Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 33
AÐSENDAR GREINAR
Alnæmi og ókeypis
sprautur
VÍÐA erlendis hefur umræða um
ókeypis dreifingu á sprautum stað-
ið í mörg ár. Sænska ríkisstjórnin
ákvað 1993 að hætta við að koma
á ókeypis dreifingu á sprautum til
fíkla. Akvörðun þeirra byggðist á
rannsókn Sten 0. Rönneberg við
Stokkhólmsháskóla sem gaf til
kynna að dreifing á ókeypis spraut-
um hefði engin áhrif á útbreiðslu
alnæmisveirunnar. í Svíþjóð er
sprautum aðeins dreift ókeypis í
Málmey og Lundi. Ef útbreiðsla
alnæmis þar er borin saman við
Stokkhólm og Gautaborg þar sem
sprautur fást ekki ókeypis kemur
í ljós að nýgengi alnæmis minnkar
í Stokkhólmi og Gautaborg en
eykst í Málmey og Lundi.
í sænskum skýrslum um áhrif
þess að gefa sprautur, sem komu
út á árunum 1988-1991, kemur
fram að einungis tókst að ná til
fárra neytenda (ca. 6%) og ekki
tókst að ná til þyngsta neytenda-
hópsins sem er stærsti áhættuhóp-
urinn. Þetta gefur vísbendingu um
að gj afasprautufyrirkomulagið hafi
ekki skilað tilætluðum árangri.
Er meðferð árangurslaus?
Samkvæmt upplýsingum SÁA
komu 307 sprautufíklar í meðferð
á stofnanir þeirra árin 1991-1993.
Þar af sprautuðu 188 sig reglu-
lega. Samkvæmt ágiskunum SÁÁ
sprauta u.þ.b. 300 manns sig reglu-
lega. Þetta segir að tveir þriðju
allra sem sprauta _ sig reglulega
hafa komið til SÁÁ í meðferð á
aðeins þremur árum.
Þetta háa hlutfall ætti að gefa
mikla möguleika á að fækka veru-
lega í hópi sprautufíkla í landinu.
Til þess að það takist
þarf meðferð að skila
árangri. Hver er ár-
angurinn nú? Getur
verið að endurnýjun
(nýliðunin) í hópi
sprautufíkla jafni út
árangur meðferðar
SÁÁ? Skilar meðferð
e.t.v. litlum sem engum
árangri? Það er slæmt
m.a. með tilliti til hinna
miklu fjármuna sem
varið er til meðferðar-
mála.
Leysa
gjafasprautur
vanda?
Hvernig berst 'alnæmisveiran á
milli manna með sprautum/nálum?
Hún berst á milli við það að fleiri
en einn noti sömu nál. Hvers vegna
sameinast menn um sömu
sprautu/nál?
1. Vegna þess að þeir þekkja
ekki hættuna? Gjafasprautur skipta
engu máli.
2. Vegna þess að þeim er sama
um hættuna? Gjafasprautur skipta
engu máli.
3. Vegna þess að þeir hafa ekki
efni á nægilega mörgum nálum til
þess að hver og einn noti eigin
nál?. Einnota sprauta með nál kost-
ar 10 krónur í apóteki. Er það
hugsanleg hindrun? Gramm af
amfetamíni kostar 4.500-5.000
krónur. Ætla má að notuð séu
0,1-0,2 gr að lágmarki í hvert sinn.
Hver neysla kostarþví 500-1.000
kr. í hvert sinn. (Áhrif skammts
vara í 3-4 klukkustundir). Þeir sem
hafa notað amfetamín um tíma og
myndað þol gagnvart
því þurfa meira magn
en þetta. Kostnaður
vegna sprautukaupa
vegur því ekki þungt
í neyslunni. Gjafasp-
rautur skipta engu
máli.
4. Vegna þess að
þeir geta ekki komist
yfír sprautur með
þægilegum hætti?
Hægt er að fá spraut-
ur í apótekum á opn-
unartíma þeirra kl.
9-23 og jafnvel utan
hans. Gjafasprautur
skipta engu máli.
5. Vegna þess að
það er heppilegra/hagkvæmara að
blanda skammt fyrir fleiri en einn
í hvetja sprautu? Gjafasprautur
skipta engu máli.
6. Vegna þess að það er hluti
af athöfninni að sprauta sig, að
nota sömu nál, tákn um samkennd
og vináttu? Gjafasprautur skipta
engu máli.
7. Vegna þess að löngunin/fíknin
í efnið yfirskyggir allt annað á
þeirri stundu sem efnið er notað?
Gjafasprautur skipta engu máli.
Viðhorfið og vitneskjan
Útbreiðsla alnæmis hefur orðið
mun hægari en óttast var í byijun.
Um ástæðu þess er erfitt að full-
yrða. Hugsanlega hefur mikið upp-
lýsingastarf og áróður um smit-
hættu haft áhrif; hugsanlega skilar
greining smitbera þeim árangri að
viðkomandi breytir kynhegðan
sinni sem veldur langmestu um
útbreiðslu alnæmis. Því fyrr sem
Árni
Einarsson
Almenn og mikil fíkni-
-- - - 1 .. y---
efnaneysla, segir Arni
Einarsson, gerir að-
gerðir eins og gjafa-
sprautur tilgangslausar.
smitberi greinist þeim mun meiri
líkur eru á að koma í veg fyrir að
hann smiti aðra. Við hljótum að
gera ráð fyrir því að fæstir geri
sér að leik að kalla þann dóm sem
felst í alnæmi yfír aðra.
I Morgunblaðinu 18. maí 1994
er bent á sprautupartí sem opna
smitleið B-lifrarbólgu og þá um
leið fyrir alnæmisveiruna. Hvernig
er hugsanlegt að gjafasprautur
breyti einhveiju um það? Er hægt
að sjá fyrir sér að fíkniefnaneytend-
ur leggi á sig nauðsynlegt vesen
og fyrirhöfn við að skipta skammti
upp í marga minni skammta, einn
í hverja sprautu, í þannig partíum?
Varla.
Tvöföld skilaboð
Hvernig stenst það gagnvart lög-
um og opinberri stefnu að dreifa
ókeypis sprautum til eiturlyfjaneyt-
enda? Felst ekki töluverð tvöfeldni
í því að banna neyslu eiturlyfja
með lögum en standa jafnframt
fyrir dreifingu á ókeypis tækjum
til neyslunnar til þeirra sem vilja
neyta þeirra áfram. Reynslan af
tilraunum með gjafasprautur er-
lendis sýnir að aðeins um helming-
ur þeirra skilar sér aftur. Hinar
liggja væntanlega einhvers staðar
á víðavangi ataðar blóði sprautufík-
ils. Hvernig er hægt að bera ábyrgð
á því að dreifa sprautum við þær
aðstæður?
Vanhugsaðar aðgerðir
íslenska heilbrigðiskerfið er vel
uppbyggt. Við þurfum að nýta til
fullnustu möguleika meðferðar til
þess að draga úr fíkniefnaneyslu
sem er grunnáhættuþátturinn
vegna útbreiðslu alnæmis við
sprautunotkun. Þar þarf að koma
að rækilegum áróðri og fræðslu
auk þess að herða grimman og
grímulausan áróður fyrir áhætt-
unni. Sprautufíklar eru sérstakur
hópur sem ekki er víst að meðtaki
fræðslu og upplýsingar með sama
hætti og aðrir hópar. Er tekið tillit
til þess í upplýsingastarfinu? Er
ekki líklegt að langt leiddur eiturly-
Ú'aneytandi sem jafnvel hefur
brennt allar brýr að baki sér meti
hættuna á alnæmissmiti öðruvísi
en aðrir?
Almenn og mikil fíkniefnaneysla
gerir aðgerðir eins og gjafaspraut-
ur tilgangslausar. Það er mögulegt
að með því að leggja áherslu á
ókeypis sprautur sem lausn á smit-
hættu sprautufíkla séu gefin fölsk
skilaboð, skilaboð um falskt ör-
yggi. Eftir sem áður er kynhegðun
fólks aðaláhættuþátturinn. Er
hugsanlegt að vitundin um hann
slævist við það að beina athygli
sprautufíkla að öðru?
Vanhugsuð viðbrögð við vágesti
sem alnæmi eru stórhættuleg.
Höfunduv er framkvæmdasíjóri
Fræðslumiðstöðvar í fíknivörnum.
Gröfueigendur
Dýptarmælir fyrir skurðgröfur
eykur gæöi og afköst. Kristján
Eiríksson hjá Bergbroti hf. hefur
notað mælinn t ár og segir hann
hafa komið í stað hjálparmanns.
Kristján er nú engum háður á
löngum vinnudegi. Mælirinn passar
á belta-, hjóla- og traktorsgröfur.
Til afgreiðslu strax.
íslensk tæki, sími 91-683 675
Mazda 626 GLX
árg. 1986/1987. Tilboðsverð frá
kr. 330.000.
Daihatsu Charade árg. 1991,
ek. 57 þ. km. Verð kr. 770.000,
nú aðeins kr. 650.000.
Honda Prelude 2 stk. árg.
1987/1988.
Tilboð kr. 750.000/990.000.
Saab 900i árg. 1987, ek. 81 þ.
km. Góður bíll. Tilboðsverð kr.
550.000.
Bílaumboðið
UTSALA U SUMARUTSALA
Mazda 323 LX
árg. 1988, ek. 107 þ. km.,
sjálfsk. Verð kr. 450.000.
Daihatsu Charade árg. 1990,
ek. 67 þ. km. Tilboðsverð á
tveim eintökum kr. 490.000.
Chrysler Saratoga árg. 1991,
ek. 51 þ. km. Tilboðsverð
aðeins kr. 1.380.000.
Saab 99 árg. 1981, ek. 140 þ.
km. Verð aðeins kr. 130.000.
Chevy Monza Classic árg.
1988, ek. 56 þ. km. Toppeintak.
Tilboðsverð kr. 480.000.
Lada Sport árg. 1989, ek. 85
þ., 5 gíra, léttstýri. Gjafverð kr.
290.000.
Honda Civic árg. 1991, ek. 46
þ. km., sjálfsk. Tilboð kr.
670.000.
Nissan Vanette árg. 1987, ek.
98 þ. km., sæti f. 7.
Tilboð kr. 450.000.
Subaru árg. 1985/1987/1988,
turbo. Verð frá kr. 490.000 til kr.
890.000.
Renault21 TXE árg. 1988, ek.
73 þ. km., rafm. í öllu.
Verð aðeins kr. 590.000.
VW Golf GT árg. 1989, sóllúga
o.fl. Tilboð aðeins kr. 690.000.
Krókháisi 1, Reykjavík, sími 876633.
Bílasalan Krókhálsi,
0PIÐ VIRKADAGA
KL:10 -18.
LAUARDAGA12-16
Suzuki Swift árg. 1988, 2 ein-
tök. Tilboðsverð frá kr. 250.000.
Tilboðslisti árg. stgr. tilb.verð
kenault IIA, sjálfsk., I988 450.000,- 350.000,-
Ford Sierra I.6 1986 290.000,- 230.000,-
BMW 325i 1987 .150.000,- 900.000,-
Lada station 1991 410.000,- 310.000,-
Renault I9 GTS 1990 670.000,- 590.000,-
Skoda Favorit 1991 360.000,- 295.000,-
Peugeot 205XR 1987 340.000,- 290.000,-
Volvo 240 GL 1990 1.250.000,- 1.090.000,-
Ford Econoline 1987 1.800.000,- 1.250.000,-
MMC Colt 1988 530.000,- 390.000,-
BMW S20ÍA 1987 790.000,- 690.000,-
BMW 3I6 1988 750.000,- 690.000,-
BMW 520ÍA 1984 350.000,- 290.000,-
Fiat Uno 45S 1988 220.000,- 190.000,-
Subaru justy 1987 350.000,- 250.000,-
MMC Lancer GIX 1990 690.000,- 590.000,-
Toyota Corolla 1987 390.000,- 340.000,-
Citroen AX I4 1988 370.000,- 330.000,-
BMW 520i 1989 1.690.000,- 1.490.000,-
Euro/Visa raðgreiðsiur
Skuldabréf til allt
að 36 mánaða
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 676833.