Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 15

Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 15 LÝÐVELDISAFMÆLIÐ Um vindheim víðan - frumútgáfa íslenskra ljóða á norsku Lýð veldisafmælið haldið hátíðlegt í Ósló EINS og áður hefur komið fram hér í blaðinu skrifuðu norsk blöð allmik- ið um þorskastríðið við Svalbarða og var tónninn í forystugreinum þeirra yfirleitt mildari en ummæli norskra ráðamanna. Á fimmtíu ára afmæli lýðveldisins birtu norsk blöð einnig allmargar greinar um land og þjóð og voru þær afar vinsamleg- ar í garð íslendinga. í forystugreinum blaða eins og Aftenposten andaði hlýju til okkar og lögð var áhersla á frændsemi og vináttu þjóðanna og raunar minnt á að íslendingar stæðu Norðmönnum nær en aðr-ar þjóðir enda hefðu þeir varðveitt arfleifðina öðrum fremur og þá ekki síst fyrri tíðar sögu Norð- manna. Meðan á þessu stóð_ þurfti Eiður Guðnason sendiherra Islands í Noregi að túlka afstöðu íslendinga til fiskveiðideilunnar, tala við norska ráðamenn og taka á móti Haraldi Noregskonungi og drottningu hans eftir íslandsförina. Jafnvel mátti í norskum blöðum sjá undrun yfir því að norsk stjórnvöld skyldu hafa látið til skarar skríða gegn íslenskum fiskimönnum skömmu fyrir lýð- veldishátíðina og íslandsferð Nor- egskonungs. Fjölmenn skrúðganga Þjóðhátíðardaginn var efnt til skrúðgöngu um Ósló og gengið frá Akerhúss-höll um miðborgina, þ. á. m. um aðalgötuna, Karl Jóhann. Á annað þúsund manns tók þátt í göngunni og fjöldi vegfarenda fylgd- ist með henni. Lúðrasveit lék í farar- broddi og gengið var undir íslenskum fánum. Margar konur voru í þjóð- búningum og börnin báru íslenska fána. Þótti skrúðgangan takast hið besta og vakti athygli, ekki síst vegna þess hvernig á stóð. Að göngunni lokinni var hátíðar- dagskrá með hornablæstri og ræðu- höldum þar sem formaður íslend- ingafélagsins í Ósló, Ólafur R. Egg- ertsson, og sendiherrann fluttu mál sitt, auk ávarps íjallkonunnar. Kirkjukór Breiðholts söng og að lok- um var skemmtidagskrá fyrir börn- in. Að útihátíðinni lokinni var lýð- veldismessa í Hallarkirkjunni og prédikaði sr. Gísli Jónasson, en kirkjukór Breiðholts söng. Þá var hátíðardagskrá í Ólafssal hallarinnar þar sem Forsvarets stabsmusikkorps lék undir stjórn Björns Mellembergs, m.a. Suite Arctica eftir Pál P. Pálsson. Borgar Garðarsson og Hjalti Rögnvaldsson fóru með Hárbarðsljóð úr Eddu og norsku leikararnir Ánne Marie Ott- ersen og Lasse Lindtner fluttu kafla úr Hærmænderne pá Helgeland eftir Henrik Ibsen. Að lokum lásu Knut Odegárd og Matthías Johannessen ljóð úr nýrri ljóðabók eftir hinn síðarnefnda, í N.T.B. MATTHÍAS Johannessen og Knut Ödegárd og skoða bókina nýút- komna hjá Cappelen í Osló, 17. júní sl. norskum búningi Knuts, en bókin kom út þennan sama dag hjá forlagi Cappelens. Er þetta frumútgáfa ljóð- anna þar sem þau hafa ekki birst áður á íslensku. Formála að bókinni skrifar Lars Roar Langslet, fyrrum menntamálaráðherra Noregs. Bókin er 54 bls. að stærð og er titill henn- ar sóttur í Völuspá, Om vindhem vide. I kynningu forlagsins segir m.a. að bók Matthíasar sé gefin út í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins og sé með útgáfu hennar lögð áhersla á gamalgróin tengsl land- anna og þá ekki síst íslenskra skálda við Noreg fyrr á öldum. Mikill fréttaflutn- ingur af lýðveldisaf- mælinu Þórshöfn. Morgunblaðið. FRÉTTAFLUTNINGUR í Færeyj- um hefur alla síðustu viku ein- kennst _af lýðveldisafmæli Islend- inga. Útvárp Foroya hefur flutt viðtöl við Islendinga og leikið ís- lenska tónlist. Sjónvarp Foroya hefur sýnt stutt innskot um lýðveldisafmlið og dag- blöð, sérstaklega Dimmalætting, hafa skrifað um það. Meðal þess sem skrifað var um var tímabilið frá 1918 til upphafs heimsstyijald- arinnar síðari og fullveldi Islend- inga. I tengslum við afmælið fóru fimm færeyskir blaðamenn til ís- lands og sendu mikið blaðaefni, auk þess sem beinar útsendingar hafa verið í sjónvarpi og útvarpi. Þá hefur íslenski fáninn prýtt strætis- vagna á eyjunum. 17. júní voru beinar útsendingar frá hátíðahöldunum, auk þess sem útvarpað var efni um ísland, aðeins vag leikin íslensk tónlist í útvarpi og íslendingum til heiðurs var óslit- in útsending allan daginn. Gerður verður sjónvarpsþáttur um hátíða- höldin í tilefni lýðveldisafmælisins. Þá má að lokum nefna að pró- fessor Hans Jacob Debes hefur í tengslum vjð afmælið gefið út bók- ina „Saga Islands". Er hún skrifuð á færeysku og hugsuð sem kennslubók. -------♦ ♦ ♦------- AFS-fjölskyldu- hátíð í Viðey SKIPTINEMASAMTÖKIN AFS halda fjölskylduhátíð í Viðeysunnu- daginn 28. júní frá kl. 14. í Viðey verður heitt í kolunum allan dag- inn, leikir og létt gaman fyrir unga sem aldna. Fjölmennt veður í stað- arskoðun undir leiðsögn staðarhald- ara frá kl. 15.15 og einnig er mögu- leiki á reiðtúr um eyjuna. Áætluð brottför út í Viðey er með feiju frá Sundahöfn kl. 14 en eftir það geng- ur feijan á klukkutíma fresti. AFS- samtökin bjóða alla hjartanlega velkomna á fjölskylduhátíð út í Við- ey þennan dag. 22.-25. JUNI LEGGINGS 0G BOLUR ÁÐUR 3.990.- MÚ 2210.- KLÚTAR ÁÐUR 1.290.- MÚ (fiO- ♦ \ COSMO --------------...........-_i__ Laugavegi 44, Kringlunni MEIRIHÁTTAR SUMARKJÓLAR ÁÐUR 5.990.- mú i.m- KRUMPUPILS ÁÐUR 3.990.- mú i.m- FRÁBÆRAR KAKÍ STUTTBUXUR ÁÐUR 2.990.- mú i.m-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.