Morgunblaðið - 22.05.1994, Page 40
40 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Framhaldsskólinn á Laugum
er 120 nemenda heimavistarskóli á fögrum og friðsælum stað.
Reglulegar áætlunarferðir eru til og frá Akureyri (60 km) og 40 km
akstur er til Húsavíkur.
Góð aðstaða er til náms og tómstundastarfa: íþróttahús, sundlaug,
gufubað, þreksalur og Ijósabekkir. Gott tölvuver og bókasafn er í
skólanum. Aðstoð er veitt við heimanám. Algert áfengis- og vímu-
efnabann.
Á Laugum er öll almenn þjónusta svo sem banki, pósthús, verslun,
bókabúð og heilsugæsla. Einnig er tónlistarskóli á Laugum.
Námsframboð:
Almennt bóknám
íþróttabraut
Ferðamálabraut
10. bekkur
Umsóknarfrestur rennur út 3. júní.
FRAMHALDSSKÓLINN
LAUGUM
650Laugar, sími 96-43120
I DAG
BRIPS
U m s j ó n G ii ö m . P á 11
Arnarson
Það er enginn á hættu
og austur opnar á einu
15-17 punkta grandi og
suður velur að dobla með
þessi spil á eftir:
Norður
♦ Á7
V KDG75
♦ 73
♦ ÁG75
Austur
II;
♦
Suður
4
V
♦
♦
Vestur passar og austur
veitir viðvörun - segir pass-
ið kröfu sem biðji um
redobl. (Vestur hyggst þá
annað hvort passa með góð
spil eða flýja með veik.)
Norður passar, en í stað
þess að redobla segir austur
tvo tígla. Suður ákveður að
passa, það gerir vestur
einnig, en norður doblar. A
suður að sitja eða segja
tvö hjörtu?
Er doblið sekt, úttekt,
eða eitthvað mitt á miili?
Þetta er loðin staða, sem
fæst pör hafa rætt í smáatr-
iðum. Flestir spilarar
myndu þó skilja doblið sem
refsingu, eða a.m.k. tilboð
þar að lútandi. Pass er því
greinilega röklega valkost-
ur. En nú ber að segja sög-
una alla. Áður en norður
doblaði tvo tígla, hugsaði
hann sig lengi um og spurði
mikið út í sagnir andstæð-
inganna. Passið er ekki
lengur eins freistandi, ekki
satt:
Norður
♦ KDG105
V 1093
♦ D86
♦ 106
Vestur Austur
♦ 832 ♦ 964
f 862 llllll *Á4
♦ K52 111111 ♦ AG1094
♦ 9754 ♦ KD2
Suður
♦ Á7
V KDG75
♦ 73
♦ ÁG83
Spilið er frá bandarísku
svæðamóti. Suður ákvað að
taka út í tvö hjörtu og norð-
ur teymdi hann þá upp í
fjögur, sem suður fékk að
vinna. Út kom tígull og
austur átti slaginn á níuna.
En í stað þess að taka tígul-
ás, skipti hann strax yfír í
laufkóng. Sagnhafi drap,
spilaði þrisvar spaða og
henti niður tígli. Spilaði svo
laufi og var öruggur með
10 slagi.
AV kvöddu til keppnis-
stjóra og vildu bætur, töldu
suður ekki mega segja tvö
hjörtu eftir umhugsun norð-
urs. Málið kom til kasta
dómnefndar og hún úr-
skurðaði þannig: Skor NS
skal breytt í +100 fyrir
vöm í tveimur tíglum dobl-
uðum, einn niður. Það er
refsing sem suður fær fyrir
að nýta sér óheimilar upp-
lýsingar sem umhugsun
norðurs gaf honum. Hins
vegar sleppa AV ekki svo
ódýrt. Austur gaf augljós-
lega fjögur hjörtu í vörn-
inni. Það var handvömm að
taka ekki á tígulásinn. Skor
AV var því látin halda sér,
þ.e. -420 fyrir vörn í fjórum
hjörtum.
í þessum dómi felst sá
boðskapur að það sé ekki
sjálfkrafa trygging fyrir
góðri skor að andstæðing-
arnir gerist brotlegir. Menn
verða líka að taka afleiðing-
um af eigin mistökum.
Vestur
4
¥
♦
♦
Þau styrktu Rauða
kross Islands
ÞESSIR krakkar héldu nýlega hlutaveltu til
styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóð-
mn 2.006 krónur. Þau heita talið frá vinstri;
Ásdis Egilsdóttir, Eva Finnbogadóttir, Hanna
Lóa Skúladóttir og fyrir framan þær er Al-
bert Finnbogason.
Pennavinir
BANDARÍSKUR háskóia-
nemi með mikinn áhuga á
tónlist Bjarkar og Sykur-
molanna:
Mark Blair,
1414 Arena Drive 205,
Austin,
Texas 78741,
U.S.A.
ÁTJÁN ára Gambíupiltur
með margvísleg áhugamál:
Alpha Khan,
Bottrop Technical
High School,
Brikama Town,
Kombo Central,
Western Division,
Gambia.
TUTTUGU og tveggja ára
Ghanastúlka með áhuga á
söng, dansi, póstkortum,
íþróttum og bréfaskriftum:
Ivy Anang,
c/o Samuel Adigbli,
Box 50,
Anfoega - V/R,
Ghana.
FRÁ Ghana skrifar 24 ára
stúlka með áhuga á körfu-
knattleik, hjólreiðum og
kvikmyndum:
Patricia Hagan,
Oyster Str.,
P.O. Box 146,
Elmira,
Ghana.
FJÓRTÁN ára þýskur piltur
með áhuga á íþróttum, tón-
list og kanósiglingum:
Sebastian Schneider,
Berliner Strasse 38,
33034 Brakel,
Germany.
VORTÓNLEIKAR DRENGJAKÓRS
LAUGARNESKIRKJU VERÐA HALDNIR í
LAUGARNESKIRKJU ÞRIÐJUDAGINN 24. MAI KL.
20.00
A efnisskrá eru m.a. verk sem kórinn flutti á kóramóti í
Bandaríkjunum nýverið þar sem hann vann til verðlauna.
Tvísöngur: Olafur F. Magnusson/Hrafn Davíðsson
°g
Jóhann Ari Lárusson / Laufey Geirlaugsdóttir
sópran.
Undirleikur: Davíð Knowles Játvarðsson píanó.
Miðaverð er kr. 500.- fyrir fullorna,
200.- lyrir börn.
Stjórnandi: Ronaid Vilhjálmur Turner
Víkveiji skrifar...
að er máski að bera í bakkafull-
an lækinn að fjasa dulítið um
lýðveldisárið, 1944, á þessu fimmtíu
ára afmælisári íslenzka lýðveldis-
ins. En það gerðist sitt hvað fleira
þetta ár en lýveldisstofnun og kjör
fyrsta forsetans, Sveins Bjömsson-
ar, þótt þetta tvennt risi að sjálf-
sögðu hæst.
Það hefur margt breytzt í lýð-
veldistímans rás. Það er máski ekki
út í hött að rifja það upp fyrir þeim,
sem ekki muna þessa tíma, að það
geisaði heimsstyijöld á árunum
næstum á undan lýðveldisárinu.
Árið 1943 gerði þýzk orustuflug-
vél, svo dæmi sé tekið, árás á
strandferðaskipið Súðina, er hún
var á siglingu utarlega á Skjálf-
andaflóa á leið til Akureyrar. Af-
leiðing árásarinnar varð sú, að tveir
menn létust af sárum, tveir aðrir
særðust hættulega og nokkrir
minna. Þetta sama ár skaut varð-
skipið Ægir á brezkan togara, sem
ætlaði að stijúka til Englands með
stýrimanninn af varðskipinu Sæ-
björgu.
Aðstæður allar voru því með öðr-
um og dapurlegri svip en nú í dag,
þótt fáfróðir tali hver sem betur
getur um „hina síðustu og verstu
tíma“.
xxx
að voru skin og skúrir í þjóðlíf-
inu 1944 sem á öðrum tímum.
Hér verður fyrst staldrað við nokkra
hryggilega atburði:
Fimm bátar fórust í ofsaverði.
Fimmtán sjómenn fórust með þeim.
Þýzkur kafbátur sökkti Goðafossi á
Faxaflóa. Milli 20 og 30 manns létu
lífið. Hótel ísland brann til kaldra
kola. Einn maður brann inni. Lax-
foss strandaði í blindbyl við Örfiris-
ey. 80 manns voru um borð og
tókst, sem betur fer, að bjarga þeim
öllum. Ölfusárbrú féll niður, þegar
nyrðri aðalstrengur hennar slitnaði.
Tveir vörubílar voru á brúnni, er
stengurinn slitnaði, og féllu þeir í
ána. Bílstjórarnir björguðust naum-
lega.
xxx
að gerðist og sitt hvað jákvætt
þetta árið:
Ólafur Thors, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, myndaði nýsköp-
unarstjórnina, sem varð ein roesta
framkvæmdastjórn í sögu þjóðar-
innar. Halldór Laxness gaf út „Hið
ljósa man“, Snorri Hjartarson
„Kvæði“ og ðlafur Jóhann Sigurðs-
son „Fjallið og drauminn", Leikfé-
lag Reykjavíkur og Tónlistarfélagið
sýndu „Pétur Gaut“ Ibsens og
Björgvin Guðmundsson tónskáld
lauk miklu tónlistaverki, „Friður á
jörðu“, við söngtexta Guðmundar
Guðmundssonar. Gefið var út rit-
safn Einars H. Kvarans í sex bind-
um. Frumsýnt var í Iðnó fyrsta
óperettan, samin hér á landi, „Í
álögum“. Sigurður Þórðarson
samdi lögin og Dagfinnur Svein-
björnsson textana. Húsmæðra-
kennaraskóli. íslands útskrifaði
fyrstu húsmæðrakennarana. Hafin
var bygging vinnuheimils berkla-
sjúklinga að Reykjum.
xxx
Já, margt hefur breytzt frá lýð-
veldisárinu, ekki sízt í Reykja-
vík. Þá voru íbúar höfuðborgarinn-
ar rúmlega 44 þúsund. Nú eru
þeir helmingi fleiri, reyndar gott
betur, eða tæplega 102.000. Borgin
hefur verið eins og segull, sem
dregið hefur til sín fólk hvarvetna
af landinu. Þeir sem litið hafa vöxt
höfuðborgarinnar hornauga hafa
jafnvel talað um byggðaröskun og
að landið væri að sporðreisast!
Landsmenn hafa í vissum skiln-
ingi greitt atkvæði um höfuðborg-
ina í þeirri byggðaþróun, sem orðið
hefur; í þessum mikla vexti Reykja-
víkur, sem við blasir. Veruleikinn
talar hér skýru máli, sem ekki verð-
ur með rökum á móti mælt.
Víkverji dagsins hefur aldrei
verið sáttur við málsháttinn „eng-
inn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur“. Hyggnir menn halda
í það sem vel hefur reynzt.