Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMl 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Oheimilt að veðsetja haf-
beitarlax sem eldisfisk
Dómurinn hefur áhrif á önnur mál vegna láns til Vogalax
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð skiptaréttar Gullbringusýslu frá
1991 um að hafbeitarlax sé ekki veðhæfur á sama hátt og eldisfiskur.
Um hafbeitarlax gildi sömu veðreglur og um afla, hann má einungis veð-
setja til eins árs, en eldisfisk í kvíum er hægt að veðsetja til lengri tíma.
Vogalax hf. gaf 25. júlí 1989 út
tryggingarbréf til tryggingar
greiðslu skuldar við Verslunarbank-
ann, sem síðar varð hluti íslands-
banka hf. Með tryggingarbréfinu
var allur hafbeitarlax Vogalax hf.
sem endurheimtist sumurin 1989-
1992 veðsettur með 2. veðrétti.
Vogalax hf. var tekinn til gjald-
þrotaskipta 1990 og tók sérstakur
skiptastjóri þá afstöðu að krafa ís-
landsbanka hf., sem þá hljóðaði upp
á 15.818.840 krónur, skyldi njóta
veðsins og greiðast utan skuldarað-
ar. Aðrir kröfuhafar í þrotabú
Vogalax hf. mótmæltu þessari af-
stöðu og var ákveðið að flytja sér-
stakt skiptaréttarmál. Niðurstaða
skiptaréttar var sem fyrr greinir
að veðsetning á hafbeitarlaxi til
fjögurra ára hafi verið óheimil.
Kröfu Islandsbanka hf. var því skip-
að sem almennri kröfu.
Hæstiréttur staðfestir
íslandsbanki hf. skaut málinu til
Hæstaréttar 1991 og krafðist þess
að krafan væri viðurkennd sem
krafa utan skuidaraðar og að auki
málskostnaðar í héraði og fyrir
Hæstarétti. Hæstiréttur dæmdi að
úrskurður héraðsdóms skyldi vera
óraskaður um annað en málskostn-
að. íslandsbanki hf. var dæmdur
til að greiða stefnda 200 þúsund
krónur í málskostnað í héraði og
fyrir Hæstarétti.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Hrafn Bragason, Garð-
ar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir,
Gunnar M. Guðmundsson og Har-
aldur Henrysson.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun þessi dómsniður-
staða væntanlega hafa áhrif á þrjú
önnur mál vegna láns frá Þróunar-
félagi íslands til Vogalax hf. þar
sem íslandsbanki hf. og Féfang hf.
höfðu hvor um sig ábyrgst lánið
að einum þriðja og um sambærilegt
veð var að ræða. Lán þetta var
árið 1990 alls tæpar 43 milljónir
króna.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðfríður
meistarí
GUÐFRÍÐUR Lilja Grétarsdóttir er
íslandsmeistari kvenna í skák. Guð-
fríður Lilja sigraði í gærkvöldi í ein-
vígi við Guðnýju Hrund Karlsdóttur
um titilinn.
Tefla átti 4 skákir í einvíginu sem
hófst á laugardag og átti því að ljúka
í dag. Guðfríður Lilja sigraði þrjár
fyrstu skákimar og var því ljóst í
gærkvöldi að hún hreppti titilinn.
Á heimstíminu
SVALBARÐAMÁLIÐ verður rætt
á fundi ríkisstjórnarinnar í dag
samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Togarinn Drangey
sést hér á heimstíminu í gær, en
flestir íslensku togaramir sem
verið hafa við Svalbarða era á
heimleið. Nokkur skip héldu í
Smuguna. Haldin verða sjópróf í
þeim tilvikum sem sló í brýnu
með norskum varðskipum og ís-
lenskum togurum.
■ Mikil heppni/17
NTB
Dollarinn fellur
Lækkun
spáð hér
á landi
„GENGI íslensku krónunnar
lækkar væntanlega eitthvað með
dollaranum gagnvart þýsku
marki," sagði Eiríkur Guðnason
Seðlabankastjóri í gærkvöldi
þegar hann var inntur eftir
áhrifum af lækkandi gengi
Bandaríkjadollars á gjaldeyris-
mörkuðum.
Eiríkur sagði erfitt að spá
nákvæmlega fyrir um áhrif af
falli dollarans, en hann vegur
18% í gengiskörfu krónunnar,
ECU 76% og japanska jenið 6%.
Reikna má með eitthvað lægi'a
dollaragengi hér á landi. „Þetta
veldur vonbrigðum hjá þeim sem
velta fyrir sér efnahagsmálum í
heiminum. Flestir áttu von á
sterkari dollar með jákvæðri
efnahagsþróun í Bandaríkjun-
um,“ sagði Eiríkur.
■ Dollar lækkar/17
Forseti
heilsar
Björk
BJÖRK Guðmundsdóttir hélt vel
heppnaða tónleika í Laugardals-
höll á sunnudag, en tónleikana
hélt Smekkleysa s.m. hf. í sam-
vinnu við Morgunblaðið. Áhorf-
endur i Laugardalshöll voru á
sjötta þúsund og kunnu þeir vel
að meta að Björk söng lögin með
íslenskum textum en ekki ensk-
um eins og á tónleikum sínum
víða um heimsbyggðina. Fyrr
um daginn sáu á áttunda þúsund
manns Björk stökkva í fallhlíf
niður á gervigrasið í Laugar-
dalnum, þar sem hún söng síðan
fyrir mannfjöldann. Meðal gesta
á tónleikunum í Laugardalshöll
var frú Vigdis Finnbogadóttir
forseti Islands og ræddust þær
Björk við drjúga stund eftir tón-
leikana. Sagði Vigdís tónleikana
hafa verið skemmtilega.
■ Annir hjá Björk/24
Höfuðpaur stóra fíkniefnamálsins hlaut 4V2 árs fangelsi
15 dæmdirog
3 sýknaðir
Fallhlífar-
stökkvari
slasaðist á
Sandskeiði
FALLHLÍFARSTÖKKV ARI
slasaðist á Sandskeiði rétt
um miðnætti í gærkvöldi.
Um 10 metrafall
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins mun fallhlífarstökkv-
arinn hafa fallið sem svarar
10 metrum og slasast talsvert.
Kallað var á sjúkralið og
lögreglu og var hinn slasaði á
leið á slysadeild Borgarspítal-
ans þegar blaðið fór í prentun.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 15 manns til fangels-
isvistar en sýknaði þijá af ákærum
um aðild að stóra fíkniefnamálinu,
sem snerist um ætlaðan innflutning
á allt að 40 kg af hassi og 6 kg
af amfetamíni.
Meintur höfuðpaur málsins,
Ólafur Gunnarsson, 39 ára, var
dæmdur í 410 árs fangelsi. Hann
var sýknaður af 4 af 13 ákæru-
atriðum en dæmdur fyrir aðild að
innflutningi á 19,6 kg af hassi og
1.8 kg af amfetamíni og tilraun til
innflutnings á um 900 grömmum
af amfetamíni til viðbótar.
Þorgeir Jón Sigurðsson, 30 ára,
var dæmdur til 3 V2 árs fangelsis-
vistar fyrir aðild að innflutningi á
18.8 kg af hassi og 1,9 kg af am-
fetamíni.
54 ára gamall maður hlaut 22
mánaða fangelsi fyrir að hafa bor-
ið inn til landsins 7,3 kg af hassi
og 800 g af amfetamíni.
Ellefu manns til viðbótar hlutu
60 daga til 18 mánaða fangelsis-
dóma.
Tvær konur í hópi ákærðu voru
sýknaðar af ákærum um að hafa
tekið að sér að bera fíkniefni inn
til landsins.
I gær var einnig felldur dómur
í máli sænsks ríkisborgara sem
sakaður var um aðild að misferli
hinna. Hann hafði verið framseldur
til landsins meðan málið var á rann-
sóknarstigi og handtekinn að nýju
í Svíþjóð og sendur til landsins eft-
ir að málið kom fyrir dóm. Hann
var sýknaður af öllum ákærum.
Ríkið greiði 10 af 12 milljónum
til verjenda
Með dómi Héraðsdóms var ríkis-
sjóður dæmdur til að greiða 10
milljónir króna af þeim rúmu 12
milljónum sem vetjendum sakborn-
inganna voru dæmdar í málsvarn-
arlaun, þar á meðal 40% af máls-
varnarlaunum Ólafs Gunnarssonar,
25% af málsvarnarlaunum 4 sak-
borninga, 90% af kostnaði annarra
sem sakfelldir voru að hluta en öll
málsvarnarlaun þeir/a sem alfarið
voru sýknaðir greiðast úr ríkissjóði.
í dómi Héraðsdóms segir að þátt-
ur sumra ákærðu í málinu hafi
verið lítill og hefði í sumum tilvik-
um verið heimilt að Ijúka þætti
þeirra í samræmi við ákvæði rétt-
arfarslaga um játningamál. Þyki
því ósanngjarnt að dæma þá sem
sakfelldir hafi verið að til að greiða
málsvarnarlaun að öllu leyti.
í málinu voru alls 18 manns
sakaðir um innflutning á nær 40
kg af hassi og 6 kg af amfetamíni.
■ Höfuðpaurinn/6