Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 39
BREF TIL BLAÐSINS
SUNDSAMBAND íslands getur ekki tekið að sér að sjá um sund-
keppni Smáþjóðaleikanna 1997 nema fá 50 m keppnislaug, segir
Sævar Stefánsson.
Loforðin tíu
Bréf til bæjar- og sveitarstjórnar-
manna í Reykjavík og nágrenni
Frá Sævari Stefánssyni:
NÚ LÍÐUR að kosningum og allir
keppast við að gefa loforð um hvað
þeir muni nú gera verði völdin í
þeirra höndum á næsta kjörtíma-
bili, það á að byggja, bæta og breyta
öllu sem þeim finnst ábótavant. Og
viti menn, einn og einn talar um
að það þurfi 50 m yfirbyggða
keppnislaug fyrir sundíþróttafólk
og er það góðs viti. En sundmenn
hafa svo oft heyrt gefin loforð um
slíkt að þeir eru orðnir langþreyttir
á slíku tali.
Það virðist ríkja gífurlegt skiln-
ingsleysi á því hvers vegna sund-
íþróttin þurfi 50 m innilaug, en það
virðast aHir skilja að það sé nauð-
syn að fá þak yfir knattspyrnuvöll,
skautasvell, tennisvelli, verslunar-
götur og guð veit hvað. Það er allt-
af sama sagan þegar sundmenn
tala um að fá 50 m innilaug, „hvað
er þetta, það eru laugar um allt,
þið þurfið nú ekki fleiri laugar" og
svo er bætt við, „en þetta eru að
vísu allt útilaugar því almenningur
vill það“ og þar komum við að
meginmálinu, það hefur ekkert gerst
síðan að Sundhallimar í Reykjavík
og Hafnarfirði voru byggðar, að vísu
með einni undantekningu sem er
Sundhöllin í Vestmannaeyjum en
hana gáfu Norðurlandaþjóðimar eft-
ir gos og er það eina nothæfa keppn-
islaugin sem til er.
Þolinmæði sundfólks á þrotum
Nú er svo komið að þolinmæði
sundfólksins er að þrotum komin,
framundan er einn stærsti íþrótta-
viðburður í sundi sem átt hefur sér
stað hér á landi, þ.e.a.s. 1997 í maí
verða haldnir hér Smáþjóðaleikar.
Ólympíunefnd íslands hefur farið
fram á það við Sundsamband ís-
lands að það sjái um sundkeppnina
þ.e.a.s. undirbúning og skipulagn-
ingu, Sundsambandinu er það ljúft
að taka að sér þetta verkefni svo
framarlega sem það finnst einhver
laug sem hægt er að nota á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, en þar stend-
ur hnífurinn í kúnni að mati Sund-
sambandsins. Það er ekkert mann-
virki sem er boðlegt eða hreinlega
hægt að nota í keppni sem þessa.
Það er skemmst að minnast þess
þegar haldið var hér Norðurlanda-
meistaramót í sundi að þátttakend-
ur á því móti hlæja enn þegar
minnst er á mótið á íslandi vegna
þeirrar sundaðstöðu sem boðið var
upp á.
Ætlum ekki að verða
aðhlátursefni
Sundsambandið ætlar ekki að
verða aðhlátursefni Smáþjóðanna
sem sækja þetta mót heim og hróp-
ar því í örvæntingu til sveitar-
stjórnarmanna um aðstoð við upp-
byggingu á 50 m innilaug. Áætlað-
ur kostnaður er um 200 millj. með
því að samtengja þetta við sundstað
eða íþróttahús sem er í notkun.
Það bæjar- eða sveitarfélag sem
ræðst í þessa framkvæmd mun
tryggja sér öll stærstu sundmót
næstu ára innlend og erlend, þ.e.a.s.
Smáþjóðaleikaj Norðurlandameist-
aramót, Evrópumeistaramót og
önnur þau stórmót sem hægt væri
að fá til landsins.
Ef bæjar- og sveitarstjórnar-
mönnum vex þessi kostnaður í aug-
um þá er til vara lausn en hún er
sú, að sameinast um verkið og
byggð og rekin 50 m innilaug í
sameiningu.
Með sundkveðju,
SÆVAR STEFÁNSSON,
varaformaður Sundsambands
Islands.
„Illa hefði
Kárí veríð
brunninn“
Frá Maríu Skagan:
ÉG ER fædd árið 1926 að Berg-
þórshvoli í V-Landeyjum og ólst
þar upp til átján ára aldurs.
Faðir minn, Jón Skagan og
móðir mín, Sigríður Jenný, bjuggu
þar í tuttugu ár. Bar Njálu því oft
á góma í tali manna. Minnist ég
þess, að föður mínum þótti afar
ólíklegft, að Kára hefði ekki auðn-
ast að slökkva í sér eld þann er
logaði í klæðum hans og hári, fyrr
en í Káratjörn, sem er í túninu á
næsta bæ, Káragerði. Leiddi faðir
minn sterkar líkur að því, að Kári
hefði slökkt í sér strax í tjörn er
verið hefði norðan við vesturhólinn
á Bergþórshvoli, en þangað mun
reykinn einmitt hafa lagt af brenn-
unni og svo yfir hólinn og vestur
að Káragerði þangað, sem Kári
síðan hljóp og fól sig í Káragróf.
Þaðan má, svo sem sagan greinir,
sjá vel heim að Bergþórshvoli án
þess að verða séður þaðan. Ritaði
faðir minn um þessa skoðun sína
grein í tímaritið Dvöl benti þar,
að ég hygg réttilega, á að mjög
illa hefði Kári verið orðinn brunn-
inn, hefði honum ekki auðnast að
slökkva í sér fyrr en í Káratjörn,
en þangað er dijúgur spölur frá
Bergþórshvoli.
Mýrlent mjög var í Landeyjum
í æsku minni og má ætla, að svo
hafi einnig verið á dögum Njáls,
víða tjarnir - einnig í túninu á
Bergþórshvoli - svo og keldur og
tjarnir umhverfis. Kem ég því
þessari tilgátu föður míns heitins
á framfæri.
Með þökk fyrir frábæran Njálu-
lestur Ingibjargar Haraldsdóttur
síðastliðinn vetur.
MARÍA SKAGAN,
Hátúni 12, Reykjavík.
Gagnasafn
Morgxuiblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
Stúdentastjaman hálsmen eða prjónn z Jön Sipunítaon
14 k gull Verðkr. 3.400 Laugaveg 5 - sími 13383.
Líttu betur út með
l\lo 7 snyrtivörum
Frá Attenborough Associates
Góð húð getur verið meðfædd
en þú þarft samt að hafa fyrir
henni nú á tímum. Þar sem
stress og mengun taka sinn toll
er mikilvægt að nota réttar
snyrtivörur. Þess vegna hefur
No 7 línan verið hönnuð fyrir
daglega og sérstaka umönnun
húðar sem inniheldur allt það
sem hún þarfnast, 24 tíma á dag,
sérhvern dag ársins. Það er
aldrei of seint að byija. Gerðu
að vana daglega umhirðu húðar.
No 7 umönnun tekur aðeins
nokkrar mínútur á dag, kostar
ekki milljón og dugar fyrir lífs-
tíð!
Dagleg umönnun húðar felst í
fljótvirkum hreinsi, andlits-
vatni, dag- og næturnæringu,
fyrir sérhverja húðgerð. Hvern-
ig húð ertu með, þurra, eðlilega
til þurra, blandaða eða feita? Þú
velur þér hreinsi, andlitsvatn og
næringu fyrir þína húð.
Sérstök umönnun er sérhönnuð
krem sem fullnægja og bæta á
augljósan hátt útlit og áferð húð-
ar. Línan inniheldur augnkrem,
varakrem, hrukkukrem, djúp-
næringarkrem, E-vítamínkrem,
hreinsi, næringarmaska o.fl.
Notfærðu þér þekkingu og sér-
stöðu Boots lyfjafyrirtækisins
sem hefur á rannsóknarstofum
sínum rannsakað og hannað
vörur fyrir húðina í yfir 60 ár.
Það gefur engin fölsk loforð um
eilífa æsku heldur bæta vörurn-
ar og næra þína húðgerð. Boots
gerir miklar kröfur um gæðaeft-
iriit enda er það lýfjafyrirtæki
svo þú ert í öruggum höndum
hjá Boots.
Njóttu þess að nota make up lín-
una frá No 7. Hún inniheldur
allt sem þarf fyrir fullkomna
förðun: mest nærandi meikin
sem gefa rétta áferð, púður, hylj-
ara og grænt krem sem hylur
rauða bletti, krem undir meik
sem yngir og festir meikið, og
fyrir augu; flauelsmjúka skugga
í öllum litum, augnskuggagrunn
með festi, kremaða blýanta og
allar gerðir af möskurum fyrir
Unnur Arngrímsdóttir
linsur, vatnshelda o.fl. Varalitir
í ótrúlegu litavali, varalita-
grunnur, varalitafestir, vara-
litablýantar og naglalökkin í stíl
við varalitina. Þú færð þetta allt
í No 7 og á réttu verði.
No 7 vörurnar uppfylla hæstu
gæðakröfur nútímakonunnar.
Unnur Arngrímsdóttir hefur
alltaf haft trú á góðri umhirðu
húðar. Unglegt útlit hennar og
falleg húð er sönnun þess að það
borgar sig að hugsa ætíð vel um
húðina. Unnur lifir annasömu
lífi og þarfnast því snyrtivara
sem virka fljótt og vel. Það sama
á viö um litaval hennar, hún
velur náttúrulega liti sem fegra
en breyta ekki útliti hennar og
krefst þess að förðunin endist.
Þess vegna velur hún No 7: „No
7 lætur mig líta út eins og ég
vil. Hreinsilínan og kremin
þeirra eru árangursrík og á
réttu verði. Litalína No 7 inni-
heldur alla nýjustu tækni.“
Unnur er föröuð með: Positive
Action næringarmeiki no 305,
glæru, lausu púðri, kinnalit no
470, augnskugga no 725, dökk-
brúnum Lashluxe næringar-
maska, varalit no 020. No 7 fæst
í apótekum og betri snyrtivöru-
verslunum.
Auglýsing
Það er skrítið til þess að hugsa að við landnám hafi
birkiskógar þakið þriðjung landsins.
■Skrítið en satt.
Núna er aðeins 1% landsins skógi vaxið og gróður-
magnið aðeins 1/3 hluti af því sem það var við upphaf landnáms.
Áratuga starfsemi Landgræðslusjóðs hefur sannað að með markvissum
aðgerðum er hægt að endurheimta og fegra landið okkar.
„Leggjum gull í lófa framtíðarinnar”
STEINGRÍMUR STEINÞÓRSSON, BÚNAÐARMÁLASTJÓRI, 1944. Við bæjarstjórnarkosningarnar 1994 munu sjálfboðaliðar, félagar í
skógræktarfélögum landsins, selja barmmerki Landgræðslusjóðs á öllum s
kjörstöðum landsins. 2
Kauptu merki. Við getum fegrað ísland fyrir framtíðina.