Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 38

Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, ÓLI VESTMANN EINARSSON prentari, Hagamel 20, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 19. júní. Jóna Einarsdóttir, Álfheiður Óladóttir, Eygló Óladóttir, Sigrún Óiadóttir. t Faðir okkar, KRISTINN JÓNSSON, Akralandi 3, Reykjavik, lést í Landspítalanum þann 16. júní. Páli'na S. Kristinsdóttir, Þráinn Kristinsson, Ásta Kristinsdóttir, Ásgeir Þ. Kristinsson. t Faðir okkar og tengdafaðir, ÖRN H. MATTHÍASSON, sem lést þann 13. júní sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 13.30. Ólafur Örn Arnarson, Kristin Sólveig Jónsdóttir, Sylvía Arnardóttir, Magnús Snorrason, Ingólfur Arnarson, Halldóra Haraldsdóttir. t Eiginkona mín, ÁSBJÖRG TEITSDÓTTIR, Laugarvatni, er lést í Sjúkrahúsi Selfoss 15. júní, verður jarðsungin frá Selfoss- kirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, . Eiríkur Eyvindsson. t Maðurinn minn, HERMANN JÓNSSON, Smáratúni 20, Selfossi, ’ áðurbóndi, Norðurhvammi, Mýrdal, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands þann 19. þ.m. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Guðný Bergrós Jónasdóttir. Móðir okkar, t INGVELDUR ÁMUNDADÓTTIR frá Kambi f Flóa, lést að morgni 17. júní. Hulda Hjörleifsdóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir, Bergný Hjörleifsdóttir, Steindór Hjörleifsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, CAMILLA E. PROPPÉ, Einarsnesi 34, Reykjavík, lést f Borgarspítalanum 8. þessa mánaðar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegustu þakkir til allra þeirra, er studdu hana og önnuðust í veikindum hennar. Svava Aradóttir, Ari Þorleifsson, Jón Friðrik Arason.Marisa N. Arason, Þórhallur Arason, Þráinn Þórhallsson. ARNGUNNUR JÓNSDÓTTIR sett í Reykjavík ásamt fjölskyld- um sínum: Ársæll, Svava Krist- ín, Anna Guðrún (d. 1978) og Þórgunnur. Ung að árum giftist Arngunnur Þórði Jónssyni og eignuðust þau tvö börn: Mar- gréti, sem gift er Friðriki Þór Halldórssyni, en þau hjón eiga eina dóttur og starfa bæði á Stöð 2, og Steingrím Jón, mark- aðsfræðing, sem er ókvæntur. Amgunnur og Þórður slitu sam- vistum. Seinni maður Arngunn- ar er Páll Ólafsson rafvirki. Þau eignuðst eina dóttur, Maríu Erlu. Hún er 19 ára, í föðurhús- um, og er nemi í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Áður en þau Páll kynntust eignaðist Arn- gunnur son, Ragnar Heiðarsson. Hann er búsettur á Akureyri. Utför Arngunnar fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju í dag. HÚN fæddist í Vesturbænum í Reykjavík og ólst þar upp. Vestur- bærinn var auðvitað besti og skemmtilegasti staðurinn í allri Reykjavík, að hennar mati. Þar eign- aðist hún vini sem entust henni ævilangt. Bernskan var björt og skemmtileg. Henni var lagið að segja skemmtilega frá, þann- ig að hún hreif fólk með sér á vit ævintýranna. Hjólreiðatúrar langt út fyrir borgarmörkin voru ekki óalgengir. Hún var í fimleikum ásamt vin- konum sínum og náði langt í þeim. Hún var svo heppin að eignast vinkonur sem hún hafði samband við fram á síð- asta dag. Þá voru riíjað- ar upp skemmtilegar stundir frá þessum áhyggjulausu tímum. Hjónaband Páls og Arngunnar var gott og fallegt. Þau söfnuðu ekki veraldlegum auði, en lögðu inn á þann banka sem hollt væri okkur öllum að leggja inn á. Þau áttu sam- eiginlegt að vera bæði listræn og smekkvís. Arngnnnur var feikilega góður teiknari, en lagði ekki næga rækt við þá gáfu. Öll eigum við okkar sorgir og fór Arngunnur ekki varhluta af þeim. Um árabil réð Bakkus gjörðum hennar. Það voru erfið ár fyrir hana og alla hennar vini og vandamenn. Hún barðist við Bakkus og vann svo sigur árið 1978. Hún vann um ára- bil hjá SÁÁ. Þar sem annars staðar kynntist hún ijölda fólks sem átti við sama vandmál að stríða. Það var stórmerkilegt að hlusta á hana tala um þennan válega sjúkdóm. Hún lagði Bakkus að velli með reisn. Hún vann við afgreiðslustörf hjá Pósti og síma í Reykjavík í nokkur ár. Seinustu störf hennar sem úti- vinnandi voru við afgreiðslu í Frí- höfninni. Alls staðar eignaðist hún vini. Hún var glaðlynd, skemmtileg og hjálpsöm. Hún átti við mikið heilsuleysi að stríða um árabil, en barðist eins og hetja. Oft var hún veikari en svo að hún hefði átt að mæta í vinnu, en áfram skyldi haldið. Brosið hennar fallega plataði okkur oft. Seinustu tvö árin og rúmlega það var hún meira og minna kvalin vegna krabbameins, sem leiddi hana svo til dauða. Baráttan var geysilega erfið henni og fjölskyldunni. Páll maður hennar sýndi henni og gaf alla þá ást og umönnun sem unnt var. Árngunur vissi að hveiju stefndi en brotnaði aidrei. Hún vildi frekar hugga en að vera hugguð. Sú sem þessar línur skrifar kynnt- ist Arngunni fyrir 22 árum og hefur búið í nálægð við hana í öll þau ár. Eg tel mig því geta sagt með sanni að hún var góð manneskja. Arn- gunnur var búin mörgum þeim kost- um sem eftirsóknarverðastir eru í lífi hvers manns. Hún var mjög vel greind, vönduð í orði, glaðlynd. Hún var falleg kona og vinsæl. Hún kvaddi okkur með reisn. Við sem eftir erum söknum hennar og óskum þess að börnin hennar öll megi erfa alla þá góðu kosti sem Amgunnur átti í ríkum mæli. Páli og börnunum öllum vottum við okk- ar dýpstu samúð. Guðbjörg Þórhallsdóttir. Okkur elskulega vinkona er dáin. Hún lést langt fyrir aldur fram eftir harða baráttu við krabbamein. Við unnum saman í Fríhöfninni á Kefla- víkurflugvelli og tókst með okkur góður vinskapur sem hélst til hinstu stundar. Arngunnur var góður félagi og bar tilfinningar sínar ekki á torg. Hún var létt í lund og alltaf stutt í hláturinn, en við vitum að undir niðri sló viðkvæmt hjarta. Það er alltaf sárt að sjá á bak góðum vin, en það er huggun harmi gegn að eiga góðar minningar. Þær munu seint gleymast. Elsku Palli, María Erla, Ragnar og aðrir aðstandendur, megi góður Guð gefa ykkur styrk á þessari sorgarstund. Við þökkum Amgunni samfylgd- ina og kveðjum góða vinkonu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu Arngunnar Jónsdóttur._ Ásthildur Hermann, Sigurbjörg Ólafsdóttir. t Bróðir okkar, FRIÐRIK PÁLMAR BENEDIKTSSON, andaðist á elliheimilinu Grund 17. júní. Systkini hins látna. t Systir mín, mágkona og frænka okkar, KLARA HELGADÓTTIR, Ásvallagötu 26, Reykjavík, sem lést í Borgarspítalanum hinn 9. júní sl., verður jarðsungin fró Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 22. júní kl. 13.30. ■4* Arngunnur Jóns- * dóttir fæddist í Reykjavík 13. júlí 1942. Hún lést á Landspítalanum. 10. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þórg- unnur Ársælsdóttir og Jón Steingríms- son. Þórgunnur lést í janúar 1972. Jón giftist aftur og býr í Keflavík. Arngunn- ur átti fjögur systk- ini og eru þijú þeirra á lífi, öll bú- Þorsteinn R. Helgason, Annie Schweitz Helgason, Helgi Schweitz Þorsteinsson, Marfa Björk Wendel, Jakob Schweitz Þorsteinsson, Erla Ruth Haröardóttir, Þorsteinn Schweitz Þorsteinsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ENGELHARTSVENDSEN, Dvergholti 10, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn fró Lágafellskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 13.30. Jónina Valdimarsdóttir, Hafþór Svendsen, Hrafnhildur Svendsen, Daníel Olsen, Valdimar Svendsen, Engelhart Þór Svendsen og barnabörn. LEGSTEINAR H€lLUHfiflUNI 14, HflFNflfiFlfiÐI, SÍMI 91-652707 Látin er í Reykjavík mágkona mín, Arngunnur Jónsdóttir. Mann- kostir hennar voru miklir og komu skýrar í ljós eftir því, sem á ævina leið. í viðræðum okkar rak ég mig einatt á hvemig lífsreynsla hennar hafði mótað hana og dýpkað skilning hennar á hvers kyns mannlegum vandamálum og viðbrögðum fólks við breytilegum aðstæðum. í návist hennar þurfti enginn að sýnast vera annar en hann sjálfur. Víðsýni og umburðarlyndi eru sjaldnast meðfæddir eiginleikar heldur áunnir með því að manneskj- an sjálf hefur tekist á við viðfangs- efni sín og sigrað. I skóla lífsins þreytti Arngunnur sínar prófraunir, 1 I _ I _ Krossar lll aleilii I viSarlit og málaoir Mismunandi mynslur, vönduo vinna. Simi 91-35929 oq 35735 ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 620200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.