Morgunblaðið - 21.06.1994, Side 18

Morgunblaðið - 21.06.1994, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Andstæð- ingar ESB úr stjórn llelsinki. Morgunbladid. KRISTILEGI flokkurinn finnski, sem er andvígur áformum um að Finnar gangi í Evrópusambandið (ESB), hefur sagt skilið við sam- steypustjóm Eskos Ahos, for- sætisráðherra. Brottför Kristilega flokksins mun þó ekki valda teljandi vandræð- um fyrir stjómina, sem enn hefur 108 sæti af 200 á þingi. Eini ráðherra Kristilega flokksins, Toimi Kankaanniemi, sem var ráðherra þróunar- aðstoðar, afhenti Martti Ahtisa- ari, forseta, og Aho, afsagnar- beiðni sína í gær. Forseti lands- ins þarf að veita formlegt sam- þykki við afsögninni. Finnar ráðgera að ganga í ESB um næstu áramót, um leið og Noregur, Svíþjóð og Austurríki, verði aðild sam- þykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 16. október. Niðurstöður skoðanakannana benda til þess að 47% landsmanna séu hlynnt aðild, rúmlega 30% andvíg. Clinton ósammála Carter um að hættan sé liðin hjá á Kóreuskaga „Jákvæð teikn“ en efa- semdir um tilganginn Washington, Seoul, Tókýó. Reuter, The Daily Telegraph. BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær, að ýmis teikn væru á lofti um, að ekki þyrfti að koma til átaka út af kjamorkuáætlunum Norður- Kóreustjómar en lagði áherslu á, að hún yrði að leggja þær á hilluna um sinn ættu viðræður að geta hafist. Japanska stjórnin tók í sama streng en á sunnudag sagði Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, eftir viðræður við stjórnvöld í Pyongyang, að þau vildu hætta framleiðslu kjarn- orkueldsneytis og leyfa eftirlit með kjamorkustöðv- um. Sagði Carter, að því væri „hættan liðin hjá“. Rússar sögðu á laugardag, að Norður-Kóreumenn ættu mörg ár enn í smíði kjarnasprengju. Carter sagði í viðtali við NBC-sjónvarpsstöð- ina, að ýmislegt jákvætt hefði komið fram síð- ustu daga en vildi þó ekki taka jafnt djúpt í ár- inni og Carter og segja að hættan væri liðin hjá. „Það, sem öllu máli skiptir, er hvort Norður-Kór- eustjóm ætlar að hætta vinnu við kjarnorkuáætl- unina. Verði það gert, þá getum við farið að ræða saman,“ sagði Clinton. Japansstjórn fagnaði í gær hugsanlegum við- ræðum við N-Kóreustjórn en kvaðst mundu fylgj- ast vel með viðbrögðum hennar og hafa náið samráð við stjórnvöld í Washington og Seoul. Áfram yrði unnið að undirbúningi refsiaðgerða og til þeirra gripið ef þurfa þætti. Carter ekki í umboði Bandaríkjastjórnar Á fundi sínum með Kim Il-sung, forseta N- Kóreu, sagði Carter, að Bandaríkjastjórn ætlaði að bíða með að krefjast refsiaðgerða en Clinton vísaði því á bug sl. föstudag og sagði, að áfram væri unnið að undirbúningi þeirra. Robert Galucci, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og sá, sem hefur haft mest með N-Kóreumálið að gera, lagði áherslu, að þótt Bandaríkjastjórn hefði fall- ist á einkaheimsókn Carters til N-Kóreu, hefði hann ekki haft umboð til að tala máli stjórnarinn- ar. Hefði hann heldur ekki flutt Kim Il-sung nein boð frá Clinton. Talsmaður Kim Young-sams, forseta S-Kóreu, sagði einnig á laugardag, að Bandaríkjastjórn hefði tilkynnt, að yfirlýsingar Carters væru ekki það sama og afstaða hennar. Kóreumálið prófsteinn á Clinton í Bandaríkjunum er mikið rætt um hugsanlegt Kóreustríð og greinir menn mjög á um hvernig gangur þess gæti orðið. Sumir telja, að 37.000 bandarískir hermenn og suður-kóreski herinn muni verða yfirbugaðir á skömmum tíma af millj- ón manna her Norður-Kóreu en aðrir telja að norður-kóreski herinn verði orðinn eldsneytis- og matarlaus eftir þrjá daga. Brent Scowcroft, fyrr- verandi ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í öryggismál- um, er kunnur fyrir að vera varkár en nú hefur hann skipað sér í hóp mestu haukanna. Hvetur hann til tafarlausra árása á kjarnorkustöðvar í Norður-Kóreu en aðrir segja, að þar með væri nýtt Kóreustríð staðreynd. Einna mesta athygli hefur vakið grein eftir Karen Elliott House, sem er kunn fyrir skrif sín um utanríkismál, í Wall Street Journal í síðustu viku en þar segir hún, að engir góðir kostir séu til. Segir hún, að komi til stríðs muni það geta staðið lengi og því verði Bandaríkjamenn að beita hermætti sínum af alefli til að tryggja sigur. Fari hins vegar svo, að þeir gefist upp, þá muni allt núverandi öryggiskerfi í Austur-Asíu hrynja og kjarnorkuvopnakapphlaupið taka einnig til Suður-Kóreu og Japans. Kóreumálið sé því próf- steinn á Clinton og muni niðurstaðan geta haft mikil áhrif á framtíðarskipan mála við Kyrrahaf og hlutverk Bandaríkjanna. Reuter Eiturlyfj abrenna MEIRA en eitt tonn af eiturlyfjum var brennt í inum. Var haft svona mikið við til að leggja áherslu Tælandi í gær og það var sjálfur aðstoðarforsætis- á, að viðurlög við eiturlyfjasmygli eru afar mikil ráðherra landsins, sem bar eldinn að eiturlyfjakest- í Iandinu og ekki stendur til að gefa neitt eftir. Fiskverndarsvæðið við Svalbarða Engin afstaða til yfirráða segir Martti Ahtisaari Finnlandsfor- seti um Svalbarðadeiluna „VIÐ höfum ekki tekið afstöðu til landgrunnsréttar eða yfirráða á verndar- svæðinu við Svalbarða," sagði Martti Ahtisaari forseti Finnlands á blaða- mannafundi á Hótel Sögu föstudaginn 17. júní. nú í ár. Hvað varðar landgrunns- svæðið og verndarsvæðið þá höfum við ekki tekið neina afstöðu til þeirra sem slíkra, hvorki tii lané- grunnsréttar eða yfirráða á vernd- arsvæðinu. Afstaða okkar til sam- komulagsins í öndverðu mótaðist fyrst og fremst af umhverfissjón- armiðum," sagði Ahtisaari. „Auðvitað vona ég nú að þessi deila leysist, að hægt verði að ræði saman og semja um lausn deilunnar með friðsamlegum hætti. Málið hefur ekki verið á dagskrá hér, alla vega hvað mig áhrærir og það hef- ur ekki borið á góma í samtölum mínum við íslenska eða erlenda ráðamenn," sagði Finnlandsforseti. Hann var spurður að því hvort hann hefði einhveijar tillögur um með hvaða hætti setja mætti nið- ur deilu Norð- manna og ís- lendinga um fiskveiðar við Svalbarða þar sem Finnar hefðu einir þjóða viðurkennt yfir- ráð Norðmanna á Svalbarða- svæðinu. „Við höfum verið aðilar að Sval- barðasamkomulaginu frá byrjun. íslendingar gerðust aðilar að því Martti Ahtisaari GALLI: Ekki er hægt að monta sig MIKIÐ af útlitinu einu saman í jeppaferðum eða meðal félaga sinna. K0STUR: Hreint ágætur bíll, sem skilar þér á áfangastað, á sama hátt og dýru jepparnir. LflDA SP0RT 798.000 kr. ...fjárfe s ÍÍMtaN 40 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.