti söngvari þjóðar-
innar og hélt velli þrátt fyrir
sviptivinda tískunnar í fjöru-
tíu ár. Hann hóf söngferil
sinn í kór Miðbæjarskólans,
varð snemma einn vinsælasti
söngvari þjóðarinnar og hélt
þeim vinsældum að segja til
hinsta dags, því ný kynslóð,
alin upp á rokktónlist og
pönki, hafði hann í hávegum.
í kvöld verða minningartón-
leikar um Hauk Morthens í
Súlnasal Hótels Sögu, þar
sem fram koma flestir helstu
dægursöngvarar þjóðarinnar
til að heiðra minningu
Hauks.
skólans, sem þeir voru báð-
ir í. 1944 sá hann Hauk
fyrst syngja opinberlega á
stúkuskemmtun í Góðtempl-
arahúsinu með píanóundirleik.
í kjölfar þess fór Haukur að
skemmta með Alfreð Clausen
gítarleikara og söngvara víða
um land.
Á stríðsárunum var Haukur
lærlingur í setningu í Alþýðu-
prentsmiðjunni. í sama húsi var
skemmtistaðurinn Ingólfskaffi, svo
Haukur átti hægt með að koma sér
áfram í söngmenntinni; hann æfði
sig á daginn, vann í prentsmiðjunni
á kvöldin, að prenta Alþýðublaðið
og stríðsárablaðið Daily Star, og
svo söng hann í Ingólfskaffi eftir
vinnu.
1945 fór Haukur að syngja með
hljómsveit Bjarna Böðvarssonar og
fór með þeirri hljómsveit í ferð um
landið 1946 sem þótti mikið þrek-
virki á þeim tíma. Skemmtitónlist
þeirra tíma, sem var mestmegnis
sveiflujass, var þess eðlis að yfir-
leitt var ekki fastráðinn söngvari,
en frekar að einhver hljóðfæraleik-
arinn raulaði með, en svo voru
fengnir söngvarar til að taka með
hljómsveitinni nokkur lög, ef svo
bar undir. Þannig söng Haukur með
maður í
háttu og svo
fínn í tauinu að hann
hafi gert sér far um að reyna
að líkjast honum sem mest. „Sem
dæmi um hve hann var vandvirkur
get ég nefnt að eitt sinn sagði hann
mér að hann hefði alltaf fengið
Helga Hjörvar til að lesa yfir all
íslenska texta áður en hann söng
þá opinberlega eða inn á band, til
að tryggja að þeir væru á kórréttri
íslensku. Síðan söng Haukur lögin
fyrir Helga til að vera alveg viss,“
segir Friðrik.
værum svona góðir.“
1957 fór Haukur aftur
út, þá á heimsmót æsk-
unnar í Moskvu. Hljóm-
sveitin lék í' Gorkíj-
garðinum í Moskvu
og fékk fyrir
gullmedalíu, og ári
síðar var hann enn
þar á ferð á öðru
heimsmóti.
Hreinrækt-
aðurjass
Guðmundur
og Haukur unnu sam-
an öðru hvoru eftir þetta, enda
söng Haukur oft með hljómsveit
Kristjáns Kristjánssonar. 1961
ákvað Haukur að stofna eigin
hljómsveit í fyrsta sinn og fékk þá
til liðs við sig Guðmund, sem var
nýhættur í hljómsveit K.K. eftir tíu
ára veru þar. Hljómsveit Hauks var
ráðin til að spila í Klúbbnum, en
aðrir hljóðfæraleikarar voru Sigur-
bjöm Ingþórsson á bassa, Örn Am-
arson á gítar og Jón Möller á píanó.
Fyrsta æfingin var 4. desember og
á nýársdag 1962 kom hljómsveitin
fram í fyrsta sinn. Sama ár tók
Haukur upp sína fyrstu LP-plötu
með eigin hljómsveit, sem danskur
Morgunblaðið/Sverrir
Haukur Morthens á Hótel Borg 1987,
Haukur fæddist 17. mai 1924
í Reykjavík, sonur Edvards
Morthens og Rósu Guð-
brandsdóttur, en lést 13.
október fyrir tveimur árum
eftir langvarandi veikindi. Haukur
nam prentiðn, helgaði sig snemma
söngnum og söng á meðan stætt
var, en síðasta söngskemmtun hans
var á nýársdag 1992, en veikindi
hans bundu enda á sönginn. í kvöld
halda vinir Hauks og samstarfs-
menn í tónlistinni minningartón-
leika um hann í Hótel Sögu, en
Haukur hefði orðið sjötugur næst-
komandi þriðjudag.
Byrjaði í kór
Söngferill Hauks Morthens hófst
á stríðsámnum að hann tók að
syngja með ýmsum hljómsveitum.
Friðrik Ágústsson prentari, æskufé-
lagi Hauks segist minnast þess að
Haukur, sem í þá daga var alltaf
kallaður Gústaf, þótti snemma hafa
góða söngrödd og hann man hann
syngja einsöng með kór Miðbæjar-
Haukur Morthens
var einn ástsæl-
asti söngvari þjóð-
arinnar í yfir fjöru-
tíu ár. Hann hefði
orðið sjötugur
næstkomandi
þriðjudag.
fjölmörgum hljómsveitum á næstu
árum og um tíma söng hann með
þremur hljómsveitum á kvöldi, gekk
á milli skemmtistaðanna og söng
nokkur lög með hverri.
Sjentiimaður í háttu
Haukur var víðförull á sínum
söngferli, ferðaðist víða um heim
og söng, iðulega með eigin hljóm-
sveit, og naut meðal annars mikilla
vinsælda í Danmörku og Færeyjum.
Einnig fékk hann margháttaðar
viðurkenningar fyrir söng sinn, þar
á meðal gullverðlaun í Moskvu og
var gerður að heiðursborgara
Winnipegborgar, en Iandar hans
heiðruðu hann einnig á margan
hátt, meðal annars var hann sæmd-
ur riddarakrossi Fálkaorðunnar og
æðstu orðu Góðtemplarareglunnar
á íslandi, en Haukur var bindindis-
maður alla tíð og skar sig þar nokk-
uð úr í stétt sem þekkt er meðal
annars fyrir slark. í fleiru skar
hann sig úr og Friðrik minnist þess
að hann hafi verið svo mikill sjentil-
Víðförull
Fyrsta meiriháttar utanför
Hauks sem söngvara var með sext-
ett Kristjáns Kristjánssonar, K.K.,
til Skandinavíu árið 1954. Guð-
mundur Steingrímsson, sem lék oft
með Hauki og víða, meðal annars
í fyrstu hljómsveitinni sem Haukur
stofnaði sjálfur, var með í þessari
för. Hann segir að ferðin hafi
heppnast vel og þeir félagar fengið
nokkuð fyrir sinn snúð, í það
minnsta upp í kostnað. „Og svo
fengum við ágæta krítikk í norskum
blöðum. Við fórum svo með feiju
til Kaupmannahafnar og komum
fram í Konserthallen og í Det
Danske Radio með Paul Raumert
og Onnu Borg sem voru gift þá og
frægir leikarar. Þetta voru sex lög
sem voru send út beint. Við fórum
svo með Gullfossi heim. Ári síðar
fórum við aftur út um sama leyti
árs. Þá fengum við fyrst að heyra
upptökurnar og það var alveg frá-
bært, mig hafði ekki grunað að við
upptökutjóri, Rosenberg, tók upp á
vegum Fálkans í Landsímahúsinu.
Alls er talið að Haukur hafí sungið
inn á band á fjórða hundrað laga,
en ekki er nema lítið brot af því
fáanlegt i dag, illu heilli.
Guðmundur segir hljómsveitina
hafa verið góða og leikið hreinrækt-
aðan jass. „Við fórum til Finnlands
1962 og til Rússlands í sömu ferð,
en Haukur hafði samband við sós-
íalista úti í heimi og var boðið á
Heimsmót æskunnar í Rússlandi,
allt frítt og fínerí. Sjálfsagt að nota
sjensinn. Og okkur var boðið til
Leningrad og við spiluðum í sjón-
varpinu þar. Heimsmótið var haldið
í Helsinki. Við ferðuðumst hreinlega
um allt Finnland og spiluðum. Þá
var okkur boðið að koma aftur og
við fórum aftur til Finnlands 1963,
byijuðum að vísu í Stokkhólmi und-
ir nafninu Haukur Morthens
Combo. í Finnlandi spiluðum við í
Turku. Tampere, Helsinki, Kotka,
Hamina, og Imabra, sem er á landa-
mærum Finnlands og Rússlands.