Morgunblaðið - 21.06.1994, Side 43

Morgunblaðið - 21.06.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 43 FRETTIR Magnús Jón Árnason um reikninga Hafnarfjarðarbæjar Utlit ívið verra en reiknað var með MAGNÚS Jón Árnason bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að reikningar bæjarins fyrir árið 1993, sem lagðir hafa verið fram til fyrri um- ræðu, sýni m.a. að peningaleg staða bæjarins sýndi rúmlega 876 millj. króna halla umfram tekjur. „Útlitið er ívið verra en við höfðum reiknað með,“ sagði Magnús Jón. Magnús Jón sagði að í ljós hafi komið að á árinu 1993 hafi peningalegur halli bæjarsjóðs verið rúm- lega 876 millj. og jafnframt að rekstur bæjarins án vaxta taki 87% af skatttekj- um. „Það er allt of hátt hlut- fall og þarf að fara niður í 70 til 72% svo að þokkalegt þyki,“ sagði Magnús Jón. Sagði hann að miðað við upphaflega áætlun Alþýðu- flokksins mætti segja að Útgjöld hafi í heild hækkað um 19,6%. Úttekt á stöðunni „Eitt af okkar fyrstu verk- um verður að biðja um út- tekt á stöðu bæjarins fýrstu tmánuði ársins og fram til 15. júní,“ sagði bæjarstjór- inn. „Óneitanlega höfum við séð að miklum framkvæmdum hefur verið ýtt af stað fyrir kosningar og marg- ar þeirra höfum við ekki tök á að stöðva. Þannig að við óttumst að staðan sé jafnvel ekki í samræmi við fjárhagsáætlunina en maður þorir ekki að fullyrða neitt um það fyrr en úttektin hefur farið fram.“ Á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjar- stjórnar varr einnig farið fram á heildarúttekt á stöðu bæjarsjóðs Morgunblaðið/Golli MAGNÚS Jón Árnason tók við sem bæjarstjóri í Hafnarfirði á fyrst fundi bæjarstjórnar. Ellert Borgar Þor- valdsson var kosinn forseti bæjar- sljórnar. eins báðir flokkar lögðu áherslu á að gert yrði í kosningabaráttunni. „Það er forsenda þess að hægt sé að hald áfram uppbyggingu að vita hver staðan er,“ sagði Magnús Jón. „Hafnarfjörður er öflugt sveitarfé- lag og við höfum fulla trú á að með því að horfast í augu við vandan þá sé hægt að takast á við hann.“ Síðari umræða um reikningana fara fram á næsta bæjarstjórnar- fundi, sem fram fer 28. júní næst- komandi. ' Gaf íslending- um pálmatré PULLTRÚI Pálmasamfélagsins frá Florída í Bandaríkjunum, J. D. Rowell, hefur afhent grasa- garðinum í Laugardal pálmatré að gjöf. „Innan Pálmasamfélags- ins er ein deild, sem reynir sér- staklega að fá pálmatré til að vaxa á svæðum, þar sem þau vaxa ann- ars ekki,“ sagði J. D. Rowell í samtali við Morgunblaðið. Pálmatréið, sem hann gaf gra- sagarðinum, er af gerðinni trachy- cartus excelsa. Þessi tegund er frá Kína og Japan og er mjög harð- gerð. Tegundin getur þrifist við mikinn kulda, allt niður í mínus 20°C og þrífst ágætlega við mínus 5°C að sögn J. D. Rowells. Til- gangur Pálmasamfélagsins er að stuðla að sem mestri útbreiðslu pálmatijáa. Hann gaf Skógrækt- arfélagi Iteykjavíkur annað ein- tak, sem var gróðursett við hús félagsins. Morgunblaðið/Þorkell J. D. Rowell við pálmatréið í grasagarðinum í Laugardal. Vinningstölur 1 8. júní 1994. (jTh 303^33)^^ (35j(37j (36) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5al5 „ 1 4.347.928 2. 42tb# <5 86.831 3. 4 af 5 86 8.708 4. 3a15 3.006 581 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 7.277.457 kr. UPPLVSINGARSIMSVARI91 -681511 LUKKULINA991002 í Kaupmannahöfit FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI ■ ÁTTA nýir leikarar voru braut- skráðir frá Leiklistarskóla íslands nú í vor. Fjöldi gesta var við athöfn- ina, bæði afmælisárgangar og vel- unnarar skólans. Að þessu sinni brautskráðust Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Halla Margrét Jó- hannesdóttir, Margrét Vilhjálms- dóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Katrín Þorkelsdóttir, Benedikt Erlings- son, Þórhallur Gunnarsson og Hilmir Snær Guðnason, Síðasta verkefni ársins var Sumargestir eftir Maxím Gorkí í ieikstjórn Kjartans Ragnarssonar. Átta nýir nemendur hefja nám í haust og voru þeir valdir úr hópi 100 ein- staklinga sem þreyttu inntökupróf í vor. Skólastjóri Leiklistarskólans er Gísli Alfreðsson. Fáðu þér öfluga framtíðartölvu t a dig DECpc LPv+ - lægri rekstrarkostnaður - þriggja ára ábyrgð DECpc LPv+ i486,25 - 66 MHz 4-64 MB minni 170 eða 340 MB harður diskur S -VGA litaskjár Intel SLe örgjörvi Pentiutn uppfæranleg Local Bus og S3 805 skjáhraðall Windows fyrir Workgroup 3.11 DOS 6.2. Energy Star Digital tölvan leggst í dvala („sleep mode") þegar hún er ekki í vinnslu. Þá notar hún minna en 25 wött. Flestar PC vélar nota hinsvegar 200 wött. Rafinagnskostnaður íyrirtækja lækkar því til muna, ekki síst hjá þeim sem nota margar tölvur. ORTOLVUTÆKNI hefiir selt yfir 1000 DECpc tölvur á árinu og gemr nú í fyrsta sinn annað eftirspurn. Leitið frekari upplýsinga um DECpc LPv+ og aðrar gerðir DECpc tölva hjá sölumönnum okkar Skeifimni 17 eða í síma 687220 og 811111 Þekking - þróun * þjónusta TTST ■wr ORTOLVUTÆKNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.