Morgunblaðið - 22.05.1994, Síða 47
morgunblaðið
SUNNUDAGUR 22: MAÍ 1994 47
Morgunblaðið/Sverrir
Með lærisveinunum
HÖRÐUR Helgason þjálfari íslandsmeistara ÍA, umvafínn fyrrum lærisveinum
sínum. Guðjón Þórðarson þjálfari KR til vinstri og Sigurður Lárusson þjálfari
Þórs, til hægri, léku báðir undir stjórnar Harðar í sigursælu liði ÍA á níunda
áratugnum.
1994
Skráning
Innritun hefst þriðjudaginn 24. maí kl. 13.00 á skrifstofu Vals að
Hlíðarenda. Framhaldsskráning verður svo fyrir hádegi alla virka
daga. Allar nánari upplýsingar verða veittar í síma 12187 og 623730.
Námskeiðin verða sem hér segir:
1. námskeið 6. júní - 16. júní, 9 dagar..kr. 8.800.
2. námskeið 20. júní- 1. júlí, 10 dagar..kr. 9.800.
3. námskeið 4. júlí - 15. júlí, 10 dagar.kr. 9.800.
4. námskeið 18. júlí - 29. júlí, 10 dagar kr. 9.800.
✓ Fjölbreytt íþróttanámskeið fyrir stráka og stelpur
✓ Samfelld dagskrá frá kl. 9-16
✓ Gæsla frá kl. 8-9 og 16-17
✓ HEITUR MATUR INNIFALINN í VERÐI
✓ Góðir leiðbeinendur
10% systkinaafsláttur
✓ 10% afláttur ef farið er á fleiri en eitt námskeið
✓ Visa - Eurocard
✓ Allir fá sumarbúðaboli
menn fóru að setja markið hátt, þá
sprakk blaðran. Markmiðið er auð-
vitað að ná í sem flest stig.“
Sigurlás sagði að það sem ein-
kenndi deildina núna væri meiri
óvissa en áður. „Akranes og KR eru
með góð og öflug lið og verða á
toppnum, en maður veit ekkert um
öll hin liðin. Það eru því óvenju mörg
spumingamerki á sveimi í sumar.
Það hefur líka hleypt spennu í um-
ræðuna fyrir þetta mót og gerir
mótið fyrir vikið enn skemmtilegra."
Miklar breytingar hjá Fram
„Þetta er líklega versta útkoma
sem Fram hefur fengið í þessari spá
frá upphafi, en ég er nú ekkert að
svekkja mig á þessu,“ sagði Mar-
teinn Geirsson þjálfari Fram, en
Fram lenti í sjöunda sæti í spánni.
„Þessi útkoma kemur kannski ekki
á óvart. Það hafa orðið gffurlegar
breytingar hjá Fram, margir leik-
menn eru farnir og margir nýir
komnir, nýr þjálfari og ný stjórn.
En við setjum auðvitað stefnuna
mun hærra og munum afsanna
þessa spá.“ Aðspurður um mótið
sagði Marteinn að fjögur efstu liðin
í spánni, KR, ÍA, FH og ÍBK yrðu
í toppbaráttunni. Valur og Fram
væru meiri spurningarmerki, en þau
gætu hæglega blandað sér í barátt-
una í efri hlutanum. „Ég á ekki von
á því að neitt lið stingi af í byijun,
mótið verður jafnt og spennandi.“
Marteinn sagði að markmið þeirra
.væri fimmta sætið í deildinni og
allt þar fyrir ofan væri bónus. „Það
er farinn í burtu sterkur kjarni, en
við erum búnir að fá til baka stráka,
Framar sem hafa leikið með öðrum
félögum í smá tíma og staðið sig
vel, og því þekkist þessi hópur vel.
Styrkur okkar þegar út í baráttuna
er komið mun felast í samstöðu og
því að við vinnum saman eins og
ein eining."
Eitt spútniklið biandar sér í
toppbaráttuna
„Markmið okkar i sumar gef ég
ekki upp, það geri ég aldrei. En þú
ferð aldrei inn á fótboltavöll til ann-
ars en að sigra leik,“ sagði Sigurð-
ur Lárusson þjálfari Þórs. „Það set-
ur auðvitað strik í okkar reikning
að Hlynur [Birgisson] meiddist í
vor, en hann verður vonandi tilbúinn
í slaginn fyrr en upphaflega var
ætlað. Það eru komnir nokkrir nýir
leikmenn, og það verður að koma
í ljós hvernig þeir falla inn í mynd-
ina.“ Aðspurður sagði Sigurður að
KR og ÍA yrðu í toppbaráttunni í
sumar en fleiri lið gætu blandað sér
í þá baráttu. „Valur gæti blandað
sér í þennan slag og svo kemur
eitthvert lið, sem stingur sér inn í
þennan hóp. Það kemur eitt spútni-
klið úr neðri hlutanum af þessari
spá beint inn í toppbaráttuna, það
er ekki spurning,“ sagði Sigurður.
„Ég hef breytt æfingaprógramm-
inu hjá mér mjög mikið miðað við
undanfarin ár. En ég veit ekkert
hvort það skilar sér til góðs eða ills,
það á eftir að koma í ljós,“ sagði
Sigurður.
Góð blanda af ungum og
reynslumiklum leikmönnum
„Það verður okkar hlutverk í
sumar að sýna fram á að þessi spá
stenst ekki,“ sagði Ingi Björn Al-
bertsson, en samkvæmt marg-
nefndri spá lendir Breiðablik í
níunda og næst neðsta sæti deildar-
innar. „Við erum með góðan mann-
skap, góða blöndu af ungum og
reynslumiklum mönnum og ef við
náum upp réttu hugarfari í liðinu
getum við lent töluvert mun ofar
en þetta.“ Aðspurður um markmið
fyrir mótið sagði Ingi Björn að þeir
færu út í hveija keppni fyrir sig
með það að markmiði að vinna.
„Við verðum að sjá hvemig tekst
til, tökum einn leik fyrir í einu og
sjáum hver uppskeran verður í
haust. Það verður enginn leikur sem
við förum í með því hugarfari að
við getum ekki unnið hann.“ Ingi
Björn sagði að ekki hefðu orðið
miklar breytingar á leikmanna-
hópnum frá því í fyrra. „En við
erum búnir að fá íjóra nýja leik-
menn, ungu mennimir em árinu
eldri en í fyrra og tveir efnilegir í
öðrum flokki em farnir að banka
hressilega á dyrnar."
Breiðablik tekur á móti KR á
heimavelli sínum í fyrstu umferð.
„KR-ingar em með frábært lið og
við munum leggja okkur alla fram.
Við vitum að þeir eru mjög erfíðir
viðureignar enda valinn maður í
hverri stöðu. Þeir eru nánast snill-
ingar, en við munum reyna.“ Ingi
Björn sagðist eiga von á því að
deildin yrði mjög jöfn og ekkert lið
myndi stinga af. „KR var spáð sigri
á þessum sama fundi í fyrra, en
það gekk ekki eftir. Það er tilhneig-
in í þá átt að spáin gangi ekki eft-
ir og við skulum sjá hvort svo verði
ekki líka í ár.“
Fastir liðir eins og venjulega
£35
fra Atlasklubbnum
(iin verð á sumarferðum:
5000 kr.
afsláttur á mann!*
Handhöfum ATLAS-korta og
gullkorta Eurocard stendur nú til
boða 5.000 kr. afsláttur á mann í
sérstakar ferðir sem taldar
eru upp hér til hliðar. Nánari
upplýsingar fást á viðkomandi
ferðaskrifstofum. Brýnt er að
korthafi geri grein fyrir sér strax
við pöntun - til að tryggja sér
og sínum afsláttinn!
\uk þess gildir 4000 kr.
al’slá11arávísmiiii sein
\TI, VS- og gnllkoi lhalár l'á.
Oagsclning: Afangastaður:
5. |úní Billund, Danmörku
19. |úní Bandaríkin, Suðurríkin
22. júní Benidorm
27. júnf Mallorca
27. Júnf ísland, tjaldferð
28. júní Mallorca, Cala d'Or
7. júlf Benidorm
13. júlf Benidorm
15. ágúst ísland, tjaldferð
4. sepf. Bandarfkin, nýlendurnar
Fcrðaskrifstofa:
Ferðaskrifstofa Alís
Ferðaskrifstofa stúdenta
Ferðaskrifstofa Reyk|avíkur
Úrval-Útsýn
Ferðask. Guðm. Jónassonar
Samvinnuferðir-Landsýn
Samvinnuferðir-Landsýn
Ferðakrifstofa Reyk|avíkur
Ferðask. Guðm. Jónassonar
Ferðaskrifstofa stúdenta
♦Gildir fyrir fjölskyldumeðlimi 12 ára og eldri,
börn yngri en 12 ára njóta barnaafsláttar.
„Þetta eru fastir liðir eins og
venjulega, en við skulum spyija að
leikslokum," sagði Snorri Rútsson
þjálfari Eyjamanna, þegar spáin var
borin undir hann. Samkvæmt henni
lenda Eyjamenn í botnsæti deildar-
innar og voru í stigum nokkuð langt
fyrir neðan næsta lið. „Vandamálið
hjá okkur er að breytingar í hópnum
hafa verið of örar síðastliðin tvö
ár. Nú höfum við misst fjóra fasta-
menn fyrir þetta tímabil, en fáum
meðal annars fjóra í staðinn úr
neðri deildunum. Og við komum vel
undirbúnir til leiks og ég er alls
ekki svartsýnn á sumarið." Að-
spurður sagði Snorri, að þeir hefðu
byijað undirbúning fyrir sumarið
óvenju snemma. „Eg braut undir-
búningstímabilið nokkuð upp og fór
ekki alveg hefðbundnar leiðir.“
Hann tók við liðinu í haust og sagði
að menn mættu búast við breyting-
um, enda fylgdu alltaf nýjar áhersl-
ur nýjum mönnum. „Ég á von á
jöfnu móti og liðin verða að reita
stig hvert af öðru. Markmið okkar
er að vera um miðja deild, og það
er raunhæft að okkar mati,“ sagði
Snorri.
Þannig getur aðild að Atlasklúbbnum sparað hjónum
samtals 14.000 kr. og séu börnin tvö (12 ára eða eldri)
sparar fjölskyldan samtals 24.000 lír. Það munar um minna!
Með ATLAS-kortinu færð þú ýmis fríðindi,
aukna þjónustu og fjölda tilboða.
'niboðsferðirnar hér að ofan eru aðeins lítið sýnishorn af fjölmörgum kostum
ATLAS-kortsins. Að auki má nefna víðtæka tryggingavernd, aðgang að
kortasíma Eurocard, rýmri greiðsiukjör og spennandi Bónusferðir sem
heppnir korthafar eiga kost á að kaupa fyrir aðeins 30 kr. hverja ferð!
M «m rétti tíminn
til að íá sér ATLAS
kreditkort.
ATLAS nýtur serkjara!
KREPITKORT HF.» ARMÚLA 28 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: (91)68 54 99
VjS / aiSQH VijAH