Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 19

Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 19 Samper fagnar Neitar ásökunum um eitur- lyfjafé ERNESTO Samper, sigurveg- arinn í forsetakosningunum í Kólombíu, neitaði í gær ásök- unum Andres Pastrana, keppi- nauts síns í kosningunum, um að kólombísku eiturlyfjakóngam- ir hefðu stutt hann með fjárfram- lögum. Gaf Pastrana það í skyn þegar hann viðurkenndi ósigur sinn en hann fékk 48,6% at- kvæða en Samper 50,3%. Pastr- ana kvaðst hafa sent Samper bréf í síðustu viku þar sem hann hefði lagt til, að þeir særu opin- berlega að hafa ekki þegið fé frá eiturlyfjasölum og hétu að segja af sér kæmi annað í ljós en því hefði Samper ekki svarað. Lög- reglumenn, sem beijast gegn eit- urlyfjasölunum, segja raunar ólíklegt, að eiturlyfjafé hafi ekki með einhveijum hætti fundið sér leið inn kosningabaráttu allra helstu frambjóðendanna. Clinton hafn- ar 91%-lausn BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, hafnaði í gær svokallaðri 91%-lausn í heilsugæslumálun- um og sagði, að stefnan væri, að allir landsmenn nytu sjúkra- trygginga. A sunnudag sagði Daniel Moynihan, öldungadeild- arþingmaður demókrata frá New York, að það þing, sem nú sæti, myndi ekki afgreiða sjúkratryggingar fyrir alla en Clinton sagði, að það ætti að gerast á nokkrum árum. Oánægja með listsýningu LISTSÝNING undir beru lofti í miðri Kaupmannahöfn, 20 bíl- flök og strætisvagn á hvolfi, hefur hneykslað marga Dani en sumir telja hana hafa boðskap að flytja. Sýningin, sem kallast „Útbrunnið", er á milli Óperunn- ar og Hotel d’Angleterre á Kóngsins nýjatorgi og hafa margir haft samband við lög- regluna og tilkynnt um meiri- háttar umferðarslys. Jens Horw- itz, hótelstjóri á d’Angleterre, vill bílahrúguna burt og segir það ótrúlegt, að nokkur skuli geta kallað hana listaverk en þeir eru til, sem telja hana góða áminningu til ökumanna. Herferð gegn hundum YFIRVÖLD í Shanghai í Kína ætla að lóga hundruðum þúsunda húnda til að ' hindra útbreiðslu hundaæðis í borginni en á síðustu árum hefur það komist í tísku hjá þeim, sem betur mega sín, að eiga hund. Á síðasta ári dóu níu manns í Shanghai úr hunda- æði. í fyrri herferðum gegn ólög- legu hundahaldi hafa verið settar á stofn sérstakar sveitir, sem hafa drepið hundana með kylfu hvar sem til þeirra næst og hvort sem þeir eru með eiganda sínum eða ekki. Reuter Rússnesk skím ÞAÐ verður æ algengara í Rússlandi að börn séu skírð trúar- legri skírn en það var litið heldur illu auga í tíð kommúnista. Hér er einn presta rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar að ausa barn vatni í borginni Ryazan. Rocard settur af sem leiðtogi franska Sósíalistaflokksins Nýi leiðtoginn vill fiokkinn lengra til vinstri París. Reuter. HENRI Emmanuelli hefur tekið við af Michel Rocard sem leiðtogi franska Sósíalistaflokksins. Flokksmenn vonast til þess að nýi leiðtog- inn, sem er vinstrisinnaðri en forveri hans, hðfði meira til kjósenda og takist að auka fylgi flokksins í forsetakosningum sem verða á næsta ári. Flokkurinn hlaut hrikalega útreið í nýafstöðnum kosningum til Evrópuþingsins og fékk einungis um 14% atkvæða. Margir binda vonir við að Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins (ESB) verði frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum. Emmánuelli er 49 ára gamall og fyrrum þingforseti. Hann er alræmdur fyrir skap- vonsku og þykir ekki efni í forseta landsins. Hann var gjaldkeri flokksins og nú stendur yfir rannsókn á meintri aðild hans að fjármála- spillingu. Hann mun verða leiðtogi sósíalista uns flokkurinn heldur þing sitt undir lok árs- ins. Margir flokksmenn binda vonir við að Del- ors, sem mun láta af embætti forseta fram- kvsemdastjómar ESB í janúar, verði næsti forseti, en skoð- anakannanir benda til að hann sé eini vinstrimaðurinn sem gæti átt einhveija möguleika í forsetakosn- ingunum. Sjálfur hefur Deloi’s neit- að að tjá sig um innanlandsmál í Frakklandi á meðan hann gegnir embætti forseta ESB, en mun i einkasamtölum ítrekað hafa neitað því að hafa áhuga á forsetaembætt- inu. Að áliti margra innanbúðar- manna í Sósíalistaflokknum er brottvikning Rocards nýjasti þátt- urinn í eijum sem staðið hafa innan flokksins undanfarin 25 ár. Stuðn- ingsmenn Francois Mitterrands áttu stærstan þátt í að bola Rocard burtu, en deilur hafa staðið milli þeirra alla tíð síðan þeir buðu sig báðir fram til forseta undir merkj- um vinstrimanna árið 1969. Nú, þegar stjórnmálaferli Mit- terrands er að ljúka áleit Rocard að sinn tími væri kominn. En af- hroð flokksins í kosningunum til Evrópuþingsins vakti ugg meðal flokksmanna, og þeir ákváðu að Rocárd skyldi taka pokann sinn. Hann sagðist vera að nokkru ábyrgur, og hefði ekki barist í kosn- ingunum af nægilegri hörku gegn kapít- alisma. Hann er ekki mikill ræðuskörungur, og skorti þann inn- blástur sem franskir kjósendur vænta nú á tímum kreppu og at- vinnuleysis. Lengra til vinstri Emmanuelli sagði nýlega í viðtali við Le Figaro að Sósíalista- flokkurinn hefði misst tengsl við marga kjós- endur sína, og þjónaði einungis hagsmunum þröngs hóps. Hann hygðist sveigja stefnuna til vinstri og vonaðist til að vinna aftur „traust þeirra vinstrimanna og kvenn'a sem þykir orðið sem flokk- urinn tali ekki lengur máli þeirra." Emmanuelli hefur sagt að sú frjáls- lynda hagstefna sem forveri hans var hlynntur hafi ekki reynst not- hæf í baráttunni við atvinnuleysi, sem er erfiðasta vandamálið sem Frakkar standa frammi fyrir. Balladur og Chirac takast á Eduard Balladur, forsætisráð- herra, aflýsti í gær ráðgerðu við- tali við franska ríkissjónvarpið Fr- ance-2, þar sem hann hugðist ræða um hveijar áætlanir hann hefði fyrir næstu mánuði. Einkastöðin TFl ákvað að hafa á sama tíma viðtal við Jaeques Chirac, borgar- stjóra í París, og þá hætti Balladur við fyrirhugað viðtal. Þeir tveir, báðir félagar í flokki ný-Gaullista (RPR), há nú baktjaldabaráttu um að komast í framboð til forseta landsins. Balladur hefur ekki sagt opinberlega að hann hafi hug á framboði, en skoðanakannanir benda til að hann njóti meira fylg- is en Chirac. Henri Emmanuelli Báðir stríðsaðilar í Jemen segjast vilja vopnahlé Sunnanmenn hafna til- lögu um eitt herráð Kaíró, Aden. Reuter. STJÓRNIN í Norður-Jemen lagði í gær til við sendimann Sameinuðu þjóðanna (SÞ), Lakhdar Brahimi, hvernig koma mætti á friði í Jein- en, en sendinefnd Suður-Jemena yfirgaf fundarstaðinn, Kaíró, með þeim orðum að tillögur norðan- manna um sameiginlegt herráð væru bara tímasóun. Brahimi reyndi á sunnudag að fá norðan og sunnanmenn saman til fundar í fyrsta skipti síðan ófrið- ur braust út á milli þeirra í maíbyij- un. Fundurinn fór út um þúfur og Brahimi hélt til New York í gær, að gefa framkvæmdastjóra SÞ skýrslu um framvindu mála. Sagði Brahimi að deiluaðilar væru sam- mála um að vopnahlé væri nauð- synlegt, en gætu ekki sæst á að- ferð til þess að tryggja að friður héldist. Sendinefnd norðanmanna fund- aði aftur með Brahimi í gær, og sagði einn nefndarmanna, Ahmed al-Iryani, við Reuters að þeir hefðu lagt fram tillögur að samkomulagi um vopahlé. Þær væru miðaðar við að sameiginlegt herráð yrði endur- reist, en ekki væri unnt að greina frá smáatriðum tillagnanna. Sunn- anmenn hafa ítrekað hafnað tillög- um um að endurreisa herráðið. Samið Hefur verið um vopnahlé fimm sinnum síðan stríðið byrjaði, og hafa aðilar sakað hvor annan um að hafa rofið þau. Stjórnin í Aden hefur átt undir högg að sækja í vopnaviðskiptunum, og æskir þess að SÞ sendi lið til friðar- gæslu. Brahimi sagðist ekki myndu mæla með því að refsiaðgerðum eða vopnavaldi yrði beitt gegn þeim aðila sem yrði til þess að rjúfa vopnahlé. Fordæma morðá kaþólikkum Boston, Dublin, London. Reuter. The Daily Telegraph ALBERT Reynolds, forsætisráð- herra írlands, fordæmdi á sunnu- dag morð á sex kaþólskum fót- boltaáhugamönnum á N-írlandi. Tveir hryðjuverkamenn mótmæl- enda skutu mennina er þeir fylgd- ust með knattspyrnuleik. Reynolds, sem er staddur í Bandaríkjunum, sagði að stuðning- ur við mótmælendur ykist ekki við hina „vitfirrtu villimennsku“ sem morðin væru. Spurði hann livort það væri dauðasök yfir 88 ára göml- um manni að vera kaþólskrar trúar. Reynolds hittir væntanlega John Major í lok vikunnar á fundi Evr- ópusambandsins á Korfu. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.