Morgunblaðið - 21.06.1994, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 21.06.1994, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 AÐSEIMDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ —r Samtaka nú! Nokkur góð ráð til að verjast bankamafíunni BANKAR landsins kvarta sáran undan slæmri afkomu. Þeir hafa samt byggt glæsileg útibú um allt land, skreytt dýrindis málverkum, rándýrum marmara og palisander. Laun líttmenntaðra bankastjóra jafnast á við laun átta háskólapró- fessora. Samt sem áður er rekstur bankanna talinn svo slæmur að nú á að grípa til blóðugra aðgerða í formi færslugjalda. Aður fyrr, þegar afí minn lagði saman færslur á tékkareikningum í Utvegsbankanum sáluga með handafli, meðan tölvur voru ekki til og miklu fleira fólk vann í bönk- unum, þurfti ekkert færslugjald. Ávísanahefti voru afhent fólki í bunkum, því að kostnaðarlausu. Það er því uppspuni að bankar þurfí á færslugjaldi að halda. Þetta er bara mjög þægileg leið fyrir bankana að hirða peninga úr þínum vasa og setja í sinn. Bankarnir sem búa til leikregl- •—^urnar fá að leika sér með helming launa allra landsmanna nánast ókeypis. Um mánaðamót er obbinn af launum landsmanna lagður inn á ávísanareikninga, en í mánaðar- lok má ætla að þeir séu um það bil tómir. Vextir eru reiknaðir út frá lágmarksinnstæðu á tímabilinu og eru því nánast engir en að með- altali eru um hálf laun landsmanna 3M Til lækninga inni á ávísanareikning- um. Hér er um millj- arða króna að ræða og bankarnir græða auð- vitað vel á því að lána út þetta fé. Áður fyrr kunnu bankar vel að meta sína viðskiptamenn, því þeir vissu að þeir lifðu á innstæðum þeirra og gera reyndar enn, þótt þeir vilji ekki viðurkenna það. Nú halda þeir að þeir séu ómissandi peninga- verðir. Hér að neðan éru talin upp nokkur vam- arbrögð sem þú getur notað til að spara þér stórfé á ári hvetju. Þú getur sparað nokkra tugi þúsunda á ári, því að meðaltali borgar hver reikningseigandi um 15.000 krónur á ári til bankans. Lesandi góður: Launin þín eru auðvitað algjörir smámunir fyrir bankann. Þú einn getur ekki farið fram á eitt eða neitt í bankanum, því að hann telur sig hafa vald yfír greiðslukerfi landsmanna. En samanlögð laun okkar allra eru lifí- brauð bankans, hverju svo sem hann vill láta okkur trúa. Sex sparnaðarleiðir Það er svívirðilega dýrt að nota ávísanir eftir upptöku færslugjalds. Auk þess að greiða 29 krónur fyrir hveija ávísun, þarf ennfremur að framvísa debetkorti því annað tekur bankinn ekki gilt, þrátt fyrir að önnur persónuskilríki séu tekin góð og gild annars staðar. 1. Afpantaðu mán- aðarleg yfirlit frá bankanum til að spara 45 krónur, 495 krónur á ári. Ef þú þarft að vita stöðuna getur þú notað bankalínuna í síma 62 44 44. Bankalínan var ágæt en hefur stórum versnað upp á síðkast- ið með auknu álagi. Fyrir alla muni, ^kki hringja í bankann og spyija um stöðuna, það kostar þig 45 krónur og getur valdið því að ekki sé til fyrir næstu ávísun. Það kostar þig um 500 krónur í „FIT“ kostnað. Með öðrum orðum: Hættu að nota ávísanir nema í neyðartilfellum. 2. Samkvæmt gömlum íslenskum lögum, sem ég vona að kommissör- um bankanna hafí ekki tekist að ógilda, er atvinnurekendum á ís- landi skylt að greiða út laun í pen- ingum, óski launþeginn eftir því. Farðu fram á þetta við launagreið- anda þinn. Verði peningar eftir um næstu mánaðamót legðu þá inn á bankabók sem gefur vexti eða kauptu skuldabréf ríkissjóðs. Þú munt brátt uppgötva að það er miklu þægilegra og fljótlegra að greiða með góðu gömlu íslensku peningunum heldur en með debet- korti eða ávísun. Með því að hafa peningana heima munt þú verða sparsamari. Taktu bara með þér þá upphæð sem næg- ir fyrir því sem þú ætlar að kaupa. Með heftinu eða debetkorti getur þú leyft þér að kaupa óþarfahluti Kristján Ingvarsson SIEMENS Tveir góðir á útsöluverði! KS 24V00 • 140 x 55 x 60 sm(hxbxd) • 169 I kælirými • 58 I fjögurra stjörnu frystirými • 2 hurðir Áður kr. 60s4&0.- Nú kr. 55.707.- stgr. KS 26V01 • 148 x 60 x 60 sm (hxbxd) • 188 I kælirými • 68 I fjögurra stjörnu frystirými • 2 hurðir Áður kr. niú kr. 59.427.- stnr. Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Asubúð ísafjörðun Póllinn Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: Rafsjá Sigluhörður: Torgio Fjölbreytt úrvat annarra kælí- og frystitækja SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SlMI 628300 VUjir þú endingu og gæði- Samkvæmt lögum er atvinnurekendum skylt að greiða út laun í pen- ingum, segir Kristján Ingvarsson, óski laun- þeginn eftir því. og í hita augnabliksins er það oft freistandi. Peningastaðan verður alltaf á hreinu, því það er einfalt að telja peningana í krúsinni. Ef þú hefur haft það fyrir vana að nota svunt- umar í heftinu til að fylgjast með eyðslunni, þá fást ágætis litlar blokkir sem komast í veskið, þar sem þú getur punktað niður upphæð í hvert skipti sem þú verslar. 3. Það er visst öryggi í að hafa peningana í banka, en það er dýrt geymslugjald, eftir upptöku færslu- gjalda. Taktu frekar út peninga í hrað- banka. Það er einfalt, þægilegt og gjaldalaust en til þess þarf debet- kort. Vafalaust munu bankarnir bindast samböndum um að taka gjald fyrir það líka. Ef þú heldur að þeir rotti sig ekki saman, hug- aðu þá að því að færslugjald ávís- ana er kr. 19,00 í öllum bönkum, nokkuð sem Samkeppnisstofnun ætti að rannsaka. 4. Ef þú kærir þig ekki um að eiga debetkort, en vilt samt ekki hafa peninga heima, geymdu þá peningana þína inni á ávísanareikn- ingi en notaðu ekki ávísanir, heldur taktu peninga út af ávísanareikn- ingnum með úttektarseðli í bankan- um. Þú getur tekið út peninga í hvaða útibúi bankans þíns sem er. 5. Þegar þú borgar mánaðarlegu reikningana, notaðu ekki ávísun, heldur úttektarseðil. Ef bankarnir ákveða að hafa færslugjald fyrir það, er engin önnur leið til en að geyma peningana heima. 6. Ef þú átt kreditkort, t.d. VISA eða EURO, notaðu þau til að borga fastar mánaðarlegar afborganir. Borgaðu svo kreditkortið mánaðar- lega með úttektarseðli í banka. Debetkortið er stórkostleg hag- ræðing, en bankakerfíð á Islandi vill nota það í sína þágu. Það getur haldið áfram að nota peningana þína án þess að borga þér vexti og hirt af þér gjald í hvert sinn sem þú notar debetkortið eða ávísun. Eini ávinningur þinn af notkun debetkorts er að nú getur þú eytt öllum peningunum þínum í skyndi. Hverslags ávinningur er það? Það er vafamál hvort bankar hafí yfirleitt leyfí til að hirða út af reikningi þínum útskriftargjöld og færslugjöld. Til dæmis taka þeir nú 45 krónur fyrir útskrift, án þess að þú hafir gefíð leyfí og samþykkt úttektina af reikningi þínum. Það er óveijandi að íslenskir bankar skuli ætla að gera debet- kort og notkun ávísana að mikilli gróðastarfsemi, nóg græða þeir á peningunum þínum. Vonandi sjá bankarnir að sér og hætta við færslugjöldin. Bankarnir taka hér áhættu, því vel má vera að þú snúir ekki aftur til þeirra eftir að uppgötva hversu gott það er að nota venjulega ís- lenska peninga, sem gefnir eru út af Seðlabanka íslands. Lokaorð Á erfíðum samdráttartímum er nauðsynlegt fyrir almenning að standa saman og gæta sín vel í flóknu þjóðfélagi, þar sem sérfræð- ingar bankanna koma daglega með nýjar aðferðir til að féfletta fólk. Núverandi bankakerfi, sem ein- kennist af lúxusbyggingum, of- borguðum bankastjórum og bruðli með almannafé, er þungur baggi á landsmönnum. Þessi uppþornuðu pólitísku gamalmenni, sem stjórna bönkunum, verða að læra að spara og haga sér eins og aðrir borgarar í landinu. Ef ekki verður ráðin bót á þessu ófremdarástandi er aðeins ein leið fyrir almenning til að veijast ásælni og yfirgangi bankamafíunnar. Það er að geyma peningana sína undir koddanum heima. Höfundur er verkfræðingur. SPORT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.