Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 44

Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens H3& VA! þAÞ \ f ée veit!... ég T l/A/e gKJC/ ) V/LP! AÞ HÚN DYm\ FAILB0A / í FÖKAKPOt- L / / SA&TJ J Æ —Slx. txusl 1—ÍEð Smáfólk 50 HERE I AM ONTHE 0ACK OFMOM'5 0ICYCLE ON THE LOAVTOTHE GR0CER.Y 5TORE.. s 'zc PEOAL HARC7, MOM! HAKPER! THAT'5 THE WAY! Og hér er ég aftan á reið- Stígðu fast, mamna! hjóli mömmu minnar á leið Fastara! Það var lóðið! í matvörubúðina... Gættu þín á garðsláttu- vélinni! Gott! Við erum komin út úr bílskúrnum! BRÉF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Þjóð á tímamótum Frá Ólafi Ormssyni: VIÐ LIFUM á tímum örra breyt- inga. Þróun mála í Evrópu er með ólíkindum og flest í upplausn þar sem áður ríkti stöðugleiki. Evrópa er á tímamótum og nú er einmitt verið að gera tilraun til að þjappa allri álfunni saman undir mið- stjórnarvald Evrópubandalagsins í Brussel með þeim afleiðingum að ekki þarf að spyija að leikslokum fyrir smáþjóð eins og okkur íslend- inga ef við skyldum kjósa það hlut- skipti að vera með í selskapnum og hverfa þar með sem þjóð inn í stærri heild þaðan sem ekki verður aftur snúið, þar sem við verðum að lúta vilja þeirra sterku og vold- ugu. Víða finnast vandamál Á sama tíma og þessi þróun á sér stað í Evrópu eru að rísa efna- hagsleg stórveldi í Asíu og margt bendir til þess að vænta megi veru- legs efnahagsbata í Bandaríkjunum eftir langvarandi samdráttarskeið þar í iandi. Og því ekki að reyna að ná hagstæðum efnahagssamn- ingi við stórveldið í vesturheimi t.d. með fríverslunarsamningi milli ís- lands og Bandaríkjanna? Það eru fleiri álfur á landakortinu en Evrópa þar sem allt er meira eða minna í upplausn, þar sem atvinnuleysi og glæpir fara vaxandi og hreyfíngar nýnasista og fasista njóta aukins fylgis og kynþáttahatarar láta æ meira á sér bera. Það sem snýr að okkur íslending- um þegar aðeins eru um það bil sex ár til aldamóta eru tímamót í flest- um skilningi. Gegndarlaus sóun og eyðsla, skuldasöfnun við erlenda lánadrottna hefur einkennt þjóðar- búskapinn um áratugaskeið. Við höfum lifað um efni fram og haldið uppi falskri velmegun enda skuldir heimilanna í landinu þvílíkar að auðvitað verður aldrei hægt að borga þær nema til komi algjört endurmat á því lífsgæðakapphlaupi sem er á góðri leið með að sundra þúsundum heimila á íslandi. Hægjum ferðina Kapphlaupið um hin efnahags- legu gæði hefur einkennt þjóðlíf íslendinga og sannarlega er komið að því að hægja á ferðinni og ekki er hamingjuna að finna í ríkidæmi eða veraldlegum gæðum. Það er fátt sem bendir til þess að þjóðin hafi áttað sig á staðreyndum. Græðgin er ráðandi og það vill helst enginn fórna neinu fyrir þjóðarhag. Það er sífellt heimtað meira og meira og sparnaður er orð sem fyrirfinnst varla í máli íslendinga á fimmtíu ára afmæli íslenska lýð- veldisins. Siðleysi og ábyrgðarleysi í fjár- málum er slíkt að þjóðarvakningu þarf til að snúa við af óheillabraut. Siðlausa fjármálamenn er víða að finna í okkar samfélagi, menn sem gera það að gamni sínu að verða gjaldþrota. - Það má alltaf stofna nýtt fyrirtæki, skipta um nafn og númer og róa á önnur mið, segja þeir. - Hvað er eitt gjaldþrot á milli vina? spyija þeir með bros á vör og verða sér úti um nýja papp- íra og eru mættir í hanastélsboðið að kvöldi dags. Það ber svo einnig vott um sið- ferðislega hnignun að það færist í vöxt að stolið er undan skatti og gefnar upp rangar tekjur á skatta- framtali. Nýlega kom fram I um- ræðum á alþingi að ríkissjóður verð- ur árlega af fimmtán milljörðum sem stolið er undan skatti. Þeir eru sannarlega til sem hreykja sér af ao vera í svokallaðri „svartri vinnu", þar sem ekki þarf að gefa upp tekj- ur til skatts. Á tímamótum íslenska þjóðin er á tímamótum og margt að breytast í samfélaginu til verri vegar. Það eru komnar til sögunnar nýjar áherslur, ný gildi á mannleg verðmæti, á mannlega reisn. Það ber æ meira á illindum, tortryggni, hroka og yfirborðs- mennsku í mannlegum samskipt- um. Það er eins og kærleikurinn hafí vikið. Boðskapur Krists um að elska náungann eins og sjálfan sig er varla lengur að fínna í okkar þjóðlífi. Við íslendingar höfum talið það okkur til gildis að vera bókmennta- þjóð. Hér á landi hefur lengi verið almennur áhugi fyrir bókmenntum. Sá áhugi virðist því miður fara dvín- andi. Virðisaukaskatturinn sem lagður var á bækur á síðastliðnu ári af núverandi ríkisstjórn er á góðri leið með að ganga af bókaút- gáfunni dauðri. Hvert bókaforlagið af öðru er um það bil að verða gjald- þrota og önnur beijast í bökkum og halda þetta ekki út mikið leng- ur. Ríkisstjórnin virðist eiga öflugan bandamann í aðförinni að bóka- útgáfunni sem eru nýjar sjónvarps- rásir sem Islenska útvarpsfélagið á heiðurinn af að hafa átt forgöngu um að leiða til hásætis á íslenskum heimilum. Stöð 2 heiðrar íslenska lýðveldið á fimmtíu ára afmæli þess með þremur glæpamyndum, hroll- vekjum, ofbeldismyndum og engu líkara en að sú deild sem sér um dagskrána hafi aldrei heyrt getið um lýðveldishátíðina á Þingvöllum 17. júní 1944. Og svo er stöðugt verið að segja fréttir í fjölmiðlum af því hvemig baráttan gangi um hlutabréfm í Islenska útvarpsfélag- inu. Hver hafí myndað meirihluta með hveijum og hvernig. Eins og sá skollaleikur skipti öllu máli í ís- lensku viðskiptalífí. Á meðan þessu fer fram er stöð- ugt vegið að íslenskri bókaútgáfu, íslenskri menningu og íslenskir stjórnmálamenn tala opinskátt um nauðsyn þess að Islendingar gerist aðilar að Evrópusambandinu. Og Þórarinn Eldjárn, skáld og rithöf- undur, segir í þætti í DV 11. júní síðastliðinn að hann hafí vaknað einn morgun eftir erfiða nótt með hræðilegum draumförum, martröð. Það eru síðustu forvöð að snúast til varnar íslensku sjálfstæði, ís- lenskri menningu og til þess þarf samtakamátt allra þeirra sem skynja hættuna. ÓLAFUR ORMSSON, rithöfundur, Eskihlíð 16a, Reykjavík. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljaSt samþykkja þetta, ef ekki fylgir fýrirvari hér að lúlándi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.