Morgunblaðið - 22.05.1994, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Breytingar
KR
Komnin
Hilmar Bjömsson, FH Jim Bett,
Aberdeen, Kristján Finnbogason, ÍA,
Salih Heimir Porca, Fylki, Siguröur
B. Jónsson frá Þýskalandi, Tryggvi
Guðmundsson, ÍBV.
Farnin
Atli Eðvaldsson, HK, Bjarki Péturs-
son, ÍA, Gunnar Skúlason, Gróttu,
Ottó Kari Ottósson, Stjömuna, Ólafur
Gottskálksson, ÍBK, Ragnar Mar-
geirsson, ÍBK, Steinar Ingimundar-
son, Fjölni.
ÍA
Komnin
Bjarki Pétursson, KR, Kari Þórðarson,
tók skóna fram á ný, Zoran Miljkovic,
FK Zemum.
Farnir:
Brandur Siguijónsson, Fylki, Kristján
Finnbogason, KR, Lúkas Kostic,
Grindavík, Sigurður Sigursteihsson,
Grindavík, Þórður Guðjónsson, Boch-
um.
FH
Komnin
Atli Einarsson, Fram, Drazen Pod-
unavac, OFK Belgrad, Jón Þ. Sveins-
son, Fram, Róbert Magnússon, KR.
Famir:
Andri Marteinsson, Lyn, Davið Garð-
arsson, Val, Hilmar Bjömsson, KR.
ÍBK
Komnin
Einar Ólafsson, Grindavík, ólafur
Gottskálksson, KR, Ragnar Margeirs-
aon, KR.
Famir:
Eysteinn Hauksson, Hött, Ingvar
Guðmundsson, hættur, Ólafur Péturs-
son, Þór
Valur
Komnir:
Atli Helgason, Víkingi, Davíð Garð-
arsson, FH, Einar Örn Birgisson, Vík-
ingi, Guðmundur P. Gíslason, Fram,
Guðni Bergsson, Tottenham, Heiðar
Öm Ómarsson, IR, Kristján Halldórs-
son, ÍR, Lárus Sigurðsson, Þór.
Famir:
Anthony Karl Gregory, Bodö/Glimt,
Amljótur Daviðsson, hættur, Bjami
Sigurðsson, Brann, Sævar Jónsson,
hættur.
Stjarnan
Komnir:
t Baldur Bjamason, Fylki, Goran Micic,
Þrótti Nes., Guðmundur Hreiðarsson,
Víkingi, Hermann Arason, Hvöt, Ing-
ólfur Ingólfason, Fram, Ottó K. Ottós-
son, KR, Valdimar Kristófersson,
Fram, Valgeir Baldursson, Hvöt.
Famir:
Ámi Freysteinsson, Fjölni, Friðrik
Sæbjömsson, ÍBV, Haukur Pálmason,
Fram, Kalusha Irakli, Georgíu, Magn-
ús Gylfason, Víking Ól., Paikidze
Davit, til Georgíu.
Fram
Komnir:
Anton Bjöm Markússon, iBV, Amar
Amarson, Vikingi, Guðmundur
Steinsson, Víkingi, Haukur Pálmason,
Stjömunni, Hólmsteinn Jónasson,
Víkingi, Kristinn Hafliðason, Vikingi,
Pétur Marteinsson, Leiftri, Sigurþór
Þórarinsson, Reyni S., Vilhjálmur Vil-
( hjálmsson, Þrótti R.
Famir:
Atli Einarsson, FH, Guðmundur P.
Gislason, Val, Ingólfur Ingólfsson,
Stjömuna, Jón SveinSson, FH, Krist-
inn R. Jónsson, Hauka, Kristján Jóns-
son, Bodö/Glimt, Pétur Amþórsson,
Leikni R„ Rúnar Sigmundsson,
Sogndal, Sigurgeir Krisjánsson, Vík-
ing, Sævar Guðtjónsson, Þrótt R.,
Valdimar Kristófersson, Stjömuna.
Þór
Komnin
Bjami Sveinbjörnsson, ÍBV, Dragan
Vitorovic, Zemun, Guðmundur Bene-
diktsson, Ekeren, Hreinn Hringsson,
Magna, Ormarr öriygsson, KA, Ólaf-
ur Pétureson, ÍBK.
Farnir:
Axel Gunnarsson, KA, Ásmundur
Amareson, Völsung, Gísli T. Gunnars-
son, Hvöt, Lárus Sigurðsson, Val,
Richard Laughton, til Englands,
Sveinbjöm Hákonarson, Þrótt N„
Sverrir Ragnarsson, KA.
Breiðablik
Komnin
Einar Páll Tómasson, Degerfors, Guð-
mundur Guðmundsson, Víkingi, Gú-
staf Ómarsson, Leiftri, Ivar Jónsson,
HK, Raspislav Lazorik, ÍFC Kosice,
Tryggvi Valswn, Val FamÍR
Ásgeir Baldurz, Völsung, Ingvaldur
Gústafsson, HK, Þorsteinn Geirsson,
hættur.
ÍBV
Komnin
Dragan Manojlovic, Þrótti R„ Friðrik
Sæbjömsson, Stjömunni, Heimir
Hallgrímsson, Hetti, Sumarliði Áma-
son, Aftureldingu, Zoran Ljubicic,
HK, Þórir Ólafsson, Vastcrás
Famir:
Anton B. Markússon, Fram, Bjami
Sveinbjömsson, Þór, Ingi Sigurðsson,
Grindavík, Sindri Grétarsson, BÍ,
Tryggvi Guðmundsson, KR.
Barátta sem nær öll
lið geta blandað sér í
KEPPNI í 1. deiid karlaáís-
landsmótinu í knattspyrnu
hefst á morgun, annan í hvíta-
sunnu, en þá verður leikin heil
umferð. Leikmenn og þjálfarar
liðanna ailra eiga von á jöfnu
og spennandi móti. Flestir bú-
ast við því að baráttan um titil-
inn standi á milli íslandsmeist-
ara ÍA og KR, en eitt eða tvö
lið geti blandað sér í þá bar-
áttu. í samtölum við þjálfara
liðanna í 1. deild voru nöfn nær
allra félaganna nefnd í því sam-
bandi og það eitt og sér gef ur
góð fyrirheit fyrir sumarið.
Arleg Spá þjálfara og fyrirliða
fyrstu deildar liða var gerð
síðastliðinn fimmtudag. KR-ingum
var spáð sigri á
mótinu, fengu 283
Brífsson stig í könnuninni, en
skrifar nuverandi Islands-
meistarar, Skaga-
menn, komu næstir, með 273 stig.
Síðan komu í þessari röð lið FH,
ÍBK, Vals, Stjömunnar, Fram_ og
Þórs, en lið Breiðabliks og ÍBV
vermdu botnsætin tvö.
Nýr hópur - nýjar áherslur
„Ég tek þessa spá ekki alvarlega
frekar en endranær. Það er auðvit-
að mjög margt sem bendir til þess
að ÍA og KR verði í toppbarátt-
unni, en það hefur alltaf komið upp
eitthvað óvænt og það gerist núna,“
sagði Guðjón Þórðarsson þjálfari
KR, en eins og flestum er kunnugt
hefur hann þjálfað lið Skagamanna
sl. ár með góðum árangri. Guðjón
sagði að margir væru kallaðir en
fáir útvaldir þegar að toppbarátt-
unni kæmi. „Tvö, þrjú lið til viðbót-
ar KR og ÍA eiga góða möguleika
á því að standa sig vel. Keflavík,
Þór og FH eru með góð lið og aldr-
ei má afskrifa lið eins og Val. Marg-
ir tala um að Stjarnan sé líklegur
kandítat sem undraliðið, en það er
aldrei að vita hvað gerist." Guðjón
sagði að línur myndu skýrast fljót-
lega í deildinni. „Venjan er sú að
þegar þriðjungur er búinn af mót-
inu, sex umferðir, þá er Hnan kom-
in.“
Mörgum leikur forvitni á að vita
hvort Guðjón tekur hlutina öðrum
tökum hjá KR en hann gerði með
ÍA. „í þjálfuninni sem og flestu
öðru verða menn að vinna og haga
sér í samræmi við þann mannskap
sem maður hefur. Hópurinn hjá KR
er svolítið öðruvísi en hópurinn hjá
ÍA, og útfrá því verður maður að
vinna. En ég vinn alltaf út frá
ákveðnum grunnhugmyndum
hvaða lið sem ég er að þjálfa."
Aðspurður sagðist Guðjón ekki geta
dæmt það vel hvort KR-hópurinn
nú væri sterkari en í fyrra. „Það
eru allir heilir ennþá, sjö, níu, þrett-
án, og að því leyti er hann sterkur.
Hópurinn er jafn og góður sem
hefur mikið að segja þegar út í jafn
erfíða baráttu er komið og bíður
okkar núna. Ég á von á jöfnu móti,
mun jafnara en menn hafa upplifað
í langan tíma.“
Reyni að byggja á því sem vel
hefur gengið
„Markmiðið er auðvitað að vera
í toppbaráttunni en svo verðum við
að sjá til hvernig það endar þegar
upp verður staðið,“ sagði Hörður
Helgason þjálfari íslandsmeistara
Skagamanna. „Það hafa orðið tölu-
verðar breytingar á liðinu frá því í
fyrra, við missum kjölfestuna úr
vörninni, markakónginn og erum
komnir með nýjan markmann. Þetta
hefur gengið alveg þokkalega í vor,
við unnum Litla bikarinn og leikinn
í meistarakeppninni, en þetta eru
leikir sem telja ekki neitt í sumar.“
Aðspurður sagði Hörður að hann
reyndi auðvitað að byggja á því sem
gekk vel síðastliðin sumur, en það
þyrfti að fylla í þau göt sem"hefðu
myndast. „Meðan það gengur verða
engar breytingar, en fari það eitt-
hvað að hiksta verður einhver upp-
stokkun. Við reynum að sækja
grimmt þegar við höfum boltann
og hafa sem flesta með í sókninni,
reynum að hafa þetta skemmtilegt
og skora mörk.“
Hörður sagðist eiga von á því
að fleiri lið en ÍA og KR myndu
blanda sér í baráttuna á toppnum.
„Ég hef trú á því að Valur, Stjarn-
an og Keflavík, Þór jafnvel og að
ógleymdum FH-ingum, geti bland-
að sér í þessa baráttu. Það er hins
vegar alveg ljóst að þetta mót verð-
ur mjög jafnt og skemmtilegt.“
Komum ekki lengur á óvart
„í fyrra var okkur spáð sjöunda
sæti en núna því þriðja, með mjög
svipaðan mannskap," sagði Hörður
Hilmarsson þjálfari FH. „Við höfum
með gengi liðsins nú á vormánuðum
og í fyrra.“
Munum leggja okkur alla fram
Ian Ross tók við þjálfun ÍBK
fyrir þetta tímabil, en hann er ekki
ókunnur íslenskri knattspymu, hef-
ur bæði þjálfað lið Vals og KR. „Ég
á ekki kristalskúlu og veit því ekki
hvar við endum í haust, en við
munum leggja okkur alla fram og
gera þetta eins erfitt og mögulegt
er fyrir hin liðin. Það var frábær
árangur hjá liðinu að ná þriðja sæti
í fyrra, ég hef skoðað upptökur og
úrslit leikjanna í fyrra og sá að
þeir skoruðu mörg mörk, en fengu
líka mörg mörk á sig. Aðalmarkm-
iðið verður því að fækka þeim mörk-
um sem við fáum á okkur og halda
áfram að skora. Ég hef ekki sett
stefnuna á neitt sérstakt sæti en
viljum auðvitað vera í toppbarátt-
unni. Umfram allt viljum við leggja
okkur alla fram og gera eins vel
og við getum. Og ef við vinnum vel
þá er aldrei að vita hvar við endum.
Það verður erfitt að vera í toppbar-
una, og það verða einhver lið í svip-
uðum sporum þetta sumarið. Ég
hef fullan hug á því að verða á
meðal þeirra, enda hef ég ekki leyfi
til að vera með vangaveltur um
neitt annað. Valsmenn vilja vera í
toppbaráttunni, það er hlutur sem
er skráður nánast sem lög uppi á
Hlíðarenda."
Valsmenn drógu lið sitt út úr
Reykjavíkurmótinu í vor þar sem
þeir kærðu sig ekki um að leika á
gervigrasvellinum í Laugardal. Að-
spurður sagði Kristinn að það hefði
aldrei verið markmið þeirra að fara
út úr mótinu. „Við töldum okkur
hafa ákveðinn stuðning á bak við
okkur, en áttum von á meiri stuðn-
ingi og meiri sveigjanleika hjá
stjórn Knattspyrnuráðs Reykjavík-
ur. En auðvitað töpuðum við á því
að taka ekki þátt í Reykjavíkurmót-
inu, og það var ekki ætlun okkar í
upphafi með þessum mótmælum."
Kristinn sagði að breytingar á
liðinu hefðu verið miklar síðastliðin
tvö ár. „Það er verið að byggja upp
nýtt lið núna, en það tekur sinn
Morgunblaðið/Sverrir
Þjálfararnir
ÞJÁLFARAR liðanna í 1. deild karla. Efri röð frá vinstri, Sigurður Lárusson Þór, Marteinn Geirsson Fram, Hörður
Hilmarsson FH, Kristinn Bjömsson Val, Ingi Bjöm Albertsson UBK. Neðri röð frá vinstri, Ian Ross ÍBK, Sigurlás
Þorleifsson Stjömunni, Guðjón Þórðarson KR, Snorri Rútsson ÍBV og Hörður Helgason ÍA.
misst þrjá menn en fengið þijá í
staðinn. Það tekur tíma að aðlaga
þá leik liðsins svo vel sé, en við
erum að minnsta kosti með jafn
sterkan mannskap og við vorum
með í fyrra. Við erum líka með efni-
lega unga leikmenn sem eru árinu
eldri en í fyrra, og fengu sína eld-
skím þá og hafa spilað mikið í vor.
En það er alveg ljóst að við verðum
teknir alvarlega og höfum ekki
lengur möguleika á því að koma á
óvart með því að spila góða knatt-
spymu."
Aðspurður sagði Hörður að þeir
settu sér alveg sama markmið og
í fyrra; að vera í efri helmingi deild-
arinnar. „Það verður erfítt því þetta
eru sterk lið og ekkert þeirra auð-
unnið. Við þurfum að hafa meira
fyrir stiginum nú heldur en í fyrra,
því þá reiknuðu margir með okkur
slakari en við vomm.“ Hörður sagði
að hann hefði ekki tekið undirbún-
ingstímabilið nú alveg sömu tökum
og í fyrra, nú hefði hann brotið það
upp og skipt því I tvö tímabil. „Út-
koman virðist svipuð því það má
finna margt sem er sameiginlegt
áttunni, öll liðin hafa bætt sig og
það vil ég að við gerum líka. Stefn-
an er að leika góða og skemmtilega
knattspyrnu í sumar.“
Ætlum okkur í toppbaráttuna
„Mér lýst nú hvorki vel né illa á
þessa spá. Ég held að útkoma okk-
ar úr henni markist nokkuð af því
að menn vita lítið hvar við stöndum
getulega séð. Við stöndum reyndar
sjálfir í svipuðum sporum, því við
höfum fengið fá tækifæri til að
stæla okkur á móti sterkum and-
stæðingum," sagði Kristinn Bjöms-
son þjálfari Vals. „Ég er sjálfur
bjartsýnn á sumarið og hef trú á
þeim mannskap sem við erum með.
Ég geri mér líka alveg grein fyrir
því að þau tvö lið sem urðu efst í
þessari spá hafa það fram yfir önn-
ur lið að hafa innan sinna vébanda
flesta landsliðsmenn. Það er því
ekkert óeðlilegt að ætla að þau
verði í toppbaráttunni, en ég hef
trú á því að eitt lið eða tvö geti
blandað sér í þá baráttu. Menn
spáðu FH slælegu gengi í fyrra, en
þeir blönduðu sér þá í toppbarátt-
tíma og við verðum að sjá hver
útkoman verður.“
Ekki háleitar hugmyndir
„Okkur hefur gengið vel að und-
anfömu og leikið ágætlega, en við
eigum eftir að sanna okkur í deild-
inni í sumar,“ sagði Sigurlás Þor-
leifsson þjálfari Stjömunnar. Sterkir
leikmenn hafa gengið til liðs við
Stjömuna og sagði Sigurlás að lítið
hefði þýtt að fara með sama hóp og
í fyrra í þá hörðu baráttu sem er í
1. deildinni. „Við höfum verið heppn-
ir og fengið til okkar góða leik-
menn. Blandan er góð þó þeir komi
úr ólíkum áttum, og ég tel að við
séum með nokkuð sterka liðsheild."
Aðspurður sagði Sigurlás að gera
mætti ráð fyrir því að KR og ÍA
yrðu á toppnum, en vonandi myndu
önnur lið hanga í þeim. „Við emm
ekki með neinar háleitar hugmyndir
um tímabilið. Við höfum eðlilega
engan áhuga á níunda eða tíunda
sætinu, en okkar geta kemur til með
að segja til um það hvar við lendum.
Ég hef brennt mig á því þegar ég
var í Vestmannaeyjum að þegar