Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
114. TBL. 82. ÁRG.
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
í háttinn með
góðu eða illu
AUSTURRÍSKUR hóteleigandi, sem var
ósáttur við hversu seint hótelgestimir
tóku á sig náðir, tók tii þess bragðs að
læsa nokkra Breta á besta aldri inni á
setustofu hótels síns er þeir neituðu að
fara í háttinn kl. 21. „Maðurinn lét eins
og vitleysingur fyrsta kvöldið, æpti:
„Klukkan níu, búið. Þið erað búin. Far-
ið þið upp á herbergin ykkar“,“ sagði
Edna King, sextug skólastýra. Næsta
kvöld tók ekki betra við, hóteleigand-
inn, Wagner að nafni, krafðist þess að
hótelgestirnir lykju snemma úr glösun-
um en fólkið, sem sumt átti erfitt með
gang sökum gigtar, fór hvergi og því
læsti hann það inni og kallaði á lögregl-
una. Er einn Bretanna reyndi að róa
Wagner, sló hóteleigandinn hann í höf-
uðið, reif að því búnu eina hurðina af
hjörum og elti gestinn með hurðina í
fanginu.
Kurteisi í
háloftunum
FLUGSTJÓRINN í vélinni sem flutti
Filipus drottningarmann, Mary Robin-
son, forseta írlands, og önnur fyrir-
menni til Suður-Afríku til að vera við-
stödd embættistöku Nelsons Mandela,
forseta landsins, gætti þess að allar
kurteisisreglur væru í hávegum hafðar
í flugferðinni. Því hljómaði í upphafi
hennar: „Yðar hátign, hæstvirti forseti,
lávarðar, lafðir og aðrir gestir, gjörið
svo vel að festa sætisólarnar."
Bæta fisksaugu
námsárangur?
FRÉTTIR japanskra blaða þess efnis
að sumir hlutar fisks séu sérdeilis auð-
ugir af ómettuðum fitusýrum, hafa orð-
ið til þess að fjölmargar japanskar
mæður gefa börnum sínum nú fisks-
augu í kvöldmat á próftíma, í þeirri trú
að fiskurinn hressi upp á heiiastarfsem-
ina. Þá hefur eldra fólk tekið upp á þvi
að borða augun, innyflin og fleiri fisk-
hluta, til að koma í veg fyrir kölkun og
á börum er boðið upp á augnasnarl.
Fisksalar hafa notið góðs af blaðafrétt-
um um hollustu fisksins og selja vel af
augum og innyflum í lofttæmdum um-
búðum. Mestra vinsælda njóta augu
túnfisks en þau eru á stærð við tvöfald-
an hamborgara. Kjötið er mjúkt og
auðvelt að ná því í sundur með mat-
prjónum. Mælt er með að túnfisksaugun
séu matreidd á eftirfarandi hátt: Augun
eru látin liggja í salti í hálftíma, svo
snöggsoðin. Að því búnu er vatninu
hellt af og augun látin krauma í hrís-
grjónavíni, sykri og sojasósu í hálftíma.
Þau eru borin fram með engifer og
vorlauk.
Að leik í Hellisgerði
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
ÞESSIR hressu krakkar úr 4. bekk í Setbergsskóla í Hafnarfirði skemmtu sér konunglega við tijáklifur og reiptog í Hellis-
gerði á föstudag er ljósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð.
Áfram barist í Jemen þrátt fyrir yfirlýsingu um vopnahlé
Saleh hafnar sjálfstæð-
isyfirlýsingu S-Jemens
Al-Anad, Sanaa, Aden. Reuter.
BARDAGAR héldu áfram við Al-Anad her-
stöðina í Jemen í gær, þrátt fyrir einhliða
yfirlýsingu norðanmanna um vopnahlé í til-
efni hátíðar múslíma. Ganga ásakanirnar á
víxl um hver hafi rofið vopnahléið. Suður-
Jemenar lýstu í gær yfir sjálfstæði en norðan-
maðurinn Ali Abdullah Saleh, forseti Jem-
ens, brást harkalega við og sagðist aldrei
myndu viðurkenna sjálfstæði Suður-Jemens.
Virðast norðanmenn hafa yfirhöndina í bar-
dögunum.
Saleh lýsti á föstudag yfir þriggja daga
vopnahléi vegna Eid al-Adha-hátíðahalda
múslíma, en sagði að norðanmenn myndu
ekki hika við að hefja bardaga að nýju er
því lyki. Þrátt fyrir vopnahléið var barist við
Al-Anad herstöðina, skammt frá hafnarborg-
inni Aden í suðurhlutanum. Norðanmenn
hafa hluta hennar á valdi sínu
en sunnanmenn ráða enn flug-
vellinum. Nálgast Norður-Jem-
enar Aden hægt og sígandi.
Sakar sunnanmenn um
landráð
Saleh vísaði í gær á bug yfir-
lýsingu Ali Salem al-Baidh,
varaforseta Jemens, um að Suð-
ur-Jemenar hygðust yfirgefa
ríkjasamband Suður- og Norður-
Jemens, sem samið var um árið
1990. Sagði Saleh að um landráð
væri að ræða og hét því að ná
Aden, sem sunnanmenn höfðu
skömmu áður lýst höfuðborg
Saleh forseti.
Hundruð borgarbúa gengu
um götur Aden og fögnuðu yfir-
lýsingu Baidh um stofnun sjálf-
stæðs ríkis sunnanmanna. Sak-
aði Baidh Saleh um að draga
landið inn í borgarastyijöld.
Þrátt fyrir að norðanmönnum
hafi tekist að hindra flutninga á
milli Aden og olíusvæðanna í
austri, berast enn vörur um
höfnina í Aden. Sunnanmenn
búa yfír nokkuð öflugum sjóher
en norðanmenn nánast engum.
íbúar Sanaa í norðurhlutanum
fögnuðu Eid al-Adha-hátíðinni
o g þyrptust skartklæddir á götur
út, þrátt fyrir að stríð geisi sunn-
ar í landinu.
\IK\VIWSUVIRDI
OG FÆKKA NILLILIDIM
RÆTT VIÐ LÚÐVÍK
BÖRK JÓNSSON
10
Framsýnt fólk
VIDSKIPTI
ATVINNULÍF
VEÐJAÐ
ÁGAMLA
BÆINN
20