Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjóvá-AImennar
Seldu bréf
í Stöð 2
SJÓVÁ-Almennar og Skúli Þor-
valdsson hafa selt hlutabréf sín
í íslenska útvarpsfélaginu en
greint var frá því í Morgunblað-
inu í gær að 4% heildarhlutafjár
félagsins að nafnvirði 22 milljón-
ir hefðu skipt um eigendur. Þar
af seldi Sjóvá-Almennar 1,7%.
Einar Sveinsson fram-
kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra
sagði að fyrirtækið hefði selt
hlutabréf að nafnvirði rúmar níu
milljónir kr. Voru bréfin keypt á
genginu 2,80 og er markaðsvirði
þeirra því rúmar 25 milljónir
króna. Skúli Þorvaldsson stað-
festi sölu sinna hlutabréfa en
vildi ekki gefa upp nafnvirði
þeirra.
Ný byggð í Arnarneslandi í Garðabæ
Hugmynd að byggt verði
úr ódýru íslensku efni
BÆJARSTJORN Garða-
bæjar. hefur samþykkt til-
lögu um að fela skipu-
lagsnefnd að kanna
möguleika á því að á fyr-
irhuguðu byggingasvæði
í Arnameslandi verði
mögulegt að úthluta
ákveðnum hluta lóðanna
til einstaklinga eða verk-
taka til að byggja, eins
og kostur er, úr ódýrum íslenskum
byggingarefnum.
„Eg hef þá trú að í íslenskum
hugvitsmönnum búi það afl að
þeir geti teiknað og lagt
fram hugmyndir sem
miðast við íslenskar að-
stæður,“ sagði Laufey
Jóhannsdóttir bæjarfuil-
trúi Sjálfstæðisflokksins
og flutningsmaður tillög-
unnar. „Við eigum að
styðja við íslenska hönn-
uði, íslenska framleiðslu
og stuðla með því að
auknum atvinnutækifærum. Hug-
myndin er að fá ódýrt húsnæði
og ekki of stórt fyrir ungt fólk í
Garðabæ.“
Samkeppni arkitekta
Sagði hún að nánari útfærsla
lægi ekki fyrir enda væri til-
gangurinn að kalla fram hugmynd-
ir íslenskra arkitekta um þetta.
Líklega væri engin leið betri en
einhverskonar samkeppni. íslensk
framleiðslufyrirtæki ættu með
þessu að eiga aukna möguleika á
að koma afurðum sínum á markað.
í stuttu máli sagði Laufey að
tilgangurinn væri íslenskt, ódýrt,
atvinnutækifærin inn í landið og
húsnæði fyrir ungt fólk.
Rússnesk-
ar listflug-
vélar betri
BJÖRN Thoroddsen flugmaður
tók einn hring yfir Reykjavík síð-
astliðinn föstudag á vélinni Yak
55 sem hann festi kaup á nýverið.
Vélin er rússnesk, árgerð 1987,
hefur þriggja tíma flugþol, er í
fánalitunum og með rauða stjörnu
á stélinu. Björn ætlar að nota
vélina til listflugs, segist aðspurð-
ur ekki endilega ætla að sýna
nýjar kúnstir á henni, vélin sýni
sig sjálf, hafi mjög sérstakt vélar-
hljóð og óvenjulega lögun.
„Ferðin var mjög skemmtileg.
I þessari vél er mjög mikill kraft-
ur, maður finnur meira fyrir hon-
um en í öðrum vélum. Hún er
mjög rússnesk, víðáttumikil og
stór, dálítið gríðarleg. Þannig eru
áhrifin, nákvæmlega eins og i
tónlistinni þeirra og fleiru."
Aðspurður af hveiju hann hafi
keypt rússneska listflugvél segir
Björn að þær séu einfaldlega
miklu betri. Áður var vélin í Búda-
pest og hafði að sögn aðeins ver-
ið flogið 10 tíma. Fékk Björn vitn-
eskju um hana hjá tveimur Rúss-
um, strangheiðarlegum að hans
sögn, sem hingað komu á Ant-
onov-tvíþekju í fyrra og keypti
af þeim rétt fyrir jól.
Vika er síðan vélin kom til
landsins en ekki gekk það þrauta-
laust, segir Björn. Tók það fjóra
mánuði. „Vélin var á gamla flug-
vellinum fyrir utan Búdapest, sem
er reyndar stórt tún og ekki
fékkst leyfi til flugtaks þegar til
stóð vegna snjóa. En Rússarnir
eru úrræðagóðir og þeir hugsuðu
sem svo að fyrst ekki mætti hefja
til flugs á vellinum, hlyti að vera
í lagi að gera það utan brautarinn-
ar, í sköflunum, svo ég gerði það
Morgunblaðið/RAX
bara," segir Björn. Þaðan lá leiðin
á nýja alþjóðavöllinn og til Vínar.
Spáin var slæm, snjór og skaf-
renningur, svo Björn tók stefnuna
í norður og flaug sem leið lá eft-
ir Dóná alla leið til Vínar. „Þar
lenti ég í snjókomu og yfirheyrslu
hjá lögreglunni, sennilega vegna
rauðu stjörnunnar á stélinu. Ekki
greiddist úr þeirri flækju fyrr en
ég dró upp Flugleiðaskírteinið,
sagðist hafa flogið til Vínar marg-
oft og gjörþekkja allar aðstæður.
Spruttu þeir þá á fætur, skelltu
aftur bókunum og þökkuðu fyrir
komuna,“ segir hann.
„Eg kom aftur til Vínar mánuði
seinna og komst á vélinni til
Þýskalands, þar þurfti ég að bíða
vegna þoku. Gafst svo upp á bið-
inni og fór aftur heim. Nokkru
seinna komst ég til Lúxemborgar.
Þar voru vængirnir teknir af vél-
inni, hún keyrð til Rotterdam
þaðan sem hún komst með skipi
til landsins."
Skaðabótamál fyrir Héraðsdómi
Missti fót og krefst
21 milljónar vegna
rangrar meðferðar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur kveður á næstunni upp dóm í máli 34 ára
gamals manns sem krefur tvo lækna og ríkissjóð um 21 milljónar króna
bætur með vöxtum frá 1989 vegna líkamstjóns sem hann telur sig hafa
orðið fyrir vegna óeðlilegar læknismeðferðar sem leiddi til þess að drátt-
ur varð á að greina krabbamein í fæti hans með þeim afleiðingum að
taka varð fótinn af fyrir ofan hné, en af hálfu mannsins er því haldið
fram að yfirgnæfandi líkur séu á að bjarga hefði mátt fætinum ef eðlileg-
um læknisaðgerðum hefði verið beitt. Varanleg örorka mannsins er met-
in 65%. Læknarnir og ríkissjóður hafa vísað mistökum og skaðabóta-
skyldu á bug og var málið flutt og dómtekið í Héraðsdómi í síðustu viku.
í stefnu Gísla Baldurs Garðars-
sonar hrl, lögmanns mannsins, seg-
ir að maðurinn hafi leitað til læknis
í árslok 1986 vegna meins sem
hann hafði kennt sér í fæti og hafði
tvívegis gengist undir skurðaðgerð
vegna þess. Maðurinn var sendur í
geislameðferð og nudd sem kom
ekki í veg fyrir að ástand hans
versnaði en sýni sem ítrekað voru
tekin úr og skoðanir sem margsinn-
is voru gerðar á fætinum leiddu
. ekki í ljós að um illkynja æxli væri
að ræða. Í stefnunni segir að við
fímmtu rannsókn sem gerð var á
fætinum eftir að skurðaðgerð hafði
reynst árangurslaus hafi einnig ver-
ið látið hjá líða að kanna hvort um
illkynja æxli gæti verið að ræða og
sýni sem tekin hafi verið í fram-
haldi af því hafi ekki verið send til
efnagreiningar.
í lok árs 1988 leitaði maðurinn
til annars læknis sem skar hann
upp í skyndi, að því er segir í stefn-
unni, og þá fyrst hafi komið í ljós
að um illkynja æxlí væri að ræða.
Ekki tókst að fjarlægja æxlið og
var að nýju gerð aðgerð sem lauk
með því að fóturinn var tekinn af
manninum 10 sm ofan við hné í
apríl 1989.
Málshöfðun mannsins byggist á
því að bæklunarlæknir og röntgen-
læknir hafí báðir tekið rangar
ákvarðanir um meðferð mannsins
og er því haldið fram að hefði sjúk-
dómur hans greinst fyrr hefði mátt
fjarlægja æxlið án þess að taka
fótinn af.
Meðal sönnunargagna sem lög-
maður mannsins hefur lagt fram
er álit dómkvaddra matsmanna þar
sem kemur m.a. fram það álit að
réttum rannsóknaraðferðum hafi
ekki verið beitt til að staðsetja
æxlið nákvæmlega og ekki gerð
tilraun til að greina um hvers konar
æxli var að ræða áður en það var
tekið og að ekki sé óhugsandi að
komast hefði mátt hjá aflimun held-
ur hefði nægt að fjarlægja vöðva,
hefði æxlið réttilega verið greint
tveimur árum fyrr en raun varð á.
Þannig hefði örorka mannsins orðið
um 35% í stað 65%.
Reykjavík
Atvinnulausum
fækkaum 18%
ATVINNULAUSUM á skrá í
Reykjavík hefur fækkað um 648
síðan í mars, eða 18%. Um þess-
ar mundir eru 2.960 skráðir at-
vinnulausir, það er 1.340 karl-
menn og 1.620 konur, að sögn
Oddrúnar Kristjánsdóttur fram-
kvæmdastjóra Vinnumiðlunar
Reykjavíkurborgar. Segir
Oddrún að ennþá sé verið að ráða
í átaksverkefni á vegum borgar-
innar, en þau standa jafnan yfir
í 8-16 vikur. Er búið að ráða 400
manns nú þegar. Einnig er gert
ráð fyrir að 5.500 til 5.800 skóla-
nemar fái vinnu hjá borginni í
sumar og segir Oddrún að borg-
arráð hafi tekið ákvörðun að út-
vega vinnu fyrir allan hópinn.
Um er að ræða 14-15 ára ungl-
inga, og ungmenni á aldrinum
16-25. Munu þau sinna allra
handa verkefnum, til dæmis
garðvinnu, og afleysingum hjá
stofnunum og fyrirtækjum á veg-
um borgarinnar.
Auka vinnsluvirði og
fækka milliliðum
►Rætt við Lúðvík Börk Jónsson,
framkvæmdastjóra Icelandic
France, dótturfyrirtækis Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í Par-
ís./lO
Eitt ríki - tvelr ólíkir
heimar
►Borgarastyijöldin í Jemen getur
kynt undir átökum í Arabaríkjun-
um./12
Framsýntfólk
►Fyrirhugað sjúkrahótel vestan
við Borgarspítalann og tengt hon-
um er verkefni sem rekstrarhag-
fræðingamir Helga María Braga-
dóttir og Jónas Bjarnason er að
vinna að, en það mun geta sparað
stórupphæðir í rekstri spítal-
ans./16
Veðjað á gamla
miðbæinn
►Sævar Karl Ólason, einn af
frumheijunum í Kringlunni, hefur
ákveðið að hætta verslunarrekstri
þar og ætlar að veðja öllu sínu á
gamla miðbæinn./20
Listveisla í Osló
►Bragi Ásgeirsson skrifar um
myndlist./22
B
► 1-32
Stríðinn harðjaxl
►Þorbjörn Jensson stýrði ungu
Valsliði til íslandsmeistaratignar í
handknattleik um síðustu helgi og
lýktu sumir þeim árangri við hálf-
gerða galdra./l
Innan veggja kvik-
myndaveranna
►Horft um öxl og fram á við í
heimi kvikmyndanna./8
Viðey í kaþólskum sið
►Um 20 þúsund gestir heimsækja
Viðey á ári hveiju. Það er í byijun
vors sem þeir fara að koma og
straumur þeirra er óslitinn fram-
undirjól./lO
Árið hennar Bjarkar
►Árið sem liðið er frá því Debut
kom út hefur verið sannkallað
„annus mirabilis“ fyrir Björk Guð-
mundsdóttur, sem sagðist hafa
gengið með plötuna í sextán ár./14
Kraftaverk vorsins
►Kraftaverk vorsins er óvíða jafn
afgerandi og í hijóstugum fugla-
björgum, eins og glöggt má sjá á
ljósmyndum Ragnars Axelssonar.
/16
BÍLAR____________
► l-4
Fornbílasýning I Höll-
inni
►77 glæsigripir, þ.á.m. Cord,
Packard, Buick og Hupmobile. /2
Reynsluakstur
►Opel Astra, vel búinn bíll á
lægraverði. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Leiðari
Helgispjall
Reykjavfkurbr
Minningar
Myndasögur
Brids
Stjömuspá
Skák
Bréf til blaðsir
Velvakandi
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
>ak Fólk (fréttum 42
26 Bíó/dans 43
26 Íþróttir 46
26 Útvarp/sjónvarp 48
30 Dagbók/veður 51
38 Gárur 6b
38 Mannlífsstr. 6b
38 Kvikmyndir 12b
38 Dægurtónlist 13b
38 40 Samsafnið 30b