Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 11 FRÉTTIR í HOLLENSKA hópnum, sem hér dvelur, eru frá vinstri: Hans Meuwese útlitshönnuður, Jan Cornelis Waas tölvufræðingur, Jakob J.F. Visser fararstjóri og lögfræðingur í hollenska heil- brigðisráðuneytinu, Larissa K. M. Gabrielse starfsmaður í ABN Ambrobanka og Halla A. van Der Lindenlarsen lögfræðingur yfirstjórnar hollenskra vatnsveitna. útskriftargjöf í tilefni af merkum CLfoLngcL -ýhá--- RAYMOND WEIL GENEVE 1 meBajl ÚR OG SKARTGRIRIR KRINGLUNNI Hollenskir Rótarýfélagar sælga íslend- inga heim HÉR A landi er nú staddur fimm manna hollenskur hópur á veg- um Rótarýumdæmisins á ísiandi, sem ferðast um landið í einn mánuð tii að kynna sér land og þjóð. Eitt af markmiðum Rótarý- hreyfingarinnar er að auka kynni og skilning á milli ólíkra þjóða með námshópaskiptum. Islenskur hópur tvær konur og tveir kariar, dvaldi í Hollandi í aprilmánuði, undir forystu Ei- ríks Sigurðssonar í Rótarýklúbbi Mosfellsbæjar, en þátttakend- urnir voru frá Akureyri, Hafnar- firði og Vestmannaeyjum. Hollendingarnir dvelja hér hjá rótarýfélögum í I3þæjarfélög- um á ferð sinni um Island. Þátt- takendur í námshópaskiptum eru allt ungt, efnilegt fólk sem komið er út í atvinnulífið að ioknu námi og hefur áhuga á að víkka sjóndeildarhring sinn. Vélaverk- fræði kynnt VÉLAVERKFRÆÐISKOR Há- skóla íslands heldur árlegan kynn- ingarfund í tilefni útskriftar nýrra verkfræðinga, í dag, fimmtudaginn 23. júní kl. 16-18 í húsakynnum verkfræðideildar, 2. hæð VR II við Hjarðarhaga. Til þessarar stuttu samkomu eru boðnir véla-, rekstrar- og skipaverkfræðingar á íslandi, sem og öðrum sem tengst hafa skor- inni eða sýnt starfi hennar áhuga. Markmiðið er að kynna starfsemi og stefnu skorarinnar og heyra við- brögð þeirra og eiga um það skoð- anaskipti yfir léttum veitingum. Þjóðhátíð endursýnd SJÓNVARPIÐ og þjóðhátíðarnefnd hafa ákveðið að sýna valda kafla úr sjónvarpsdagskránni 17. júní. Endursýning verður sunnudaginn 26. júní nk. kl. 12.45. Austurlensk teppi og mottur Mikið úrval, m.a. stór persnesk teppi og óvenjulegar stærðir. Sérfræðingar í hreinsunar- og viðgerðarþjónustu. Verðmetum gömul teppi og mott- ur. Stamt mottuundirlag. R. L. Rose & Co, Unit 3A, Yorkhill, Quny, Glasgow. Opið 7 daga vikunnar. Vinsamleg- ast hringið fyrir heimsókn, SÍmi90 44 41 248 3313. Mr. Scruton, söluráðunautur, verður á Hótel Sögu föstudaginn 24. júní í herbergi 725 og veitir allar nánari upplýsingar. PEUGEOT 306. A SER ENGAN LIKA! PEUCEOT Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600. Það er margt sem aðrir bflar eiga sameiginlegt með Peugeot 306. Spegill Þér fínnst kannski eins og allir bílar í dag séu eins. En ef þú lítur aðeins í kringum þig í stað þess að fljóta með straumnum sérðu að til er bíll sem er ekki eins og allir hinir. Bíll sem er öðruvísi. Bíll sem sem sker sig úr fyrir fágað yfirbragð sitt og góða hönnun. Bíll sem þú ert alltaf öruggur í. Bíll með eiginleika sem þú fínnur hvergi annarsstaðar. Bíll sem þú nýtur að aka, hvert sem er, hvenær sem er. Þessi bíll er Peugeot. Peugeot á vissulega margt sameiginlegt með öðrum bílum, en hann skarar einnig framúr í mörgu. Þeir sem kynnst hafa Peugeot þekkja það. Peugeot er eins og sniðinn fyrir íslenska vegi. Mjúkur, stöðugur, sparneytinn og sætin eru frábær. Hvað kostar þá að vera öðruvísi? Minna en ekki neitt. Hvernig líst þér t.d. á vel búinn, 5 dyra Peugeot 306 á kr. 1.088.000.- Framrúða 4 dekk Þak / Felga Bretti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.