Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 52
jr
W*/ Regtubundinn
spamaður
Landsbanki
íslands
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTIIÓLF 3040 / AKUREYRI: UAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Borgarspítalinn
Sjúkra-
hótel til
að spara
HAFINN er undirbúningur
að sjúkrahóteli vestan við
Borgarspítalann og yrði það
tengt spítalabyggingunni
með göngum eða brú. Notk-
un slíkra sjúkrahótela í bein-
um tengslum við spítala fer
mjög vaxandi víða um heim.
Með því næst mikill spamað-
ur, þar sem sólarhringur á
slíku sjúkrahóteli kostar inn-
an við þriðjung miðað við
spítalarúmið.
Reynslan annars staðar
sýnir að slík sjúkrahótel verða
að vera á lóð sjúkrahúsanna
og tengd þeim með göngum
eða brú, annars eru sjúklingar
tregir til að fara úr öryggi
nálægðarinnar við spítalann
og læknar tregari til að flytja
sjúklinga af sjúkrahúsinu.
Styttri tími
á sjúkrahúsinu
Með nýrri tækni og breytt-
um viðhorfum í sjúkrahúsmál-
um geta margir sjúklingar leg-
ið mjög stutt í sjúkrahúsinu
sjálfu og miklu fleiri komast
til aðgerða og biðlistar stytt-
ast. Aðstandandi getur dvalið
á sjúkrahótelinu með sjúkl-
ingnum.
■ Framsýnt fólk/16
Morgunblaðið/Sverrir
Forsvarsmenn Ríkisspítala og Borgarspítala
að loknu sjö vikna verkfalli meinatækna
Sveppasýkingar
vegna tíðra
sundlaugaferða
„EG HEF þá tilfinningu eftir að hafa unnið að þessum lækningum á ís-
landi í nokkur ár að meira sé um sveppasýkingar á íslandi en í öðrum
löndum. Við höfum þá tilgátu, og rannsóknin mun væntanlega leiða í ljós
hvort hún er rétt, að tíðar sundlaugaferðir Islendinga spili þar mjög mik-
ið inn í,“ sagði dr. Bárður Sigurgeirsson, sérfræðingur í húð- og kynsjúk-
dómum. Rannsóknin sem hann talar um og hann og þrír aðrir læknar í
húðsjúkdómum eru að fara út í, er viðamesta faraldsfræðilega rannsókn
á sveppasýkingum í húð og nöglum sem gerð hefur verið í heiminum.
Bárður vonast eftir að rannsókn-
in leiði í ljós hveijir séu helstu
áhættuþættir sveppasjúkdóma, en
tilgáta læknanna er að tíðar sund-
laugaferðir hafi þar m.a. veruleg
áhrif. Bárður sagði að sér dytti þó
ekki hug að fara að vara fólk við
því að fara oft í sund. „Sundið ger-
ir svo margt gott fyrir líkamann
þannig að ég held að það dytti ekki
nokkrum heilvita manni í hug að
fara vara fólk við því að fara í sund.
En ef við finnum það út að sundið
sé sterkur áhættuþáttur þá held ég
að við gætum komið betri upplýs-
ingum til fólksins um hvernig það
á að haga sér í sundi, sérstaklega
hvernig þeir geti varnað því að
sveppir berist af gólfi í húð,“ sagði
Bárður.
Á síðasta ári kom á markað hér
á landi nýtt lyf, Lamisil, sem veitir
lækningu við sveppasjúkdómum í
húð og nöglum á tiltölulega stuttum
tíma. Þrátt fyrir að ekki sé nema
ár síðan notkun á Lamisil hófst eru
íslendingar þegar búnir að setja
heimsmet í notkun þess. Bárður
sagðist ekki telja að lyfið sé notað
í einhveiju óhófi hér á landi.
■ Forysta í rannsóknum/4
Samið um 6% launahækkun - launa-
munur milli meinatækna á höfuðborg-
arsvæðinu og úti á landi minnkar
FORSVARSMENN Ríkisspítala og Borgarspítala reikna ekki með að
breyta þurfi fyrri áætlunum um rekstur spítalanna í sumar þrátt fyrir
verkfall meinatækna, nú þegar verkfallinu er lokið. Félagsfundur meina-
tækna samþykkti samhljóða að fresta verkfalli á hádegi í gær, en at-
kvæðagreiðsla um samninginn verður í vikunni. Samningurinn felur í
sér um 6% launahækkun, mismikla eftir flokkum og mesta hækkun
hjá þeim sem voru á lægstu töxtum. Launabil milli meinatækna, sem
starfa á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi minnkar, m.a. við það að
meinatæknar eiga nú möguleika á að fá starfsheitið verkefnisstjóri.
Yfirlýsing frá ráðherra
Skrifað var undir samninga við
meinatækna á föstudagskvöld eftir
að samninganefndir deiluaðila höfðu
verið kallaðar saman. Það sem með-
al annars varð til að liðka fyrir samn-
ingum var yfirlýsing til meinatækna
frá Guðmundi Áma Stefánssyni heil-
brigðisráðherra um að meinatæknar
fengju aðild að nefnd sem á að end-
urskoða rekstur rannsóknastöðva
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva og
hugsanlega að koma á einhvers kon-
ar ábataskiptakerfi ef fyrirkomulag-
ið leiðir til aukinna afkasta og betri
reksturs.
„Ég hugsa að þetta hafí meðal
annars orðið til þess að deiluaðilar
gátu tekið með nýjum hætti á eldri
ágreiningsmálum og leyst deiluna,“
sagði Guðmundur Ámi.
Einn af ásteytingarsteinunum í
deilunni var meðal annars saman-
burður við kjör hjúkrunarfræðinga
á Ríkisspítölum og á Borgarspítala.
Tilboð ríkisins miðaði að því að
samræma kjarasamninga þessara
stétta en fastráðnir hjúkmnarfræð-
ingar fengu á síðasta ári nokkra
kjarabót gegnum ráðningarsamn-
inga og við það vildu meinatæknar
miða. Það töldu viðsemjendur þeirra
hins vegar geta haft víxlhækkanir
í för með sér, en kjarasamningar
hjúkrunarfræðinga em nú lausir.
Þá olli það einnig erfíðleikum hve
margir meinatæknar em með háan
starfsaldur. Sú samræming sem nú
hefur náðst fram þýðir að launa-
flokkahækkun getur tekið meina-
tækna mjög langan tíma.
Það er snú-
ið að reima
SANNARLEGA getur það vafist
fyrir frískum strákum að reima
skóna sína - svo mega þeir helst
ekki vera að slíku á fallegum
sumardegi þegar mikið er að
gera úti við. Með góðri aðstoð
mömmu lærist þessi list smám
saman og í leiðinni sakar ekki
að laga sokkana, sem gjarnan
gerast óstýrilátir í hamagangi
og hlaupum.
Davíð A. Gunn-
arsson forstjóri Rík-
isspítalanna sagði
að eftir helgina yrði
hafíst handa við að
koma ástandinu á
sLandspítala sem
fyrst í eðlilegt horf.
Hann sagðist ekki
gera ráð fyrir að
áætlunum um sum-
arlokanir yrði
breytt; ein af
ástæðum þess að
deildum á sjúkra-
húsum er gjaman
lokað á sumrin væri
að sjúklingamir á
biðlistum eftir að-
gerðum vildu heldur
fara í þær aðgerðir
á öðrum árstímum.
Þá væri mjög erfítt
að breyta skipu-
Jagningu sumar-
leyfa starfsfólks
með svo stuttum
fyrirvara.
Davíð sagði að
sums staðar hefðu
hlaðist upp rann-
sóknargögn vegna verkfallsins sem
tæki tíma að vinna úr. En öllum
inniliggjandi sjúklingum á spítölun-
um hefði verið sinnt og því biði
ekki mikið af sýnum vegna þeirra.
Morgunblaðið kemur næst út
miðvikudaginn 25. maí.
Morgunblaðið/Kristinn
Félagsfundur meinatækna samþykkti sam-
hljóða að fresta verkfalli.
Jóhannes Pálmason fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans
sagði að þar hefðu áætlanir fyrir
rekstur í sumar verið ákveðnar fyr-
ir alllöngu og þeim áætlunum hefði
ekki verið breytt. Ljóst væri að
ekki væri hægt að hafa fullan rekst-
ur yfir sumarið og því yrðu deilda-
lokanir með svipuðum hætti og
áður, bæði vegna þess að starfsfólk
og rekstrarfé skorti.
Gleymdu sér yfir
fegurðarkeppni
landi. Einnig kviknaði í hurð
uppþvottavélar í eldhusi nokkru
í bænum án þess að íbúar húss-
ins yrðu þess varir af sömu
ástæðu og áður er getið.
Hins vegar voru ekki allir jafn
uppteknir af nefndri keppni því
kveikt var í rusli við íþróttahús
Fram og tókst slökkviliðinu að
koma í veg fyrir að skemmdir
hlytust af.
ELDUR kviknaði í tveimur eld-
húsum á höfuðborgarsvæðinu á
föstudagskvöld án þess að íbú-
arnir yrðu þess strax varir vegna
þess að þeir voru að horfa á feg-
urðarsamkeppnina.
í öðru húsinu voru húsráðend-
ur að poppa og samkvæmt upp- ,
lýsingum frá slökkviliði gleymdu
þeir sér yfír sjónvarpinu meðan
sent var út frá keppni um feg-
urstu konu íslands frá Hótel Is-
Ekkí breyting á
rekstri í sumar