Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 36

Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Aðalsteinn Guð- mundsson var fæddur í Reykjavík 8. ágúst 1903. Hann andaðist á Borgar- spítalanum að kvðldi 13. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Guð- mundur Matthí- asson, f. 22. sept- ember 1874 í Nikn- lásarkoti í Reykja- vík, d. 27. apríl 1949, og Pálína Magnúsdóttir, f. 12. janúar 1873 í Steinabæ á Bráð- ræðisholti í Reykjavík, d. 8. júli 1919. Foreldrar Aðalsteins eignuðust fimm böm, er vora: Anna Guðrún, f. 1896, d. 1897; Agnes, f. 1898, d. 1900; Guð- mundur, f. 1901, d. 1902; Aðal- steinn, f. 1903, d. 1994; Magn- ús, f. 1905, d. 1983. Síðar kvæntíst faðir þeirra Sigur- rósu Þorsteinsdóttur er fædd var á Horni, Hornafirði, 16. júh' 1896, en lést 11. júlí 1971. Eignuðust þau scx börn: Matt- hías, f. 1922, d. 1992; Þor- steinn, f. 1923; Gunnar, f. 1924; Anna, f. 1926; Pálína, f. 1928 og Rósa, f. 1930. Árið 1925 kvæntíst Aðalsteinn eftirlif- andi konu sinni, Vilborgu Jóns- dóttur, f, 24. febrúar 1908 á BQdudal. Foreldrar hennar voru Níels Jón Sigurðsson, f. 9. júnl 1859 að Hofsstöðum í Gufudalssveit, d. 4. mars 1921 á Bðdudal, og Halldóra Bjarn- ey Magnúsdóttír, f. 12. október 1869 á Felli í Tálknafirði, d. 17. aprfl 1937 á Bfldudal. Börn Aðalsteins og Vilborgar eru: Pálina, f. 1925, gift Valberg Gislasyni fyrrv. matsveini; HaUdóra, f. 1927, gift Magnúsi Þorbjörassyni prentara, þau eiga tvö böra; Agnes, f. 1935, gift Brynjólfi Sandhoit yfir- dýralækni, þau eiga þijú böra; Guðmundur, framkvæmda- stjóri, f. 1942, kvæntur Stein- unni Aðalsteinsdóttur, þau eiga þrjá syni. Árið 1919 hóf Aðal- steinn störf hjá Landsverslun við afgreiðslu á kolum og olíu og vann þar tíl þess er Lands- verslunin var lögð niður 1928 er hann var ráðinn af Héðni Valdimarssyni tð Olmverslnn- ar íslands hf., sem hann starf- aði hjá allt til ársins 1978. Hafði hann þá unnið óslitið við afgreiðslu á oliu í 59 ár. Útför Aðalsteins fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag. FALLINN er frá ástkær tengdafað- ir minn og vinur um 45 ára skeið, háaldraður. Margs er að minnast frá þessum tíma, en mikið og gott samband var ávallt á milli fjöl- skyldu minnar og þeirra hjóna, Aðalsteins og Vilborgar konu hans, en hún lifir nú mann sinn háöldr- uð. Þau giftust 23. maí 1925 og hófu búskap í húsi föður hans við Lindargötu 23 hér í borg, en þar var Aðal- steinn fæddur. Árið 1937 fluttust þau að Hofsvallagötu 15 í nýja íbúð og áttu þar heimili allt þar tíl þau fengu inni í Dvalar- heimili aldraðra sjó- manna, farin að heilsu. Síðustu jól voru þau sjötugustu sem þau áttu saman. Langt samlíf það. Alla tíð var Lindar- gatan og umhverfí hennar ofarlega í huga Aðaisteins og þeir voru margir sunnudagsmorgnamir sem hann gekk inneftir til þess að rifja upp liðinn tíma á æskustöðvunum og það þótt allt hans fólk væri löngu farið þaðan. Hann var manna kunnugastur þar, þekkti sögu hús- anna, vissi hvar gömlu bæimir höfðu staðið sem horfnir vom, hveijir byggðu húsin og hveijir ólu þar aldur sinn, og jafnvel hvaðan þetta fólk var upprunníð. Ættfræði var mikið áhugamál hjá honum þótt leynt færi. Marga stundina átti hann á Þjóðskjalasafninu, leit- andi þar að forfeðrum sínum, konu sinnar og jafnvel kunningja sinna og annarra er í hugann komu. Hann var sérlega minnugur alla tíð og það fram til síðustu stundar. Aðalsteinn var ekki ánægður þegar hann sá á prenti umsagnir um Lind- argötuna, ef þar var ekki farið rétt með, en hlédrægni hans kom í veg fyrir að hann kæmi leiðréttingum á framfæri. Ungur fór Aðalsteinn að vinna fyrir sér og fyrstu störf hans vom er hann gerðist sendill á Landssím- anum og bar út símskeyti. Áratug- um seinna vildi svo til að sá er þetta ritar fetaði í fótspor hans og vann við skeytaútburð í fjögur ár sem fyrstu störf. Seinna vann Aðal- steinn hjá Landsverslun með föður sínum. Þegar svo Oiíuverslun ís- lands hf. var stofnuð 1928 réðst hann þar til starfa sem verkamað- ur, seinna verkstjóri við útkeyrslu á olíu, m.a. til húshitunar bæði í bænum og til sveita. Margan góðkunningjann eignað- ist hann í gegnum slmann I þá daga. Stundum kom það fyrir að bændur komu við hjá honum er þeir áttu leið til Reykjavíkur tíl að forvitnast um hvemig þessi kunn- ingi þeirra liti út og urðu þá fagnað- arfundir er báðir höfðu ánægju af. Hjá Olíuverslun íslands vann Aðalsteinn yfir 50 ár og ég held að fáir ef bara nokkur maður hafi þekkt betur sögu fyrirtækisfns en hann. Þama líkaði honum vel, bæði við yfínnenn og aðra samstarfs- menn. Ég tel mig vita það líka að hann var vel liðinn af félögum sín- um. Samviskusemi hans og skyldu- rækni gagnvart fyrirtækinu var með ólíkindum. Nokkuð var það, að eitt sinn er spurst hafði að ein- hverjir starfsmenn væm á förum frá því, birtist forstjórinn, Héðinn Valdimarsson, einn daginn inni á eldhúsgólfi hjá Aðalsteini og spurði hreint út og var töluvert niðri fyr- ir, hvort hann væri á fömm frá sér. Hinn hélt nú ekki, slíkt hefði ekki hvarflað að sér. Héðinn sagð- ist treysta orðum hans og hækkaði launin hans þama á staðnum, hélt að það tryggði betur vem hans áfram. Héðinn var sú persóna sem Aðal- steinn bar ávallt mikla virðingu fyrir og átti einnig að góðum vini. Hann hafði ávallt gert vel við starfsmenn sína, stofnaði Iífeyris- sjóð innan fyrirtækisins löngu áður en slíkt þekktist almennt. Hann hvatti menn sína til þess að koma þaki yfir höfuðið og lánaði Aðal- steini og fleiram peninga svo þeir gætu greitt fyrstu greiðslur af íbúðum sínum er þeir hófu þátttöku í byggingu V erkamannabústað- anna 1936. Þeir urðu þrír vinnufé- lagamir er byggðu saman á Hofs- vallagötu 15 og bjuggu þar allir til enda sinna Iífdaga. Ferðalög og skemmtanir er Héðinn stóð fyrir innan fyrirtækisins voro til fyrir- myndar og rómuðu hjónin oft þá tíma I eyru okkar. Eitt var það sem mér þótti ein- stakt og það var hve Aðalsteinn var glöggur á bæjamöfn og ömefni er við áttum samleið um nærsveit- imar. Hann ferðaðist ekki mikið, en las þeim mun meira og mundi það vel. Einnig kynntist hann bæj- um af tali sínu við bílstjóra fyrir- tækisins er hann sendi út og suður með olíufarma. Hann vissi oftast hveijir bjuggju á þessum bæjum og tengdi þá oft við söguna. Flestir frítímar hans fóm í lestur góðra bóka um menn og málefni lands og lýðs, og á Hrafnistu var hann sílesandi þar til þrem vikum fyrir andlátið, en þá brast sjónin snögglega svo sjáanlegt var að hveiju stefndi. Seinni árin var hann bundinn við hjólastól svo lítt gat hann hreyft sig. Oft spurði hann um húsin á Lindargötunni, hvort þau stæðu ennþá, leitaði frétta af bamabömunum, systkinum sínum o.fl. sem honum var hugleiknast. Hann fylgdist vel með og eitt það síðasta sem hann spurði um var hvemig Jóni og Jóhönnu hefði sam- ið í Keflavík daginn áður en hann lést, en Alþýðuflokknum held ég að þau Vilborg hafi fylgt alla tíð. Áðalsteinn lést á Borgarspítalan- um að kvöldi 13. þ.m. Er við hjón- in kvöddum hann klukkutíma áður en hann lést héldum við að við myndum eiga eftir að sjá hann á lífi nokkra daga enn, en sú varð ekki raunin. Ég þakka hér með fyrir hönd aðstandenda Aðalsteins hjúkranar- fólki og læknum hjá Dvalarheimili aldraðra sjómanna einstaka hjúkr- un og vináttu við hann og konu hans þessi ár sem þau hafa dvalið þar. Það er ómetanlegt fyrir að- standendur að kynnast því hve framkoma þessa fólks er einiæg og góð þegar ástand gamla fólksins er orðið bágborið. Nú er þessi ágæti maður horfinn sjónum okkar um tíma og er hans sárt saknað af konu hans og öðmm aðstandendum. Þegar komið er að leiðarlokum er margs að minnast, en hæst ber þó hjá mér að hafa kynnst þessum mæta manni og átt með honum góðar stundir. Dauðinn er alltaf sár hjá eftirlifendum, hvemig sem hann ber að, en í trausti þess að Aðalsteins bíði góð- ar stundir í næsta Iífi, herðum við okkur upp og þökkum honum sam- fylgdina. Blessuð sé minning Aðalsteins Guðmundssonar. _ Magnús Þorbjörnsson. Mágur minn Aðaisteinn Guð- mundsson er fallinn frá níræður, að kalla má saddur lífdaga. Mér er bæði Ijúft og skylt að minnast hans, þessa einstaka sóma- og ágætismanns. Aðalsteinn var sprottin úr jarðvegi ört vaxandi höfuðstaðar og spannaði ævi hans nánast alla öldina. Hann kynntist þannig sögu lifandi samtíðar, lagði á minnið og vann úr með þeim hætti minningartengsla, sem hon- um var lagið. Um leið varð hann mörgum kunnur, framan af einkum í athafnalífinu, lengst af sem aðal- afgreiðslumaður meginstöðvar 01- íuverslunar íslands, og þá gjaman með styttingu í Lalli í BP eða í Olís, en það gælunafn var heima- fengið. Með timanum lærðist einnig mörgum að leita til hans sem fræðaþular um umhverfi sitt og samtímamenn. Mannkostir Aðal- steins vora að sjálfsögðu heima- fenginn baggí og skýrt dæmi um þann manndóm, sem gat vaxið upp hér „á mölinni", að sjálfsögðu með rætur lengra aftur í svertamenning- unni. Starfskraftar Aðalsteins leituðu í sama farveg og Guðmundar föður hans Matthíassonar, sem vann við Thomsens Magasín í minnst aldar- fjórðung og síðan sem verkstjóri hjá Kolum og salti, áður en þeir feðgar gengu til liðs við Landsversl- un og fylgdu síðan Héðni yfir í Olíuverslun (BP), þar sem Aðal- steinn varð verkstjóri og aðal- afgreiðslumaður. Þarna var fengist við helstu orkugjafa rísandi vél- væðingar til lands og sjávar og grandvöll stórtækra atvinnuhátta, með ört vaxandi veltu, mannvirkj- um og tæknibúnaði í birgðahaldi og umsetningu þessara orkugjafa. Þannig var ósmár hlutur þeirra feðga í umsköpun atvinnulífs og mannlífs, frá því að Guðmundur var hinn trausti og úrræðagóði fylgdarmaður Thomsens í fyrsta bílnum, um nærfellt sex áratuga starf Aðalsteins að olíudreifingu og firam til þess að yngsti bróðirinn Gunnar byggði upp vinnuvéla- og þungaflutningafyrirtækið GG. Leiðir okkar Aðalsteins lágu saman síðsumars 1946, er ég tók að stunda Rósu yngstu systur hans, en milli þeirra hins elsta af fyrra hjónabandi og hinnar yngstu af síðara hjónabandi vora nærri 27 ár. Mér varð þegar ljós sérstaða hans sem helstu stoðar og ráðgjafa fjölskyídunnar samhliða því að fað- ir þeirra var allmjög tekinn að reskjast, en hann var jafnaldri stjórnarskrárinnar og gekk fulltíða maður um garða á landshöfðingja- tímanum. Sorgarskuggi bama- dauðans hafði hvílt yfir Qölskyld- unni, og þeir bræðumir tveir því einstaklega dýrmæt vonareign í bemsku. Við það bættist móður- missirinn á unglingsáram þeirra. Enda þótt þeir eignuðust góða fóstra í Sigurós, tengdamóður minni, var Aðalsteinn of fullvaxinn til þess að taka við nýju móðemi. Honum varð þetta sjálfsagt eggjun til að fullorðnast snemma og taka á málum að hætti fullþroska manns. Hann var því talinn til eldri kynslóðar en systídnahópurinn al- mennt, enda eldri dætur þeirra Vilborgar heldur eldri en hálfsystur hans. Bemskuhéimilið við Lindar- götu var menningarlegt, með góð- um kosti lesinna bóka og samgangi við menntað fólk, en Pálína hús- freyja var Kvennaskólagengin. Hélst heimilið á sama stað, órofið að munum, minjum og erfðum í tíð Sigurrósar, og stóð bú þeirra Aðal- steins og Vilborgar í því húsi fyrstu tylft ára. Er að vonum, að þetta samhengi hefur rótfest tryggð hans við staðinn og hverfíð og afburða kunnugteika hans af því, og því fremur sem vinnustaður hans var beint niður undar, á Klöpp við Skú- lagötu. Málsmetandi menn hafa tekið svo til orða, að húsin við Lind- argötuna hafí sál. Sú fannst manni að minnsta kosti raunin, þegar þau kviknuðu til nýs lífs í samtölum fjölmiðlamanna við Aðalstein. Aðalsteinn bar með sér þá mann- kosti, sem sjálft nafnið bendir til, sá meginklettur sem byggja mátti á, stilltur, grandvar og velviljaður, en fastur fyrir og óhagganlegur frá réttu máli. Svo minnugur, áreiðan- legur og orðheldinn, að af bar og ekki þurfti frekar vitnanna við. „Orð skulu standa“ var meginregl- an í einkalífí jafnt sem starfi. Þessu kynntist ég betur, þegar ég varð samstarfsmaður hans á námsáran- um 1947-50 og tók við afgreiðslum stöðvarinnar til vinnslu á skrifstof- Islenskur efnlviður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitið upplýsinga. I S. HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677 AÐALSTEINN GUÐMUNDSSON unni. Óreynt ungmenni kom ég til starfa með hinum harða og dug- mikia kjarna, sem haldið hafði sam- an undir stjóm Héðins frá Lands- verslunaráranum, ásamt öðram yngri. Andinn var góður og sam- heldni traust, og listrænn blær yfir sumum. Á stöðinni vora Lalli, Keli og Doddar tveir, en fullum nöfnum var ógjaman spanderað á menn í erli dagsins. í mínu upphafi þama hvolfdist yfir okkur holskefla af- greiðslna til olíuþyrsts þjóðar- búskapar eftir um fimm vikna verk- fall. Við slíkar aðstæður komu kostimir best í Ijós, allt afgreitt af fumlausu öryggi og skýr og viliu- laus grein gerð fyrir, og bar það skýrast mark Aðalsteins að öðrum ólöstuðum. Bókfest er, að fyrstu 22 árin hjá Olíuverslun vantaði Aðalstein aldrei til vinnu sinnar, og mér er til efs, að hann hafi nokkra sinni mætt of seint, en það hefur þá verið af meira en gfldri ástæðu. Hann lagði mikla stund á að ganga til vinnu sinnar frá Hof- svallagötunni frá 1937, en með fiutningi olíustöðvarinnar í Laugar- nes breyttust starfsaðstæður, að flestu tfl hins betra en úr dagiegu göngufæri að heiman. Göngur á bemskuslóðimar lögðust góðu heilli hins vegar ekki af. Þau hjón- in urðu ekki að marki snortin af einkabflismanum, komust allra sinna ferða á fæti og með almenn- ingsfarartækjum, þar tfl bömin fóra að taka þau upp L Þar með héldu þau nokkru svigrúmi til menningariífs, einkum bóklestrar og leikhúsferða. En aUt þeirra heimilishald var mótað af strangri, nánast útreiknaðri ráðdeild og út- sjónarsemi. Svo dyggðugt lífemi sem þeirra verður varla skýrt með öðra en að þau hafi gert dyggðina að ljúfum leik. Fjölskyldan festi nýjar rætur í knöppum verkamannabústað á Hofsvallagötu 15, svo entist ævina, í nábýli við starfsfélaga og síðar í grennd við styttu Héðins, for- göngumanns slíkra bygginga og trúnararvinar fjölskyldunnar. Er dijúgur þáttur lífssögu þeirra og heimilisrekstrar rakinn í bók Sig- urðar G. Magnússonar, „Lífshættir í Reykjavík 1930-1940“, sagn- og þjóðháttafræðflegri könnun á hög- um fimm Qölskyldna, sem gátu reitt fram nægilega glöggar heim- fldir til verksins. Allt er þar tíundað af nákvæmni og skýrleika, og til- greint upp á krónu hvað hver hlut- ur kostaði langt aftur í tímann. Frásögnin þótti þess verð að vera endursögð í íslenskum söguatlas, 3. bindi, og stendur þar sem skýrt dæmi um dyggðuga og ráðdeildars- ama alþýðuflölskyldu fram að seinna stríðL Aðalsteinn stundaði knattspymu á fyrstu manndómsárum sínum og var í því liði Vals, sem fyrst vann keppni fyrir það féiag. Vinnuslys olli endalokum þeirrar ástundunar og varð honum varanlega til baga. En löngu síðar mátti oft sjá mið- aldra mann leiða ungan son sér við hlið á knattspymuleikL Feðgasam- bandið var náið og innilegt, bæði upp til föður og niður til sonar. Til þess var tekið, hve miklum tíma þau hjónin vörðu með bömunum, og trúarieg rækt og kirkjugöngur skipuðu sinn sess. Hið sama átti raunar við um ríka ræktarsemi við alla stóifyölskylduna, sem ágerðist með árunum, þótt engri tilfmninga- semi væri flíkað. Aðalsteinn tók á sig að rannsaka sögu fíölskyldunn- ar og rekja ættir hennar til ýmissa landshluta, svo og sögu húsa og fólks, sem við þá sögu hafa komið. Þetta reifaði hann í löngum minnis- greinum og bréfum til systkina sinna. Þau Aðalsteinn og Vilborg hafa skilað mikilli og góðri arfleifð í manndómi og menntun niðja sinna og öllum þeim góðu verkum og áhrifum, sem af þeim hefur leitt. Um leið og við kveðjum Aðalstein með kærri þökk og biðjum honum blessunar, vottum við Vflborgu og flölskyldunni innilega samúð. Bjarni Bragi Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.