Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 20

Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ b LISTIR Sinfónían og* Sunnukórinn með tónleika á Isafirði ísafirði. Morgiinblaðið. SUNNUKÓRINN á ísafirði og Sinfóníuhljómsveit íslands halda í dag sameiginlega tónleika í hinu nýja íþróttahúsi Isfirðinga. Tilefn- ið er 60 ára afmæli Sunnukórsins og koma ísfirskir tónlistarmenn við sögu með tónsmíðum sínum og einsöng: Guðrún Jónsdóttir syngur þijár óperuaríur og flutt verða verk eftir Hjálmar H. Ragn- arsson og Jónas Tómasson eldri og svo sonarson hans og nafna. Auk þess verða leikin verk eftir Dvorak, Puccini, Donisetti og Jo- hann Strauss. Stjórnandi tónleik- anna er Bernharður Wilkinsson. Tónleikarnir hefjast á sinfóníu Dvoraks nr. 9 frá Nýja heiminum en eftir hlé verður flutt verk Hjálmars H. Ragnarssonar, Áfangar, sem samið er við sam- nefnt ljóð Jóns Helgasonar. Því næst koma tvö lög eftir Jónas Tómasson yngri og útsetningar Ingvars Jónassonar á sálmalögum eftir Jónas Tómasson eldri. Hann var aðalhvatamaður kórsins og stjórnandi fyrstu 20 árin. Þá syng- ur Guðrún Jónsdóttir söngkona frá ísafirði aríur eftir Puccini, Doniz- etti og Strauss og tónleikunum lýkur á að tónlistarmennirnir og gestir flytja saman lag Jónasar, I faðmi fjalla blárra. Hjálmar H. Ragnarsson segir um Áfanga að tónverkið hafi fyrst verið flutt árið 1988 á landsmóti blandaðra kóra og tileinkað Ás- geiri Sigurðssyni sem söng um áraraðir í Sunnukórnum. „Verkið er samið fyrir áhugakór," segir hann, „og ber kannski keim af þeim ættjarðarlögum sem við þekkjum vel. Kvæði Jóns er ellefu erindi og ég hef gert mér far um að lýsa þeim í tónlistinni og undir- strika textann sem best.“ Söngstjóri Sunnukórsins, Beata Joó, segir æfingar fyrir tónleikana hafa staðið frá því í mars og geng- ið vel. Beata er ættuð frá Ung- veijalandi og kom fyrir átta árum til organistastarfa við ísafjarðar- REYNIR Ingason kórformaður, Beata Joó stjórnandi Sunnukórs- ins og Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld. kirkju og Súðarvíkur- kirkju. Hún hefur jafnframt stjórnað kórnum þessi ár. Einsöngvarinn Guðrún Jónsdóttir er ísfirðingur, fiðluleik- ari upphaflega og síð- ar söngkennari frá Söngskólanum í Reykjavík og enn- fremur lærð í Eng- landi og á Ítalíu. Hún tók í fyrra þátt í upp- færslu Leikfélags Akureyrar á Leður- blökunni. Bernharður Wilk- inson hljómsveitar- stjóri hefur starfað sem flautuleikari og stjórnandi hjá Sinfóníunni síðan 1975. Hann hóf tónlistarferil sinn sem kórdrengur í Westminster Abbey kirkjunni í Lundúnum en síðar tók við flautunám í tónlistar- háskólanum í Manchester. Bern- harður hefur komið fram sem ein- leikari með Sinfóníuhljómsveitinni og leiðbeint á námskeiðum Sinfó- Bernharður Wilk- inson stjórnar Sin- fóníunni á ísafjarð- artónleikunum. níuhljómsveitar æskunnar. Hann er félagi í Blásarakvintett Reykja- víkur. Sinfónían kom síðast til Vest- fjarða fyrir fimm árum og heldur til Reykjavíkur á ný þegar að lokn- um tónleikunum til að undirbúa þriggja daga ferð sína til Færeyja í lok mánaðarins. Guðrún Jóns- dóttir syngur einsöng. Bláir rósahnappar MYNDLIST A LISTAHÁTÍÐ Listhúsið cinn cinn INNSETNING JOHN GREER Opið milli kl. 14 og 18 alla daga til 26júní. Aðgangur ókeypis. FRAMLAG Listhússins einn einn að Skólavörðustíg 4a, til lista- hátíðar, er innsetning á verkum kanadíska listamannsins John Greer, sem hann hefur útfært sér- staklega í tilefni hátíðarinnar. Meginuppistaða sýningarinnar er þannig verk sem Greer nefnir „Biáum rósahnöppum dreift á ísland“. Samanstendur hún af sjö tilbúnum hlutum og sjö stein- hnullungum sem hann hefur tínt upp á ferð sinni um landið. „Til- búnu hlutirnir hafa form af harðlokuðum rósahnöppum í svipaðri stærð og mannshöfuð og eru öll úr sama mótinu, máluð dökk- fjólublá og eins og hél- uð eða léttfrosin. Þeim er svo dreift um gólfrýmið með hinum fundnu steinhnullungum, sem sækja upp- runa sinn til eldfjallaeyjunnar. Hugsunin að baki gjörningsins er að hluta til hið brædda harðn- andi efni og hið fljótandi storkn- andi hraun. Fljótandi hraunkvika úr iðrum jarðar - sem streymir frá bráðnandi kjarna. Kæling hrauns- ins gefur landinu sinn náttúrulega og eðlislæga svip. Kæling hins brædda málms í hinu sérstaka móti gefur honum hins vegar svip af tilbúinni rós, sem telst afkvæmi menningarinnar. Rósin verður tákn hámenningar og er græðlingur árþúsunda. Þéttleiki og eðlismassi hraunsins. Hið hola og tónandi bronz. Notkun sýrunnar og hins upphitaða málms gefur litnum svip af dökku næturskýi. Eldgosið temprað í kulda og snjó. Heitt og kalt, ljóst og dimmt. Hið kalda Atlantshaf sem hefur sleikt storkn- aða hraunsteinana. Minning elds, píslarsaga fjölþættrar grófrar mót- unar. Blómum dreift kringum gróft, nakið hraun. Innri máttur, í tengslum við viðkvæmt hold, bendlað ímyndinni. Gólfrými í list- húsi, sjónhringur, hlutir í sjón- hringnum, blanda menningarhluta við form lands. Mannleg athöfn í fornu landi“. Á þann veg útlistar listamaður- inn John Greer gjörning sinn og er þetta í lauslegri þýðingu minni. Án útskýringanna þyrfti skoðand- inn að vera nokkuð sleipur í get- speki, ef sýningin á ekki að missa marks, en hún er mjög hugmynds- fræðileg svo sem orðanna hljóðan er til marks um. Um leið eru út- skýringarnar eins og olnbogaskot í þá mörgu sem leyfa sér að setja upp svipaðar sýningar án þess að opna skoðandanum leið til skiln- ings. Hugmyndin er góðra gjalda verð og er burðarás framkvæmdarinn- ar, og án hennar væri ris sýningar- innar sýnu minna, því sjónrænn hrifmáttur gjörningsins er ekki mikill á staðnum. Til þess hefur maður séð of mikið af skyldum tiltektum. Með hliðsjón af listahátíð er naumast nógu vel staðið að fram- kvæmdinni og einkum hefði verið auðvelt að snara textanum á ís- lenzku. Bragi Ásgeirsson EITT verka John Greer í Listhúsinu einn einn. / i/i Einsetinn íþróttaskóli íþróttaskólinn Sumarbúðir í borg er sniðinn fyrir stúlkur og drengi á aldrinum 6-12 ára. Meginmarkmið skólans er að skapa börnunum góða alhliða grunnþjálfun, öruggt og félagslega gott umhverfi. Skráning á næstu námskeið er í fullum gangi á skrifstofu Vals að Hlíðarenda. Allar nánari upplýsingar eru veittar í sima 12187 og 623730. Námskeiðin verða sem hér segir: 20. júní - 1. júlí, 10 dagar.kr. 9.800. 4. júlí - 15. júlí, 10 dagar.kr. 9.800. 18. júlí - 29. júlí, 10 dagar.kr. 9.800. ✓ Sama verð fjórða árið í röð ✓ Fjölbreytt íþróttanámskeið fyrir stráka og stelpur ✓ Samfelld dagskrá frá kl. 9-16 ✓ Gæsla frá kl. 8-9 og 16-17 er innifalin í verði ✓ HEITUR MATUR INNIFALINN í VERÐI ✓ Góðir leiðbeinendur ✓ 10% systkinaafsláttur ✓ 10% afsláttur ef faríð er á fleiri en eitt námskeið ✓ Visa - Eurocard i/ Allir fá sumarbúðabol, húfu og viðurkenningarskjal ✓ NÝJUNG, REGLULEGAR STUNDIR í FRIÐRIKSKAPELLU Ljóðalestur og tónlist á 22 . „Lengstur dagur“ DAGSKRÁ til minningar um Dag Sigurðarson verður haldin á veit- ingahúsinu 22 í kvöld, þriðjudaginn 21. júní. Meðal þeirra sem ætla að heiðra minningu Dags eru Nína Björk Árnadóttir, Jón H. Stefáns- son, Elías Mar, Didda, Sigfús Bjartmarsson, Einar Ólafsson, Sjón, Steinar Jóhannsson, Bragi Olafs- son, Einar Melax, Atli Jósefsson, Þorri Jóhannsson og Jón Proppé. í fréttatilkynningu segir: „Dagur hafði gaman af sólinni, hún gaf honum kraft, þess vegna verður minning hans heiðruð á sumarnótt þegar sólin skín í heilan sólarhring." - kjarni málsins! þ I i I i í t I í I I í t I í r » i » i i I i L I I I í* I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.