Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Uppboð
Sotheby’s
MARGT spennandi er á boðstól-
um hjá Sotheby’s í London í sumar
og í tilkynningum frá fyrirtækinu
má rekast á ýmsa merka hluti.
Handrit frá miðöldum um lyf fyrir
hesta sem var skrifað og skreytt
fyrir Napólíkonung á milli 1475 og
1480 verður t.d. til sölu á uppboði
á vestrænum handritum og smá-
myndum sem haldið verður í dag.
Handritið er mjög sérstakt af því
það fjallar um veraldlega en ekki
trúarlega hluti og er undirritað af
skrifaranum. Reiknað er með að
handritið fari fyrir 80,000-120,000
pund. Sotheby’s hefur séð um sölu
þessa handrits áður, árið 1882 var
það selt fyrir 43 pund en 116 pund
árið 1904.
Vaxtöflur og skinnhandrit
Á sama uppboði verður bókhalds-
bók frá 14. öld og blaðsíða úr hol-
lensku skinnhandriti frá 15. öld til
sölu. Bókhaldsbókin er sértök að
því leyti að hún samanstendur af
vaxtöflum. Slíkar töflur voru mikið
notaðar á miðöldum en örfáar hafa
varðveist. Talið er að bókin seljist
á 15,000-20,000 pund.
Blaðsíðan sem er boðin upp var
tekin sem minjagripur af enskum
ferðamanni úr hollenskri Biblíu á
17. öld. Handritið af þessari Biblíu
er talið eitt af fegurstu handritum
Hollendinga og er búist við að blað-
síðan seljist á 4,000-6,000 pund.
Konungleg málverk
Á Jónsmessu opnar hjá Sothe-
by’s sýning á vatnslitamyndum eft-
Gullmedalíur skautakóngsins
Johns Currys verða boðnar
upp hjá Sotheby’s í sumar.
ir Karl Bretaprins í St. George Stre-
et Gallery. Sýningin, sem er farand-
sýning, er haldin til að minnast
þess að 25 ár eru liðin síðan Karl
var formlega útr.efndur sem arftaki
Elísabetar drottningar.
Á sýningu eru 50 vatnslitamynd-
ir eftir Karl. Flestar eru landlags-
myndir frá Englandi, Norður Ir-
landi, Skotlandi og Wales. Ágóði
af sýningunni rennur til „The Prince
of Wales’s Charities Trust.“
Gullmedalíur
Í byijun júlí geta íþróttaáhuga-
menn keypt þijár gullmedalíur sem
tilheyrðu breska skautakónginum
John Curry. Hann vann allar medal-
íurnar árið 1976. Þær eru fyrir
fyrsta sæti á Olympíuleikunum í
Innsbruck, Evrópumeistaramótinu
í Genf og Heimsmeistaramótinu í
Gothenburg. Medalíurnar verða all-
ar seldar saman og talið að yfir
10,000 pund fáist fyrir þær.
LISTIR
Táknræn epli
við Vitastíg
MYNPLIST
LI s t h ú s i ö Grcip
MÁLVERK
EVA G. SIGURÐAR-
DÓTTIR
Opið frá 14-16, lokað mánudaga
til 6. júlí. Aðgangur ókeypis.
LISTASPÍRAN heitir Eva og
nam við MHÍ á árunum 1985-89,
og síðan fagurlistaskólanum í
Lyon, í Frans, 1990-91. Hún
hefur haldið eina sýningu í veit-
ingahúsinu „le Petit Gadin“, Ly-
on 1991, og heldur nú sína fyrstu
einkasýningu á heimaslóðum í
Listhúsinu Greip á horni Vita-
stígs og Hverfisgötu.
Listakonan unga virðist um
þessar mundir vera mjög upptek-
in af nafni sínu í Ijósi sköpunar-
sögunnar og jafnframt lífskvik-
unni sjálfri. Leggur þannig út
af á einblöðungi er liggur
frammi: „í hinum vestræna
heimi eru mörg innihaldsrík tákn
með mjög neikvæða og einhæfa
merkingu í huga fólks.
Ég leita að því margræða sem
býr innan hverrar manneskju,
leita að því sem gefur lífinu gildi
en alltof oft liggur í leyni eða
er drepið niður.
Ég íeita að lífinu í manneskj-
unni. Mitt eigið nafn Eva er
táknrænt fyrir lífið sjálft en samt
sem áður er Eva hin synduga
kona.
Er lífið synd!? Eða eru ótal
minni í lífinu sem einungis eru
til að halda aftur af fólki, halda
fólki niðri svo það sé fangar síns
eigin vanmáttar.
Með því að þekkja sinn eigin
vanmátt styrkjum við sjálf okk-
ur, en það er vinna sem enginn
vinnur fyrir fram. Hver maður
er í raun gullslegin kista full af
„eplum" og það er okkar að hlú
að þeim og rækta, því að lífið
er ekki forréttindi fyrir fáa út-
valda.
Við erum ekki bara hluti af
lífinu, við erum lífið.“ Þessi heim-
speki er svo alveg fullgild sem
myndefni og hefur svo verið um
aldir, og þá einnig myndefni Evu
sem öll tengjast eplum og erfða-
syndinni að meira eða minna
leyti. í skuggaleynum liggur
æpandi kona og tvær slöngur
vefjast að henni, trúður á hækj-
um sér er tengdur epli með hvít-
um þræði og draumar opinberast
í veruleikans heimi.
Myndirnar fímm eru málaðar
með olíulitum á dúk eða krossvið
og stundum nefnist þetta blönd-
uð tækni á striga eða krossvið.
það vekur helst athygli hve
myndirnar eru vel málaðar og
mikið nostur liggur að baki þeim,
- tæknin bæði forn sem ný og
mikið unnið í myndflötinn til að
ná virkri áferð. Sýningin er um
Eitt verka Evu G. Sigurð-
ardóttur.
margt óvenjuleg á þessum stað
og einnig óvenjuleg í þessari
borg og það telst styrkur henn-
ar, jafnframt því sem mikil ein-
lægni og djúp lifun prýðir vinnu-
brögðin.
Semsagt sérstæð og athyglis-
verð frumraun.
Bragi Ásgeirsson.
DHL HRAÐFLUTNINGAR HF, Faxafcn 9-108 Reykjavík
Slmi (9 I)689822 • Fax (91)689865
VIÐ STÖNDUM VIÐ SKULDBINDINGAR ÞÍNAR
24 stunda þjónusta DHL er nú í
boði á milli íslands og annarra
Evrópulanda. Hún felur það
í sér að hlutur er afhentur
móttakanda innan
24 klukkustunda.
Gildir þetta jafnt
um sendingu til
eða frá Islandi.
Meiri flýtir, meiri
hagræðing, meiri
sparnaður og betri
markaðsstaða fyrir
inn- og útflytjendur.
Nánari uþplýsingar
á skrifstofu DHL
Morgunblaðið/Golli
JOHN Greer og skúlptúrar hans í Gallerí 11.
Menning og
náttúra
SÝNING á skúlptúrum
myndlistarmannsins Johns Gre-
ers stendur nú yfir í Gallerí 11.
Á sýninginni sem er á vegum
Listahátíðar í Reykjavík eru
fjórtán skúlptúrar. Sýningin er
37. einkasýning Greers en hann
hefur starfað sem listamaður í
um 30 ár. Síðustu 14 árin hefur
hann kennt við The Nova Scot-
ia College of Art and Design
og er nú deildarstjóri högg-
myndadeildarinnar.
Rósaknúppar og hraun
Sjö verkanna á sýningunni
eru steypt í mót lokaðra rósa-
knúppa á stærð við mannshöfuð
og húðaðir dökkblárri patínu.
Við hlið hvers rósaknúpps er
svartur hraunhnullungur. Að
sögn Greers eru verkin á sýn-
ingunni myndlíking fyrir sam-
band menningar og náttúru,
Menningin skapar og mótar
manninn eins og náttúran
hraunhnullungana, og menning
og náttúra hafa jafnframt áhrif
hvort á annað. Greer sagði
þetta sæist í Iöndum eins og
Islandi þar sem náttúran hafí
sterk áhrif og menningin sé
kraftmikil. Ef menningin staðn-
aði yrði maðurinn varnarlaus
og ómótaður.
Að sögn Greers bauð eigandi
Gallerí 11, Hannes Lárusson,
honum að sýna á íslandi. Greer
kynntist Hannesi þegar hann
var í námi erlendis og hafa
þeir haldið sambandi síðan. En
Greer hefur mikinn áhuga á
íslenskri menningu. Hann hafði
eingöngu _tækifæri til að dvelja
í viku á íslandi í þetta skiptið
en var hrifinn af því sem hann
hafði séð af landi og þjóð. Hann
sagðist gjarnan vilja koma aftur
til að halda aðra sýningu og
ferðast meira um landið.