Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 46

Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 46
ÍMý farmúla, aukin i/irkni Metol FX1 notað .. m.a. af Nato, JPÍ1| Breska hernum ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Bylting i smurtæhm wais&i-ass /coot-THfiP-r „petta. tni venjuleqir vláskJpta- h»ettir. " GUÐRÚN Kristjana Ragnarsdóttir, Sara Katrín Pálsdóttir, Sif Pálsdóttir og Berglind Gunnarsdótt- ir efndu til hlutaveltu og færðu Styrktarfélagi Krabbameinssjúkra barna ágóðann, 4.223 krónur. Háþróað smurbætiefni, búið til af NASA Víkverji skrifar... j Sex sinnum minna núningsviðnám. J Eldsneytissparnaður 5-20% j Veruleg aflaukning 8-20% j Mun minni utblástursmengun j Allt að 90% minna vélarslit og tæring. j Fullvirk smurning við kaldræsingu vélar. Metol FX1 fæst á öllum smurstöðvum landsins, bensínafgreiðslum Skeljungs og víðar. TVjóðin virðist vera í uppnámi út XT af samgönguvandamálum á Þingvallaleið á þjóðhátíðardaginn. Víkveiji er einn þeirra, sem var við- staddur stofnun lýðveldisins íslands 17. júní 1944. Helzta minning hans frá þeim degi er að sitja fastur í bíl á leiðinni frá Þingvöllum, í roki og rigningu og bíllinn komst ekkert áleiðis vegna samgönguerfiðleika. Þeir samgönguerfiðleikar stöf- uðu af því, að vegakerfið fyrir 50 árum dugði ekki fyrir þann mikla fjölda bíla, sem þá voru á leið til og frá Þingvöllum. Það hefur ekk- ert breytzt á hálfri öld! Hvers vegna ætti eitthvað að hafa breytzt? Það eru að vísu fleiri bílar nú en þá og betri vegir nú en þá, en dugar samt ekki til. Og hér skal því spáð, að hið sama gerist árið 2000, þegar við höldum upp á kristnitökuna. M argrét Þórhildur Danadrottn- ing nýtur sérstöðu í hugum okkar íslendinga, þegar við hlýðum á og fylgjumst með þjóðhöfðingjum annarra Norðurlanda. Hún talar afburða fallega dönsku og flytur mál sitt með augljósri og einlægri hlýju í garð íslendinga. Þessir eigin- leikar komu vel í ljós í ræðu hennar á Þingvöllum. Það er mikil reisn yfir hinni dönsku drottningu og hún hefur nú sem fyrr, þegar við íslendingar höfum séð hana í návígi eignast marga aðdáendur hér á landi. Það var athyglisvert að fylgjast með þeim fagnaðarlátum, sem mættu Vigdísi Finnbogadóttur, þegar hún gekk í ræðustól á Þing- völlum. Ekki fór á milli mála, að forsetinn nýtur mikilla vinsælda með þjóðinni. Enda hefur hún stað- ið sig með miklum sóma í embætti og ef nokkuð er hefur virðing henn- ar aukizt, eftir því, sem liðið hefur á forsetatíð hennar. Eitt skemmtilegasta dagskrár- atriðið á Þingvöllum var söngur barnakórsins undir stjórn Garðars Cortes. Gaman var að fylgjast með piltunum tveimur, sem sungu tvísöng og lítilli stúlku, sem söng einsöng með kórnum. Það þarf mikinn kjark til að standa einn við hljóðnemann frammi fyrir allri þjóðinni og syngja. xxx Steinn Lárusson, framkvæmda- stjóri þjóðhátíðarnefndar hef- ur staðið í ströngu eftir hátíðahöld- in við að halda uppi vörnum vegna samgönguvandamála og hrein- lætisaðstöðu. Það er auðvelt að halda uppi gagnrýni eftir á, en framkvæmdastjóri þjóðhátíðar- nefndar hefur talað fijálslega og hispurslaust um afskipti nefndar- innar af þessum málum og haldið sínum hlut og vel það. PI0NER PLASTBATAR • 6EIRI I DAG með tvöfalda byrðingnum H Skeifunni 13 — sími 91-887660 fax 91-814775 sas EMPARAR PARA- OG PÚSTKERFAÞJÓNUSTAI SKAK Umsjón M a r (i c i r Pétursson INDVERJINN eldsnöggi, Vyswanathan Anand (2.715) sigraði á PCA- atskákmótinu sem haldið var í Kreml í Moskvu í vor. Hann lagði Kramnik að velli í úrslitum, en leiðin þangað var þyrnum stráð fyrir Ind- veijann. Atskákum hans við Ilya Smirin (2.615) frá ísrael í fyrstu umferð lykt- aði 1-1 svo tefla þurfti hraðskák um það hvor þeirra kæmist áfram. An- and hafði svart og dugði jafntefli. Hann lenti í gertöpuðu peðsendatafli, en í þessari stöðu var Smirin að enda við að leika af sér með 66. Kd2-e2?? í staðinn fyrir 66. Kc3! ð seljum mparana g setjum þá í staönum Verslið hjá fagmanninum. Athugið SÉRSMÍDUM PÚSTKERFI Bíbvörubú6in FJÖDRIN Skeifunni 2, verksfæði símí 81 34 70 verslun sími 81 29 44 Nú fann Anand laglega jafnteflisleið: 66. - f3+!, 67. gxf3+ - Kf4, 68. Kel - Kxf3, 69. Kfl - h5, 70. Kgl - Kf4, 71. Kg2 - h4, 72. Kgl - Ke4, 73. Kfl - Kf3, 74. Kel - Kg2!, 75. f4 - Kxh3, 76. f5 - Kg2, 77. f6 - h3, 78. f7 - h2, 79. f8=D - hl=D. Jafn- tefli. Næsta atskákmót PCA fer fram í New York nú í lok júní. Pennavinir ÁTJÁN ára suður-afrísk stúlka með áhuga á tónlist, kvikmyndum, ætlar sér að verða snyrtifræðingur. Fakie Khatoon, P.O. box 5535, Lenasia, 1820 Transwaal, South Africa. GRÍSK 25 ára stúlka með áhuga á dansi, sundi, segl- brettasiglingum, safnar frímerkjum og póstkortum: Tina Koroli, M. Alexandrou 41, 17121 Athens, Greece. DÖNSK 59 ára kona vill skiptast á frímerkjum og spilum: Grethe Jespersen, Skodborg Engvej 4, DK-6630 Redding, Danmrk ÞÝSK kona, 28 ára, jarð- fræðinemi: Anrita Hintenberg, Germaniastrasse 162, 1000 Berlin 42, Germany. LEIÐRÉTT Röng Biblíutilvitnun GÍSLI Jónsson sendir þessa leiðréttingu: í grein minni um árið 1918 (17. júní) urðu mér á þau vondu ritglöp að sítera skakkt í Biblíuna. Texti sr. Haralds Níelssonar 13. okt. var Lúkas 12 o.s.frv., en ekki „Lúkas 22“. Farsi H eir MRE-í SAM- LOkA kr.ZOO^ VELVAKANDI svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Taska tapaðist á Reykjavíkur- flugvelli LÍTIL svört taska tapað- ist á Reykjavíkurflugvelli sl. sunnudagskvöld eftir flug frá Akureyri. Sá sem veit um töskuna er vinsamlega beðinn að hringja í síma 670546. Týnthjól LJÓSBLEIKT þriggja gíra kvenreiðhjól af gerð- inni Kalkoff með svörtu barnasæti aftan á hvarf frá Hólavaliagötu 9 seinnipart sl. sunnudags. Hafi einhver orðið var við hjólið er hann vin- samlega beðinn að hringja í síma 20375 eða 697100. Þórhildur. Filma fannst ÁTEKIN filma fannst við Tjörnina 17. júní. Eig- andi hafi samband í síma 687215. Úr fannst KVENÚR fannst á göngustíg í Heiðmörk að kvöldi 17. júní. Upplýs- ingar í síma 671913. Hlutavelta ÞESSI ÞRJÚ börn efndu til hlutaveltu til styrkt- ar Hjálparsjóði Rauða kross íslands og söfnuðu alls 1.500 krónum. Þau eru, talin frá hægri: Fannar, Guðrún Margrét og Jón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.